Morgunblaðið - 08.08.1959, Blaðsíða 3
Laugardagur 8. águst 1959
MORCUTVBLAÐ1Ð
3
L JÓSMYNDARI Mbl. Ó. K M.
var staddur úti á Reykjavikur
flugvelli í gærdag þegar þátt-
takendur á þjóðhátiðina í Vest
mannaeyjum voru að Ieggja
af stað þangað með Faxanum,
sem fór kl. hálf fjögur. Margt
manna beið í afgreiðslunni,
þegar kallað var, að farþegar
til Vestmannaeyja mættu
ganga um borð í vélina. En
málið var ekki eins einfalt og
myndin að ofan sýnir.
Stiginn tekinn í burtu, hurð-
inni lokað og vélin sett í gang.
En hvað er þetta Annar hreyf-
illinn er stöðvaður og Henning
Bjarnason flugmaður kallar
eitthvað út um gluggann til að-
stoðarmanns á flugvellinum. —
Er eitthvað að?
Von Brentano
ánægður
BON, 7. ágúst — Von Brentano,
utanríkisráðherra V-í>ýzkalands,
sagðist í dag fagna mjög fyrir-
huguðum viðræðum þeirra Eisen-
howers og Krúsjeffs.
Farþegarnir eru komnir um borð í vélina, þegar ung stúlka
kemur aðvífandi og segir við flugfreyjuna, Valgerði Vals-
dóttur: — Guð minn góður, á ég að vera með þessari vél?
Flugfreyjan brosir og athugar farþegaskrána: — Nei, þér
eigið að fara með næstu ferð.
Góðar frettir
fyrir íhalds-
.nenn
EONDON 7. ágúst: — Fregnin
um að Bretadrottning eigi von
á barni hefur haft mikil áhrif —
jafnvel á stjórnmálaviðhorfið.
Vitað er, að Macmillan hefur ver
ið í kosningahugleiðingum — og
ýmsir hafa spáð haustkosning-
um.
Hins vegar virtist sem ekki
yrði um annað að ræða en að
hafa kosningarnar í október, því
fyrirhuguð var opinber heim
sókn drottningar til V-Afríku síð
ar í haust — og að drottningu
fjarstaddri er ekki hægt að rjúfa
þing og efna til kosfiinga. Þegar
Afríkuför drottningar hefur hins
vegar verið slegið á frest, gefst
Macmillan tækifæri til að efna
til kosninga í nóvember, en það
er af mörgum talinn heppileg-
asti tíminn fyrir íhaldsmenn. M.
a. í sambandi við fund Eisen-
howers og Krúsjeffs, en þó fer
það auðvitað eftir árangrinum af
þeim viðræðum.
Stórsprenglng
á miðri götu
NEW YORK, 7. ágúst — í dag
varð geysimikil sprenging í smá-
bæ einum í Oregon fylki í Banda
ríkjunum, með þeim afleiðingum
að 9 menn létu lífið og yfir 50
særðust. Vörubifreið hlaðin
sprengiefni var ekið fram hjá
húsi, sem kviknað hafði £. Á
bílpallinum voru tvær lestir af
dynamiti og hálf fimmta lest af
nitrati. Þegar bíllinn fór fram
hjá húsinu læstist eldur í bílinn
og sprakk hann þegar í loft upp.
Miklar skemmdir urðu á nálæg-
um húsum, m. a. sjúkrahúsi, sem
stóð í 800 metra fjarlægð — og
vart var heil rúða eftir í öllu
þorpinu. Mikill eldur gaus upp
— og breiddist um nágrennið
svo að brunalið réði ekkert við
hann í fulla tvo tíma. Meðal
þeirra, sem fórust var lögreglu-
þjónn, sem stóð á gangstéttinni,
við umrætt hús, þegar spreng-
ingin varð. Hafa engar leyfar
fundizt af honum.
Tignoimenn
gistn Skinnn-
stnð
RAUFARHÖFN, 7. ágúst —
Biskupinn, herra Sigurbjörn
Einarsson, vísiteraöi hér í dag,
en hann er nú á vísitazíuferö
um Norður-Þingeyjarprófasts-
dæmi. Var prófasturinn, Páll
Þorleifsson á Skinnastaö, í för
með biskupi.
Biskup flutti stólræðu og
talaði til safnaðarins frá alt-
ari eftir messu, en prófastur
inn þjónaði fyrir altari. —
Kirkjan var þéttsetin prúð
búnu fólki — og má segja, að
þetta hafi verið hátíöardagur
hér á Raufarhöfn.
Biskup vísiterar næst Víði-
hólskirkju á Hólsfjöllum, á
morgun, en í nótt mun hann
gista hjá séra Páli á Skinna-
stað. — En séra Páll og kona
hans eiga von fleiri gesta í
kvöld. Forsetinn, Ásgeir Ás-
geirsson, sem er að koma að
austan, hefir sem sé beiðzt
þar gistingar í nótt.
Verður kvöldvakan 7. ágúst
1959 væntanlega lengi í minn-
um höfð á Skinnastað.
WASHINGTON 7. ágúst: —
Sextán öldungadeildarþingmenn
demokrata hafa birt áskorun til
Bandaríkjastjórnar, þar sem far
ið er þess á leit, að hún biðji
frönsku stjórnina að hefja friðar
samninga við uppreisnarmenn í
Alsír. —
I ljós hefur komið, að ekki er sæti handa öllum farþegunum,
sem komnir eru um borð í vélina. Flugfreyjan kallar upp nöfn
þeirra og við nánari athugun er einum farþega of margt í vél-
inni og hann er vinsamlegast beðinn um að ganga í land aftur,
eins og myndin sýnir. En vonandi hefur frúin komizt með
næstu vél — á þjóðhátíðina.
Sjá ennfremur 16. siðu.
STAKSTIINAR
Framsókn eini sanni
vinstri flokkurinn
í þingræðu, sem hinn nýkjörnl
þingmaður Framsóknarflokksins
í Reykjavík hélt fyrir skömmu,
komst hann m. a. þannig að orði,
að eiginlega væri Framsóknar-
flokkurinn eini sanni vinstri
flokkurinn í landinu. Honum
væri þess vegna, einum treyst-
andi til þróttmikillar baráttu
við Sjálfstæðisflokkinn og bæri
öllu vinstra fólki því að fylkja
sér um hann.
í þessu sambandi liggur beint
við að minna á það, að á undan-
förnum árum hefur Framsókn-
arflokkurinn lagt á það megin-
áherzlu að hann væri „frjáls-
lyndur miIIiflokkur“. En nú er
svo komið, að Framsóknarmenn
halda því Sjálfir fram, að flokk-
ur þeirra sé í raun og veru hinn
„eini sanni vinstri flokkur** í
landinu. ,
Kommúnistar fokreiðir
Kommúnistar hafa reiðzt þess-
um ummælum Framsóknarþing-
mannsins, sem jafnframt er rit-
stjóri Tímans, ákaflega. Þeir hafa
til þessa talið sig sem helztu
málsvara vinstri stefnunnar í ís-
lenzkum stjórnmálum. Það sætir
því engri furðu þótt þykkni
nokkuð í „Þjóðviljanum“ þegar
Framsóknarflokkurinn gerist allt
í einu svo djarfur að telja sig
„hinn eina sanna vinstri flokk“!
Af tilefni þessarra kenninga
Framsóknarmanna hefur „Þjóð-
viljinn“ tekið flokk þeirra all
rækilega til bænar og m. a. bent
á margvísleg svik þeirra við
vinstri stefnuna í fyrrverandi
ríkisstjórn. Nefnir „Þjóðviljinn“
atferli Olíufélagsins h.f. og und-
irfyrirtækja þess sem dæmi þess,
hvernig ráðherrar Framsóknar-
flokksins í vinstri stjórninni hafi
framkvæmt vinstri stefnuna.
Kemmst „Þjóðviljinn" þá m. a.
að orði um þetta á þessa leið:
„Leiðtogar Framsóknarflokks-
ins höfðu ekki áhuga á því að
aflétta arðráni olíuhringanna af
þjóðinni, heldur vildu þeir aðeins
fá að taka sinn fulla þátt í arð-
ráninu. Olíufélagið h.f. hefur á
undanförnum árum haft forystu
í því að reyna að halda verðlagi
á olíu og benzíni sem hæstu og
sjálfir ráðherrar Framsóknar-
flokksins hafa gengið fram fyrir
skjöldu til þess að tryggja sem
mestan gróða þessa auðsöfnun-
arfyrirtækis, og þar með auð-
vitað einnig olíuhringa íhaldsins.
En þetta hefur ekki nægt Oliu-
félaginu. Það hefur aftur og aft-
ur verið staðið að því að brjóta
lög, framkvæma hreinan þjófn-
að til þess að hagnast sem 'mest,
og ekki hefur staðið á Tímanum
og leiðtogum Framsóknarflokks-
ins að verja það athæfi“.
„Stofnuðu hermangs-
fyrirtæki“
Ekki er þetta falleg lýsing fyr-
verandi samstarfsflokks á hin-
um „eina sanna vinstri flokki“.
En „Þjóðviljanum“ finnst þó
ekki nóg að verið. í forystugrein
sinni í gær heldur hann áfram
að lýsa atferli Framsóknar-
manna í vinstri stjórninni og
kemst þá m. a. að orði á þessi
leið:
„Þeir notuðu fjármuni Sam-
bands ísl. samvinnufélaga til
þess að tryggja sér helminga-
skipti á gróðanum af niðurlæg
ingu íslands. Og þannig mætti
nefna eitt dæmið af öðru, ekkert
er svo auðvirðilegt að það verði
leiðtogum Framsóknarflokksins
ekki að kappsmáli, ef það getur
aðeins fært gróða“.
Þetta er það veganesti, sem
Framsóknarflokkurinn fær frá
fyrrverandi samstarfsflokki sin-
um í vinstri stjórninni.