Morgunblaðið - 09.04.1960, Blaðsíða 6
6
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 9. apríl 1960
Fimmfugur i dag:
Baldvin Þ. Kristjánsson
framkvœmdarstjóri
Farfuglar frá 18 þjóðum
komu hingað sJ. ár
Ragnar Guðmundsson formaður far-
fugladeildar Reykjavíkur
BALDVIN í>. Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri á í dag fimmtugs-
afmæli. Hann er fæddur að Stað
í Aðalvík 9. apríl árið 1910. For-
eldrar hans voru myndarhjónin
Halldóra Finnbjörnsdóttir og
fyrri maður hennar Kristján
Egilsson. Fluttu þau hjón árið
1910 vestur í Hnífsdal. Þar
drukknaði Kristján Egilsson ár-
ið 1918. Baldvin missti því föð-
ur sinn aðeins 8 ára gamall. Fór
hann þá í fóstur til Ásgeirs Guð-
bjartssonar og Guðbjargar Páls-
dóttur í Hnífsdal og ólst síðan
upp hjá þeim. Fluttust þau til
ísafjarðar þegar hann var um
fermingu.
Baldvin var hinn tápmesti og
efnilegasti unglingur. Hann hóf
framhaldsnám sitt í Núpsskóla en
útskrifaðist síðan úr Samvinnu-
skólanum í Reykjavík. Um skeið
NESKAUPSTAÐ í marz. — Ný-
lega flutti Efnalaug Norðfjarðar
í ný og rúmgóð húsakynni að
Egilsbraut 20 í Neskaupstað. Eig-
andi fyrirtækisins er Jóhann Sig-
mundsson og starfrækir hann það
sjálfur með aðstoðarstúlku, einni
eða tveim, eftir annríki.
Efnalaug hafði verið starfrækt
hér í nokkur ár, þegar Jóhann
keypti fyrirtæki árið 1955. Var
það til húsa í gamalli rafstöð og
voru húsakynni mjög óhentug
og vélar gamlar og slitnar.
Jóhann réðst því í að byggja
hús fyrir starfsemi þessa. Húsið
er 114 ferm., steinsteypt, einlyft.
Er þar rúmgóð afgreiðslustofa,
þar sem hreinsuð föt eru geymd.
Inn af henni er 25 ferm. vinnu-
salur. Þar eru nýjar vélar, gufu-
strauborð, bletthreinsunarborð og
pressa, allt af nýjustu gerð. Er
vinnusalurinn mjög bjartur og
vistlegur. í sérstöku herbergi eru
hreinsunarvélar og þurrkur fyr-
ir 50 kg. af þurrum fötum og loks
er ketilherbergi, þar sem er nýr
gufuketill, búinn fullkomnum
sjálfstjórnartækjum. Ketillinn er
smíðaður hjá Landssmiðjunni og
er röraketill með 8 ferm. hita-
fleti. Hefur hann 5 kg. gufuþrýst
ing og framleiðir gufu fyrir alla
starfsemina og upphitun hússms,
sem er lofthitun.
Myndarlegt framtak
Auk þessa eru í húsinu kaffi-
AKRANESI, 7. apríl. — Allir stór
ir bátar héðan eru á sjó í dag.
í gær var aflinn 260 lestir af 14
bátum. Aflahæstir voru: Skipa-
skagi með 35 lestir, Ver með 26
lestir og Sigurvon með 25 lestir.
Fimm trillubátar reru héðan í
morgun, en fengu nauðalítið á
skakinu. — Oddur.
stundaði hann svo framhaldsnám
erlendis. Síðan gerðist hann
starfsmaður Samvinnufélags ís-
firðinga á ísafirði og starfaði hjá
félaginu um árabil meðan mestur
þróttur var í rekstri þess. Gjald
keri og aðalbókari Síldarútvegs-
nefndar var hann 1935—1945. En
árið 1945 fluttist hann til Reykja-
víkur. Var hann síðan í eitt ár
erindreki Landssambands ísl. út-
vegsmanna. Síðan réðist hann
erindreki til Sambands íslenzkra
samvinnufélaga. En síðan árið
1954 hefur hann verið fram-
kvæmdastjóri hraðfrystihússins á
Kirkjusandi.
Baldvin Þ. Kristjánsson er
ágætlega greindur og menntaður
maður. Hefur hann hvarvetna
reynzt hinn nýtasti starfsmaður,
traustur og áreiðanlegur. í allri
framkomu er hann hinn vask-
legasti og drengur góður. Hann
er félagslyndur maður og áhuga-
samur um framfaramál er til
heilla horfa. Með honum er gott
að starfa að nytjamálum. Þröng-
sýni og klíkuskapur er honum
fjarri skapi. Hann ann hinum
vestfirzku átthögum sínum og er
tengdur þeim og fólkinu þar
heima traustum böndum vináttu-
og frændskapar.
Fimmtugur maður er í dag
maður á bezta aldri. Af Baldvin
Þ. Kristjánssyni má þess vegna
vænta margra góðra verka og
mikilla afkasta á árunum, sem
framundan eru. Hann hefur verið
gæfumaður, eignazt ágæta konu,
sem er frú Gróa Ásmundsdóttir,
tvo efnilega syni, sem báðir eru
uppkomnir og reynzt sjálfur far-
sæll og dugmikill í starfi. Vinir
hans og kunningjar vestra og hér
syðra samgleðjast honum fimm-
tugum.
stofa og stórt geymsluherbergi.
Er þetta mjög myndarlegt fram-
tak að reisa svo stórt hús fyrir
þessa starfsemi, en Efnalaugin
hefur fengið á sig orð fyrir vand-
aða vinnu og nýtur viðskipta úr
flestum byggðarlögum fjórðungs
ins.
Jóhann Sigmundsson hefur
sjálfur sett upp öll tæki í efna-
lauginni, en fékk aðstoð við upp-
setningu gufuketilsins.
• Hrifin við fyrstu sýn
Um þessar mundir er stödd
hér í Reykjavík söngkona frá
'Suður-Afríku, Virginia Lee,
komin hingað til að skemmta
á Röðli. Dvölin hérna hefur
ekki orðið henni eins ánægju-
leg og hún hefði getað orðið,
vegna taktleysis íslendinga
þeirra, sem hún hefur hitt. í
bréfi til Velvakanda segir hún
um þetta:
Þegar ég kom til Reykja-
víkur í fyrsta sinn fyrir hálf-
um mánuði, kom það mér
skemmtilega á óvart að finna
hér þessa nýtízkulegu litlu
Paradís, þar sem fólkið virð-
ist taka lífinu með ró, og vera
hamingjusamt og hraustlegt.
Ég veitti athygli hversu yndis
legar stúlkurnar á götunni
eru, með sína fallegu húð,
óskemmda af snyrtivörum. Ég
man ekki eftir að hafa séð
svo margar fallegar stúlkur
saman komnar í einu, og það
kæmi mér ekki á óvart þó
Hinn vinsæli „Karde-
mommubær“ verður sýnd-
ur á morgun kliukkan 5 og
hefur Ieikurinn þá verið
sýndur 37 sinnum á tveim
um mánuðum. Tfir 25 þús.
leikhúsgestir hafa þá séð
sýninguna.
Næstu sýningar á leikn-
um verða n.k. þriðjudag. —
Myndin er af hinum vin-
sælu ræningjum, sem eru
átrúnaðargoð allra barna í
Reykjavík um þessar mund
ir.
Rabbfundur
um tilraunabann
GENF, 7. apríl. (Reuter). —
Bandarísku og rússnesku fulltrú-
arnir á þríveldaráðstefnunni um
bann við kjarnavopnatilraunum
hiltustí dag í aðsetri bandarísku
sendinefndarinnar til óformlegra
viðræðna um dagskrá ráðstefn-
unnar framvegis. — Segja frétta-
menn, að þar hafi ríkt „mildari
og rólegri andi“ en yfirleitt ger-
ist á hinum opinberu fundum.
I gær hélt Bandaríkjafulltrú-
inn Wadsworth, því fram, er
hann svaraði fyrirspurnum so-
vézka fulltrúans, að óhjákvæmi-
legt yrði að leyfa takmarkaðan
fjölda smárra neðanjarðarspreng
inga í því skyni að finna aðferð
til þess að fylgjast með slíkum
sprengingum. — Rússar halda því
hins vegar fram ,að allt eins megi
nota venjuleg sprengiefni í þessu
skyni.
dómaramir ættu úr vöndu að
ráða við að velja Ungfrú ís-
land. Einnig finnst mér karl-
mennirnir myndarlegir á að
líta.
Já, ég varð yfirleitt hrifin
af Reykjavík, og þar sem ég
er sjálf alúðleg manneskja í
framkomu, eins og flestir
Suður-Afríkubúar eru, þá var
ég sannfærð um að dvöl mín
hér yrði ákaflega ánægjuleg.
• Vonsvikin
S.-Aíuríkustúlka
En því miður. Mér þykir
leiðinlegt að þurfa að segja
það, en mér hefur stundum
fundizt dvölin hér ákaflega
óskemmtileg og óþægileg. Það
lítur úr fyrir að nú á dögum
sé það einhvers konar glæpur
að vera frá Suður-Afríku. Sí-
fellt er hellt yfir mig spurn-
ingum um Suður-Afríku, og
þar sem ég kæri mig ekki um
að ræða stjórnmál eða trúmál,
AÐALFUNDUR Farfugladeildar
Reykjavíkur var nýlega haldinn.
Starfsemin var með svipuðu
sniði og undanfarin ár, en Far-
fugladeildin átti 20 ára starfsaf-
mæli á fyrra ári og var þess þá
minnzt.
Skrifstofa hefir verið opin eitt
til tvö kvöld í viku allt árið í
húsakynnum Æskulýðs Reykja-
víkur að Lindargötu 50. Gisti-
heimili voru starfrækt yfir sum-
armánuðina í Austurbæjarbarna
skólanum, Hreðavatnsskálanum,
í Reynihlíð við Mývatn og í
Heiðarbóli.
Fráfarandi formaður, Ari Jó-
hannesson, baðst undan endur-
kosningu. Formaður var kosinn
Ragnar Guðmundsson, en aðrir í
stjórn: Örn Árnason, Logi Jóns-
son, Jóhann Hálfdánarson, Þor-
steinn Magnússon, Haukur Júlí-
usson og Heiðar Steinþór Valdi-
marsson.
Frá átján þjóðum
í nýútkomnu hefti af „Farfugl
inum“, félagsblaði Bandalags ís-
þá reyni ég að binda endi á
umræðurnar með kurteislegu
svari. En þá byrja þessir
stjórnmálaáhugamenn undir
eins að fara móðgandi orðum
um Suður-Afríku og Suður-
Afríkubúa. Þetta hefur ekki
komið fyrir einu sinni heldur
ótal sinnum. Finnst yður þetta
gestrisni?
* Ekkert land merk-
ara en föðurlandið
Já, ég er Suður-Afríkubúi,
og hreykin af því, svo ég verð
að biðja fólk um að láta vera
að móðga land mitt og þjóð
svo ég heyri til, því mér þykir
eins vænt um það og ykkur
um ísland og íslenzku þjóðina.
Ég hef líka fullan rétt til þess,
þar sem ekki er neitt land
merkara en manns eigið föður
land. ísland á sín vandamál
við að stríða og Suður-Afríka
sín. Og með því að skipta
lenzkra farfugla, er skýrt frá
því að á síðastliðnu sumri hafi
komið hingað fleiri erlendir far-
fuglar en nokkurt annað sumar.
Urðu gistingar erlendra farfugla
hér alls 1242. Flestir voru útlend
ingarnir frá Englandi 459 gist-
ingar, Þýzkalandi 289 og Frakk-
landi 104, en færri frá öðrum
löndum. Alls komu farfuglar frá
18 löndum. Þeir, sem lengst voru
að komnir, voru frá Ástralíi* og
Nýja Sjálandi.
Sumarferðir
í „Farfuglinum" er einnig
ferðaátælun Farfugladeildar
Reykjavíkur á komandi sumri,
Um hverja helgi verða lengri
eða skemmri ferðir. Þrjár ferðir
verða t. d. farnar í samráði við
Æskulýðsráð Reykjavíkur,
gönguferð á Esju, ljósmynda-
tökuferð í Krýsuvík og blóma-
kynningarferð. Sumarleyfisferð-
irnar eru tvær. Önnur er viku-
dvöl í Þórsmörk, en hitt er 16
daga ferð noröur yfir hálendi ís-
lands. Stendur hún frá 23. júlí
til 7. ágúst.
okkur af, vekjum við aðeins
illdeilur.
Mig langar samt til að nota
þetta tækifæri til að þakka
mínum ágætu vinum, Sigurði
Júlíussyni og konu hans sem
voru svo elskuleg að fara með
mig í bílferð út úr bænum um
daginn. Mér hlýnaði um
hjartaræturnar að sjá þau
benda mér hreykin á það sem
vert er að sjá í Reykjavík og
heyra af hve mikilli hlýju þau
töluðu um ísland og íbúa þess.
Þau minntust ekki einu orði á
Suður-Afríku eða vandamálin
þar. Ég vildi óska að ég gæti
aðeins haft með mér ánægju-
legar endurminningar frá
veru minni á íslandi. Það er
svo miklu betra að vera vin-
gjarnlegur og svo miklu auð-
veldara"
Þetta var bréf afríkönsku
stúlkunnar. Sjálfsagt hefur
frekar komið til athugunar-
leysi og taktleysi hjá þeim,
sem að henni hafa ráðizt, en
að ætlunin hafi verið að vera
ruddalegur og dónalegur. Því
hvaða skoðun sem fólk kann
að hafa á málunum, þá er slík
framkoma við stúlku frá fjar-
lægu landi auðvitað ekki sam-
andi.
S. Bj.
Efnalaug Norðfjarðar
í nýjum húsakynnum
skrifar úr
dqglega lífinu