Morgunblaðið - 08.08.1959, Page 2
2
MORCUNBLAÐtÐ
Laugardagur 8. ágúst 1959
Ölóður maður veitist að dönskum
hjónum og Páli Zophoníassyni
alþm. er hugðist skakka leikinn
Smánarlegf athæfi við erlenda full-
trua á ráðstefnu hér i bænum.
Árásarmaðurinn kveðst ekkert muna
vegna ölvunnar sinnar
EINN hinna dönsku fulltrú? á]
norrænu bændaráðstefnunni sem
hér hófst á fimmtudaginn, varð
þá um kvöldið, ásamt konu
sinni, fyrir líkamsárás. Drukkinn
maður réðist á hjónin fyrir utan
Framsóknarhúsið, og er þau
flýðu aftur inn í samkomuhúsið,
veittist hann enn á ný að hinum
danska manni, er meiddist illa.
Þá réðist hann einnig, í æðiskast-
inu, á þriðja manninn, Pál
Zophoníasson alþingismann, sem
hugðist skakka leikinn, en árásar
maðurinn sló Pál þá í andlitið.
Páli, sem er aldursforrseti Al-
þingis, tókst eigi að síður að snúa
svolann niður, en hann er maður
á bezta aldri. Skömmu síð-
ar komu lögreglumenn á vett-
vang og handtóku árásarmann-
Dönsku hjónin sem hér um ræðir
eru Kjærgaard forstjóri og kona
hans. Kjærgaard forstjóri var
við rúmið í gær, vegna þess að
árásarmaðurinn sparkaði í fót-
legg hans.
I gærkveldi sendi sakadómara-
embættið svohljóðandi frásögn af
þessum atburði:
Búnaðarfélag Islands hélt í gær
kveldi veizlu í Framsóknarhús-
inu fyrir fulltrúa á þingi Bænda-
samtaka Norðurlanda og fleiri
gesti. Hófi þessu lauk um kl.
23,30 og bjuggust gestir þá til
brottferðar, þeirra á meðal voru
dönsk hjón. Þau gengu nú niður
sundið milli Framsóknarhúss-
ins og Fríkirkjunnar, en þar
varð mjög drukkinn maður á
vegi þeirra. Hjónin skiptu sér
ekki af manninum og hugðust
ganga leiðar sinnar, en maður-
inn vék sér þá að þeim og ávarp
aði þau einhverjum orðum, en
ekki skildu hjónin hvað maður-
inn sagði. Er þau svöruðu engu
greip drukkni maðurinn í annan
handlegg danska mannsins og
hugðist stöðva hann. Sá danski
kippti að sér handleggnum og
losaði sig, en þá greip sá
drukkni enn í þann danska og
náði taki á jakka hans og hélt hon
um. Aftur tókst hinum, danska
manni að losa sig, en í því hann
var að losna, sló drukkni maður-
inn til Danans, en kona hans, sem
komin var bónda sínum til aðstoð
ar, varð fyrir högginu, sem lenti
á andliti hennar vinstra megin.
Er hér var komið hörfuðu hjón-
in undan til anddyris samkomu-
hússins og kallaði Dar.inn til
stúlkunnar í fatageymslunni og
bað hana um að hringja til lög-
reglunnar. Drukkni maðurinn
hélt hins vegar á eftir hjónunum
inn í anddyrið, var hann þá mjög
æstur að sögn sjónarvotta. Veitt-
ist hann nú enn að dönsku hjón-
unum, en er maðurinn snerist til
varnar, sparkaði drukkni maður
inn i fótlegg hans og gat fellt
hann. Páll Zophoníasson, alþing-
ismaður, sem þarna var nær-
staddur, hljóp nú til og hugðist
skakka leikinn og fá þann ölvaða
til þess að láta af barsmíð sinni
og fara út úr húsinu, en árásar-
maðurinn veittist þá að Páli, eins
og öðrum, sem hann hafði náð
Dagskrá Alb'mgis
FUNDUR hefur verið boðaður i
sameinuðu þingi í dag kl. 13.30,
og er dagskrá svohljóðandi:
1. Niðurgreiðsla á landbúnaðar
vörur, þál.till. (Hvernig ræða
skuli).
2. Verðtrygging spariíjár þál.
till. — Fyrri umræða.
til. Skipti þá engum togum að
hann sló Pál í andlitið. Brotnuðu
við það gleraugu Páls og sprakk
fyrir á vinstri augabrún hans. —
Eigi að síður tókst Páli að koma
manninum í gólfið og halda hon-
um niðri þar til nokkrir gest-
anna, sem í anddyrinu voru,
komu Páli til aðstoðar og héldu
þeir síðan manninum þar til lög
reglan kom á vettvang og hafði
manninn á brott með sér.
Dönsku hjónunum og Páli var
síðan ekið í slysavarðstofuna,
þar sem gert var að meiðslum
þeirra. Hafði konan hlotið all-
mikua bólgu á vinstri vanga og
upp undir augað við högg árás-
armannsins, en við árásina mun
konan hafa fengið lost/Eiginmað
ur hennar hafði hins vegar hlot
ið brot á öðru fótleggsbeini
hægra megin. Páll hlaut skurð
neðan við vinstri augabrún auk
þess sem sprungið hafði fyrir á
munnslímhúð, en gleraugu hans
brotnuðu í árásinni eins og fyrr
segir.
Árásarmaðurinn, Jens Þórðar
son, sem setið hefur í haldi síðan
hann var handtekinn í gær-
kveldi, hefur borið fyrir sig al-
geru minnisleysi um málsatvik
ekki véfengt á nokkurn hátt sak
ir þær, sem á hann eru bornar.
Hann kveðst harma tiltæki sitt
og hefur lýst sig reiðubúinn að
bæta að fullu þann skaða, sem
hann hefur valdið. Jens hefur
ekki verið dæmdur áður en hef-
ur 4 sinnum gengizt undir sekt-
argreiðslu með dómssátt fyrir
ölvun á almannafæri.
Framangreindar upplýsingar
eru byggðar á frumrannsókn í
máli þessu, sem rannsóknarlög-
reglan hefur haft með höndum
í dag, en dómrannsókn í málinu
hefst í kvöld.
(Fréttatilkynning frá saka-
dómar aembættinu).
Úr Hellisgerði
BœjarútgerSin tók við
rekstri Fiskiðjuversins
KLUKKAN eitt í gærdag tók
Bæjarútger? Reykjavíkur við
rekstri fiskiðjuversins á
Grandagarði, sem bæjarsjóð-
ur keypti á dögunum af
ríkinu.
Maiteinn Guðjónsson, skip-
stjóri á Þorkeli mána mun veita
hraðfrystihúsinu forstöðu fyrir
Bæjarútgerðina og á þessum
fyrsta degi eftir að húsið varð
bæjareign, var tekinn þar til
vinnslu karfi úr togaranum Þor-
keli mána. Ennfremur kom í gær
af veiðum togarinn Jón Þorláks-
son, en afli hans mun hafa ver-
ið orðinn það gamall, að hann
fór að mestu eða öllu leyti til
bræðslu. — Um þessa helgi koma
fleiri togarar af veiðum og verð-
ur, ef skipin verða heppin með
farma sína, mikil vinna í hrað-
frysti’húsunum næstu daga. —
Tögarinn Hallveig Fróðadóttir
og Þorsteinn Ingólfsson komu af
veiðum í gær. í gærkvöldi var
blaðinu kunnugt um að togara-
afgreiðslan, sem annast losun á
afla tógaranna, vantaði marga
menn til starfa. I dag eða á morg-
un koma af veiðum til viðbótar
Jón forseti, Hvalfell og Askur.
Skemmtun í Hellis-
gerði á morgun
HAFNARFIRÐI, _ Á morgun kl.
2,30 heldur Málfundafélagið
Magni sína árlegu skemmtun i
Hellisgerði. Eins og undanfarin
ár, verður þar fjölbreytt skemmti
skrá og einnig mun Lúðrasveit
Hafnarfjarðar leika í garðinum.
Hefst hátíðin með ræðu, sem
Jóhann Þorsteinsson. forstjóri
flytur, en áíðan mun okkar ágæti
söngvari, Sigurður Björnsson,
syngja og B'rynjólfur Jóhannes-
son leikari flytja gamanþátt. Eitt
hvað fleira verður ef til vill til
skemmtunar.
Hellisgerði skartar nú sínum
fegursta skrúða og sækir þangað
Miklar heyannir víða
um sveitir í gær
SELJATUNGU, 7. ágúst. —
í dag er afbragðs-þurrkur, en
skúrir voru í gær, og því ekki
hægt að sinna heyi til gagns.
— Aftur á nióti er harla verk-
drottning
r
a
von á barni
Fögnuður um gervallt
Bretaveldi
LONDON.7. ágúst — Elízabeth
Englandsdrottning á von á þriðja
barni sínu snemma á næsta ári.
Fregn þessi var birt í Bucking-
ham höllinni í dag — og fagnað
innilega um allt brezka heims-
veldið. Drottningin, sem nú er 33
ára, ól yngra barn sitt fyrir níu
árum.
★
Bæði drottningin og Filip prins
hafa alltaf þráð að eignast fleiri
börn — og þau eru bæði mjög
hamingjusöm, sagði blaðafulltrúi
drottningar, er hann tilkynnti
hvernig komið var. Drottningin
mun ekki koma opinberlega fram
fyrr en einhvern tíma á miðju
næsta ári, en hún á von á barn-
inu í febrúar n. k.
★
Af þessum sökum mun hún
ekki fara í opinbera heimsókn
til V-Afríku á næstunni, eins
og áætlað hafði verið — og heim-
sóknum til Skotlands, Shetlands ! átti níu börn. Anna drottning
og Orkneyja verður einnig skot- (1702—1714) átti þó flest börn,
ið á frest. eða 17.
Orðrómur um að þannig væri
ástatt fyrir drottningu komst á
kreik á dögunum, er hún kom
í skyndi úr Kanadaförinni fyrr
en ætlað hafði verið. Af opin-
berri hálfu var orðrómurinn
kveðinn niður — og í fréttinni
í dag sagði, að mjög fáir hefðu
vitað þetta utan fjölskyldunnar,
meðal þeirra voru Diefenbaker,
Eisenhower og Nkruma.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvar drottning mun ala barn sitt,
en hún dvelst nú á sveitasetri
ásamt fjölskyldu sinni og er við
beztu heilsu.
★
Ef barnið verður piltur mun
hann ganga næstur á eftir
Charles prinsi að ríkiserfðum —
og Anna prinsessa, sem er 8 ára
mun þá verða þriðja. Ef það
verður hins vegar stúlka, munu
börn Elízarbethar og Filips
ganga að ríkiserfðum eftir aldurs
röð, en Margrét prinsessa, syst-
ir Elizabethar verður hin fjórða
í röðinni.
Síðasti kvenmaðurinn, sem
réði ríkjum í Bretlandi á undan
Elízabethu var Victoria, en hún
legt um að litast í sveitinni í
dag — alls staðar verið að
vinna í heyi, flytja heim eða
sæta. — Það hefir líka held-
ur hækkað brúnin á bændun-
um, og er nú vonazt eftir
þurrki sem lengst.
En þótt þurrkurinn endist ekki
nema fram yfir helgina, ætti það
Framh. á bls. 15.
Eisenhower
fil London
28. ágúst
WASHINGTON 7. ágúst: Eisen-
hower forseti mun fara til fund-
ar við Macmillan í Londan hinn
28. ágúst — og de Gaulle mun
hann hitta í París 2. september.
Var þetta tilkynnt samtímis í
París, Londor og Washington í
dag — og fylgdi það fréttinni, að
leiðtogarnir mundu ræða helztu
vandamálin á alþjóðavettvangi.
Ekkert hefur enn verið ákveðið
um það, hvort Adenauer kanslari
kemur til London eða Parísar til
þess að hitta forsetann, eða hvort
Eisenhower fer til Bonn til þess
að ræða við v-þýzka leiðtogann.
Ekki er heldur tilgreint í tilkynn
ingunni, hve lengi Bandaríkjafor
seti dveljist í Evrópu.
Viðræður þessar verða hinar
mikilvægustu og sem kunnugt er
til undirbúnings fundum þeirra
Eisenhowers og Krúsjeffs, sem
kemur í Bandaríkjaheimsóknina
15. september.
fjöldi fólks dag hvern. Var unn-
ið mikið í vor og sumar að fegr-
un Gerðisins, og hvíldi það verk
eins og undanfarin ár á þeim
Ingvari Gunnarssyni umsjóna-
manni Hellisgerðis og Sigvalda
garðyrkjumanni. Er allt skipu-
lagt eins og bezt verður á kosið
og öll umgengni um Gerðið með
ágætum. — Er ekki að efa að
mikill msmnfjöldi verður þar á
morgun, en allur aðgangseyrir
rennur í að fegra Hellisgerði. Að
sjálfsögðu verður skemmtunin
ekki haldin nema veður verði
hagstætt. — G. E.
— Herlögregla
Framh. af bl. 1.
skal það tekið fram, að í vamar-
samningnum við Bandaríkin er
það skýrt tekið fram, að varnar-
liðsmenn og skyldulið þeirra
skuli hlíta íslenzkum lögum, og
er þar m. a. s. sérstaklega tekið
fram, að í einu og öllu skuli þeir
hlíta íslenzku umferðarlöggjöf-
inni.
Á meðan á þófinu stóð þarr.a
við varðskýlið, kölluðu viðstadd-
ir yfirmenn úr varnarliðinu út
allstóran flokk herlögreglu, 30 tii
40 manns. Komu þeir þegar á
vettvang, flestir vopnaðir skamm
byssum og rifflum, og umkringdu
varðskýlið, þar sem deilan stoð.
Að lokum varð það, að sam-
komulagi, að farið skyldi með
konuna til hersjúkrahússins á
flugvellinum, en þar hefir verið
venja að framkvæma blóðrann-
sóknir, þegar til þess hefir komið.
— En þegar til hersjúkrahússins
kom, neitaði konan enn harðiega
að láta taka sér blóð. — Þarna
voru aðeips þrír íslenzkir lög-
reglumenn til staðar, og er þeir
hugðust færa konuna til bioð-
rannsóknar niður í Keflavík,
hindraði hin vopnaða herlögregla
það, en íslenzku löggæzlumenn-
irnir gátu að sjálfsögðu ekki að
gert.
Á fimmtudagsmorguninn var
þegar send skýrsla um atburð
þennan til utanríkisráðherra
*
Björn Ingvarsson, lögreglu-
stjóri, tók það fram í samtali
sínu við blaðið að hér væri um
algerlega einstæðan atburð að
ræða, því að samvinna við varnar
liðið um löggæzlu hafi ætíð verið
mjög góð. Mætti hér sennilega aS
einhvrju leyti kenna um ókunn-
ugleika nýrra yfirmanna varnar-
liðsins, sagði Björn Ingvarssoh að
lokum-