Morgunblaðið - 17.09.1959, Side 12

Morgunblaðið - 17.09.1959, Side 12
12 MOTtCVJSBl 4Ð1Ð Fimmtudagur 17. sept. 1959 TJtg.: H.í. Arvakur Reykjavlk. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsscn. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktssoa. Sigurður Bjarnason frá Vipur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. AsVviftargald kr 35,00 á mánuði innarnands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. 1 GERUM HREINT FYRIR OKKAR DYRUM VÍ miður er mannlegt eðli með þeim hætti, að margs konar ágreiningur og á- rekstrar manna á milli hafa ætíð reynst óhjákvæmilegir. Til þess að firra vandræðum af þessum sökum hafa ýmiskonar samtök verið mynduð. Sjálfu ríkinu er fyrst og fremst ætlað að friða þjóðfélagið. Með valdi þess og embættismönnum, þ.á.m. lög- reglu og dómendum, er reynt að koma í veg fyrir og skera úr þeirn ágreiningi, sem ætíð rís. Árekstrarhættan verður því meiri sem hugsunarháttur þeirra er ólíkari, er skipti eiga saman. Á öllum öldum hafa t.d. verið ýf- ingar á milli hermanna og venju- legra borgara. Hættan eykst enn, ef menn eru af ób'ku þjóð- erni. Svo er t.d. nú þegar banda- rískir hermenn dvelja fjarri ströndum fósturjarðar sinnar á Íslandi, þar sem býr þjóð sem lítt þekkir til hermennsku og hefur frá fornu fari á henni ýmigust. Engu að síður telur yfirgnæf- andi meirihluti íslendinga þörf á því, að hér dvelji nú varnarlið. Á- stæðurnar til þess eru aikunnar. ★ Vitanlega ber að draga úr hætt- tinnr á ágreiningi og árekstrum milli heimamanna og varnarliðs- ins og tryggja, að ef þvílíkt kem- ur upp, þá sé með það farið að réttum lögum. Þegar varnarsamn- ingurinn var gerður 1951 var þetta mjög haft í huga. Þá var réttur íslendinga tryggður svo vel sem menn kunnu bezt skil á. M.a. var samið um ,að hinir bandarísku varnarliðsmenn skyldu lúta íslenzkri lögsögu í mun ríkari mæli en Bandaríkja- stjórn hafði þá undirgengizt við aðra. í upphafi voru 3 menn skipaðir í varnarmálanefnd til að hafa með höndum daglega stjórn sam- skipta við varnarliðið. Auðvitað komu þá eins og ætíð upp ýmis- konar vandamál. Á þessum árum voru kommún- istar og Alþýðuflokkur í stjórn- arandstöðu. Þeir sameinuðust um að blása upp það, sem út af bar. Lögðu þeir þó sízt verra til mála en Framsókn, íem þá var í sam- vinnu við Sjálfstæðismenn. Fram sókn reyndi, eins og hennar er háttur, að leggja allt út á versta veg fyrir samstarfsmönnum sín- um. ★ Haldgæði árásanna þá, sem Tíminn nú hefur endurvakið, má marka af því, hvern trúnað Fram sókn og síðan V-stjórnin sýndi þeim þremur mönnum, sem í varn armálanefndinni voru og hin dag- legu störf mæddu á. Hans G. Andersen hefur verið allan tímann frá því, að Fram- sókn tók við stjórn utanríkismála fram á þennan dag aðalfulltrúi fslands í Atlantshafsráðinu. Agnar Kofoed Hansen var á sín um tíma skipaður í embætti flug- málastjóra af Eysteini Jónssyru og hefur notið óskerts trausts Framsóknar síðan. Guðmundur í. Guðmundsson var gerður utanríkisráðherra í sjálfri V-stjórninni, sem Fram- sókn segist hafa stutt af heilum hug. Með afstöðu sinni til þessarra manna hefur Framsókn rækilega ómerkt hinar lúalegu árásir á meðferð varnarmálanna á árun- um 1951—1953. Ff brotabrot af ásökunu mhennar þá og nú hefði verið rétt, mundi hun ekkx hafa hleypt neinum þessarra manna að meðferð varnarmáianna. Um feril Framsóknar meðan hún hafði stjórn varnarmálanna þarf ekki að fjölyrða. Þar var engu áorkað, sem að gagni gæti orðið. Störfin einkenndust þá ann ars vegar af máttlausu fálmi, en hinsvegar af óseðjandi gróðafíkn, sem m.a. brauzt út í því, að Fram sóknargæðingum var raðað á rík- isjötuna til að hafa framfæri af stjórn varnarmálanna. ★ Einn þessara manna, lögreglu- stjórinn á Keflavíkurflugvelli, Björn Ingvarsson, hefur nú ný- lega gefið út tilkynningu, sem varpar ömurlegu ljósi á andvara- leýsi og hæfileikaskort þeirra, sem nú fara með daglega stjórn þessara mála. Sjálfur lögreglu- stjórinn á Keflavíkurflugvelli vissi ekki um atburðinn 5. sept., fyrr en utanríkisráðherra skýrði honum frá honum hinn 8. sama mánaðar. En utanríkisráðherra hafði ekki um hneykslið heyrt, fyrr en hann las um það í blöð- unum sama dag. Alþýðublaðið segir í gær, að flugmálastjóri hafi „svikizt um að láta rétt íslenzk yfirvöld vita um atburðinn við flugskýlið fyrr en á þriðjudag". Hér er sannarlega hver silki- húfan upp af annarri. ★ Ef ekki er gert ráð fyrir hreinu skemmdarstarfi af hálfu flug- málastjórnarinnar, er erfitt að komast hjá því að telja framferði hennar mótast af vitundinni um að hún hafi sjálf sofið á verðin- um. Er raunar upplýst, að með öllu hefur verið vanrækt að gera næga grein fyrir þýðingu bann- svæðanna svokölluðu. Látið hef- ur verið undir höfuð leggjast að kynna varnarliðsmönnum ís- lenzka einkennisbúninga og koma sér saman við varnarliðsmenn um þýðingu þeirra og hvenær nauð syn væri á sérstökum vegabréf- um. í öllu þessu er erfitt að gera upp á milli, hver á aumastan hlut; Flugmálastjórnin, lögreglu- stjórinn á Keflavíkurflugvelli eða varnarmáladeild utanríkisráðu- neytisins. Sjálfsagt er að krefjast þess, að varnarliðið hafi sinn skjöld hrein an og virði íslenzk lög. Af viðtali því, sem birtist í Morgunblaðinu í gær við Pritc- hard hershöfðingja og út af fyrir sig gefur ástæðu til ýmissa hug- leiðinga, er verða að bíða að sinni, er svo að sjá sem Banda- ríkjastjórn hafi vanrækt að gera undirmönnum sínum grein fyrir efni varnarsamningsins og réttri túlkun hans. Það er mikil sök. En auðvitað eiga íslenzk yfirvöld að fullvissa sig um, að yfirmenn varnarliðsins hér skilji hvað um er að tefla og tryggja að störf hvers um sig séu svo afmörkuð, að árekstrum sé ekki boðið heim. Lágmarkskrafa er að við höfum reglu á okkar eigin málum. Ef svo er ekki, þá er ekki von að vel fari í samskiptum við aðra. UTAN UR HEIMI — Konungur nautabananna? — Frægasti nautabani Spánar. Dominquin, var setztur í helg- an stein. En þegar fóru að heyrast raddir um að mágur hans, Ordonez, væri að verða honum meiri, stóðst hann ekki Astæðulaus öryggisráðstöfun JÓHANNES páfi XXIII. er eins konai þjóðsagnapersóna, sem kunnugt er, að því leyti, að ekki linnir skemmtilegum smásögum úr páfagarði siðan hann settist þar í sæti hins heilaga föður. — Og er þá hér ein af síðustu „páfa sögunum“: Þegar páfinn var nýlega á sinni daglegu morgungöngu í garði Vatikansins, komu nokkrir verka menn varfærnislega í áttina til hans — eflaust í þeim strang- heiðarlega tilgangi að hylla hans heilagleika. Menn úr lífverði páfa, sem komu í humátt á eftir honum, ruddust þá fram og ráku verka- mennina í burtu — en páfinn hrópaði gremjulega: — Hvað á þetta að þýða? — Þetta er aðeins öryggisráð- mátið. Hann kom aftur fram í nautabanahringinn, jafn- lipur og öruggur og áður, eins og sést á myndinni, þar sem hann víkur sér undan upp- æstu nautinu, svo hornin rétt stöfun, yðar heilagleiki, sagði foringi lífvarðanna. — Öryggisráðstöfun? — Já, en ég ætlaði alls ekki að gera þess- um góðu mönnum nokkurn sk'ap- aðan hlut. strjúkast við hann. Nú hófst æðisgengin keppni milli mág- anna um hylli áhorfenda. Báð- ir vildu vera hinum djarfari og loks lágu báðir í valnum, Ordonez var þó ekki mjög mikið særður, en Dominquin varð að taka sér frí, eftir að hafa keppt einu sinni í reifum, og nú „hvílir hann sig“ með upprifinn kviðinn fyrir nauta öt, sem hann hefur ráðið sig til í Suður-Ameríku Noel Coward semur ballett LEIKARINN, rithöfundurinn, Coward hefur enn einu sinni komið enskum — og alþjóðlegum — áhorfendum sínum og áheyr- endum á óvart — með því að semja ballett. Coward, sem nú er 59 ára gam- all, hefur dvalizt heima í Eng- landi undanfarið til þess að heim sækja vini sína — þar á meðal konungshjónin — en annars er hann nú langdvölum á hinni sól- ríku Jamaíku, þar sem hann á glæsilegt hús — og borgar enga skatta. ★ Kvöld nokkurt fór Coward ásamt vini sínum Anton Dolin, sem er stórt nafn í enska ballett- heiminum, til þess að horfa á ballettsýningu í Palladium. Þar sáu þeir hinn fræga John Gilpin dansa, og Coward varð mjög hrif inn af sýningunni. — Hvers vegna semur þú ann- ars ekki ballett, Noel? spurði Dolin í gamansömum tón. — Ég skal athuga málið — og leyfa þér að vita, hvað gerist, anzaði Coward. Og hann var ekkert að humma við það. Hann fór heim og samdi ballettinn „Lundúnamorgunn“ —. sem er eins konar „ástarjátning" hans til sinnar ástkæru heima- borgar. — Ballettinn var frum- sýndur nú nýlega í Festival Hall í London. Þetta er 40 mínútna sýning, og hlutverkin eru 50 — en aðaldanshlutverkið er í hönd- um (eða öllu heldur fótum) John Gilpins. — Og allir eru ánægðir — höfundurinn, ballettmeistarinn Noel Coward

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.