Morgunblaðið - 06.02.1960, Side 4

Morgunblaðið - 06.02.1960, Side 4
4 MORGUiyMAÐID T,aue:a rdagur 6. febrúar 1960 I dag er 37. dagur ársins. Laugardagur 6. febrúar. Árdegisflæði er kl. 00,15 Síðdegisflæði kl. 12,43. Slysavarðstofan er opin allan sólarhringinn. — Læknavörður L.K. (fyrii vítjanir), er á sama stað frá kl. 18—8. — Sími 15030 Vikuna 6.—12. febrúar verður næturvörður í Laugavegs-apóteki Vikuna 6.—12. febrúar verður næturlæknir í Hafnarfirði, Krist ján Jóhannesson, sími 50056. □ MÍMIR 5960287 — 1 Atkv. 13 Helgafell 5960257. IV/V. 2. I.O.O.F. 1 = 141258 V4 = Pbl. GBSMessur A MORGUN. Dómkirkjan: — Messa kl. 11 f. h. Séra Jón Auðuns. — Barna- samkoma í Tjarnarbíó kl. 11. Séra Óskar J. Þorláksson. Messa kl 5 síðdegis. Séra Óskar J. Þor- láksson. Laugarneskirkja: — Messa kl. 2 e.h. — Barnaguðsþjónusta kl. 10,15 f.h. Séra Garðar Svavars- son. —• Bústaðaprestakall: — Messa í Háagerðisskóla kl. 5. — Barna- samkoma kl. 10,30 árdegis á sama stað. Séra Gunnar Árnason. Neskirkja: — Barnamessa kl. 10,30 og messa kl. 2 e.h. — Séra Jón Thorarensen. Háteigsprestakall. — Messa í hátíðasal Sjómannaskólans kl. 11 f.h. Athugið breyttan messutíma vegna útvarps. Barnasamkoma fellur niður. Séra Jón Þorvarðs- son. Hallgrímskirkja: — Messa kl. 11 f.h. Séra Sigurjón Árnason. Barnaguðsþjónusta kl. 1,30 e.h. Séra Sigurjón Árnason. Messa kl. 5 e.h Séra Lárus Halldórsson. Fríkirkjan: — Messað kl. 2 e.h. Séra Þorsteinn Björnsson. Fíladelfia: — Guðsþjónusta kl. 8,30_ Ásmundur Eiríksson. Kaþólska kirkjan: — Lágmessa kl. 8,30 árdegis. Hámessa og pré- dikun kl. 10 árdegis. Aðventkirkjan: — Júlíus Guð- mundsson, skólastjóri, flytur nokkur erindi í Aðventkirkjunni um boðskap Opinberunarbókar- innar. Hið fyrsta þeirra verður flutt á morgun kl. 5 síðdegis, og nefnist það Vonarrík framtíð. — Sjá auglýsingu í blaðinu í dag. Elliheimilið: — Guðsþjónusta með altarisgöngu kl. 10 árdegis. Heimilisprestur. Hafnarfjarðarkirkja: Messa kl. 5 síðdegis, séra Charles W. Strausser. Jöngkór og organisti Lútherssafnaðarins á Keflavíkur flugvelli flytja ameríska messu með aðstoð sóknarprests, kirkju- kórs og organista Hafnarfjarðar- kirkju. — Kálfatjörn: Messa kl. 2. Séra Garðar Þorsteinsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði: Messa kl. 2. Séra Kristinn Stefánsson. Útskálaprestakali: — Messa að Hvalsnesi kl. 2 e-h. — Sóknar- prestur. Hafnir: — Messa kl. 2. Barna- guðsþjónusta kl_ 4. Sóknarprest- ur. — Keflavíkurkirkja: — Messa kl. 2. Séra Björn Jónsson. — Innri- Njarðvíkurkirkja: — Barnaguðs- þjónusta kl. 11. — Messa kl. 5. Séra Björn Jónsson. Fíladelfía, Keflavík: — Guðs- þjónusta kl. 4 e.h. — Haraldur Guðjónsson. Mosfellsprestakall: — Messa að Brautarholti kl. 2. — Séra Sigurðsson. Reynivallaprestakall: — Messa að Saurbæ kl. 2. Sóknarprestur. Langholtsprestakall: — Barna- samkoma í safnaðarheimilinu við Sólheima kl. 10,30 f.h. Messa á sama stað.kl. 2 e.h. Séra Árelí- us Níelsson. — Aðaifundur Bræðrafélags Langholtssóknar verður haldinn í safnaðarheimil- inu við Sólheima að lokinni messu. VILLISVANIRIMIR - + Afmæli + Frú Sigríður Kjartansdóttir frá Holti undir Eyjafjöllum, nú vistkona á Elliheimilinu Grund, er 75 ára í dag. Hún dvelst í dag á heimili sonar síns að Kambs- vegi 29. Sextug er í dag, 6. febrúar, Guðríður O. Jónsdóttir frá Tröð í Álftanesi. Hún er nú til heim- ilis að Reykjavíkurvegi 21, Hafn arfirði. — m Brúðkaup í dag verða gefin saman í hjónaband í Bessastaðakirkju af séra Garðari Þorsteinssyni ung- fri Auður Sveinsdóttir, Grund, Álftanesi og Gunnar Guðmunds- son, bifvélavirki, Miklubraut 5. Heimili ungu hjónanna verður að Þverholti 20. í dag verða gefin saman í hjóna band í Fríkirkjunni af séra Þor- steini Björnssyni, ungfrú Guð- rún Karlsdóttir, Víðimel 67 og Benedikt Blöndal, cand. jur., Rauðalæk 42. -rncð niMyiuifcaffiMUs Skipin Eimskipafélag íslands h.f.: — Dettifoss fór frá Gdansk 5. þ.m. til Reykjavíkur. Fjallfoss fór frá Rvík 4. þ.m. til Siglufjarðar og Akureyrar. Goðafoss fór frá Keflavik 3. þ.m. til New York. Gullfoss fór frá Reykjavík 5. þ. m. til Hamborgar og Kaupmanna hafnar. Lagarfoss er í Reykjavík. Reykjafoss fór frá Rostock 2. þ. n. . til Reykjavíkur. Selfoss hef- ur væntanlega farið frá Swine- múnde 4. þ.m. til Rostock. Trölla foss fór frá Siglufirði 30. f.m. til Gdynia. Tungufoss kom til Grims by 3. þ.m. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla og Esja eru í Reykjavík. Herðu breið fer frá Rvík í kvöld vestur um land í hringferð. Skjaldbreið fer frá Reykjavík í dag vestur um land til Akureyrar. Þyrill er í Fredrikstad. Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum í dag til Rvík- ur. • 0 i lc Þökk fyrir jólakortið, frú Han^en Já, þakka þér einnig, frú Olsen. Enski verzlunarmaðurinn kom mjög, mjög seint heim, og sá enga aðra leið en að segja konunni sinni eins og var. —• Það kemur nú fyrir, sagði hann, — að menn falla fyrir freistingunni. Við vorum lengi að vinna í skrifstofunni — og svo varð ég veikgeðja, allt í einu, að ég bauð einkaritara mínum í Samlagningarvélarnar okkar era í óiagi. Er nokkur hér, sem kann að leggja saman? næturklúbb að borða. — John, sagði kona hans höst- uglega. — Hvenær ætlar þú að venja þig af því að skrökva að mér — og hvenær ætlar þú að hætta að spila póker. Eimskipafélag Rvíkur h.f.: — Katla hefur væntanlega farið, í gærkveldi, frá Riga áleiðis til Reykjavíkur. — Askja er á leið til Reykjavíkur frá Cuba. Hafskip: — Laxá fór í gær til Vestfjarðarhafna. H.f. Jöklar: — Drangjökull er í Reykjavík. Langjökull fór frá Vestmannaeyjum 3. þ.m. á leið til Hamborgar og Austur-Þýzka lands. Vatnajökull fór gegnum Pentilinn í nótt á leið til Rvíkur. Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell væntanlegt til Reykjavíkur á morgun frá Stettin. Arnarfell er í New York. Jökulfell er á Akra- nesi. Dísarfell fór frá Akureyri í gær til Breiðdalsvíkur. Litla- fell er í olíuflutningum í Faxa- Ævintýri eftir H. C. Andersen flóa. Helgafell er í Keflavík. — Hamrafell fór frá Skerjafirði 2. þ. m. áleiðis til Batum. ^ Flugvélar Flugfélag íslands h.f.: — Hrím faxi fer til Oslóar, Kaupmanna- hafnar og Hamborgar kl. 98:30 í dag. Væntanlegur aftur til Rvík- ur kl. 15:40 á morgun. — Innan- landsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Blönduóss, Egilsstaða, ísafjarðar, Sauðár- króks og Vestmannaeyja. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Húsavíkur og Vesi- mannaeyja. Loftleiðir h.f.: — Edda er vænt anleg kl. 7:15 frá New York. Fer til Glasgow og Amsterdam kL 8:45. —• Leiguvélin er væntanleg kl. 19:00 frá Kaupmannahöfn og Osló. Fer til New York kl. 20:30. Hún varð dauðskelkuð, þegar hún sá andlit sitt í vatninu, svo dökkt og and- styggilegt var það orðið. En þá vætti hún litlu höndina sína og nuddaði ennið og augun, og varð þá hörund hennar aftur hvítt og skín- andi. — Hún klæddi sig nú úr öllum fötunum og óð út í tært vatnið. — Yndislegra konungsbarn en hún var ekki til í öllum heiminum. Er hún hafði klætt sig aft- ur og hafði fléttað síða hárið sitt, gekk hún að bunandi uppsprettulind og drakk úr lófa sínum. Síðan hélt hún áleiðis lengra inn í skóginn, en gerði sér þó ekki grein fyrir því, hvert hún var að fara. — Hún hugsaði um bræður sína, hugsaði um al- góðan guð, og var sannfærð um, að hann mundi ekki yfir- gefa sig. Hann lét villtu skóg- areplin vaxa til þess að seðja hina svöngu — og hann benti henni á eitt slíkt tré, en greinar þess svignuðu undan þunga ávaxtanna. Þarna neytti hún miðdegisverðar síns, setti síðan stoðir undir greinar trésins og gekk því næst inn í skóginn, þar sem hann var myrkastur. Nóttin var koldimm, og það glytti ekki í einn einasta ljós- orm í mosanum. Hún lagðist til svefns, hrygg í huga. — Þá virtust henni trjágrein- arnar yfir höfði sér víkja til hliðar og guð horfa mildum augum niður til sín, en litlir englar gægðust yfir höfuð hans og undir handleggi hans. FERDIIMAND Þar sagði hann sína vneiningu Félagsstörf Bræðrafélag Óháða safnaðar- . ins: — Áríðandi fundur verður haldinn í Kirkjubæ á sunnudag- inn kl. 2. jgy Ymislegt Orð lífsins: — Drottinn lætur ekki réttlátan mann þola hung- ur, en græðgi guðlausra hrindir hann frá sér. Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd. Hyggin er sá, er á sumri safnar, en skammarlega fer þeim, er um kornsláttinn sefur. (Orðskv. 10). Stúdentar M.R. 1951: — Munið skemmtifundinn í kvöld lcl. 9. — Árshátíð og afmælishóf Snæ- fellinga og Hnappdæla verður haldið í Sjálfstæðishúsinu, föstu- daginn 12. febrúar. — Fjölbreytt skemmtiatriði. • Gengið • Soiugcngi: 1 Sterlingspund kr. 45,70 1 Bandaríkjadoilar ____ — 16,32 1 Kanadadollar ......... — 17,11 100 Danskar krónur ______— 236,30 100 Norskar krónur — 228,50 100 Sænskar krónur — 315,50 100 Finnsk mörk — 5.10 1000 Franskir frankar ___— 33,00 □-------------------------□ LJÓD DAGSINS Yzt á Hornströndum keitir Hornbjarg og Kópatjörn; þeir vita það fyrir vestan, þar verpir hvítur örn. Um sumarnótt, er sveimar sól yfir norðurslóð og þoka sígur um sjóinn, hann situr rauður sem blóð. Og örninn lítur ekki oná hið dimma haf, og horfir í himinljómann; hafskipið sökkur í kaf. Jónas Hallgrímsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.