Morgunblaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 2
2 MORGUTSBLAÐIÐ Fðstudagur 1. aprH 1960 Eisenhower, Macmillan og Herter, utanríkisráðh., í Camp David. Ekki bindandi fyrir eftir- manninn. Samkvæmt brezkum heim- Skilyrði Eisenhowers við tiIraunabanni GETTYSBURG, 29. marz: — Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hér hefur það fall- ið í skaut Breta að nálgast Rússa með gætni og skýra fyr ir þeim afstöðu Vesturveld- anna eftir viðræður Macmill- ans og Eisenhower um stöðv- un kjarnorkutilrauna. Ein á- stæðan fyrir þessari tilhögun er m. a. erfiðleikar, sem kom- ið hafa upp í þessu sambandi vegna sérstakra ákvæða í stjórnarskrá Bandaríkjanna. Rannsókn á staðnum Svo virðist sem Eisenhower sé reiðubúinn til þess að und- irrita sáttmála við Rússa um bann á öllum kjarnorkutil- raunum, sem að styrkleika eru meira en 19 kilotonn svo fram arlega sem jarðhræringa-mæli kerfið, sem sérfræðingar aust urs og vesturs komu sér sam- an um 1958, verði sett upp tafarlaust. Annað skilyrði Eisenhowers er að Ráðstjórnin fallist á, að hvenær sem „grunsamlegra“ jarðhræringa verði vart á mælingakerfinu fari fram rannsókn á staðnum og hafi ekkert ríkjanna neitunarvald gegn slíkri rannsókn. Vill tryggja eftirlit Þriðja skilyrði Eisenhowers er, að leyfð verði rannsókn á staðnum, enda þótt hinar „grunsamlegu“ jarðhræringar séu það vægar, að ekki gæti verið um 19 kilotonna— sprengju að ræða. Gegn slík- um rannsóknum á heldur ekki að vera hægt að beita neitunarvaldi. Með öðrum orðum. Banda- ildum munu Rússar hafa orð- að tillögu sina þannig, að mög-uleikar yrðu á „rannsókn á staðnum", ef grunur léki að að smásprenging hefði verið gerð. Þá mun Eisenhower hafa sagt ,að hann gæti ekki bund- ið loforðið um stöðvun smá- tilraunanna við eftirmann sinn í Hvíta húsinu, því kjör- tímabil Eisenhowers rennur út 20. janúar n.k. Rússar lögðu hins vegar til, að loforð- ið yrði bundið við 4—5 ár. Nixon, varaforseti, tók þátt í fundinum í Camp David. Það er ekki ljóst hvort samkomu- lagið, ef gert verður, yrði á einhvern hátt bindandi fyrir hann, enda þótt Nixon yrði næsti Bandaríkjaforseti. (öll réttindi áskilin — Observer). ríkjastjórn vill tryggja að hægt verði að ganga úr skugga um að loforðin um að stór- veldin sprengi ekki „smá- sprengjur“, verði haldin. Krefst fullnægjandi eftirlits Sagt er, að Bandaríkjastjórn hafi lagt mikla áherzlu á rann sóknir á staðnum, ef grunur léki á því að tilraun hefði ver ið gerð með smásprengju. Það mundi auðvelda öldungadeild inni að staðfesta sáttmálann um bann við stærri tilraunum. Engin ákvæði munu verða í þessum sáttmála um smá- sprengjurnar, þ. e. undir 19 kilotonnum, því öldungadeild- in er fyrirfram á móti sér- hverju tilraunabanni, sem ekki er undir fullu eftirliti. En ef engin „rannsókn á staðnum“ yrði ákveðin í sam- bandi við smásprengjurnar, yrði erfitt að fá sáttmálann um bann við stærri tilraunum samþykktan í öldungadeild- inni. Deildin mundi lýsa yfir vanþóknun á loforðinu um stöðvun smátilrauna væri ekki fullnægjandi eftirlit. t — Alþingi Framhald af bls. 1. felldur niður, en frádráttur fyrir börn og skylduómaga hækkaður úr 4500 krónum í 10 þús. kr. fyrir barn. Lög þessi skulu koma til fram- kvæmda við álagningu tekju- og eignaskatts fyrir skattárið 1959. Bráðabirgðabreyting á útsvarslögum í athugasemdum við frum- varp um bráðabirgðabreyting á útsvarslögum segir, að vegna breytinga á lagaákvæðum um tekjuskatt sé óhjákvæmilegt að gera nú þegar breytingar á á- kvæðum um niðurjöfnun útsvara, sem m. a. tryggja að sveitarfé- lögin gangi ekki lengra en góðu hófi gegnir í því að taka til sín í útsvörum þær lækkanir, sem verða á tekjuskattinum. Verkefn- ið hafi þó verið umfangsmeira en svo, að nefndin, sem að því vann gæti skilað viðunandi fullnaðar- tillögum um tekjustofna sveitar- félaga nú þegar. Því hafi af- greiðslu endanlegra tillagna ver- ið frestað að svo stöddu, en í stað þess lagt til að gerðar yrðu bráða birgðabreytingar á útsvarslögun- um. Helztu nýmæli frumvarps- Ins eru þau, að lögbinda regl- ur um álagningu útsvaranna. Lagt er til, að lögfestar verði þrennskonar reglur. Fyrir Reykjavík, fyrir aðra kaup- staði og í þriðja lagi fyrir hreppana. Er þar um að ræða samræmingu á álagningar- reglum, sem hafa verið býsna frábrugðnar í hinum ýmsu sveitarfélögum. Þá er í frum- varpinu lagt til að takmörk verði sett fyrir því, hve há útsvörin megi vera, en jafn- framt gert ráð fyrir aukafram lagi úr jöfnunarsjóði eftir nánar settum reglum, ef upp- hæð útsvara samkvæmt fjár- hagsáætlun fæst eigi, sé farið eftir reglunum. Greidd útsvör dragast frá tekjum Útsvör skal miða við hreinar tekjur og eign samkvæmt skatt- skrá. Útsvör síðastliðins árs skulu dregin frá tekjum, ef þau hafa verið greidd sveitarsjóði að fullu fyrir áramót næst á undan niðurjöfnun. Lagt er til að sam- vinnufélög greiði útsvör af veltu eða umsetningu jafnt vegna fél- agsmanna og utanfélagsmanna, eftir sömu reglum og kaupmenn sama staðar, þó ekki af arði af viðskiptum félagsmanna. Breytingar á lögum um Jöfnunarsjóð í tillöigum rikisstjórnarinnar í efnahagsmálum er gert ráð fyr- ir því að veruleg upphæð af sölu- skatti renni til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna. Er því óhjá- kvæmilegt að gera nú þegar gagngerðar breytingar á gildandi lagaákvæðum um Jöfnunarsjóð- inn. í 1. gr. frumvarpsins um Jöfn unarsjóð segir, að ríkissjóður greiði Vs hluta söluskatts til Jöfn unarsjóðs sveitarfélaga, þó eigi lægri fjárhæð en 56 millj. kr. á ári. Þessum tekjum Jöfnunar- sjóðs skal úthlutað til sveitar- félaganna í réttu hlutfalli við íbúatölu hvers sveitarfélags 1. desember árið á undan, þó þannig, að ekkert sveitarfélag fái hærra framlag en nemi 50% af niðurjöfnuðum útsvör- um sl. ár. Hlutverk Jöfnunarsjóðs í frumvarpinu segir, að hiut- verk Jöfnunarsjóðs sé auk þess, sem áður greinir, að greiða úr fjárhagserfiðleikum sveitarfél- aga, að leggja út greiðslur þær á milli sveitarfélaga, sem ríkis- sjóður ber ábyrgð á samkvæmt framfærslulögunum, að greiða aukaframlag til þeirra sveitar- félaga, sem ekki fá nægileg út- svör álögð, að styrkja tilraunir til að koma betra skipulagi og meira samræmi í framkvæmdir sveitarmálefna ok samstarf sveit arfélaga. Æíluöu oð rdðo Krúsjeff af dögum París, 31. marz (NTB-AFP): — FRANSKA lögreglan hefur enn handtekið tvo menn í sambandi við fyrirætlanir um að ráða Krúsjeff af dögum. Heita þeir Philippe Moulin, sem er 27 ára og Jean Dominique Rossini, sem er 29 ára. Báðir voru þeir hand- teknir sl. föstudag í Montpellier. Á fimmtudaginn handtók París- arlögreglan Jean Delmas, fyrr- veiandi liðþjálfa úr hernum, sem kominn var til Parísar frá Mont- auban með fulla ferðatösku af handsprengjum. Samkvæmt upp- lýsingum lögreglunnar, hafði hann í hyggju að myrða Krúsjeff er hann sl. föstudag fór í heim- sókn í hús það er Lenin hjó í meðan hann var í útlegð firá heimalandi sínu. Delmas, sem er meðlimur í flokki róttækra hægrisinna, tók þátt í stríðinu í Alsír og í Indo Kína. Hann var handtekinn heima hjá vini sínum, Roland Perier, og eru þeir báðir ákærð- ir fyrir að hafa grafið undan öryggi ríkisins og'fyrir að hafa haft með höndum ólögleg vopn. Lögreglan hefur haldið hand- tökunum leyndum þar til nú. Fyrr í síðustu viku handtók lög- reglan þjón í vínstúku við Ohamps Elysees. 1 tveim íbúðum, sem hann hafði umráð yfir, fann lögreglan einn riffil og eina hand sprengju. Einnig fundust vopn heima hjá þeim tveim, sem hand- teknir voru í Montpellier. Lögreglan fékk vitneskju um fyrirætlanir Delmas þegar hann var að hreykja sér af því í kaffi- húsum í Montauban að hann ætl- aði sér að gera heimsókn Krús- jeff sögulega. Var haft eftirlit með honum frá því hann kom til Parísar með ferðatöskuna fulla af handsprengjum. Delmas var handtekinn þegar hann fór til húss Lenins til að undirbúa árásina. Silfurtún verði löggiit sem verzlunarsvœði Frá Alþingi í GÆR var útbýtt á Alþingi frum varpi frá Matthíasi Á. Mathiesen um löggildingu á verzlunarstað við Arnarnesvog í Garðahreppi í Gullbringusýslu. Er frv. flutt samkv. ósk sveitarstjórans í Garðahreppi, Þórðar Reykdal, en fyrir liggur hreppsnefndarsam- þykkt, þess efnis að verzlunar- svæði verði löggilt við Arnar- nesvog. Svæðið, sem um ræðir, er Silfurtún og nágrenni, en það hefur byggzt mjög á undanförn- um árum og eru þar nú tæplega 700 manns. Takmörk hins fyrirhugaða verzlunarsvæðis eru sem hér segir samkvæmt hreppsnefndar- samþykktinni: Að norðan: Arnarnesvogur. Að vestan: Úr Arnarnesvogi með- fram austur- og norðurbrúnum Gálgahrauns og Garðahrauns í Engidal að vörðu í hraunbrún- inni milli Haf narfj ar ðar og Reykjavíkur. Þaðan bein lína i Hádegishól. Þaðan bein lína að markalínu Hofstaða og Silfur- túns, þar sem hún kemur að Vif- ilsstaðávegi. Síðan eftir þeim mörkum að Arnarneslæk til sjávar. Dagskrá Alþingis í DAG eru boðaðir fundir í báð- um deildum Alþingis. Fjögur mál eru á dagskrá efri deildar: 1. Tekjuskattur og eignarskattur, frv. 1. umr. 2. Kornrækt, frv. 3. umr. 3. Útsvör, frv. 1. umr. 4. Sala lands í Vestmannaeyjum í eigu ríkisins og eignarnámsheim- ild á lóðar- og erfðafesturéttind- um, frv. 1. umr. Á dagskrá neðri deildar eru 7 mál: 1. Skipun prestakalla, frv, 2. umr. 2. Umferðarlög, frv. 2. umr. 3. Útsvör, frv. 1. umr. 4. Jöfnunarsjóður, frv. 1. umr. 5. Reykjanesbraut, frv. 1. umr. ". Ábúðarlög, frv. Frh. 1. umr. 7. Ættaróðal og erfðaábúð, frv. 1. umr. NA /S hnúiar y/ SV 50 hnútor ¥ Snjókoma 9 Oði \7 Slúrir íí Þrumur vÆ:iz Kutíasfci/ 'Zs* Hifastd1 H Hmi L * Lmgt 5 1 Hafísbeltið við Grœnland og Jónsmið s s ) S ENN setur Atlantshafslægðin ) svip sinn á kortið og veðrið. • Lægðin þokast norðureftir og S myndar austanstreng við suð- s urströnd Islands, svo veður- • hæð er orðin 6—8 vindstig í S grendinni við Eyjar. 1 dag er ) 15 stiga frost í Goose Bay, en ■ 14 stiga hiti í París. S Við austurströnd Grænlands S er sýnt hafísbeltið eftir ný- • legum heimildum. Næst landi S eru hafþök (þéttstrikuð), en S utar er sundurlaust ísrek ) (deplar). Hringurinn sunnan S við ísjaðarinn sýnir nokkurn S veginn hvar Jónsmið eru. S Veðurhorfur kl. 22 í gærkv.: S SV-mið: Hvass austan, rign- '* ing með köflum. SV-land, ( Faxaflói og Faxaflóamið: S Austan-gola fram ef tir nóttu, i en stinningskaldi á morgun, ( dálítil rigning. Breiðafjörður S til Norðurlands og Breiðafj.-i mið til norðurmiða: SA-gola, s bjartviðri. NA-land, Austfirð-S ir, norðausturmið og Austfj,- i mið: Hægviðri, þoka á annesj ( um og til hafsins. SA-land og S SA-mið: Vaxandi austanátt, í allhvasst vestan til á morgun, ( sums staðar rigning eða þoku- s súld. i 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.