Morgunblaðið - 19.03.1960, Side 1
16 sið&ir og Lesbók
47. árgangur
66. tbl. — Laugardagur 19. marz 1960
Frentsmiðja Morgunblaðsíns
Smáríkin stóðu
saman I
fyrstu iotu
Genf, 18. marz.
Frá fréttaritara Mbl.
IKÉTTASTOFUK birtu í
imorgun þá fregn, að John
Hlare, aðalfulltrúi Breta á
Genfar-ráðstefnunni, hefði
lýst því yfir á blaðamanna-
fundi, að þriggja mílna land-
helgin væri úr sogunni, hún
•væri nú dauð og ómerk. —
Fregnin vakti geysimikla at-
hygli hér, en síðar neituðu
Bretar að hér væri rétt haft
eftir, sögðu að fréttin væri íil-
hæfulaus. Hins vegar lýsti
Stavropoulus, hinn mikils-
■virti formaður laganefndar
Sþ og framkvæmdastjóri ráð-
stefnunnar, því enn yfir, að
samkvæmt sjónarmiði hans
væri þriggja mílna landhelgin
Leifi
neitað um
lendingu
Varð að snúa frá
tveimur borgum
ÓHÆTT er að segja, að
harka sé komin í loftferða-
stríðið. í fyrradag var Leifi
Eiríkssyni, Cloudmaster-flug-
vél Loftleiða, neitað um lend-
ingarleyfi, bæði í Kaupmanna
höfn og Gautaborg, en flug-
vélin átti að hafa þar viðkomu
á leið frá Hamborg vestur um
haf. Var Skymaster-vél send
frá Stafangri til að sækja far-
þegana, sem biðu í Kaup-
mannahöfn og Gautaborg.
Var farinn af staff
Leifur fór héðan á miðviku-
dagsmorgun til Hamborgar með
viðkomu í Stafangri og Kaup-
mannahöfn. Á fimmtudagsmorg-
un hélt hann frá Hamborg með
16 farþega áleiðis til Kaupmanna
hafnar. Var vélinni synjað um
lendingarleyfi þar og síðar einnig
í Gautaborg, svo að haldið var
til Stafangurs, sem var þriðji við-
komustaðurinn samkvæmt áætl-
un. —
Skymaster sendur eftir
farþegunum
Skymasterflugvél Braathens,
önnur leiguflugvél Loftleiða,
hafði verið til viðgerðar í Staf-
angri. Var það sama vélin og
Frh. á bls. 15.
úr sögunni. — Ennfrentur Tét
Wan, forseti ráðstefnunnSr,
svo um mælt, að hann bygg-
ist við að ráðstefnan mundi
ljúka störfum innan mánaðar.
Ekki borðar hún klettinn
Blöðin hér í Genf ræða lítið
um ráðstefnuna í dag, en þó
birtir Journal de Genéve forsiðu
grein undir fyrirsögninni: Norð-
urlandaþjóðirnar Og sjóréttarráð-
stefnan. Blaðið er mjög vinsam-
legt okkur og segir m.a.: Þessar
þjóðir eru mjög háðar fiskveið-
um, sérstaklega ísland, sem hef-
ur af þeim 97% tekna sinna. ís-
lendingar segja, að land þeirra
sé klettur girtur sjó á alla vegu.
Og í sjónum er fiskurinn. Þurrk-
ið upp sjóinn og þjóðin hefur
ekkert að lifa af. Ekki borðar hún
klettinn.
Ekki langlíf úr þessu
Blaðið heldur áfram og segir,
að afleiðing þess, að ekki náðist
árangur á síðustu Genfarráð-
stefnu, hafi leitt til vandamála
svo sem „fiskistríðsins" milli
Breta og íslendinga. En ástandið
hefur nú breytzt og nú er almenn
tilhneiging í þá átt að landhelgi
og fiskveiðitakmörk verði færð
út. Þriggja mílna landhelgin
verði ekki langlíf úr þessu.
Fá orðið í réttri röð
Á árdegisfundi voru ræddar
fjórar breytingatillögur, er full-
trúi Mexico gerði á fundarsköp-
um.
Framh. á bls. 2.
Grandabi vítisvel
flugvélinni?
^4 David Ben Gurion, hinn 73
ára gamli forsætisráðherra
ísraels, og Adenauer kansl-
ari, sem nú er 84 ára, hafa
báðir verið í Bandaríkjun-
um undanfarna daga og
raett við Eisenhower for-
seta. Tilviljun ein réði því,
að báðir bjuggu þeir í Wald
orf-Astoria hótelinu í New
Heyrðist vel
milljón mílui*
JODRELL BANK, Englandi 18.
marz. — Margrét prinsessa studdi
í dag á hnappinn, sem setti sendi
stöð Frumherja V. í gang. Var
gervihnötturinn þá í meira en
milljón mílna fjarlægð frá jörðu
á leið sinni umhverfis sólu. Tutt-
ugu og fimm sekúndum eftir að
sendistöðin var sett í gang heyrð-
ust hljóðmerki hans skýrt óg
greinilega í Jodrell Bank.
TELL CITY, 18. mara: — Olli
tímasprengja flugslysinu mikla
i gær, er Lockheed Electra-flug-
vél frá Northwest Airlines,
sprakk á flugi yfir Indiana með
þeim afieiðingum, að allir, sem
í vélinni voru, 63 manns, fór-
ust. Flugvélin var á leið frá
Minneapolis til Miami á Florida.
Vélin hafði viðkomu í Chicago
og hálfri annarri stundu eftir að
hún fór þaðan hringdi til lögregl-
unnar maður, sem ekki gaf upp
nafn sitt, og sagði, að tima-
sprengju hefði verið komið fyrir
i flugvélinni.
Mikið lið leynilögreglumanna
hóf í dag rannsókn í sambandi
við líftryggingar farþeganna.
Le; nilögreglan tók einn g þátt í
starfi hermanna og lögreglu við
að tína saman brakið úr flugvél-
inm, sem dreifzt hafði yfir stórt
svæði. Fullvíst er, að sprenging
grardaði flugvélinni. Þ tta er
þriðja Electra-flugvélin, sem
ferst í Bandaríkjunum á rúmu
ári.
Öll líkin hafa fundizt, farþeg-
anna 57 og sex manna áhafnar,
en þau eru svo illa farin, að ekk-
ert þeirra er þekkjanlegt.
Ekki er lengra síðan en í jan-
úar, að flugvél frá National Air-
línes fórst yfir Norður-Karolina
vegna þess að talið er, að einn
farþeganna hafi haft vítisvél með
ferðis.
York. Og þar hittust þeir
í fyrsta sinn á æfinni. Mynd
in er tekin í hótelherbergi
annars þeirra, þar sem þeir
ræddust við langa hríð. Ben
Gurion er til vinstri.
Enn hrynur fylgið af
verkamannaflokknum
LONDON, 18. marz. — Macmill-
an hefur hafnað heimboði, sem
David Ben-Gurion, forsætisráð-
herra ísraels, gerði honum. Er
talið, að Macmillan óttist, að aft-
ur muni hitna í glæðunum í sam-
skiptum Breta við Arabaríkin, ef
hann heimsækti ísrael.
LONDON, 18. marz: — Ekki er
annað sýnt, en fylkið hrynji nú
stöðugt af brezka verkamanna-
flokknum. Hann hefur beðið enn
einn ósigurinn og ekki hvað
minnstan, er íhaldsmenn unnu í
aukakosningum í kjördæmi í
Yorkshire þar sem verkamanna-
Svaramaður Jones
LONDON, 18. marz. — Jeremy
Fry, 35 ára gamall, sem er gam-
all vinur ljósmyndaráns þekkta
Armstrongs Jones, hefir verið
útnefndur svaramaður hans
er hann gengur að eiga
Margréti prinsessu 6. maí n. k.,
en þá hefir verið ákveðið að gefa
þau saman. Er Jeremy sonur
hins þekkta sælgætisframleið-
anda Cecil Fry, sem rekur fyrir-
tækið Fry and Sons, en það er
þekkt allvíða. Athöfninni verð-
ur sjónvarpað.
Hefja Japanir veiðar á N-Atlantshafi?
NORSKA blaðið Aftenposten
sagði nýlega frá því, að lík-
legt væri að Japanir bættust
brátt í hóp þeirra þjóða, sem
fiskveiðar stunda á norðan-
verðu Atlantshafi. Myndu
þeir þá að líkindum einkum
ieggja upp afla sinn í írlandi.
Blaðið hefur þessar fréttir eft-
ir Lundúnafréttaritara sínum —
og segir hann, að það hafi rennt
stoðum undir sannleiksgildi þess-
ara frétta, að sendimenn frá
Japan hafi nýlega heimsótt ýms-
ar fiskihafnir í írlandi, þótt ekki
hafi verið greint opinberlega frá
erindi þeirra. — Af opinberri
hálfu í írlandi hefur aðeins verið
sagt, að engir samningar um slík
efni hafi verið gerðir milli land-
anna.
Á árunum eftir striðið hafa
Japanir mjög fært út kvíarnar á
sviði fiskveiða — leitað til miða,
sem þeir höfðu aldrei áður heim-
sótt. M. a. stunda þeir nú tún-
fiskveiðar á Mið- og Suður-
Atlantshafi, og hafa þeir landað
afla sínum bæði í Evrópu og
Suður-Ameriku.
flokkurinn hefur alla tíff haft
yfirhöndina. Samtímis fóru fram
aukakosningar í einni af útborg-
um Lundúna og hlaut íhalds-
flokkurinn þingsætið sem fyrr,
en verkamannaflokkurinn varff
nú ekki annar í röffinni, eins og
áður — heldur frjálslyndi flokk-
urinn.
Deilt innbyrffis
Meginástæðan fyrir þessum
herfilega ósigri er almennt tal-
in sú, að sundrungin meðal
flokksforystunnar fer stöðugt
vaxandi og almenningur virðist
vera að missa allt traust á
flokknum. Daginn fyrir kosn-
ingar hófst t.d. mikil deila með
leiðtogum flokksins um það „hve
mikinn sósíalisnia“-flokkurinn
ætti að taka upp í stefnuskrá
sína.
Grimond ánægffur
í Yorkshire-kjördæminu, Brig-
house and Spenborough, sigraði
frambjóðandi íhaldsflokksins
með 666 atkv. meirihluta, hlaut
21,806 atkv. í síðustu kosningum
hafði frambjóðandi verkamanna-
flokksins 47 atkv. framyfir. Þetta
er í fyrsta sinn, sem íhaldsmenn
vmna þetta kjördæmi.
í Lundúnakjördæminu Harrow
hlaut íhaldsmaðurinn 18,526 at-
kvæði, frjálslyndi 7,100 og verka-
mannaframbjóðandinn 6,030 at-
kvæði. Jo Grimond, leiðtogi
frjálslyndra, sagði að úrslitum
kunnum, að lengur væri ekki
vafi á því, að fólkið væri að yf-
irgefa verkamannaflokkinn og
mundi fykja sér um frjálslynda.