Morgunblaðið - 09.04.1960, Qupperneq 2
2
MORGTJTSBLAÐIÐ
Laugardagur 9. apríl 1960
v
*
*.
Myndi þcssi er af listofnu teppi eftir Vigdísi Kristjánsdóttur,
listmálara. Það er á sýningu Statens Kvinneiige Industriskole
í Þjóðminjasafninu. Er teppið eign skólans og eina íslenzka
listaverkið á þessari norsku sýningu.
Sýningin hefur verið vel sótt, og hafa 2500 manns séð hana.
Henni Iýkur á sunnudagskvöld. Sýningin er opin daglega
frá 1—10 e. h.
— Eina samkomu-
lagsvonin
Framhald af bls. 1.
Dean sagði, að komið hefði í
Ijós að mikill fjöldi ríkjanna,
sem aðild ættu að ráðstefnunni
óskuðu eftir að tillögur Banda-
ríkjanna og Kanada yrðu sam-
einaðar með málamiðlun. Taldi
hann, að í nýju tillögunni fæl-
ust öll þau meginatriði beggja
tillagnanna, sem ættu að geta
náð tilskyldum meirihluta at-
kvæða.
Þarfnast velviljaðrar
athugunar
Síðan sagði Dean orðrétt:
— Undantekning er þó, þegar
Um óvenjulegar aðstæður er að
ræða hjá þjóð, sem að lang-
mestu leyti er háð fiskveiðum
innan 12 mílna, og þetta atriði
þarfnast velviljaðrar athugunar
ráðstefnunnar.
Drew fulltrúi Kanada sagði
síðar orðrétt:
— Okkur er hugleikið að við-
urkenna sérstök vandamál ríkja,
sem eru sérstaklega háð fisk-
veiðum um afkomu íbúa sinna
með því að tryggja þeim hæfi-
lega framkvæmanlegar öryggis-
ráðstafanir til verndar fiskstofn-
um þeirra.
Var ekki hægt að skilja þessi
ummæli á annan hátt en að full-
trúarnir teldu hinn 10 ára sögu-
legu réttindi erlendra ríkja, sem
ákvörðuð voru í málamiðlunar-
tillögunni, ættu ekki við Island,
heldur þyrfti sérstaka reglu um
ríki þau, sem eins væri háttað
um.
Mikil tilslökun
Á síðdegisfundi í heildarnefnd
inni tók Dean til máls og sagði
að mörg ríki hefðu komið við
sögu meðan samið hefði verið
um málamiðlun, enda túlkaði
nýja tillagan almennar óskir
ráðstefnunnar um að gera allt
til að ná samkomulagi.
Þakkaði hann sérstaklega
Drew frá Kanada, Baig frá Pak-
istan, Bailey frá Ástralíu og Sen
frá Indlandi, sem allir hefðu
setið á löngum fundum og reynt
að hjálpa til við lausn málsins.
Ljóst væri að báðir aðilar
hefðu fórnað miklu og lagði
hann jafnframt áherzlu á það,
að Bandaríkin hefðu fallizt á 6
mílna landhelgi og afnám sögu-
legra réttinda eftir 10 ár, sem
væri mjög mikil tilslökun frá
upphaflegri afstöðu Bandaríkj-
anna.
Um tvennt að velja
Við málamiðlunartilraunirnar
höfðu báðir aðilar nálgazt hvorn
annan jafnt og þétt, um fundinn
var grundvöllur, þar sem báðir
töldu sig hafa slakað jafnmikið
til. Bæði Bandaríkin og Kanada
myndu standa fast við 10 ára
takmörkunina, þar myndi hvorki
haggað til né frá. En með þess-
ari tillögu væru sameinuð öll
öfl, sem hægt væri að sameina
á ráðstefnunni og sem vildu
lausn málsins. Nú væri aðeins
um tvennt að velja, þessa tillögu
eða enga lausn.
' Allir fallizt á eilífan rétt
útlendinga
Að ræðu Dean lokinni tók
Drew fulltrúi Kanada til máls.
Lagði hann áherzlu á að Kanada
stjórn hefði aldrei ætlað að visa
útlendingum af miðunum við
Kanada í einu vetfangi, heldur
hefði hún lagt til, að réttur
strandríkis yrði fyrst viður-
kenndur, en siðan gengið til
samninga. Hins vegar myndu
Kanadamenn aldrei geta fallizt
á að réttur útlendinga yrði við-
urkenndur um aldur og ævL
Þegar við leggjum fram þessa
sameiginlegu tillögu erum við
að svara almennum óskum, sem
komið hafa fram á ráðstefnunni.
Við hefðum frekar kosið, að okk
ar tillaga hefði verið samþykkt
óbreytt, og það hefði sjálfsagt
verið ósk Bandaríkjanna, að
þeirra tillaga hlyti sömu af-
greiðslu.
Hafa gert sltt
10 árin var lengsta tímabil,
Um 150 íslendlngar hafa
keypf mlða á Olympíuleikana
Miklir erfiðleikar á útvegun húsnæðis
MARGIR íslendingar hyggja á
ferð til Ítalíu í sumar, til að vera
viðstaddir Olympíuleikana, og
hafa um 150 manns tryggt sér og
greitt fyrir aðgöngumiða að fleiri
eða færri kappleikjum, fyrir um
2000 ísl. kr. að meðaltali. Ferða-
skrifstofa ríkisins hefur undan-
farið verið að undirbúa ferðir, og
Fósknleyfi þing-
mnnnn byrjnð
SAMEINAÐ þing kom saman til
fundár, seint í gærdag, eftir að
báðar þingdeildir höfðu lokið
störfum* Voru þá teknar fyrir
tvær þíngsályktunartillögur, önn
ur frá Bjartmari Guðmundssyni
o. fl. um stofnun klak- og eldis-
stöðvar fyrir lax og silung á hent
ugum stað í landinu, hin frá
Gísla Guðmundssyni o. fl. um
fullnaðaráætlun um virkjun Jök-
ulsár á Fjöllum og um athugun
framleiðslumöguleika í sambandi
við virkjunina. Fylgdu áður-
nefndir þingmenn tillögunum úr
hlaði en frekari umræðum um
þær var siðan frestað og fyrri
tillögunum vísað til nefndar.
Að svo búnu lýsti forseti Sþ.,
Friðjón Skarphéðinsson, yfir því
að þingstörfum fyrir páska væri
lokið og yrði þing væntanlega
kvatt saman að nýju þriðjudág-
inn 19. apríl nk. Skiptust þing-
forseti og þingmenn síðan á
kveðjuorðum að venju.
sem við með nokkru móti gát-
um fallizt á, og jafnframt stytzti
tími, sem hinir felldu sig við.
Af þessum ástæðum kemur ekki
til greina að tímatakmörkuninni
verði breytt, enda teljum við
hana sanngjarna og treystum
því að tillagan njóti almenns
stuðnings.
Drew kvaðst hins vegar vera
mjög áfram um að viðurkenna
sérstök vandamál ríkja, sem eru
sérlega háð fiskveiðum.
Drew hvatti einlæglega til
þess að ríki þau, sem tekið
hefðu sér meira en 6 mílna land-
helgi, yrðu sveigjanleg, sérstak-
lega þar sem ráðið hefðu fisk-
veiðihagsmunir. Nú gætu þau
haft 12 mílna fiskveiðilögsögu
þótt landhelgin væri 6 mílur.
Sagði hann að Kanadamenn
hefðu t .d. haldið við þriggja
milna landhelgi, en tekið upp 6
mílna kröfu í samkomulagsvon
og gert sitt til þess að auðvelda
góðan árangur.
Tökum höndum saman
Drew sagði að lokum: — Sem
fulltrúi eins af yngri ríkjunum
skora ég á hin ríkin að mæta
okkur á miðri leið, svo að heim-
urinn geti sannfærzt um, að
þéssi 88 ríki, sem hér eiga full-
trúa, séu reiðubúin til þess að
taka höndum saman eins og
vinir í því markmiði að láta auð-
sæld, frið og öryggi ná til alls
mannkyns.
eru áætlanir um hópferðir í
tveimur flugvélum og e. t. v.
einnig í stórum áætlunarvagni.
Þá hefur Ferðaskrifstofan staðið
í ströngu við útvegun húsnæðis í
Róm.
Blaðið leitaði í gær upplýsinga
um þetta hjá Þorleifi Þórðar-
syni forstjóra Ferðaskrifstofunn-
ar, en hann var að koma úr ferða
lagi til Rómaborgar í þessu sam-
bandi. Sagði hann mikla erfið-
leika á útvegun hótelherbergja í
borginni og létu ítalirnir greiða
30% af leigunni fyrirfram, ef
tekin væru frá herbergi fyrir
þann tíma sem leikirnir stæðu
yfir. Teldu þeir sig því ekki þurfa
að standa í skilum með þau
herbergi, sem íslendingar hafa
pantað en ekki greitt fyrir.
Þorleifi tókst þó að útvega rúm
á gistiheimili (pensionati) fyrir
60 manns. Þetta heimili er rekið
af kirkjunni og er bæði þægilegt
og á góðum stað. Þá verður legu-
rúm fyrir 15 manns í íbúð, sem
leigð hefur verið af íslenzkum
KARLAKÓR Reykjavíkur h efir
undaníarin kvöld haldið sam-
söngva í Gamla Bíói fyrir styrkt-
aríélaga sína og aðra gesti undir
stjórn Sigurðar Þórðarsonar, og
var hinn síðasti í gærkvöldi. Hús
fyllir var og viðtökur áneyrenda
frábærlega góðar. Varð kórinn
að endurtaka nokkur lög og
syngja aukalög.
Kórinn er mjög vel æfður, söng
urinn lýtalaus og vel samstilltur,
hreinn og blæfagur, enda þótt
nokkurrar þreytu gætti sjá söng-
mönnunum. — Á fyrri hluta efn-
isskrárinnar voru íslenzk lög
eingöngu, eftir Baldur Andrés-
son, Björgvin Guðmundsson, Hall
grím Helgason, Sigurð Þórðar-
son, Jón Leifs og Pál ísólfsson,
en á síðari hlutanum ýmis erlend
lög. Einsöngvarar með kórnum
voru Kristinn Hallsson, sem
einnig söng þrjú einsöngslög —
auk tveggja aukalaga — milli
atriða á efnisskránni ,og Guð-
mundur Guðjónsson. Leystu þeir
báðir viðfangsefni sín vel af
hendi, svo og undirleikari kórs-
ins, Fritz Weisshappel.
Sigurður Þórðarson stofnaði
Karlakór Reykjavíkur fyrir 34
námsmömum í Róm, og einnig
herbergi í nokkrum minni gisti-
húsum fyrir 1—15 manns á hverj-
um stað. En nú þarf að tryggja
þessi gistirúm með fyrirfram-
greiðslum, svo þau tapist ekki
aftur.
í tveim flugvélum og
áætlunarvagni
Ferðaskrifstofan skipuleggur
ferðir sumra þeirra, sem hafa
tryggt sér miða, en aðrir fara á
eigin vegum. Hefur verið áform-
að að íslenzkar flugvélar fari
tvær ferðir með íslendinga til
Róm fyrir leikana og sæki þá
aftur. Auk þess verður stór ís-
lenzkur áætlunarvagn flúttur sjó-
leiðis til meginlandsins og ekur
þriðja hópnum suður til Ítalíu, ef
áhugi verður fyrir því. Vagninn
gæti svo verið til afnota fyrir alla
hópana meðan á leikunum stend-
ur. En ekki hefur þetta þó verið
endanlega ákveðið.
Ekki er ráð nema í tíma sé
tekið. Finnst mörgum óþarflega
snemmt að taka endanlegar á-
kvarðanir um ferð þessa, en eins
og sést af ofansögðu er hver að
verða seinastur.
árum og hefir síðan verið söng-
stjóri hans að einu ári undan
teknu, þegar dr. Páll ísólfsson
tók við stjórinni og driffjöðrin í
starfi hans alla tíð. Mun enginn,
sem ekki hefir náin kynni af kór
starfsemi, geta gert sér í hugar-
lund, hve mikið og fórnfúst starf
hér hefir verið unnið. — Sigurður
er maður hógvær og hlédrægur.
Það hafði því ekki mikið borið á
því, að hann átti í gær 65 ára
afmæh. En mjög var það verð-
skuldað, er formaður kórsins, Har
aldur Sigurðsson, flutti söngstjór
anum þakkir kórmanna og árn-
aðaróskir á samsöngnum í gær-
kvöldi og færði honum fagran
blómvönd frá söngmönnunum.
Var Sigurður hylltur innilega af
áheyrendum. — Megi Karlakór
Reykjavíkur enn lengi njóta for-
ystu síns góða og vaxandi söng-
stjóra.
J. Þ.
□—----------------□
VARÐARKAFFJ
í Valhöll 1 dag
kl. 3—5 síSd.
□--------------□
Snmsöngur Kurluhórs R.víkur
Sigurðnr Þórðarson hylltur
1 öðrum fregnum segrir:
Líklegt þykir að Sovéttillagan
verði tekin aftur og samnings-
ríki hennar greiði atkvæði með
16 ríkja tillögunni. Brezku blöð-
in telja áfall fyrir brezkan fisk-
iðnað ef sögulegur réttur sé að-
eins látinn gilda 10 ár. Daily
Telegraph segir sennilegt að
ríkisstjórnin verði að styðja fisk
iðnaðinn á umbreytingartímabil-
inu og Bretar muni fá verri fisk,
hann sé yfirleitt betri á grunn-
miðum. Blaðið telur tillögu ís-
lands stefna að því að ná yfir-
ráðum yfir landgrunninu öllu.
{ Landsynningur
\ DJÚPA lægðin yfir Græn-
( landshafi var í gær á hreyf-
S ingu norðaustur, og fylgdi
• fyrst landsynningur, hvass-
( viðri og rignir.g á undan skil-
S unum. Skilin fóru yfir Reykja
• vík kl. 15, og brá þá til út-
( synnings með heillidembu og
í sólskmi á mill. Ný lægð var í
| myndun suður af Nýfundna-
( landi.
i Veðurspáin kl. 10 í gær-
| kvöldi: SV-Iand til Breiðafj.
og útsynningur
og suðvesturmið til Breiðafj.
miða: Sunnanátt, hvassviðri
eða stormur á miðunum, skúr-
ir og síðar slydduél.
Vestf. og Vestfj.mið: SA-
stinningskaldi, síðar allhvass
sunnan, skúrir.
Norðurl. til Austfj. og Norð
urmið tii Austfj.miða: Sunnán
kaldi eða stinningskaldi, úr-
komulaust.
SA-land og SA-mið: SV-
kaldi, skúrir.
s
>
s
s
s
s