Morgunblaðið - 01.04.1960, Side 14

Morgunblaðið - 01.04.1960, Side 14
14 MORCTJNRT 4fílÐ Föstudagur 1. apríl 1960 BYGGINGARSAMVINNUFÉLAF SlMAMANNA 1 2. fl. er til sölu 2 ja herb. rísíbúð Þeir félagsmenn er óska að neyta forkaupsréttar snúi sér til íélagsstjórnarinnar fyrir 8. apríl n.k. STJÖRNIN. ’/j húseign við Cunnarsbraut til sölu I. hæð 3 herbergi, eldhús og bað í kjallara 2 herbergi. Bílskúrsréttindi; hitaveita. RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, hrl. Laufásvegi 2 — Sími 19960. Skrifstofu eða iðnaðarhúsnœði á góðum stað í bænum er til leigu nú þegar. Hús- næðið er á 3ju hæð ca.300 ferm. Tilb. sendist Mbl. fyrir n.k. þriðjudagskvöld merkt: „9328“. Höfum fengið aftur hin vinsælu og ódýru Hillujárn SKILTAGERÐIN, Skólavörðustíg 8. Gæzlu- og vaktmaður Öskast Kópavogshælið vantar nú þegar gæzlu- og váktmann til vinnu á sjúkradeildum. Umsækjendur snúi sér til forstöðumanns hælisins, sími 19785. SKRIFSTOFA RÍKISSPlTALANNA. Höfum opnað vinnustofu undir nafninu Vélar & Viðtœki Bolholti 6 sími 35124. Radíoviðgerðir — Saumavélaviðgerðir. Rúmgóð bílastæði. Þorgeir B. Skaftfell, Guðmundur Jónsson. íbúð til sölu Rishæðin að Skipasundi 3, hér í bæ, er til sölu nú þegar. Laus til íbúðar 14. maí n.k. eða eftir samkomulagi. íbúðin er 4 herbergi, eldhús og bað, ásamt góðum geymslum, sameiginlegu þvottahúsi og miðstöð. Ibúðin er til sýnis kl. 6 til 9 síðdegis. Semja ber við undirritaðan. Þorvaldur Þórarinsson, hsestaréttarlögmaður, Þórsgötu 1, Reykjavík. Tómas Þórðarson bóndi á Grafarbakka — Minning 1 DAG er kvaddur hinztu kveðju Tó rnas Þórðarson bóndi á Grafar bakka í Hrunamannahreppi, sem lézt 23. marz síðastliðinn á heimili sínu. Útför hans fer fram írá Hrunakirkju. Tómas Júlíus Þórðarson, hét hann fullu nafni, var f. 21. júlí 1876 í Gröf, sonur hjónanna Þóru Jónsdóttur og Þórðar Guðmunds- sonar. Þóra var dóttir Jóns hreppstjóra í Hörgsholti, Jóns- sonar. Er það hin kunna Hörgs- holtsætt. En móðir Þóru var Guð rún fræðikona Snorradóttir frá Kluftum, Halldórssonar frá Jötu, Jónssonar frá Tungufelli. Voru þeir hálfbræður séra Kolbeinn Þorsteinsson í Miðdal. Þeir voru sammæðra. Frá séra Kolbeini er Kolbeinsætt og eru margir at- hafnamenn frá honum komnir. Þórður faðir Tómasar var sonur Guðmundar á Grafarbakka og Fossi, Helgasonar á Grafarbakka, Einarssonar lögréttumanns í Galtafelli, Bjarnasonar í Lækjar botnum á Landi. Tómas ólst upp í stórum syst- kinahópi því börn Grafarhjón- anna voru 12. Af þeim náðu 9 fullorðinsaldri, og eru sex enn á lífi. Eins og algengt var með unga menn upp úr aldamótunum varð Tómas þegar í æsku að sækja til fanga við ýmiss konar vinnu, bæði í sveit sinni og annars stað- ar, eftir því sem hentugleikar leyfðu. Hann var liðtækur til hvaða vinnu sem var og lag- tækur vel, enda eftirsóttur til allra starfa. Meðal annars stund- aði hann margs konar vinnu í Reykjavík, og má til nefna hvaða álit Tómas ávann sér, að hann var um skeið fjármaður hjá Thor Jensen, en eins og kunnugt er tók hann ekki í þjónustu sína nema úrvalsmenn. Tómas lærði söðlasmíði hjá Jóni Bjarnasyni, söðlasmið á Stokkseyri og fékk sveinsbréf í íðninni. Tómas var með fyrstu iðnaðarmönnum í þeirri grein í sveit, og stundaði hann söðla- smíði jafnframt búskapnum alla ævi. Tómas byrjaði að búa í Bola- fæti árið 1911 og bjó fyrstu árið með móður sinni. Hann lcvæntist árið 1912 Þóru Loíís- dóttur rórda í Steinsholti, Lofts- sonar í Austurhlíð, Eiríkssonar dbrm. á Reykjum á Skeiðum. Frá Eiríki dbrm.. er hin alkunna Reykjaætt Að þeim hjónum standa alþekktar sunnlenzkar bændaættir. Árið 1935 keypti Tómas hálfan Grafarbakkann og bjó þar síðan og undi hag sínum þar vel. Nú hafa tvö börn Tómasar reist þar nýbýli, og er samheldni fjöl- skyldunnar með mestu ágætum. Eftir að Tómas fluttist að Graf arbakka hafði hann eins og áður notalegt bú, en auk þess stundaði hann garðrækt, enda er jarðhiti þar mikill og landkostir góðir. Tómas var meðalmaður vexti en frekar grannvaxin, kvikur í hreyfingum og fjörmaður á sín- um yngri árum. Tómas var ein- stakt prúðmenni og lundarfar hans var alveg sérstætt, ávalt glaðsinna, og aldrei sá ég hann bregða skapi. Tómas var hinn mesti heiðursmaður í hvívetna og vildi ekki vamm sitt vita í neinu. Hann hafði ákveðnar skoð anir, jafnt í málefnum sveitar sinnar og landsmálum, og þýddi ekki fyrir neinn að hafa áhrif á hann í þeim efnum. Tómas unni jörð sinni og sveit mikið, og var lífskoðun hans öll mótuð tryggð til átthaganna. Gestrisni þeirra hjóna, Tómas- ar og Þóru, var framúrskarandi. Enginn fór þar hjá garði án góð- gerða og heimili þeirra stóð ævin lega opið öllum, sem til þeirra leituðu. Gestkvæmt var oft á Grafarbakka, sérstaklega um helgar, enda er jörðin Grafar- bakki í hjarta þessarar fögru sveitar, Hrunamannahrepps. Tómas var sérstakur greiðamað- ur og bóngóður með afbrigðum, og vildi hvers manns vanda leysa. Sveitungar hans leituðu oft til hans með margt, en sérstaklega um þá hluti, sem lutu að við- gerðum ýmissa búshluta, þar sem hann var hagleiksmaður og söðla smiður. Þau Tómas og Þóra lifðu í mjög farsælu hjónabandi nær hálfa öld. Þau eignuðust fjögur börn, sem öll eru hin mannvæglegustu: Sveinn vélamaður á Sélfossi, kvæntur Sigrúnu Bjarnadóttur, Sigurður Loftur bóndi á Hvera- bakka, kvæntur Svövu Svein- bjarnardóttur, Þóra, gift Jóni Einarssyni bónda á Reykjabakka og Sigrún í föðurgarði. Hefur hún aðstoðað foreldra sína af mikilli prýði, eftir að systkini hennar stofnuðu sjálfstæð heimili. Manna eins og Tómasar á Graf arbakka er gott að minnast. En ég mun fyrst og fremst minnast hans sem bónda. Hann var sómi stéttar sinnar og verður ávallt minnisstæður öllum, sem kynnt- ust honum. Hans mun lengi verða minnzt í Hreppunum og sunn- lenzkum byggðum, sakir mann- kosta og sérkenna, sem oft minntu á höfðingskap og gest- risni eins og hún var bezt til forna. Að leiðarlokum er margs að minnast og margt að þakka. Eg vil með þessum fáu línum votta fjölskyldunni samúð og jafn- framt þakka greiðasemi og vin- áttu við mig og fjölskvldu á liðnum árum. Hróbjartur Bjarnason. íbúð til leigu Hefi til leigu frá 14. maí 5 herb. glæsilega íbúð á Melunum. Stærð ca. 140 ferm. Tilboð sendist af- greiðslu Morgunbl. f. h. á morgun merkt: „Maí — 9458“. Bókamenn Bókasöfn hefi heil þessi tímarit og einnig 2—300 smaérri tímarit og blöð. Akranes, Aldamót, Almanak (þjóðvinafél.), And- \ vari, Árbók (Háskólans), Berklavörn, Birkibeinar, Bóka- , safn þjóðvinafél., Búnaðarritið Dagrenhing J.G., Dráupn ir, Dropar, Dvöl, Eining, Embla, Fálkinn, Fréttir frá ís- landi, Freyr, Frjáls verzlun, Fylkir, Gangleri Garður, Geislinn, Gerpir, Hagskýrslur Islands, Heimili og skóli, Heimir (1904—1923—1935), Helgafell, Hlín (1903—1917, Iðunn (1860, 1884—1915, ísfenzk fræði, íslenzk fyndni^ Jólablað, Stjarnan í austri, Jörð (1931—1940), Kirkju- blaðið (1891—1833—1843), Kirkjuritið, Kirkjutíðindi,1 K.R.-blaðið, Landnám Ingólfs, Landhagsskýrslur og Verzlunarsk. Lífið, Líf og list, Lindin, Lögréttá, Morgunrf,,; Nítjápdi júní, Norðurljósið, Norræn jól, Norofens Kalend- er, Nýtt kirkjublað, Nýtt kvennablað, Préstáfélagsritið, i Réttur Reykjalundar, Reykvíkingur 1928, Rökkur sagá (1925—1950), Sautjándi júní 1922, Sindri Sjómaðurinn Sjómannadagsbl., Sjómannablaðið Víkingur, Skógrætkar- fél. Ársrit, Skírnir 1915, Skuggsjá, Slysavarnarfél. (Ár- bók), Sókn, Sólskin 1931, Spegillinn, Stefnir 1929—1950, Stígandi, Straumhvörf, Stundin 1940 — Sunnanfari, Syrpa 1947, Skýrslur um Landshagi, Tíbrá, Tíðindi um stjórnamálaefni, Tímarit Bókmenntafél. Iðnaðarmanna, íslenzka Samvinnufél., Um uppeldi og menntam., Verk- fræðingafél. íslands, Þjóðræknisfél., Tónlistin,- Úrval, Út- varps blöð og tíðindi, Vaka 1927—193g Verðandi, Verði ljós, Víðsjá, Vinnan, Þjóðin 1938, Ægir 1905. — Auk þess fjöldi útlendra og innlendra bóka mjög ódýr- ar verða til sölu þessa viku. BÓKAMARKAÐURINN, Laugaveg 7 Helgi Tryggvason. A \OiHCL sWrM\ [fíaðirjður T\o6mised F€i6bi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.