Morgunblaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 12
12 MORGVTSBLÁÐ1Ð Föstudagur 1. apríl 1960 TTtg.: H.f, Arvakur. Reykjavík UTAN UR HEIMI ] Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. VOR í LOFTI ENDA þótt ennþá sé vetur, hefur þó undanfarna daga verið vor i lofti. Það hefur verið sólskin og hlýindi — og þá fara börn norðursins að hugsa um langa og bjarta an skollið á stórhríðar með frosti og fannkyngi, í maí eða jafnvel júní? En hvað sem þessu líður er vorþráin vöknuð í brjósti fólksins. Veturinn hefur ver- Hörund hans var svart — og það var nóg... daga, sol og sumar. Þegar hjörtun glaðna Vorið byrjar, þegar hjörtun glaðna, segir gamalt máltæki. En hnattstaða þessa norðlæga lands, hefur skapað ríka var- úðarkennd í brjósti þjóðar þess. Hversu oft hafa ekki komið fagrir, bjartir og hlýir dagar í marz eða apríl, en síð- ið mildur og hagstæður. Ver- tíðin stendur sem hæst og aflabrögð hafa verið góð. En allt í einu fara menn að hugsa til gróandans, lítilla blóma, sem skjóta varlega upp koll- inum og brosa framan í hækk- andi sól. Vorið er komið í sálina, bráðum kemur það líka í borg og sveit. ¥ langferðavagninum, sem var á leið til Hattiesburg í Missisippi í Bandaríkjunum, voru bæði blökkumenn og hvítir. — Vagninn stanzaði á einum stað, þar sem farþeg- u mskyldi gefið tóm til að hvílast litla stund — og hinir hvítu tóku að tínast út. Þeg- ar einn þeldökku farþeganna reyndi að fylgja þeim eftir, gkek bílstjórinn í veg fyrir hann. — „Hvert ætlar þú eig- inlega, Iagsmaður?“ spurði hann hranalega. — ★ — „Ég ætla að fara inn í biðher- bergið“, anzaði farþeginn kurteis lega. — „Hvað stendur á farmið- anum — áttu að fara úr hér?“ spurði bílstjórinn þá. „Nei, herra“, svaraði farþeginn, „ég fer alla leið til Hattiesburg". — Bílstjórinn lokaði dyrunum „Þá skaltu líka hypja þig í sætið aft- John Griffin — hinn hvíti. ur“, skipaði hann, „og ekki hreyfa þig fyrr en við komum til Hattiesburg“. Farþeginn hlýddi skipuninni orðalaust. •fr í gervi negra Blstjórinn vissi ekki, að mað- urinn, sem hann svo þjösnalega fram við, var ekki negri, heldur Nýr hershöfðinffi NATO PARÍS, 30. marz (Reuter). — Maurice Challe hershöfðingi var í dag skipaður yfirmaður her- sveita Vesturveldanna í Mið- Evrópu. Var hann tilnefndur af frönsku ríkisstjórninni að taka við af Jean Valluy hershöfðingja, en samkvæmt samþykkt Atlants- hafsbandalagsins á Frakkland að ráða þessari stöðu. Challe hefur verið yfirmaður frönsku herj- anna í Alsír, en við þeirri stöðu tekur nú Jean Crepin, sem hefur verið hershöfðingi Frakka í Al- geirsborg. hvítur maður. — Hann var rit- höfundurinn John Howard Griff- in og var þarna á ferð á vegum ritsins „Sepia“, sem gefið er út af negrum í Fort worth. Griffin hafði tekið inn sérstakar töflur, sem gera það að verkum, að húð- in verður dökkbrún á skömmum i Bandarískur rithof- j 1 undur „gerðist | i negri“ og ferðaðist i \ um Suðurríkin til i s s s^að kynnast kjorum^ i blokkumanna af i i eigin raun. — Hér \ i segir nokkuð frá j ( reynslu hans. | i s tíma við áhrif sólarinnar, og auk þess hafði hann notað jurtalit. Þegar hann hafði einnig látið skera hár sitt mjög stutt, hafði fcann fengið á sig yfirbragð blökkumannsins — og nú var hann á ferð um Suðurríkin til þess að kynnast því af eigin raun, hvernig það væri að „klæðast" hörundi blökkumannsins. — 1 ný útkomnu hefti af „Sepia“ birtist fyrsta grein Griffins úr þessu sér st.æða ferðalagi. ★ Hatursaugnaráðið Griffin ferðaðist um fjögur ríki: Missisippi, Alabama, Louisi- ana og Georgia — og alls staðar var litið á hann sem negra, bæði af blökkumönnum og hvítum. Hann var vel og snyrtilega klædd ur, hafði þó nokkru fé úr að spila, og hver, sem við hann ræddi, hlaut fljótlega að finna, að hann var vel menntaður. Griffin ferð- aðist undir sínu rétta nafni og var tilbúinn að upplýsa, hver hann væri, ef einhver spyrði. En það spurði bara enginn um það — hörund hans var svart, og það var nóg. Hvar sem Griffin fór um Suð- urríkin, mætti hann „haturs- augnaráðinu, sem hann svo nefn- ir. — Eitf sinn bauð hann hvítri konu sæti sitt í strætisvagni í New Orleans. Hnn tók strax eftir því, að ndlitsdrættir hennar stirn uðu og svipurinn varð fjandsam- legur. — „Hvers vegna horfir þú svona á mig?“ spurði hún hvasst — og tuldraði síðan í barm sinn, um leið og hún sneri sér undan: „Þeir verða alltaf frekari og frek ari, þessir náungar, með hverj- um deginum, sem líður“. ★ Kærum okkur ekki um ykkur Griffin ferðaðist um tíma „á þumalfingrinum" um Alabama — það er að segja, hann fór um gangandi, en reyndi að fá sér far með bílum spöl og spöl. — Eitt sinn tók hvítur vörubílstjóri hann upp í bifreið sína. Er þeir höfðu ekið þegjandi stundarkorn, sneri bístjórinn sér að Griffin og spurði með illkvittislegu glotti, hvort kona hans hefði nokkru sinni sofið hjá hvítum manni — Á UNDANHALDI E'RAMSÓKNARMENN og kommúnistar hafa mjög látið að því liggja undanfar- ið, að æskan væri andvíg við- reisnaraðgerðum núverandi ríkisstjórnar. En þessi stað- hæfing þeirra, eins og fleiri, virðist hafa við lítil rök að styðjast. Það kom m. a. í Ijós á hinum geysifjölmenna æsku lýðsfundi, sem ungir Sjálf- stæðismenn og kommúnistar efndu sameiginlega til sl. þriðjudagskvöld. Kommún- istar voru þar á hröðu und- anhaldi. Greinilegt var, að yfirgnæf- andi meirihluti unga fólksins, sem þennan fund sótti, var fylgjandi viðreisnarráðstöf- unum ríkisstjórnarinnar. — Fengu ræðumenn Sjálfstæð- ismanna þar hinar innileg- ustu móttökur, en mjög dauf- lega var tekið í málflutning kommúnista. Af hálfu Sjálf- stæðismanna töluðu þarna þeir Birgir ísleifur Gunnars- son, Othar Hansson og Pétur Sigurðsson alþingismaður. Birgir Gunnarsson benti m. a. á það, að vinstri stjórn- in hefði skilið við öll vanda- mál óleyst. Hún lét öðrum eftir að glíma við þau. Þetta er vissulega rétt. Vinstri stjórnin stökk fyrir borð af stjórnarskútunni, vegna þess, að hún sá að hún hafði komið öllu í öngþveiti og upplausn. Það kemur svo í hlut nú- verandi ríkisstjórnar að bæta úr afglöpum þessarar lán- lausu stjórnar vinstri flokk- anna. Ræðumenn Sjálfstæðis- manna á æskulýðsfundinum gerðu ítarlega grein fyrir við- reisnarstefnu núverandi ríkisstjórnar. Þeir lögðu plöggin hreinlega á borðið um það, hver væru úrræði og tillögur Sjálfstæðismanna gagnvart þeim vandamálum, sem þjóðin ætti nú við að etja. Þei<r böpðu Ræðumenn Sjálfstæðis- manna spurðu jafnframt full- trúa kommúnista, hver væru þeirra úrræði og hvort þeir vildu ekki gera unga fólkinu grein fyrir þeim? En það gátu ræðumenn kommúnista ekki gert. Þeir þögðu, þeir stein- þögðu og urðu þannig að játa, að þeir höfðu ekkert jákvætt til málanna að leggja- Þeir gátu aðeins hamrað á innantómum fár- yrðum og sleggjudómum um viðreisnaraðgerðir rík- isstjórnarinnar. Framsækin æska Birgir Gunnarsson lauk m. a. ræðu sinni með þessum orðum: „Hiin framsækna æska er ávallt reiðubúin til að berjast fyrir umbótum, ekki sízt þeg - ar hún veit að verið er að stíga skref, sem auka á heil- brigði í þióðfélaginu, auka á möguleika dugandi ungra manna, sem vilja láta gott af sér leiða. Unga fólkið mun nú rísa upp, hrista af sér fjötra hafta og drepandi eftirlits og ganga fram á veginn til auk- innar velmegunar“. Undir þessi lokaorð Birgis Gunnarssonar var tekið með miklum fögnuði. Ungir Sjálf- stæðismenn voru í yfirgnæf- andi meirihluta á fundinum, málflutningur fulltrúa þeirra bar af og kommúnistar fóru þaðan sneyptir og framlágir. ,.Negrinn“ John Griffin og bætti svo við: — „Eiginlega gerum við ykkur mikinn greiða með því að blanda dálitlu af „hvítu“ blóði í börnin ykkar“. Griffin fór í verksmiðju eina í Mobile og spurðist fyrir um, hvort hann gæti fengið þar eitt- hvert starf. — Verkstjórinn svar- aði fyrirspurn hans kuldalega: — „Við kærum okkur ekkert um ykkur. Við erum smám saman að losa okkur við svertingja úr verk smiðjunni. Brátt verður svo kom- ið, að einu verkin, sem þið getið íengið hér, verða þau, sem eng- inn hvítur maður vill líta við“. — Og það er sama, hvert hann leitaði — hann gat hvergi fengið nema hin auðvirðilegustu störf, þau, sem helzt enginn fékkst til að vinna. ★ Hin myrka nótt Griffin hóf þessa „pílagríms- för“ sína með þeirri tilfinningu, að hann hefði raunverulega ekki þá samúð með negrunum, sem þeir ættu skilið • — og að hann ski'ai alls exkí hlutskipti þeirra. Hann segir, að för sín hafi vissu- lega fært sér heim sanninn um, að þessi tilfinning var á rökum reist. — „Ég hafði enga hugmynd um, hvað þeir verða raunveru- lega að þola“, segir hann. „Ég grét mig bókstaflega stundum í svefn á kvöldin. — Mér lærðist, að negranum líður skárst á nótt unni, þegar myrkrið ríkir — og finnst hann þá helzt vera örugg- ur“. Hann kveðst nú fyrst skilja hina djúpu merkingu í ljóði Langston Hughes, þar sem hann yrkir um negrann og nóttina, sem kemur mjúklega svört eins og hann. (Night coming tenderly, black like me). — ★ — Eftir að Griffin hefir „leikið“ negra um mánaðarskeið, elur hann með sér nýjar efasemdir um ágæti eigin kynstofns. — „Eg vil gjarna trúa á hið góða í hvíta manninum", segir hann. „En eftir þá reynslu, sem ég nú hefi fengið, reyndist mér það erfitt a. m. k. að því er varðar hinn hvíta mann Suðurríkj anna“. Reynir að hindra öryggisráðið NEW YORK, 29. marz: — Full- trúi stjórnar S-Afríku kom til New York í dag til þess að reyna að koma í veg fyrir að öryggis- ráðið verði kvatt saman að beiðni Asíu og Afríku-ríkja til að ræða kynþáttaátökin í S-Afríku. Eng- in vafi er talinn á því að ráðið verði kvatt saman og búizt er við að það verði mikill hitafundur, því Ghana, Indland og S-Afríka hafa óskað þess að fá að hafa fulltrúa sína viðstadda, er til kemur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.