Morgunblaðið - 02.04.1960, Síða 16
16
MORCVNBL A»IB
Laugardagur 2. apríl 1960
Utgerðarmenn
Vélstjórar
Útvegum spennustilla
fyrir allar spennur, 32 volt, 110 volt og 220 volt frá
PINTSH BAMAG, einnig rafala (Dynamóa).
Þeir útgerðarmenn, sem ætla að fá sér rafala og
spennustilla fyrir síldveiðitímann hafi samband við
okkur sem fyrst.
Einkaumboðsmenn á fslandi fyrir
PINTCH iSAiviAG A/G Dinslaken.
Nýlendugötu 26, Reykjavík
símar 19477 — 13309.
I&na&arhúsnœði
Fjögur herb. til sölu eða leigu mætti notast sem íbúð.
Útb. samkomulag. Upplýsingar í síma 11420 og 19263.
Nr. 12/1960
Tilkynning
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi há-
marksverð á brauðum í smásölu:
Franskbrauð, 500 gr............. kr. 4,30
Heilhveitibrauð, 500 gr........... — 4,30
Vínarbrauð, pr. stk ............. — 1,15
Kringlur, pr. kg........... — — 12,50
Tvíbökur, pr kg................... — 19,20
SéU nefnd brauð bökuð með annarri þyngd en að ofan
greinir, skulu þau verðlögð í hlutfalli við ofangreint
verð.
Heimilt er þó að selja sérbökuð 250 gr. franskbrauð á
kr. 2,20, eí 500 gr. brauð eru einnig á boðstólum.
Á þeim stöðum, sem brauðgerðir eru ekki starfandi, má
bæta samanlögðum flutnigskostnaði við hámarksverðið.
Reykjavík, 31. marz 1960
VERÐLAGSSTJÓRINN.
Auglýsing frá viðskipta-
málaráðuneytinu um
afnám skömmtunar
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skömmtun á smjöri og
smjörlíki skuli hætt frá 1. apríl n.k.
Vegna breytinga á niðurgreiðslu á smjöri og smjörlíki
er lagt fyrir smásöiuverzlanir að framkvæma birgðakönn-
un á þessum vörutegundum áður en sala hefst 1. apríl.
skulu skýrslur um birgðir staðfestar af trúnaðarmanni
verðlagsstjóra eða viðkomandi oddvita. Skýrslur um smjör
birgðir skulu sendar Osta- og smjörsölunni s.f. eða því
mjólkurbúi, sem viðkomandi verzlun skiptir við. Skýrslur
um smjörlíkisbirgðir skulu sendar þeirri smjörlikisgerð,
sem verzlunin skiptir við. Mun niðurgreiðsla ríkissjóðs
verða sú saitia á ofannefndum birgðum eins og hún verð-
ur á smjöri og smjörlíki, sem framleiðendur selja eftir
1. apríl.
Þá hefur rikistjómin ákveðið að skömmtunarreitum
skuli skila til Innflutningsskrifstoíunnar eigi síðar en
30. april n.k.
Viðskiptamálaráðuneytið, 31. marz 1960.
Sýning Valtýs
i Listamannaskálanum
ÞESSI sýning sem stendur yfir
í Listamannaskálanum nú þessa
daga er rivjög skemmtileg og þar
er margt nýtt að sjá. Valtýr er
lífrænn í sínu starfi, hann hefir
heilbrigða þörf fyrir að breyta
til, reyna nýjar aðferðir og tján-
ingarform, virinugleðina yirðist
hann hafa fengið í vöggugjþf. Ég
hefi haft óblandna ánægju af að
sjá þessa síðustu sýningu Vaitýs,
og það hefir reyndar frá byrjun
verið skemmtilegt að fyjgjast
með þessum listamanni, og vinnu
brögðum hans. Fyrri verk hans
voru yfirleitt laus- við skraut, og
mærð^þau voru óbrotin, litaval-
ið smekklegt, Valtýr hefir alltaf
haft næmt auga fyrir fegurð
gráa litarins í alls konar tilbrigð
um. Brúnt, grátt, svart og hvítt,
lífgað hér og þar með sterkari
iitum, það er endurminning mín
af iitum Valtýs. Hér var látieysi,
Sendiherra Belgíu
afhendir trúnað-
arbréf
HINN nýi sendiherra Belgíu á fs-
landi, le Chevalier Jean de Font-
aine afhenti í gær forseta íslands
trúnaðarbréf sitt við hátíðlega at-
höfn á Bessastöðum, að viðstödd-
um Emil Jónssyni ráðherra, sem
fer með utanríkismál í fjarveru
utanrikisráðherra. Að athöfninni
lokinni höfðu forsetahjónin boð
inni fyrir sendiherrann.
Rautt lauf í mosa
LJÓÐABÓK hefur borizt blað-
inu. Nefnist hún Rautt lauí í
mosa og er eftir Elínu Eiríks-
dóttur frá Ökrum, sem áður hef-
ur gefið út eftir sig Söng í sefi.
í þessari bók eru 88 ljóð og er
bókin 88 síður. Hún er gefin út
á kostnað höfundar. Ljóðin í bók-
inni eru flest rimuð.
Kennsla
Látið dætur yðar læra að sauma
5 og 6 mánaða námskeið byrja
4. maí og 4. nóv. Sækið um ríkis-
styrk. — Atvinnumenntun. —
Kennaramenntun tvö ár. — Biðj-
ið um skólaskrá. 4ra mánaða
námskeið 4. jan., 3ja mánaða 4.
ágúst. G. Hargböl Hansen. Simi
Tlf. 851084. — Sy og Tilskærer-
skolen, Nyköbing F, Danmark.
en þróttur. En byrjandinn á allt-
af við einhverja érfiðleika að
stríða — litirnir voru stundum
þungir, og harðir, verkin sneydd
þeim þægindum og munaði, sem
augað leitar alltaf eftir í mynd,
En þrátt fyrir ýmiskonar ófull-
komleik hins óreynda, hefur mér
alltaf fundist þessi fyrri verk
Valtýs aðlaðandi. -Hann var áður
fyrr — og er’ enn --— inni á sömu
braut og margir jafnaldrar hans
í listinni hér heima. Þessir ungu
menn vildu umfram allt fórðast
skraut og sætleika, þéir voru
jafnvel smeykir við að vera þægi
legir í list sinni. Þetta var heil-
brigt viðhorf — og það spáir
góðu þegar ungir menn hafa
svona nokkuð á tilfinningunni er
þeir byrja, fyrst er að smíða hlut
inn, það er alltaf gott að pússa
hann til á eftir — ef þörf gerist.
Hin síðustu verk Valtýs, þau
sem nú eru sýnd í Listamanna-
skálanum ,eru yfirleitt ríkari í
lit, lífrænni og mildari en áður
var. Mér fyrir mitt leyti finnst
Mósaík-myndirnar skemmtileg-
astar, enda virðist Valtýr hafa
unnið mest í þessu efni nú upp
á síðkastið.
Ég vildi óska að- listamaðurinn
fái í framtíðinni verk að vinna
við að skreyta stóra veggi í nýj-
um byggingum í okkar ungu
borg. Mosaik er list handa ókkar
arkitektúr og það er gömul
reynsla utan úr löndum að sú
list er stórfengleg og æfintýrafög
ur, þegar rausn leikmanna og
andi listamannsins vinna saman.
Ég þakka svo Valtý Péturssyni
fyrir góða sýningu, og margskon-
ar innspírasjónir, klassiskar og
háttbundnar, eða þá rómantisk-
ar og úreltar, í þeim gamla stíl
sem við höfum týnt.
Syng nú mín sálarlúta
sætlegan brúðkaups óð,
hart meðan heimsins rúta
hringveltist sína slóð.
Svo kvað hið mikla skáld. Lista
maðurinn vinnur sitt verk einn
og óséður, en meðan hans sálar-
lúta skapar hinn sætlega brúð-
kaupsóð listarinnar, hringveltist
veröldin og leikur sér að því að
snúa' því niður í dag sem sneri
upp í gær. Þetta er hreint ekk-
ert slæmt fyrirkomulag, ég vona
að það breytist ekki í framtíð-
innL
Gunnlaugur Seheving.
Páll Magnússon
járnsmibur — minning
PÁLL Magnússon dó á heimili
sínu Bergstaðastræti 4, Reykja-
vík laugardaginn 26. marz 1960.
Hann var fæddur 17. juh 1877 í
Lambhaga í Mosfellssveit, sonu-
Magnúsar bónda þar Pálssor.ar á
Blikastöðum, Ólafssonar á Blika-
stöðum, Guðmundssonar kiæða-
litara í Leirvogstungu og Þor-
móðsdal, Sæmundssonar á Kjall-
aksstöðum, Þórðarsonar prófasts
á Staðastað, d. 1720, Jónssonar
(Bauka-Jóns) biskups á Hólum,
Vigfússonar sýslumanns Rangár-
þingi, Gíslasonar lögmanns
Bræðratungu, d. 1631, Hákonar-
sonar sýslumanns, Árnasonar
ríka sýslumanns Hlíðarenda
Fljótshlíð Gíslasonar.
Páll ólst upp í Mosfellssveit.
Ungur að árum og einbeittur í
skapi braust hann í því að koma
sér til náms i járnsmíði hjá Þor-
steini járnsmið Tómassyni. Kom
brátt í ljós að Páil var hagleiks-
maður ágætur og gerðist hann
mjög handgenginn Þorsteini læri
föður sínum. Hefur Þorsteinn
kunnað að meta mannkosti Páls
og drengskap, hagleik og trú-
mennsku. Að ioknu námi hjá Þor
steini við góðan orðstír, fór hann
á nokkurra mánaða námskeið í
Kaupmannahöfn. Eftir heimkom
una setti hann á stofn verkstæði
á Bergstaðastræti 4 i Reykjavík
og stundaði þar iðn sína til ævi-
loka. Fór gott orð af Páli og leit-
uðu því margir ungir menn til
hans til læringar. Páll var hæg-
látur og dagfarsprúður, hugul-.
samur óg sanngjarn við nem-
endur sína, vitandi, að „aðgát
skal höfð í nærveru sálar“. Hann
var mannþekkjari mikill og virti
hvern mann til verðleiks og gild
is. Vinátta hans var ekki viðsjál
heldur nærfærin og varanleg og
tryggðin tröllaættar. í iðn sinni
var Páll traustur og trúr, vand-
virkur og vandaður að virðingu
sinni. Virðist þeim er þetta rit-
ar, að Páll hafi í éðli sínu og at-
ferli öllu verið vammi firrður
sæmdarmaður.
Páll Magnússon var kvæntur
friðleiks- og skírleikskonu Guð-
finnu Einarsdóttur, systur Sig-
urðar Hlíðar dýralæknis. Reynd-
ist Guðfinna mér sú bezta hús-
móðir, sem ég hef haft kynni af.
Hún dó 1950. Þeim varð 8 barna
auðið. Eru þau systkinin að mínu
viti gott fólk og mannvænlegt.
Ég, sem rita þessi minningar-
orð nam járnsmíði hjá Páli Magn
ússyni og var fyrsti nemandi
hans, er tók sveinspórf undir hans
handleiðslu. Sýndi Páll mér frá
fyrstu kynnum vinarþel og virð-
ingu og trúnaðartraust, er efldi
sjálfstraust mitt og entist mér til
nokkurs þroska. Fyrir þessar sak
ir þakka ég nú við leiðarlok Páli
Magnússyni, konu hans og börn-
um góð kynni og vináttu. Votta
ég syrgjendum samúð mína.
Jón Guðnason.