Morgunblaðið - 05.04.1960, Page 23
Þriðjudagur 5. apríl 1960
MORGUNRT.AÐIÐ
23
Vesimasaneyistffur
hiaui ábúð DAS
1 GÆR var dregið í 12. fl. í Happ
drætti Dvalarhemilis Aldraðra
Sjómann um 20 vinninga eins og
að venju.
3ja herbergja íbúð Hátúni 4
6. hæð kom á nr. 6097. Umboð
Vestmannaeyjar. Eigandi Friðrik
Ölafsson, Asi, Ve.
Zodiac 6 manna fólksbifreið
kom á nr. 53577. Umboð Vestur-
ver. Eigandi Svala Eggertsdóttir,
Barmahlíð 3.
Fiat 600 Multipla fólksbifreið
kom á nr. 13578. Um boð Hreyfili.
Eigandi Guðm. Þorvarðarson bif-
reiðastj., Blönduhlíð 1.
Húsbúnaður eftir eigin vali fyr
ir kr. 20.000.00 kom á nr. 36310.
Umboð Þórshöfn
Húsb.únaður eftir eigin vali
fyrir kr 15.000.00 kom á nr. 5501
(Patreksfjörður), 11537 (Kron,
Kópavogi).
Húsbúnaður eftir eigin vali fyr
ir kr. 12.000.00 kom á nr. 5676
(Keflavík), 9287 Vesturveri, nr.
41823 (Vesturver), 61161 (Vestur
ver).
Húsbúnaður eftir eigin vali
fyrir kr. 10.000.00 kom á nr.
— Frækorn
Framh. af bls. 15.
Þú fjöllum krýndi fjörður blár,
með fossamergð í hlíðardrögum,
og silfurtærar silungsár,
er segja margt frá liðnum dögum.
A fleti sævar, fuglahjörð,
svo frjáls og glöð á vorin syngur.
Um staðinn fagra stendur vörð
hinn stóri og víði fjallahringur.
Við vinir Bjarna, en þeir eru
margir, óskum honum alls hins
bezta með þessa nýju bók, og
(heitum sérstaklega á Borgfirð-
inga að veita honum stuðning
með því að kaupa bókina.
J.Á.
- íbróttir
Framh. af bls. 22.
jafn framan af. Við leikhlé var
rnarkatalan 6:3. — 1 síðari hálf-
leik náðu F.H.-stúlkurnar alger-
lega yfirtökunum á leiknum og
sigruðu með 13:5
Mest áberandi í F.H.-liðinu
voru sem fyrr Sigurlína Björg-
vinsdóttir og Sylvía Hallsteins-
dóttr, en þær eru af mörgum
taldar einar þær efnilegustu
handknattleiksstúlkur, sem kom-
ði hafa fram í mótnu. — Sigur-
lína skoraði 9 mörk í leiknum
og Sylvía 3 mörk.
Fram vann K.R. 5:4 í 2. fl. A. b.
Fram og K.R. léku til úrslita í
b-riðlinum. K.R. byrjaði vel og
hafði yfirhöndina allan fyrri
hálfleikinn og við leikhlé var
markatalan 3:1 K.R. í vil. — í
síðari hálfleik sóttu Framstúlkum
ar sig og er nokkrar min. voru
eftir höfðu þær jafnað leikinn
4:4. Síðustu mínútur leiksins
voru mjög spennandi. Fram fékk
tækifæri til að skera úr um leik-
inn, er þeim var dæmt vítakast
á K.R., en Brynhildur Pálsdóttir
hitti ekki markið. Rétt í leikslok
tókst Fram að skora sigurmarkið
og vann leikinn 5:4.
ÚRSLIT EINSTAKRA LEIKA:
Laugardagur:
3. fl. K. A.a. F.H. — I.B.K. 12:7
3. fl. K. B.b. I.B.K. — Haukar 10:20
2. fl. K. A.a. I.B.K. — Armann 2:24
Leikur átti að fara fram milli S.B.R.
og I.A. 1 2. deild, en I.A. mætti ekki
til leilcs og hlutu því S.B.R. 2 stig.
Sunnudagur:
2. fl. Kv. B. K.R. — Armann 6:7
2. fl. Kv. A.a. Vikingur — F.H. 5:13
2. fl. Kv. A.a. K.R. — Fram 4:5
3. fl. K. B.a. Valur — Fram 9:11
3. fl. K. B.a. Armann — K.R. 8:7
3. fl. K. B.b. Haukar — F.H. 7:3
2. fl. K. B.a. Armann — Vikingur 7:9
2. fl. K. B.a. K.R. — F.H. 4:12
3. fl. K. A.b. Víkingur — Haukar 9:9
Mfl. K. 2. d. Fram — Akranes 43:15
Mfl. K. 1. d. I.R. — F.H. 17:25
9654 (Vesturver), 13000 (Vestur-
ver), nr. 16739 (Dalvík), 16680
(Akureyri), nr. 18732 (Vesur-
ver), 31186 (Vesturver), nr. 37472
(Sjóbúðin), 60319 (Vesturver),
nr. 62371 (Vesturver), 63692
(Vesturver).
— Ljóstæknivika
Frh. af bls. 3-
sem við kemur heimilum, iðnaði,
umferð o. fl. Af íslands hálfu
starfar Aðalsteinn Guðjónsen
á vegum samtakanna, en hann
er jafnframt framkvæmdastjóri
Ljóstæknifélags Islands, en í
stjóm þess eru:
Steingrímur Jónsson formað-
ur, Jakob Gíslason, ritari og
varaform., Hans Þórðarson gjald
keri og meðstjómendur: Guðm.
Marteinsson, Kritinn Guðjónsson,
Bergsveinn Ólafsson og Hannes
Davíðsson.
— Genf
Frh. af bls. 1.
ríki gætu öðlazt forgangsrétt til
veiða utan tólf mílna.
Fulltrúi Tyrkja hafði áður
flutt framsöguræðu sína, en stóð
nú upp til að tilkynna að hann
væri mjög hlynntur hgumyndinni
um fimm til tíu ára uppsagnar-
frest, sem fram hefði komið í
ræðum fundarmanna. Lýsti hann
því yfir að hann væri mjög á-
nægður með með þá sáttalöngun
sem þetta sýndi.
Ómögulegt er að fá staðfest-
ingu á því hvort tiliaga er á döf-
inni um uppsagnarfrest, eins og
sífellt er verið að tala um í ræð-
um. En þessi ræða Tyrkjans, sem
hingað til hefur fylgt Bandaríkj-
unum, gæti bent til þess.
Hingað til hafa fulltrúar 48
ríkja talað á ráðstefnunni. Á
morgun eru á mælendaskrá full-
trúar, ísrael, Ceylon, Hvíta-
Rússlands, Ekvador, Kóreu Pers-
íu, Costa Rica, Súdan og Frakk-
lands.
Þ. Th.
*— Suður-Afrika
Framhald af bls. 1.
að þeir væru ekki sekir, er þeir
mættu fyrir rétti í dag í Jóhannes
arborg, ásakaðir um að hafa
hvatt blökkumenn í landinu til
að berjast gegn vegabréfalögun-
um.
„Það er skoðun okkar“, sagði
Sobukwe, „að lögin sem ákæran
vísar til, séu lög sem samin eru
einungis fyrir hvíta manninn.
Við fáum ekki séð hvernig fram
kvæma á réttlæti á þann hátt!
Bifreiðar til sölu
Opel Caravan ’55
í mjög góðu ástandi.
Volvo Station ’55
Skipti koma til greina.
Opel Rekord ’59
Ford Zephyr ’55
Moskwitch ’57
Renault fólks- og sendi-
bíll ’46
Ford vörubíll ’47
Keunsla í bifreiðaakstri.
Bifreiðasala
Bifreiðasala Stefáns
Grettisgötu 46. — Sími 12640.
,T tie
~> V0» SIODIN
simi't 3B3D2
ciuooavogur 42
— Veltuútsvar
Framh. af bls. 2.
en verið hefur. Sem sagt, að
hagur gjaldanda skuli í engu
tilfelli versna að þessu leyti
frá því sem verið hefur.
o \ Þá spyr hv. þm. í öðru lagi
' um það, hvað sé átt við
með orðinu „velta“. Honum er
það auðvitað ákaflega vel kunn-
ugt, að fyrst og fremst er með
„veltu“ átt við heildarupphæð
vörusölu. Varðandi ýmis konar
þjónustu og m.a. það, sem hann
nefndi sérstaklega umboðsverzl-
un, er það í sumum tilfellum
álitamál, hvort á að telja til veltu,
sjálfa upphæð umboðslaunanna
eða upphæð heildarvörusölunnar.
Um þetta hefur stundum verið á-
greiningur og geri ég ráð fyrir, að
niðurjöfnunarnefndir verði að
meta það í hverju einstöku til-
felli.
Það sem átt er við með
„veltu“ í þessu frumvarpi“
er auðvitað það sama, sá
sami skilningur og Iagður hef-
ur verið í það orð ÖU þau ár,
sem niðurjöfnunarnefndir og
hreppsnefndir hafa lagt á
veltuútsvör.
o\ í þriðja lagi spyr hv. þm.,
' hvort skylt sé að leggja
sömu prósentu á alla veltu í sömu
grein. — Ég hef engan mann hitt,
sem hefur dottið sú fjarstæða í
hug, fyrr en þessum hv. þm., að
sé lögð mismunandi prósenta
veltuútsvars á verzlun með sömu
vörutegund. Ég held, að það hafi
ekki nokkurri niðurjöfnunar-
nefnd eða hreppsnefnd í landinu
dottið slíkt í hug. Ég ætla, að öll
þessi ár, sem veltuútsvör hafa
verið notuð hér á landi, þá hafi
hver einasti aðili, sem hafði með
álagningu þeirra að gera, talið
það sjálfsagða ófrávíkjanlega
reglu og að það verði einnig þann
ig í framtíðinni, að sama prósenta
verði alltaf notuð um sölu sömu
vörutegundar, hvaða verzlun sem
í hlut á.
A \ 1 fjórða lagi spyr hv. þm.,
' hvort ríkisstjórnin hafi
ákveðið að beita sér fyrir því,
að útsvör yrðu einnig frádráttar-
hæf við álagningu tekjuskatts.
Um það segir ekkert í þessu frum
varpi og ekki heldur í því frv.
um breytingu'á tekjuskattslögun-
um, sem fyrir liggur. Samkvæmt
þessu frv. eru greidd útsvör frá-
dráttarbær við útsvarsálagningu.
Skv. frumvarpinu um tekjuskatt-
inn er það óbreytt, sem verið hef-
ir núna um 18 ára skeið, að greidd
ur tekjuskattur og greidd útsvör
eru ekki frádráttarbær við álagn
ingu tekjuskatts. Um það, hvað
verður í framtíðinni, er ekki hægt
að segja á þessu stigi. Endurskoð-
un tekjuskattslaga og útsvarslaga
heldur áfram og væntanlega ligg-
ur fyrir í haust, þegar heildar-
löggjöf um þessi málefni verður
lögð fram, svar við þessari spurn-
ingu hv. þm.
r \ Loks spyr hv. þm. um það,
' hvort veltuútsvarið verði
tekið inn í verðlagsgrundvöll
vara. Um þetta segir að sjálfsögðu
ekkert í þessu frv. Það er alveg
eins og með aðra skatta, að það
er ekki venja að taka það fram í
sjálfum skatta eða útsvarslögun-
um, hver áhrif þær greiðslur
skuli hafa á verðlagningu vara.
Það er ekki í núgildandi tekju-
skattslögum og það er ekki í nú-
gildandi útsvarslögum. — Þetta
er auðvitað atriði, sem verðlags-
yfirvöldin verða að ákveða. Hvort
einhver slík ákvæði kæmu inn í
löggjöf um verðlagið skal ég
ósagt láta, en hér hefur ekki þótt
ástæða til þess að taka inn ákvæði •
um það efni, fremur en um það,
hvort t.d. tekjuútsvar og eigna-
útsvar eða tekjuskattur fyrir-
tækja almennt, eigi að koma inn
í verðlagsgrundvöll.
Þegar Gunnar Thoroddsen fjár-
málaráðherra hafði lokið máli
sínu kvaddi Halldór E. Sigurðsson
sér hljóðs. Taldi hann dregið úr
sjálfstæði sveitarfélaganna með
hinu nýja frumvarpi, og einnig
að þeir, sem hefðu breiðu bökin,
bæru ekki nóg af þjóðfélagsbyrð-
unum. Hann var á móti því að
samvinnufélögin yrðu látin sitja
við sama borð og aðrir, hvað skatt
greiðslur snerti. •
Eysteinn Jónsson tók síðan enn
til máls og hafði eftir svör fjár-
málaráðherra fátt að segja, um
þau atriði, sem þau höfðu snert,
en veittist nú enn að ákvæðun-
um um veltuskattskyldu sam-
vinnufélaganna og lögunum í
heild, sem hann nefndi „óverj-
andi hrákasmíð“.
Jón Pálmason kvað það um
langa hríð hafa verið eitt helzta
vandamál þessa lands, hvernig
ætti að leggja útsvörin á, og
hefði sá vandi aukizt að sama
skapi og útsvörin hefðu hækkað.
Sjálfur kvaðst hann fylgjandi því
að hámark veltuútsvaranna yrði
takmarkað enn meir og ekki væri
rétt að leggja þau á vinnslustöðv
ar og framleiðslufélög.
Jón Skaftason sagði nokkut
orð um það ákvæði frumvarps-
ins, er heimilar frádrátt á greiddu
útsvari síðastliðins árs og taldi
ekki fullt samræmi í frumvarps-
greininni og greinargerð með
henni.
Karl Guðjónsson taldi skjóta
skökku við að Sjálístæðismenn
skyldu ekki ganga ájo langt að
afnema veltuútsvarið með öllu.
Hann var á móti þeirri þríflokk-
un útsvara, sem frumvarpið ger-
ir ráð fyrir, og taldi eigi fjarri
því, að íbúar Reykjavikur væru
með henni „gerðir að aðli“ í land
inu, eins og hann komst að orði.
Fleiri tóku ekki til máls um
frumvarpið á þessu stigi, og var
því að umræðunni lokinni vísað
til fjárhagsnefndar með samhlj.
atkvæðum.
Þakka innilega fyrir alla vinsemd og heimsóknir á
fimmtíu ára afmæli mínu þann 27. marz 1960.
Ölína F. Jónsdóttir, Skipanesi
Þakka innilega heimsóknir. skeyti og allan vinarhug
mér auðsýndan á sextugsafmælinu, þann 22. marz sL
Lifið öll heil.
Jón Li. Þorsteinsson, Hamri
Hér með tilkynnist að maðurinn minn,
GARÐAR BALDVINSSON
andaðist að heimili sínu Óðinsgötu 6, 3. þ.m.
Sigríður Henriksdóttir
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRtJN ÞÓRÐARDÓTTIR
Kirkjuvegi 15, Hafnarfirði
andaðist að Sjúkrahúsinu Sólvangi, laugardaginn 2.
apríl. — Jarðaríörin fer fram fimmtudaginn 7. apríl frá
Hafnarfjarðarkirkju kl. 2 e.h.
Fyrir hönd aðstandenda:
Steinþór Hóseasson
Maðurinn minn og faðir okkar,
GUÐMUNDUR ÞÓRÐARSON
Hraunbraut 12, Kópavogi
andaðist 31. marz. Jarðarförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju 6. apríl kl. 1,30.
Guðrún Guðjónsdóttir og böm
Faðir okkar og fósturfarðir
JÖNAS KRISTJÁNSSON
læknir
andaðist í heilsuhæli Náttúrulækningafélagsins í Hvera-
gerði, sunnudaginn 3. apríl.
Dætur og fósturböm
móður okkar, tengda- 8
Jarðarför eiginkonu minr
móður og ömmu,
SIGRtJNAR GUÐLAUGSDÓTTUR
fyrrum húsfreyju, Arnarnesi Dýrafirði
fer fram frá Laugarneskirkju, miðvikudaginn 6. apríl kl.
14.00. — Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Gísli Gilsson,
Elínborg Gísladóttir, Einar Steindórsson,
Guðrún Gísladóttir, Friðdóra Gísladóttir,
Svanfríður Gísladóttir, Páll Eirlksson,
og barnabörn.
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim er sýndu okk-
ur samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför litlu
dóttur okkar,
SVÖLU KRISTlNAR
Sérstaklega þökkum við Helgu Benediktsdóttur, hjúkr-
unarkonu, fyrir hennar miklu hjájp.
Júlíana Bjarnadóttir, Jóhann Jónsson og systkini
Innilega þökkum við öllum, sem sýndu samúð og hlý-
hug við fráfall,
KARLS Ó. BJARNASONAR
varaslökkviliðsstjóra
Sérstaklega viljum við þakka forráðamönnum og
starfsmönnum slökkviliðsins í Reykjavík þann heiður
er þeir sýndu minningu hans við útförina.
Kristín L. Sigurðardóttir, böm og tengdaböra.