Morgunblaðið - 16.07.1959, Síða 16
VEÐRID
NA-kaldi og þurrt veður.
Skólagarðarnir
Sjá grein á bls. 9.
150. tbl. — Flmmtudagur 16. júlí 1959
Katalina laskaðist í
lendingu á Flateyri
KATALÍNAFLUGBÁTI Flugfé-
lags íslands hlekktist lítillega á
vestur á Flateyri í fyrrakvöld.
Fékk hann „harða lendingu“ og
löskuðust við það botnlúgur und-
ir nefhjólinu, svo að ekki var
hægt að setja hjólið niður, þegar
suður kom. Lenti flugbáturinn
því á Skerjafirði og var dreginn
á land. Flugstjóri í þessari ferð
var Haukur Hlíðberg.
Katalína var í farþegaflugi til
Lingeyrar og Flateyrar. Var hún
búin að koma við á Þingeyri og
var að lenda við Flateyri, þegar
óhappið varð. Þetta var um átta
leytið. Sjór var spegilsléttur og
veður hið fegursta. Þegar hún
snerti sjávarflötinn fékk hún
skell á nefið.
Kom einhver leki að flugbátnum
og var því engin viðdvöl höfð
vestra heldur farið samstundis á
loft aftur og til Reykjavíkur.
Með flugvélinni voru 15 far-
þegar, sumir á leið til Flateyrar,
aðrir frá Þingeyri' til Reykjavík-
ur — og komu þeir allir suður.
Vegna þess, að ekki var hægt
að opna botnlúguna undir fram-
hjólinu gat flugvélin ekki lent á
Reykjavíkurflugvelli. Var nokkr-
um sinnum flogið yfir völlinn —
og menn á jörðu niðri reyndu að
athuga skemmdir.
Um kl. 9,30 um kvöldið lenti
Katalína svo á Skerjafirði. Var
hún tekin á land þegar í stað og
flutt upp í flugskýli Flugfélags-
ins á flugvellinum. Hægt var að
opna lúguna að utan verðu og
koma hjólinu niður — og
skemmdir því ekki ýkjamiklar.
En þessi Katalínabátur er hinn
eini, sem Flugfélagið hefur nú í
förum. Flugsamgöngur við Vest-
firði og Siglufjörð múnu því
leggjast niður þar til viðgerð er
lokið — og búizt er við, að það
verði um helgina, varla síðar en
á mánudag.
í áætlun Flugfélagsins eru
ferðir alla virka daga til ísa-
fjargar, tvær ferðir í viku til Pat-
reksfjarðar, Þingeyrar, Flateyrar
og Siglufjarðar — og ein vikuleg
ferð til Hólmavíkur.
ÞESSI mynd er af Consul-bíln-
um, sem lenti í árekstri á Miklu-
braut sl. mánudagskvöld. Eins og
sést á myndinni er hann stór-
skemmdur. Ford-bíllinn, sem á
honum lenti, skemmdist einnig
mikið. (Ljósm.: Jean Jensen)
Brezki sendi-
herrann kominn
aftur
BREZKI sendiherrann hér,
Andrew Graham Gilchrist, kom
til landsins aftur í fyrrakvöld.
Eins og kunnugt er, hefur harin
dvalið í Bretlandi um þriggja
mánaða skeið að undanförnu.
íslenzkur stúden! kynnir sér
æðri menntun í Sovétríkjunum
Stúdentcuráð tekur á móti umsóknum um
þátttöku í upplýsinganámskeiði
„ítölsk að gerð
og efniw
BLAÐINU barst í gær yfirlýsing
frá Rolf Johansen vegna frétta-
tilkynningar Neytendasamtak-
anna um Smart Keston-peysu-
skyrtuna. Segir þar að þetta sé
ítölsk uppfynding, sem hlotið
hafi miklar vinsældir hér á landi
eins og víðar í Evrópu. Peysu-
skyrtan sé ítölsk að gerð og efni,
úr ítölsku garni, en framleidd í
fiestum löndum Vestur Evrópu
og víðar.
„Þess skal svo að lokum getið“,
segir í yfirlýsingunni, „að forráða
menn Neytendasamtakannaverða
að sjálfsögðu látnir sæta ábyrgð
fyrir dómstólum fyrir frum-
hlaup sitt og ofstæki".
STÚDENTARÁÐ Háskóla ís-
lands hefur ákveðið að taka boði
um að senda 1 fulltrúa til þátt-
tcku í upplýsinganámskeiði um
„Æðri menntui. í Sovétrikjun-
um“, sem haldið verður á vegum
sovézkra stúdentasamtaka í
Moskvu dagana 10.—16. septem-
ber næstkomandi.
íslenzka þátttakandanum verð
ur séð fyrir ókeypis húsnæði og
fæði meðan námskeiðið stendur
Mikil síldveiði lijá
Olafsvíkurbátum
ÓLAFSVÍK, 15. júlí. — í gær var
ágætis síldveiði hjá Ólafsvíkur-
bátum. Aflinn var góður og jafn,
frá 130—260 tunnur. Hér lönduðu
8 bátar í gær, þar af 7 heima-
bátar. Aflahæstur var Þórður
Ólafsson með 265 tunnur.
í dag var einnig ágætis afli, en
þó nokkru minni en í gær. Fengu
b'átarnir 115—160 tunnur. Afla-
hæstur var Þórður Ólafsson rneð
160 tunnur. Síldin sem nú veiðist
er mjög góð á þessum tíma, og
hefur farið dagbatnandi síðustu
viku. Ef þessu heldur áfram,
mætti fara að salta hana, en sölt-
un er ekki leyfð hér. Daglega eru
frystar um 400 tunnur af síldinni,
sem hingað berst, en hitt fer í
bræðslu. Síldarverksmiðjan tek-
ur til starfa um helgina.
Grasspretta er hér sæmileg.
Sláttur byrjaði almennt viku af
júlí, og hefur heyskapartíð verið
sæmileg síðan. — Bjarni.
yfir, og ferðakostnaður hans
milli Leningrad og Moskvu fram
og til baka verður greiddur af
aðstandendum námskeiðsins. Um
frekari styrki vegna fararinnar
er óvíst.
Þeir stúdentar, sem óska að
taka þátt í námskeiði þessu af
stúdentaráðs hálfu, skulu senda
því umsóknir sinar fyrir þ. 20.
þ.m.; umsóknir, sem síðar berast,
verða ekki teknar til greina. Ut-
anáskrift er; Stúdentaráð Há-
skóla íslands, Reykjavík. — Nán
ari upplýsingar um námskeiðið
mé fá hjá formanni stúdentaráðs
í síma 15959 eða 13136.
Surprise laskast við að
rekast á ísjaka
Afli oð glæðast við Nýfundnaland
HAFNARFIRÐI — Um síðustu
helgi barst útgerð Einars Þorgils-
sonar & Co skeyti frá togaranum
Surprise, sem er á veiðum við
Nýfundnaland, þess eðlis, að tog-
arinn hefði rekizt á ísjaka á laug-
ardagsmorgun með þeim afleið-
ingum að hann varð að leita hafn
ar í St. Johns. Var það um sólar-
hrings sigling, og komst togarinn
þangað af sjálfsdáðum.
Ekki liggja enn fyrir upplýs-
ingar um hve skemmdir hafa orð-
ið miklár eða annað um orsök
árekstursins, en telja má víst að
þær hafi ekki verið sérlega mikl-
ar, því að í skeyti segir að Sur-
prise muni halda aftur á veiðar
í dag, 16. júlí. Ekki varð heldur
slys á mönnum.
Samkvæmt fréttum af Ný-
fundnalandsmiðum hefur afli þar
glæðzt síðustu daga. Hefur frétzt
að togarinn Júní sé lagður af
stað þaðan með fullfermi. — G.E.
Síldorskipin héldu ú Digrunes-
fluk í gærkveldi
MBL. átti tal við fréttaritara sinn
á Raufarhöfn seint í gærkvöldi og
skýrði hann svo frá, að skömmu
áður hefðu borizt fregnir um síld
á Digranesflaki suður af Langa-
nesi. Voru fimm skip byrjuð að
kasta, þar á meðal Guðmundur
Þórðarson, sem fengið hafði ágætt
kast. Þegar fregnir bárust um
síld á þessum slóðum komst held-
ur hreyfing á síldarflotann og
var búizt við að hann mundi
halda þangað hið bráðasta. All-
gott veður var á miðunum og
betra en norðan Langaness.
Talstöðvar togar-
anna jfirgnæía
alveg
D
RAUFARHOFN, 15. júlí. — Bæði
íslenzk og norsk fiskiskip verða
nú nær daglega fyrir truflunum
í samtölum bæði sín í milli og við
land. Eru truflanirnar frá her-
skipinu „Duncan“ og brezkum
togurum, sem eru að veiðum hér
um slóðir. Talstöðvar togaranna
eru mun sterkari en bátanna og
yfirgnæfa þá því alveg, jafnvel
þótt þeir talist ekki við á ná-
kvæmlega sömu bylgjulengd.
Þá skeði það einnig í gær, er
starfsmenn talstöðvarinnar hér
voru að tala við síldarskipin á
sömu bylgjulengd og síldarleitar-
flugvélin notar, að dynjandi tón-
list var skyndilega send út á
bylgjunni, svo að ógerlegt var að
heyra mannsins mál um hríð.
Ekki er vitað með vissu, hvaðan
truflun þessi hefur komið, en
hún hefði vissulega verið sér-
staklega bagaleg, ef síldarleitar-
flugvélin hefði verið að gefa bát-
unum upplýsingar. — Einar.
SIGLUFIRÐI, 15. júlí. — Minna
er saltað hér í dag en undanfar-
ið, sökum þess að í nótt gekk
hann yfir með austan bi-ælu og
tók því fyrir veiði á vestursvæð-
inu. í gær var saltað í 8816
tunnur og voru hæstar söltunar-
stöðvarnar íslenzkur fiskur 1043
tunnur og Pólstjarnan 1008 tunn
ur uppsaltaðar. Fitumagn þeirr-
ar síldar, sem veiddist ú Þistil-
firði, var 19,6%. Samtals hafa
þá verið saltaðar hér 34795 tunn-
ur. — Um 40 skip hafa lagt hér
upp síld í bræðslu, sum aðeins
örfá mál önnur allt að þúsund
málum. — Guðjón.
★
HÚSAVÍK, 15. júlí. — Saltað var
í dag á Húsavík. Þórkatla GK 120
tunnur, Hagbarðui 300 og Helgi
Flóventsson 250. Þetta er fyrsta
sildin sem söltuð er hér.
— Fréttaritari.
★
RAUFARHÖFN, 15. júlí. — í dag
hafa landað hér Þorbjörn 400 mál
um, Sæíaxi NK 450, Þórunn 500,
Grundfirðingur 300, Trausti 500,
Stella 300, Sæhrímir 50, Hvanney
40 og Björn Jónsson 400. Nokkrir
bátar losa nú síld til söltunar.
Þokubræla er á miðunum nú síð-
degis og hafa bátar leitað í land-
var. — Einar.
Ferða-
deíld
FERÐADEILD Heimdallar efnir
til hópferðar í Landmannalaugar
um næstu helgi. Lagt verður aí
stað kl. 2 e.h. laugardaginn 18.
júlí, frá Valhöll.
Farseðla skal panta í síma
17102. Pantanir sækist fyrir kl. 7
á föstudagskvöld.
Austur þýzku bátarnir bera mun
minna en menn höfðu vœnzt
Toga vel í stilltu veðri en næmir íyrir ágjöf
ÞAÐ hefur nú komið í ljós, að
250 tonna bátarnir frá Austur-
Þýzkalandi bera hvergi nærri
það magn, sem búizt hafði
verið við. — Eru þeir drekk-
hlaðnir með tæp 150 tonn eða
um 1300 mál síldar og bera
svipað magn af síld og 110
tonna bátarnir, sem fyrir
voru.
Morgunblaðið átti tal við frétta
ritara sína á Bolungarvík, Dalvík,
Siglufirði og Raufarhöfn í gær
og innti sérstaklega eftir reynslu
af þessum austur-þýzku bátum.
Var það samhljóða dómur frétta-
manna, að bátar þessir hefðu
reynzt sæmilega vel á togfiski í
stilltu veðri, en væru blautir eða
næmir fyrir ágjöf og eins bæru
þeir ekki nema rúman helming
þess sem menn höfðu ætlað.
Lítið útsýni úr stýrishúsi
Fréttaritari Mbl. á Raufarhöfn
kvaðst hafa skoðað austur-þýzka
bátinn, sem þangað var keyptur,
Jón Trausta. Kvað hann mæling-
una liggjr. í byggingu skipsins of-
an þilja, og til að vega upp á móti
hinni þungu yfirbyggingu væru
40 tonn af sementssteypu í kjöln-
um. Rými í vélarrúmi væri lítið
og illt, en þar væri fyrirkomið
miklu af vönduðum tækjum.
Stýrishúsið kvað fréttaritarinn
mjög gallað þar eð gluggar væru
svo lágt að meðalmaður sæi
ekki nema niður á þilfarið ef
hann stæði þar inni uppréttur.
Væri helzt svo að sjá sem stýris-
húsið væri gert fyrir Japani eða
Kínverja.
Þess má geta til samanburðar,
að eldri bátar, sem gefnir eru
upp fyrir 170 tonn eins og Ingvar
Guðjónsson á Siglufirði og Snæ-
fellið á Akureyri bera allt að
2000 mál síldar eða allmiklu
meira magn en nýju austur-
þýzku bátarnir.