Morgunblaðið - 16.07.1959, Qupperneq 14
14
MORCVNBLAÐIB
Fimmtudagur 16. júlí 1959
FerSaskrifstofan efnir til
•_•
Orœfa-ferða um helgar
Hænsnabú
ásamt einbýlishúsi óskast til
kaups í nágrenni Reykjavík-
ur, Kópavogs eða Hafnarfjarð
ar. Má vera jörð. Einnig kem
ur til mála kaup á einbýlis-
húsi með stórri lóð eða góður
sumarbústaður. Uppl. í síma
23627.
Peningamenn
Hver getur lánað kr. 250 þús.
í hálft ár. Góðir vextir. Örugg
trygging, 1. veðréttur í fast-
eign. Til greina kemur félagi i
arðbæru fyrirtæki. — Tilboð
merkt: „Öryggi — 9462“, send
ist Mbl. •
G A A S T E N
Husholdningsskole
Danmark
Viðurkenndur af ríkinu, með
kennslu í vefnaði og ba: naupp-
?ldi. Skipulagður eftir nýjustu
tízku. í fögru umhverfi.
5 mánaða námskeið. Frá 4.
marz og 4. maí. Skólaskrá send-
ist.. Hægt er að sækja um styrk.
Olga Reppien og Ebba Drewes.
ÞÓ Öræfin séu einhver hinn stór-
brotnasti og fegursti staður hér-
lendis hafa fáir ferðamenn kom-
izt þangað. Einangrun Öræfanna
hefur valdið því að ferðalög þang
að hafa yfirleitt verið löng og
ströng. En löngum hefur menn
langað til að komast á þennan
sérstæða stað og því efnir Ferða-
skrifstofan nú til helgarferðar
Ferðaskrifstof-
unni hefur tek-
izt að fá Sigurð
Þórarinsson jarð
fræðing til að
annast farar-
stjórn í ferðum
þessum og ætti
það eitt að vex-a
trygging fyrir
skemmtilegri
ferð. Ferðunum verður hagað
sem hér segir:
Laugardag. Flogið verður aust
ur í Öræfin rétt eftir hádegi, en
deginum síðan varið til þess að
skoða nokkra forvitnilega staði:
Fyrst verður ekið út í Ingólfs-
höfða. Þaðan er fögur fjallasýn
allt til Mýrdalsfjalla í vestri og
Vestra Horns í austri. Síðan verð-
ur haldið að Fagurhólsmýri, þar
sem einh'ver hressing verður
framreidd.
Skoðaðar verða minjar hinna
stórfelldu náttúruhamfara, sem
aleyddu héraðið á 14. öld, komið
við í torfkirkjunni gömlu að Hofi
og litast um á Svínafelli, bæ
Brennu-Flosa, en þar þykir sér-
kennilega fagurt bæjarstæði
Loks verður gengið á Svínafells-
jökul sem nær niður í byggð og
þaðan haldið í náttstað að Skafta
felli seint um kvöldið.
Sunnudag. Farið verður í Bæj
arstaðaskóg, sem er einn fegursti
skógarblettur á íslandi og stend-
ur í jaðri Skeiðarársands. Einnig
verður umhverfi Skaftafells skoð
að. Á Skaftafellsheiðinni eru
margir fagrir staðir, fossar og
lækjargil skógi vaxin, enda er
þetta veðursælasti staður á land
inu. Um kvöldið verður flogið til
Reykjavíkur. — Þátttakendur
þurfa að hafa með sér nesti.
Samkomur
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 8,30. —
Ræðumenn: Kristín Sæmunds.
og Jónas Jakobsson. — Næsta
sunnudag kl. 8,30 talar margt
æskufólk. Árni Arinbjarnarson
leikur á fiðlu. Allt æskufólk, sem
og allir aðrir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Samkoma í kvöld kl. 20,30. —
Kaptein Ona talar. — Velkomin.
Félagslíl
Landsmót 2. fl. A (A-riðill)
á Háskólavellinum fimmtudag-
inn 16. júlí.
ÍA—ÍBH kl. 21,15.
Miðsumarsmót 4 fl. B
á KR-vellinum fimmtudaginn
16. júlí.
Valur—Fram kl. 20.
Landsmót 3. fl. (B-riðill)
á KR-vellinum fimmtudaginn
16. júlí.
Þróttur—iBÍ kl. 21.
Mótanefndin.
Meistaramót Reykjavíkur
hefst 21. júlí n.k. með keppni
í tugþraut og 10000 metra hlaupi.
22. júlí fer fram seinni hluti tug-
þrautar og 3000 metra hindrun-
arhlaup. Þátttökutilkynningar
berizt til FÍRR að Hólatorgi 3
fyrir n.k. sunnudag. - Mótanefnd.
K.F.R.
Körfuknattleiksæfingar eru r.
þriðjudögum og föstudögum kl.
18.30 á íþróttavellinum.
Stjórn K.F.R.
Frá Ferðafélagi íslands
Á laugardag tvær níu daga
sumarleyfisferðir. önnur ferð-
in er í Herðubreiðarlindir, skoð-
aðir fegurstu staðir Norðurlands
svo sem Mývatnsöræfi, Hólma-
tungur, Hljóðakletta, Dettifoss,
Ásbyrgi. Hin ferðin Fjallabaks-
vegur um Landmannalaugar, Eld
gjá, Núpsstaðaskóga, Grænalón.
Fjórar IV2 dags ferðir í Þórs-
mörk, í Landmannalaugar, Kerl-
ingarfjöll og Þórisdal.
Upplýsingar í skrifstofu félags
ins Túngötu 5 sími 19533.
Skemmtiferð til Grænlands
Flugfélag íslands efnir til skemmtiferða til
Grænlands sunnudagana 19. júlí og 2. ágúst
Flogið verður til Flugvallarins í Ikateq og
höfð þar 7 til 8 tíma viðstaða. Almenningi
býðst hér einstakt tækifæri til að heimsækja
Grænland og sjá með eigin augum hina stór-
brotnu og hrikalegu náttúrufegurð lands-
ins.
Aðeins örfá sæti laus í ferðinni 19. júlí.
H júkrunarkona
Hjúkrunarkona eða kona vön meðferð sjúkra, óskast
til að hlynna að eldri hjónum, um óákveðinn tíma.
Kaup eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 24455.
Husqvarna
iðnaðar — saumavél
til sölu. Uppl. í dag á Grettisgötu 54 milli kl. 6—8.
Sími 14032.
Chevrolet motor V.8.
nýlegur til sölu. Passlegur í Garathvörubíla.
Upplýsingar í sma 24102.
SIGURÐUR SIGTRYGGSSON.
Þórsmerkurferð
laugardag.
Byggingameistarar — Byggingafélög
óska eftir samvinnu um byggingu hluta af f jölbýlis-
húsi (8 íbúðir). Hef mjög góða lóð og get útvegað
nokkurt fé til framkvæmdanna. Tilboð merkt: „Víð-
sýnt — 9461“ sendist afgr. fyrir þriðjudag.
8 daga ferð um Sprengisand
og Veiðivötn, sunnud. 19. júlí.
★
13 daga ferð um Sprengisand,
Öskju, Akureyri og Hveravelli,
miðvikudag. 22. júlí.
★
5 daga ferð í Veiðivötn, mið-
vikudag. 22. júlí.
★
Ferðaskrifstofa Páls Arasonar
Hafnarstræti 8, sitni 17641.
Styrkir til
rithöfrnida
STJÓRN Rithöfundasambands
líslands hefur úthliutað starfs-
styrkjum til 5 rithöfunda af fé
því, sem menntamálaráð hefur
látið sambandinu í té í því skyni.
Þessir hljóta styrkina í ár:
Guðmundur L. Friðfinnsson,
Einar M. Jónsson, Einar Bragi,
Hannes Pétursson og Stefán Hörð
ur Grímsson.
Þeir hlutu 3000 krónur hver.
«----------------------------
Crímur Ólafsson - kveðja
Á MÁNUDAGINN var kvöddum
við litla vininn okkar Grím.
Við nágrannarnir eigum nú að
baki að sjá 6 ára ljóshærðum
snáða, sem var hvers manns hug-
Ijúfi, fremur hlédrægur, en hýr
og kátur við vini sína og mikill
dugnaðarmaður.
Eins og að líkum lætur, liggja
ekki mörg stórvirki, á söguleg-
an mæiikvarða, að baki þessa 6
ára prúðmennis, en margar hug-
ljúíar og fagrar endurminning-
ar geymast hjá okkur, sem áttu
hann að leikfélaga.
Það er oft erfitt að fóta sig á
hinum dýpri rökum þessarar
veraldar, sem við erum stödd 1
og hér brestur okkur algerlega
skilnmg.
Ég sá þennan unga vin okkar
að leik inni á lóðinni við dyr
foreldra sinna örfáum mínútum
áður en sproti dauðans snart
hann á stað, sem allir hefðu talið
hættulausan.
Hver er skýringin?
Grímur litli var í skóla ísaks
Jónssonar s.l. vetur og stóð sig
þar vel, enda höfðu fljótt komið
ljós hjá honum óvenju góðar
gáfur og hnittin tilsvör, sem oít
hafa skemmt vinum hans.
Grímur var yngstur barna
Ólafs Ólafssonar og Sigrúnar Ey-
þórsdóttur .konu hans. Barnahóp-
urinn er óvenjulega mannvæn-
legur, en nú sterxdur eftir stórt
skarð þegar yngsti ástvinurinn
er horfinn.
Sá, sem sjálfur hefur ekki orð-
ið fyrir því að missa barn sitt,
getur ekki gert sér grein fyrir
þeim ógnar harmi, sem nú þjak-
ar þau hjón og systkinahópinn
stóra, sem misst hefur elskuleg-
an bróður.
Það er bæn mín, að sá, sem
ræður lífsgöngu okkar hér í
heimi, styrki ástvini Gríms litla
alla til að þau fái aftur að hitta
þennan ástvin sinn glaðan og
blíðlyndan eins og hann var hér
í heimi, hvers manns hugljúfi.
Við kveðjum þig að sinni, litli
vinur, nágrannarnir, bæði ungir
2 herb. og eldhús
óskast til leigu 1. október
næstkomandi. Talsverð fyrir-
framgreiðsla getur komið til
greina. íbúð í fullkomnu á-
standi kemur aðeins til greina.
Leigutilboð óskast send í póst-
hólf 502 hið fyrsta.
2 herb. og eldhús
óskast til kaups. Útborgun kr.
300.000,00. Ibúðin sé í góðu
húsi og í fyrsta flokks á-
standi og laus til íbúðar 1.
október næstkomandi. — Nán
ari upplýsingar óskast sendar
afgreiðslu Mbl. strax, merkt:
„B — 9460“. __________
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er ' gtum ódýr-.ra að auglýsa
í Morgunblaðinu, en í öðrum
blöðum. —
JHorgunfcla&iö
og gamlir og þökkum þér sam-
veruna, bjarta en stutta.
Guð blessi þig í þínum nýju
heimkynnum. — B. S.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 8
inum, gagnstætt því, sem áður
var talið. Stutt hvíld án svefns
er yfirleitt nóg til þess að hvíla
vöðvana. Sérstakar tilraunir hafa
sýnt, að mjólkursýrumyndunin
eykst ekki verulega við langar
vökur. — Börn þurfa meiri svefn
en fullorðnir — ekki fyrst og
fremst vegna þess, að þau hafa
yfirleitt meiri hreyfingu og reyna
þannig tiltölulega meira á vöðv-
ana en hinir fullorðnu, heldur
af því, að þau hugsa raunveru-
lega meira, og tilfinningalíf
þeirra er næmara. Heimur þeirra
er fullur af hvers kyns nýjungum
og áköfum tilfinningum, og slíkt
þreytir einmitt heilann meira en
nokkuð annað.
★
Okkur er orðið það ljóst, að
svefn er afleiðing efnabreytinga
í taugavefjum, á sama hátt og
efnabreytingar í vöðvum valda
líkamlegri þreytu. En við vitum
ekki, hvar þær breytingar ger-
ast í hinum þreytta heila.
Eigi alls fyrir löngu tilkynntu
þeir dr. Robert Galambos og dr.
Gabriel Nahas, sem starfa við
Walter Reed-stofnunina, að þeir
hefðu uppgötvað, að efni, sem-'
lengi hafi verið notað við fram-
leiðslu ýmissa hreinsunarefna,
hefði einnig þá eiginleika að
varna þreytu og létu jafnframt
í ljós þá skoðun, að það kynni að
geta hjálpað mönnum, sem þurfa
að vaka lengi í einu, að halda
fullri árvekni. — En slíkt lyf
mundi í hæsta lagi draga komu
svefnsins á langinn. Önnur lyf
kunna að finnast, sem betur mega
— sem raunverulega minnka
svefnþörfina, þannig að við þurf-
um ekki lengur að eyða a. m. k.
þriðja hluta ævi okkar í með-
vitundarleysi svefnsins. —
Talið er, að við 8 stunda svefn
sofi menn aðeins um 2 stundir
reglulega djúpt — hinn tímann
blundi menn aðeins og séu raun-
verulega nær vöku en svefni. Ef
lyf fyndist, sem gæti látið okk-
ur sofa djúpt þegar í stað og
ur sofna djúpt tvær stundir, væri
það e. t. v. nóg. Sennilega er það
eitthvað slíkt, sem rússnesku vís-
indamennirnir hafa í huga, þegar
þeir tala um, að afkomendur
okkar muni ekki sofa meira en
tvær stundir á sólarhring. Slíkt
er óneitanlega skemmtileg til-
hugsun, því að það jafngilti því
að meðalaldur manna lengdist
upp í um það bil 95 ár.
★
Hvað sem öðru líður, er það
víst, að maðurinn mun breyta
svefnvenjum sínum í þessa átt,
jafnskjótt og hann finnur ráð til
þess. Fyrr eða síðar munu vísind-
in valda byltingu á þessu sviði i
anda þeirra orða, sem Edison lét
sér um munn fara á sínum tíma:
„Svefninn er arfur frá þeim
tíma, er maðurinn bjó í heilum.
Þegar sólin gekk til viðar, var
ekkert hægt að aðhafast — nema
sofa. Nú, þegar við höfum feng-
ið rafmagnsljós, ætti að vera kom
inn tími til að breyta út af þess-
ari fornu venju.“