Morgunblaðið - 08.08.1959, Síða 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 8. ágúst 1959
r'
Fyrstu umræðu efri cleildar
um kjördæmamálið lauk í gær
Frumvarpið öðlast lagagildi, fyegar
meðferð Jbess jbar lýkur
Islenzka fegurðardrotlningin í heimsókn lijá landa ■inmn,
leikaranum Pétri Rögnvaldssyni, í kvikmyndaveri Xwenteeth
Century Fox. Hann er að benda henni á hvar hann á að drepa
þorparann í kvikmyndinni „Leyndardómar Snæfellsjökuls".
íslenzk fegurðardrottning og
íslenzknr kvikmyndaleikori
kittast
STJÓRNARSKRÁRFRUM-
VARPIÐ um breyting á kjör-
dæmaskipuninni var til 1.
umræðu á fundi efri deild-
ar í gær, en að því búnu var
frumvarpinu vísað til ann-
arrar umræðu og stjórnar-
skrárnefndar.
Fyrsta umræða efri deildar 1144
Forsætisráðherra, Emii Jóns-
son, fylgdi frv. úr hlaði og rifj-
aði m. a. upp við það tækifæri, að
í kosningum þeim, sem efnt var
til, eftir að síðasta Alþingi hafði
samþykkt frumvarpið og þing
verið rofið, skv. fyrirmælum
stjórnarskrárinnar, hefðu þeir
flokkar, sem vitað var, að voru
breytingunni fylgjandi, hlotið
nær % hluta greiddra atkvæða
— en andstæðingar þess aðeins
fengið stuðning rúmlega 14 kjós-
enda. — Neðri deild hefði nú
afgreitt málið öðru sinni og skorti
nú aðeins samþykki þessarar
deildar, til þess að frumvarpið
öðlaðist lagagildi.
Meginverkefni þingsins
Hf.nn hvatti einnig þingdeildar
nienn til þess að stuðla að því,
að málið fengi sem skjótasta af-
greiðslu, og kvaðst líta svo á, að
þegar það hefði verið samþykkt,
ásamt kosningalagafrumvarpinu,
sem því fylgdu, væri meginverk-
efni þessa þings lokið. Stjórnar-
skrárnefnd deildarinnar hefði
þegar fengið tækifæri til að at-
huga málið og ætti það, til við-
bótar þeim kunnugleik, sem
þingmenn hefðu haft á málinu
fyrir, að geta orðið til þess að
það fengi fljóta og góða af-
greiðslu, eins og ráðherrann
komst að orði.
Pólitískir hrekkir
Hermann Jónasson tók næstur
til máls og kvað pólitískum
hrekkjum hafa verið beitt, tii
þess að koma í veg fyrir, að kosn-
ingarnar gæfu rétta mynd af
þjóðarviljanum. Af þeim sökum
væri ástæða til að láta fram fara
Xiýja þjóðaratkvæðagreiðslu um
málið, og þyrfti það ekki að tefja
fyrir væntanlegum kosningum í
haust. Ennfremur sagði hann, að
í þessu máli væri verið að spinna
þræði, til þess að vefja úr tjald-
búðir fyrir stjórnarsamstarf
þeirra flokka, sem að breyting-
unni stæðu.
Allir vissu um afstöðu flokkanna
Emil Jónsson sagðist síðan af
gefnu tilefni vilja leggja sér-
staka áherzlu á það, að allir þeir
kjósendur, sem greitt hefðu at-
kvæði einhverjum þeirra flokka,
sem að breytingunni standa,
hefðu mátt ganga út frá því, að
flokkarnir mundu hafa sömu af-
stöðu til málsins á síðara þing- j
inu. Það væri því mjög fjarri I
því, að nokkrir „pólitískir hrekk-
ir“ hefðu verið hafðir í frammi.
Öll þjóðin hefði vitað, hvað um
var að ræða. Komið hefði verið
beint framan að henni með þessa
breytingu, og henni því verið
ljóst, að um hana hefði verið
kosið fyrst og fremst. Þó að rætt
hefði verið um önnur mál jafn-
framt, eins og alltaf hlyti að
verða t. d. á þingmálafundum,
breytti það ekki því, að allir
stuðningsflokkar breytingarinn-
ar hefðu fyrir kosningarnar gefið
skýlausa yfirlýsingar um afstöðu
sína til hennar. Þó að einstakir
fylgismenn þessara flokka hefðu
að einhverju leyti verið and-
vígir breytingunni, hefðu þeir
óhjákvæmilega hlotið að gera
sér grein fyrir því, að með því
að greiða einhverjum hinna
þriggja flokka atkvæði sitt, væru
þeir að greiða fyrir því, að mál-
ið fengi sömu afgreiðslu og á
fyrra þinginu. Málið hefði því
verið lagt fyrir á fullkomlega
eðlilegan hátt.
Bernharð StefánSson kvað fram
bjóðendur Alþýðuflokksins og
Alþýðubandalagsins hafa rætt
mest um það á framboðsfundum
í sínu kjördæmi, hvor væri
meiri verkalýðsflokkur og hvor
væri meiri svikari. Sjálfstæðis-
menn hefðu gagnrýnt vinstri
stjórnina og varað við annarri
slíkri. Sagði hann, að það væri
úrelt aðferð að leita eftir vilja
kjósendanna í almennum kosn-
ingum, enda þótt það væri í fuli-
komnu samræmi við ákvæði
stjórnarskrárinnar.
Meðferð málsins
Síðan ræddi B. S. um mikil-
vægi þess, að vanda vel til stjórn-
arskrárbreytinga og reyna að ná
helzt samkomulagi allra flokka,
en vék því næst að meðferð þessa
máls og frumvarpsins um bréyt-
inguna á kosningalögunum.
Kvaðst ræðumaður telja að mun
heppilegri vinnubrögð hefðu
verið, að láta síðarnefnda frum-
varpið koma til umræðu í efri
deild fyrst, svo að hún hefði ekki
þurft að bíða aðgerðarlaus eft-
ir að kjördæmabreytingin yrði
afgreidd frá neðri deild.
Hann kvaðst annars álíta það
hreint hneyksli, að stjórnar-
skránni væri nú breytt, án þess
að um heildarendurskoðun væri
að ræða, eins og allir stjórnmáia-
flokkar hefðu eftir stofnun lýð-
veldisins lofað að fram skyldi
fara. í því sambandi vísaði hann
á bug staðhæfingum um það, að
sérsjónarmið Framsóknarflokks-
ins að því er kjördæmaskipanina
snerti, hefðu þurft að koma í veg
fyrir að endurskoðunin færi
fram, og taldi alrangar.
Þröngt á þingi
Að lokum minntist BS á það,
að þegar Alþingishúsið var
byggt, árið 1881, hefðu þingmenn
aðeins verið 36 að tölu, og síðan
þeim hefði fjölgað, hefðu vinnu-
skilyrði í þinghúsinu verið mjög
slæm og nær óbærileg síðustu
árin. í haust, þegar þingmenn
yrðu væntanlega orðnir 60 sköp-
uðust enn aukin vandræði vegna
þrengsla í húsinu og væri jafn-*
vel vafasamt, hvort unnt yrði að
finna öllum sæti á þingfundum,
nema gripið yrði til sérstakra ráð
stafana. Hann kvað fyrrverandi
þingforseta hafa byrjað að kanna
möguleika á úrbótum og æskti
upplýsinga um það, hvað nú væri
fyrirhugað í þessum efnum. Vék
hann sérstaklega að áformaðri
ráðhúsbyggingu Reykjavíkurbæj
ar á næstu grösum við þinghúsið
og kvað það skoðun sína, að rikis
stjórnin ætti að gangast fyrir laga
Vilja samninga-
leiðina
GRIMSBY 7. ágúst: — Norð-
menn og Bretar munu reyna að
leysa landhelgismálið á skyn-
samlegan og rólegan hátt, sagði
varaformaður fiskveiðinefndar
Stórþingsins í Grimsby í dag. —
Það var við málsverð, sem sam-
tök útgerðarmanna héldu norskri
þingmanna-sendinefnd, að norski
þingmaðurinn viðhafði þessi um-
mæli. Hann sagði ennfremur, að
leysa bæri öll deilumál við samn
ingaborðið, verndun auðæfa hafs
ins væri brennandi vandamál um
allan heim. ■ i
setningu sem bannaði bænum að
„eyðileggja miðbæinn með því að
byggja ráðhús úti í tjörninni."
Eggert Þorsteinsson, forseti
deildarinnar, upplýsti, að þegar
hefðu verið gerðir tillöguupp-
drættir að breytingum, sem kapp
kostað yrði að ljúka fyrir haustið
a. m. k. til bráðabirgða.
Heildarendurskoðunin
Vilhjálmur Hjálmarsson kvaddi
sér síðast hljóðs og ræddi í upp-
hafi máls síns um nauðsyn þess
að heildarendurskoðun stjórrar-
skrárinnar yrði hraðað. Ástæðan
til þess að hún hefði dregizt á
langinn, væri áreiðanlega ekki
hvað sízt sú, að flokkamir hefðu
verið önnum kafnir við undir-
búning þeirra fjölþættu fram-
fara, sem orðið hefðu í landiau,
síðan endurskgðunin var ákveðin
1944, auk þess sem efnahagsmálin
hefðu reynzt þung í vöfum.
Það væri fyrst nú að 3 stjórn-
málaflokkanna hefðu skyndilega
komið sér saman um að breyta
kjördæmaskipaninni einni. Tók
ræðumaður svo tii orðs, að flokk-
unum hefði að sjálfsögðu verið
skylt að leita sem víðtækastrar
samvinnu um málið, en til Fram-
sóknarflokksins hefði hins vegar
aðeins verið leitað til máia-
mynda. Engin ástæða hefði verið
til að hraða breytingunni svo
sem gert hefði verið. Og ýmsar
þjóðfélagsaðstæður, svo sem land
helgismálið og efnahagsmálin,
mæltu gegn því, að kveikja á
þessu ári ófriðarbál tveggja kosn-
inga.
Stjórnlagaþing ekki gallalaust
Þá vék VH að þeim möguleika,
að sérstöku stjórnlagaþingi væri
falið að fjalla um breytingar á
stjórnarskránni, og kvað það ekki
tryggja, að áhrifa stjórnmála-
flokka gætti ekki við málsmeð-
ferðina, en drægi þó úr líkunum
fyrir því. Mikilvægt væri að fá
fram óháða skoðun þjóðarinnar
á slikum málum, en það hefði
löngum reynzt erfitt. Sterkar lík-
ur kvað hann benda til þess, að
kosningarnar hefðu ekki nema .
að litlu leyti snúizt um kjördæma
breytinguna.
Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs,
og fór því að svo búnu fram at-
kvæðagreiðsla um að vísa málinu
til annarrar umræðu og stjórnar-
skrárnefndar. Var það fyrrnefnda
samþykkt með 10 atkv. gegn 6.
að viðhöfðu nafnakalli, en hitt
mótatkvæðalaust.
ÁÐUR en gengið var til dagskrár
í neðri deild Alþingis í gær,
kvaddi Hannibal Valdimarsson
sér hljóðs og bar fram fyrirspurn
í tilefni atburðar þess, sem skýrt
er frá á öðrum stað í Mbl. í dag
er flokkur bandarískra hermanna
á Keflavíkurflugvelli hindraði
islenzka löggæzlumenn þar í að
sinna skyldustörfum sínum.
Ef fregn þessi væri að ein-
hverju leyti röng eða villandi,
kvað hann fyllstu ástæðu tií þess
að utanríkisráðherra gæfi skýrslu
um hið sanna í málinu. Ef mns
vegar farið væri rétt með, væri
hér um svo alvarlegan atburð að
ræða, að full ástæða væri til að
ráðherra gerði þingheimi grein
fyrir, hvaða ráðstafanir hann
hyggðist gera, til þess að slíkir
NÝLEGA fékk fegurðardrottn-
ingin, Sigríður Þorvaldsdóttir,
sem dvelst í Kaliforníu að af-
lokinni fegurðarsamkeppninni á
Langasandi, að horfa á landa
sinn leika í kvikmynd. Það er
Pétur Rögnvaldsson eða Peler
Ronson, eins og hann er kallaður
þar í landi, sem um þessar mund-
ir er að leika í mynd eftir sögu
Jules Vernes „Leyndardómur
Snæfellsjökuls“ fyrir Twentieth
Century Fox. Pétur leikur fylgd-
armanninn Hans, sem er eitt af
aðalhlutverkunum í myndinni.
Meðleikarar hans eru Pat Boone,
Arlene Dahl og James Mason,
atburðir endurtækju sig ekki.
Atburður þessi, ef sannur væri,
jafnaðist á við framferði brezkra
herskipa í íslenzkri fiskveiðilög-
sögu að undanförnu, nema hvað
hér kæmi nýr aðili til sögunnar
Þórarinn Þórarinsson tók undir
þessi tilmæli og sömuleiðis Lúð-
vík Jósefsson.
Þegar fyrirspurnin var fram
borin, var enginn af ráðherrum
viðstaddur og leiddi athugun í
ljós, að einungis dómsmálaráð-
herra Friðjón Skarphéðinsson,
var nærstaddur. Endurtók HV
fyrirspurnina fyrir honum og iof-
aði ráðherrann að koma henni á
framfæri við utanríkisráðherra,
þvx að sjálfur gæti hann ekkert
upplýst um málið, sem væri sér
með öllu ókunnugt.
eins og áður hefur verið frá skýrt
hér í blaðinu.
James Mason heilsaði íslenzku
fegurðardrottningunni með þesfr»
um orðum: „Ég sá þig í sjónvarp-
inu meðan á fegurðarsamkeppn-
inni stóð. Þú varst yndisleg og
fluttir Ijómandi gott ávarp“.
Arlene Dahl hafði lært nokkrar
íslenzkar setningar hjá Pétri og
notaði eina þeirra við Sigríði
„Sleftpu honum“ (Sleptu ..on-
um).
Eftir að leikatriðinu var lokið,
borðaði Sigríður hádegisverð með
landa sínum, leikaranum Pétri
Rögnvaldssyni.
Kýpor og
ísland
MAKARÍOS, erkibiskup af Kýp-
ur, lýsir því yfir, að íslenzka þjóð
in hafi veitt Kýpurbúum stöðuga,
einlæga og -mikilvæga hjálp og
samúð í frelsisbaráttu þeirra.
Hr. Savvas Johannidis frá Kýp-
ur, sem síðastliðið vor dvaldizt í
rúman mánuð á íslandi í boði
Sambands íslenzkra samvinnu-
félaga og kynnti sér starfsemi
hinnar íslenzku samvinnuhreyf-
ingar, ritaði Makaríosi erkibisk-
upi langa skýrslu um dvöl sína
áður en hann yfirgaf landið í lok
júnímánaðar. í skýrslunni fer
hann mjög lofsamlegum orðum
um starfsemi Sambandsins og
kaupfélaganna.
Þá getur hann og með fögrum
orðum um vinarhug alþýðu og
einstakra manna á íslandi í garð
hins verðandi kýpranska lýð-
veldis.
í svari sínu til hr. Johannidis,
sem nú dvelst í Kaupmannahöfn
og kynnir sér danskt samvinnu-
starf, segir Makaríos meðal ann-
ars:
„Sú hjálp og samúð, er íslend-
ingar veittu Kýpurbúum, meðan
á frelsisbaráttu þeirra stóð, hef-
ur reynzt stöðug, einlæg og mikil
Framh. á bls. 15.
Alþingi ;
Fyrirspurn um at-
burðinn á Kefla-
víkurflugvelli