Morgunblaðið - 09.04.1960, Síða 5
Laugardagwr 9. apríl 1960
MORGUNLLAÐIÐ
5
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgur’tiaðiíiu en í öðrum
blöðum. —
Til sölu vel með farin
borðstofuhúsgögn, borð, 6
6000 kr. Samstæður stofu-
skápur, 2000 kr. Sólheimar
skápur, 200 kr. Sólheimar
28. — Dyr til hægri.
Frímerk j asaf narar
Mynd þessi er tekin á æfinguÆ-
hjá Música Nova á tónverkinu
Elektrónísk Stúdía með blásara-
kvintett og píanói, eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson.Verkið verð
ur frumflutt á tónleikum Música
Nova, sem haldnir verða í Fram
sóknarhúsinu mánudaginn 11. þ.
m. Er verkið hið fyrsta sinnar
tegundar sem samið er hér á
landi.
Á myndinni er Blásarakvintett
Musica Nova, en hana skipa
talið frá vinstri: Gunnar Egils-
son, klarinett; Sigurður Magnús-
son, fagott, Ólaf Klaman, horn;
Karel Lang, óbó og Peter Ramm,
flauta, ásamt Jórunni Viðar og
Ragnari Björnssyni.
Kristján konungur X hringdi
dag nokkurn til eins vinar síns.
Stúlkan, sem svaraði í símann,
tilkynnti að hann væri ekki
heima, en spurði hvort hún gæti
tekið nokkur skilaboð.
— Jú, svaraði konungur, þér
skuluð skila kveðju frá kóngin-
um.
— Frá hverjum? spurði stúlk-
an undrancíi.
— Frá kónginum.
Stúlkunni var greinilega ekki
****-*-**00* 00-0*-0. 000
Prófessor Lárus
er nú staddur hér
boði Háskóla íslands, og hefur
hann þegar flutt annan
tveggja fyrirlestra, sem hann
heldiur á vegum Háskólans.
Prófessor Lárus Einarsson
kom hér við á leið til Ameríku
árið 1957, en þá var hann að
fara til þess að taka þátt í rann
sóknum á áhrifum E-bætiefnis
skorts á taugakerfi apa, og um
það efni mun hann flytja fyrir
lestur í Háskólanum á þriðju-
daginn.
— Rannsóknir á bætiefna-
skorti með apa sem tilrauna-
dýr eru svo kostnaðarsamar
tilraunir, að ekki er unnt að
framkvæma þær í Danmörku,
sagði prófessor Lárus, í sam-
tali við Mbl. í fyrrdag. _ Xil
þessara rannsókna þarf yfir-
leitt svo mikinn útbúnað til
að öpunum líði vel og þeir
sýkist ekki af allskonar sjúk-
dómum. Þeir trufla þá tilraun
irnar og það gerir mönnum
ókleift að greina hvað orsak-
ast af E-bætiefnisskorti og
hvað af öðrum ástæðum. En
með miklum kostnaði er unnt
að framkvæma þessar tilraun
ir. Kollegar mínir í Ameríku
æsktu þess, að ég tæki þátt í
þessum rannsóknum, en ég hefi
áður fengizt mikið við rann-
sóknir á E-bætiefnisskorti
með rottur og önnur dýr sem
tilraunadýr, því að það getum
við framkvæmt í Danmörku.
— Hvað voruð þér lengi í
Bandaríkjnum við rannsókn-
irnar.
—Þar var ég í átta mánuði
og hef síðan unnið í Árósum
úr því efni, sem ég tók með
mér til Danmerkur.
Allt þetta mál um áhrif
E-bætiefnaskorts á taugakerfi
hjá tilraunadýrum er yfirleitt
afar Iangt mál og flókið, og
mun ég því aðeins tala um nokk
ur aðalatriðin í þessum rann-
sóknum í fyrirlestrinum á
þriðjudaginn. Tíminn leyfir
ekki annað. Annars á ég í
prentun allstórt verk um þess
ar rannsóknir og mun það
koma út með haustinu í Bio-
logiske Skrifter hins konung-
lega danska vísindafélags.
— Mér var sagt frá merki-
legu tæki, sem þér hefðuð
sagt frá á fyrirlestrinum í gær
— Já, bætiefnarannsóknir
eru aðeins hluti af starfi
mínu, því að ég fæst yfirleitt
við frumu-efnafræði (cyto-
kemi) bæði í taugakerfinu og í
ýmsum kirtlum líkamans. Við
rannsóknarstofnun þá í Árós
um, er ég veiti forstöðu hefur
verið reist ný bygging og inn
réttuð mjög fullkomin tækni-
vinnustofa. Þar höfum við
teiknað, reiknað út og smíðað
ljósmæli (fotometer) af alveg
nýrri gerð. Er þessi Ijósmælir
mjög handhægt tæki til mats
og mælinga á kvantitativu
innihaldi ýmissa efna í frum-
um, en aðallega er það byggt
með tilliti til þess að rannsaka
kirni (nucleinsýrur) í frumum
og vefjum.
Að öðru leyti er rannsóknar
stofnun þessi einnig í nánu
sambandi og samstarfi við
heilarannsóknastofnun danska
ríkisins í Árósum, sem er fyr-
ir alla geðveikraspítala þess.
Ég vildi mega taka það fram
að mér og konu minni, sem er
hér með mér, hefur verið ó-
blandin ánægja að koma heim
til íslands og hitta gamla vini
og ættingja. Mér er það sér-
staklega mikil ánægja og gleði
að hafa fengið tækifæri til
þess að tala hér í Háskólanum,
því að sú stofnun hefur alið
mig sem háskólaborgara, ef ég
má svo að orði kveða, — lagt
grundvöllinn að vísindalegri
menntun minni á sinum tíma,
og þar með einnig síðara vís-
indastarfi mínu. i rauninni
stendur engin önnur háskóla-
stofnun mér nær en Háskóli
íslands, enda þótt ég hafi
unnið við erlendar vísinda-
stofnanir meirihluta ævinnar.
Það er líka sérstök gleði og
viðburður manni eins og mér,
sem hef orðið að venjast því
að tala og rita á erlendum
tungumálum, fyrir erlenda
vísindamenn, að fá nú leyfi
til þess að tala á íslenzku með
gamla bekkjarbræður, vini og
kunnipgja meðal áheyrenda.
— Finnst yður ekkert erfitt
að beita íslenzkunni við vís-
indalegan erindaflutning?
— í rauninni er mjög erfitt
að tala um vísindaleg efni á
íslenzku, því að hún getur
naumlega tekið upp öll þau
heiti í tækni og vísindum, sem
hér um ræðir. Flest evrópsku
málin hafa sér að skaðlausu
tekið upp slík alþjóðleg heiti
og hugtök, en það mun fara
miður vel í íslenzku. Því er
íslenzk nýyrðasmiði auðvitað
ákaflega mikilsverð á sviði
tækni og vísinda, enda þótt
ekki sé farið út í öfgar um
myndun nýyrða.
[ Nýr Ford Zodiac
til sölu. — Upplýsingar i
síma 10784.
sama um þetta og sagði höstug-
lega:
— Afsakið, herra minn, viljið I
þér gjöra svo vel að segja mér j
númerið yðar.
— Sjálfsagt, sagði konungur |
— ég er sá tíundi.
Úr ritfregn: — . . . . og loks I
eru þar átta smásögur. Sjö eru
ágætar — og ein er eftir Ernest j
Hemingway.
; Óska eftir 3ja herb. íbúð
til leigu nú þegar eða 14.
maí. Uppl. í síma 24731, —
alla virka daga.
; Saumamaskína
Saumamaskína, með mótor
til sölu með tækifærisverði
Upplýsingar í síma 18439.
Elna-saumavél
(Supermatic), nýjasta gerð
til sölu að Bröttugötu 6. —
| 3ja herb. íbúð óskast
til leigu, innan Hringbr.,
eða stór 2ja herb. íbúð. —
Þrennt fullorðið. Fyrirfram
greiðsla. — Upplýsingar í
síma 13309.
[ Húseigendur
Smíðum handrið, hliðgrind
ur og hurðir fyrir sorp-
tunnugeymslur o. fl. Upp-
lýsingar í síma 33626.
Húsgagnabólstrari
Óska eftir húsgagnabólstr-
ara, nú þegar. —
Axel Eyjólfsson
Sími 18742 og 10117.
að auglýsing i stærsta
og útbreiddasta blaðinn
— eykur söluna mest —
Til sölu
Sendið 100—200 ísl. frí-
merki. Sendi í staðinn sama
fjölda sænskra frimerkja,
mismunandi teg. O. Frö-
berg, Byvágen 15, Skultuna
Sverige. —
radiofónn, kjóll nr. 38,
telpujakki, drengjaúlpa og
reiðhjól. — Upplýsingar í
síma 34575.
i Suður-Afríska söngkonan S
I Haukur Morthens $
^ Hljómsveit Árna Eífar. |
S skemmta í kvöld. ^
j DANSAÐ til kl. 1. j
( Borðpantanir í síma 15327. J
Sími 19636.
Leiktríóið og
Svanhildur Jakobsdóttir
skemmta til kl. 1.
5KIPAUTGCRB RIKISINS
BALDUR
fer til Sands, Hvammsfjarðar
og Gilsfjarðarhafna á þriðjudag.
Vörumóttaka á mánudag.
ía
Ms. Rinto
fer frá Reykjavík 13. april til
Færeyja og Kaupmannahafnar.
Frá Kaupmannahöfn fer skipið
22. apríl til Reykjavíkur. Tilkynn
ingar um flutning óskast sem
fyrst. —
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen
Hörður Ólafsson
lögfræðiskrifstofa, skjalaþýðandl
og domtúlkur í ensku.
Austurstræti 14.
Sími 10332, heima 35673.
EINAR ASMUNDSSON *
hæstaréttarlögmaður
HAFSTEINN SIGURÐSSON
héraðsdómslögmaður
Skrifstofa Hafnarstr. 8, II. hæ3.
Sími 15407, 19113.
MÁLFLUTNINGf'STOFA
Einar B. Guðmundsson
Guðlaugur Þorláksson
Guðmundur Pétursson
Aðalstræti 6, IIL hæð.
Sirnar 12002 — 13202 — 13602.