Morgunblaðið - 19.03.1960, Blaðsíða 3
Laugardagur 19. marz 1960
MORGUNBLAÐIÐ
3
Kísilgúr
i Kjarna \
I GÆR fluttum við fréttir af
því að kísillög hefðu fundizt
í vötnum í nánd við Reykja-
vík. Þar kom það fram að
hreinn kísilgúr er alldýr-
mætur á markaðinum. Blaðið,
spurðist fyrir um það hjá
Baldri Líndal, efnaverkfræð-
ingi, til-hvers efni þetta væri
notað.
Dýrasta tegund af hreinum
kísilgúr er notuð í sambandi við
eíun á vökvum á rannsóknarstof-
um, en þó einkum í iðnaði. Einn-
ig er hreinn kísilgúr notaður sem
fylliefni í mismunandi efnasam-
bönd, einkanlega í ýmsan iðn-
varning, svo sem plast og gúmmí.
Og hefur notkun hans því farið
mjög í vöxf á seinni árum.
Ödýrarj tegundirnar eru mest
notaðar til að koma í veg fyrir
að krystölluð efni loði við og þá
blandað í framleiðsluna. Er kís-
ilgúrinn þannig einkanlega not-
aður við áburðarframleiðslu. T.d.
er dálítið af honum í Kjarna frá
Áburðarverksmiðjunni, sem flyt-
ur inn það magn sem hún þarfn-
ast.
Veruleg framleiðsla hér á landi
á kísil mundi þó svo að segja
eingöngu byggjast á útflutningi,
þar eð Áburðarverksmiðjan not-
ar tiltölulega lítið af honum mið-
að við það magn, sem verksmiðja
til hreinsunar á kísilmold þyrfti
að framleiða.
rill. myndi aðeins
valda drætti
UMFERÐARNEFND fjallaði á
fundi sínum fyrir nokkru um þá
tillögu sem fram hefur komið að
nefndin leiti umsagnar bifreiða-
stjórafélaganna í bænum, um
allar veigamiklar tillögur í um-
ferðarmálum.
Um þessa tillögu gerði nefnd-
in svohljóðandi samþykkt:
Umferðarnefnd telur að sam-
þykkt framangreindrar tillögu
myndi valda óhæfilegum drætti
í meðferð mála, enda yrði þá
einnig að leita umsagnar ann-
ara aðilja, sem hagsmuni hafa
af ákvörðunum nefndarinnar,
og leggur því á móti tillögunni.
Umferðarnefnd vill jafn-
framt taka fram, að hún telur
samvinnu við bifreiðastjórafélög
in um lausn umferðarmála mjög
mikilsverða og er ávallt reiðu-
búin að ræða við fulltrúa þeirra
um tillögur, sem þeir kunna að
vilja bera fram um endurbætur
í umferðarmálum.
Útsvör 3,9 millj.
í Neskaupstað
NESKAUPSTAÐ, 16. marz. —
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Nes-
kaupstaðar var afgreidd endan-
lega á bæjarstjórnarfundi sl.
föstudag. Niðurstöðutölur voru
5 millj. og 100 þús. kr.
Aðaltekjuliðir eru: útsvör 3
millj. og 900 þús. og hluti kaup-
staðarins af söluskatti 465 þús.
Útsvör í fyrra voru áætluð 3
millj. og 800 þús. Þessi nýi tekju-
iiður varð þess valdandi, að ekki
þurfti að hækka þau meira.
Hæstu gjaldaliðir eru: mennta-
mál 600 þús., vegamál 475 þús.,
framfærslumál 350 þús., alþýðu-
tryggingar 770 þús., sjúkrahúsið
480 þús., sundlaugin 100 þús., fé-
lagsheimili 300 þús. og gagnfræða
skólabygging 150 þús. kr.
SANDGERÐI, 16. marz. — Ellefu
bátar komu til Sandgerðis í gær
með 84 lestir. Hæstu línubátarnir
voru Muninn með 10,7 lestir og
Hrönn með 9,5 lestir. Hæsti neta-
báturinn var með 20 lestir.
I
8TAKSTEIMAR
Olíueinkasala ríkisins
Einn af aðalleiðtogum komm-
únista hefur nú lagt fram á Al-
þingi frumvarp um olíueinkasöiu
ríkisins. Er aðalatriði þess frv.
það, að olíueinkasala skal annast
allan innflutning á hvers konar
olíum til landsins.
Hinu nýja einkasölubákni skal
svo stjórnað af 5 manna stjórn.
Um það segir í frumvarpinu:
„Stjórn Olíuverzlunar ríkisins
skipa fimm menn, kosnir af sam-
einuðu Alþingi til f jögurra ára í
senn. Stjórnin velur fram-
kvæmdastjóra og hefur umsjóu
með rekstri verzlunarinnar“.
Þannig vilja kommúnistar enn
hrúga upp nýju rikisbákni. Al-
þingi á að kjósa 5 manna stjórn
þess og síðan ræður sú stjórn
nokkrar topphúfur til að vera
forstjóra fyrirtækisins. Kannast
menn ekki vel við þessi vinnu-
brögð frá liðnum árum? Nýjar og
nýjar ríkisstofnanir eru settar á
laggirnar. Fyrr en varir eru þær
orðnar að stærðar báknum með
f jölmennt skrifstofulið og alls
konar topphúfum.
V.-stíórnin <nisrnaði
Niðurstaðan varð líka sú, að
vinstri stjórnin gugnaði á því að
taka upp einkasölu á olíu. Ekkert
frv. var flutt um það meðan hún
sat að völdum. En nú eru komm-
únistar komnir í stjórnarand-
stöðu til þess að koma einkasiilu-
hugmyndinni í framkvæmd. Þá
er Lúðvík Jósefsson látinn rjúka
til að flytja frv. um olíueinka-
sölu.
Ætli menn sjái ekki almennt í
gegnum þann skrípaleik, sem hér
er verið að leika?
TJÖRNIN í Reykjavík er
sérstakur heimur. — Þótt
hann sé kannski lítill i aug-
um þeirra, sem hyggjast
leggja undir sig geiminn, er
hann engu ómerkilegri en
aðrir heimar — hvar sem
þeir kunna að vera í heims-
rúminu. Og er hann ekki í
eðli smu spegilmynd af
okkar heimi? Ibúar hans
eru að vísu „bara“ endur
og álftir, en íbúar okkar
heims eru líka „bara“
menn — og þó mönnum
finnist menn merkilegri en
aðrar skepnur, er alls ekki
víst, að öndum og álftum
t. d. finnist meira til þeirra
koma en sjálfra sín — þó
þeir hendi í þær brauði á
sunniidögum og þegar vel
liggur á þeim. Líklegast er
að þær taki það sem sjálf-
sagðan hlut — að metta
maga sinn — jafnsjálfsagð-
an og menn borða það
„brauð“, sem lagt hefur
verið í skaut náttúrunnar
handa þeim. — Og endurn-
ar og álftirnar og mennirn-
ir rífast um sitt brauð. Þeir,
sem eru sterkastir, skjótast-
ir og heppnastir, fá flesta
bitana. Hvítu og stóru álft-
irnar fá mest — tignarleg-
ar eins og ráskip koma
þær brunandi í andahóp-
inn, sem forðar sér undan
í hæfilegt færi — og þeir
sem standa á bakkanum
fylgjast spenntir með „leikn
um“ í Tjörninni, sem er
eins og „alvaran" í þeirra
heimi — nema nú geta þeir
staðið hjá og fundist þeir
vera eins og guð, sem eng-
inn skilur.
Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
íslenzk tónlist d norrænu móti
NORRÆN dómnefnd, sem í
áttu sæti einn fulltrúi frá hverju
Norðurlandanna, Páll Kristinn
Pálsson fyrir hönd íslands, hefir
á fundum i Stokkhólmi 2. til 3.
marz kjörið eftirtalin íslenzk
tónverk til flutnings á norrænni
tónlistarhátíð, sem halda á í
Stokkhólmi, 8. til 11. september
næstkomandi:
1. ) Fimm skitsur fyrir píanó
eftir Fjölni Stefánsson.
2. ) íónísatiónir fyrir orgel eft-
ir Magnús Blöndal Jóhannsson.
3. ) Intrada og Kanzóna fyrir
strokhljómsveit eftir Hallgrím
Helgason, og verður þetta verk
flutt á fyrstu sinfónískum tón-
leikum hátíðarinnar.
Ennfremur hefir sænska út-
varpið gefið íslenzku tónskáldi
kost á að senda elektróniska
músík til flutnings í sambandi
við hátíðina, og hefir Magnús Bl.
Jóhannsson tekið boðinu um að
senda eitt slíkt verk.
Þeir Magnús Bl. Jóhannsson og
Fjölnir Stefánsson eru nú að
heita má að hefja kynningu á
verkum sínum. Magnús hóf ung-
ur tónlistarnám í Reykjavík og
dvalist síðar við Julliard School
of Music í New York, þar sém
hann stundaði nám í píanóleik,
tónfræði, hljómsveitarmeðferð,
kórstjórn og tónsmíði hjá dr.
Carl Friedberg, Bernhard
Wegenaar, Marion Bauer o. fl.
Fjölnir Stefánsson byrjaði
celló-nám við Tónlistarskólann
í Reykjavík og útskrifaðist þaðan
í tónfræðilegum greinum 1954.
Síðan var hann við framh.nám í
hljómfræði, kontrapunkti og tón-
smíði í London í fjögur ár hjá
ungverska tónskáldinu Matyas
Seiber.
Vilja halda Gerpi
Þór, blaS SjálfstæSismanna &
Austurlandi, birti nýlega samtal
viS Björn Ólafsson loftskeyta-
mann á Gerpi. Kemur þar fram
sú skoSun, aS AustfirSingar verði
að gera allt sem þeir geti til þess
aS geta haldiS nýjasta og full-
komnasta togara sínum, þ e. tog-
aranum Gerpi. Kemst Ioftskeyta-
t maSurinn m. a. að orSi á þessa
leiS í fyrrgreindu samtali:
„ÞaS er sorglegt til þess aS
vita, hvernig komiS er meS tog-
araútgerS AustfirSinga. Tvö tog-
arafélög hafa þegar gefizt upp og
hiS þriSja, sem hefur á að skipa
einu bezta skipi togaraflotans
stendur höllum fæti.
Ég trúi því bara ekki fyrr en ég
tek á því, aS menn gefi frá sér
slík atvinnutæki án þess að lvugsa
sig um tvisvar, sérstaklega þar
sem vonir standa til að nú sé aS
j verSa gagngerS breyting til batn-
aðrar afkomumöguleikum togar-
i anna".
Afstaða sjómanna
í þessu sambandi má minna á
þaS, aS á fyrsta valdaári vinstri
stjórnarinnar voru miklar bolla-
leggingar uppi um það aS setja á
stofn olíueinkasölu. En íslenzkir
sjómenn virfust ekki vera sér-
staklega hrifnir af þeirri hug-
mynd. Á fjölmennum fundi í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur var
samþykkt tillaga um aS mótmæla
því eindregiS aS olíueinkasala
ríkisins yrSi sett á laggirnar. Sjó-
mennirnir gerSu sér engar vonir
um aS af slíkum ríkisrekstri
mundi leiSa lækkaS oliuverð eSa
hagkvæmari olíuverzlun yfirleitt.
Þess vegna vöruðu þeir eindregið
viS stofnun olíueinkasölu.