Morgunblaðið - 10.04.1960, Blaðsíða 8
8
MORCinSBí AÐIÐ
Sunnudagur 10. apríl 1960
H jólbarðaviðgerðir
Opið öll kvöld og helgar.
Laugardag. frá kl. 1—11 e.h.
Sunnudag. frá kl. 9—11 e.h.
á kvöldin frá kl. 7—11 e.h.
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIN
Bræðraborgarstíg 21 — Sími 13921.
(bOðARHtSIÐ
Borg á Mýrum
er til sölu, til niðurrifs og brottflutnings. Austurendi
hússins þ. e. íbúð bónda verður ekki rifin og því
ekki til sölu. Tilboð sendist Kirkjumálaráðuneytinu
fyrir 1. maí næstkomandi.
Karlmanns- og unglingablússur
Köflótt ullarefni, poplin fóðraðar, má
nota beggja megin.
FaIIega<r, vandaðar. — Hagstætt verð.
AÐALSTRÆTI 4. H.F.
Myndavél —
Fermingargjof
L u b i t e 1
Fæst hjá
TÝLI
GEVAFOTO
FOCUS
HANS PETERSEN
Fjórðu afmœlistónleikar
Sinfóníusveitarinnar
Kielland stjórnar
NÆSTKOMANDI þriðjudag held
ur Sinfóníuhljómsveit fslands
fjórðu afmælistónleika sína — en
eins og frá hefir verið sagt í
fréttum heldur hljómsveitin alls
sex tónleika í tilefni 10 ára af-
mælis síns. — Tónleikarnir á
þriðjudaginn verða í Þjóðleikhús
Félagslíf
Páskar í Jósefsdal og BláfjöII
Komið í Jósefsdal um páskana
og notið snjóinn í Bláfjöllum.
Dvalarmiðar sækist á mánudag
og þriðjudag 11. og 12 apríl, í
skrifstofu Ármanns kl. 8,30—10
e.h. — Skíðadeild Ármanns.
Somkomur
Hjálpræöisherinn
í dag kl. 11: Helgunarsamkoma
Kl. 14: Sunnudagaskóli. Kl. 16:
Útisamkoma á Lækjartorgi. Kl.
20,30: Almenn samkoma. Kap-
teinn Anna Ona stjórnar og tal-
ar. — Mánudag kl. 16: Heimila-
samband. — Allir velkomnir.
inu og hefjast kl. 20:30. Stjórn-
andi verður Olav Kielland, og
verður þetta í síðasta skipti sem
hann stjórnar hljómsveitinni að
sinni.
Fjögur verk á efnisskránni: For
leikur að óperunni „Der Freis-
chiitz“ eftir Weber, Concerto
grosso í h-moll eftir Handel,
Rómeó og Júlía, fantasía eftir
Tsjaikovskí og Sinfónía nr. 5 í
c-moll eftir Beethoven.
Er Jón Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveit
arinnar skýrði blaðinu frá þéssu
í gær, lét hann m.a. svo um mælt,
að hljómsveitin hefði nokkrum
sinnum áður flutt sinfóníu Beet-
hovens, m.a. undir stjórn Kiel-
lands, og mundi hún eitt minnis-
stæðasta verkið, sem flutt hefði
verið í túlkun hans. Jón sagði,
að þessi sinfónía mundi fluitt
oftar víðs vegar um heim en
nokkurt annað hljómsveitarverk.
— Forleikurinn hefir einnig ver-
ið fluttur hér áður, en Concerto
grosso Hándels, sem er eitt 28
verka hans í þessu formi, og
Rómeó og Júlía ekki. Þetta síð-
astnefnda hljómsveitarverk, eftir
Tsjaikovskí, er mjög rómantískt
verk, byggt á efni hins alkunna
harmleiks Shakespeares með
sama nafni, og vekur það yfir-
leitt mikla hrifningu hjá áheyr-
endum, sagði Jón Þórarinsson.
%
Fræðslukvöld um
garðyrkjumál
Bræðraborgarstígur 34
Sunnudagaskólinn kl. 1. — Al-
menn samkoma kl. 8,30. — Allir
velkomnir.
Almennar samkomur
Boðun fagnaðarerindisins
1 dag, sunnudag, Austurgötu 6,
Hafnarfirði kl. 10 f.h. — Að
Hörgshlið 12, Reykjavík kl. 2 e.h.
Munið að samkomusalurinn að
Hörgshlíð 12, Reykjavík, er op-
inn í dag og hvern dag bænavik-
una, fyrir þá er vilja eiga þar
bænastund. — Sjáið auglýsing-
una í blaðinu í gær.
Fíladelfía
Sunnudagaskóli kl. 10,30. — Á
sama tíma í Eskihlíðarskóla að
Herjólfsgötu 8, Hafnarfirði. —
Bænasamkoma kl. 8,30. Daniel
Glad og frú tala. Allir velkomnir.
GARÐYRKJUFÉLAG Islands hóf
þá nýbreytni í fyrravor, að efna
til fræðslukvölda um garðyrkju-
mál Urðu þau mjög vinsæl, svo
að nú hefur félagið ákveðið að
gangast aftur fyrir slíkum
fræðslukvöldum í þessum mán-
uði. Fara fundirnir fram í Iðn-
skólanum á Skólavörðuholti og
hefjast kl. 20.30. Fyrsta fræðslu-
kvöldið verður n.k. mánudags-
kvöld, 11 apríl, en hin 20, 25. og
27. apríl.
Á mánudagskvöld mun Aage
Foged tala um blómaskreytingar
og svara fyrirspurnum, ef tilefni
gefst til. Miðvikudaginn 20.
apríl ræða Kristmann Guðmunds
son og Gunnar Hannesson um
skrúðgarða við heimahús. A
þriðja fræðslukvöldinu, sem verð
ur 25. apríl, fjalla Axel Magnús-
son og Hafliði Jónsson um græn-
metisræktun og á 14. og síðasta
kvöldinu að þessu sinni, miðviku
daginn 27. apríl talar Niels
Dungal um orkideur og Seefeld
Wolf um blóm í listaverkum.
Aðgangur að kvöldunum er
öllum heimill og ókeypis. Af
fyrri reynzlu má fullyrða að
PILTAR,
EFÞlÐ EIGI0 UNNUSTUNA
ÞÁ Á ÉQ HRIN&ANA /
margir muni vilja færa sér í nyt
þá fræðslu, sem fæst með þessum
hætti.
Ávarp frá Ljos-
mæðrafélagi
Reykjavíkur
Góðir Reykvíkingar!
HINN árlegi merkjasöludagur
Ljósmæðrafélags Reykjavíkur er
á mcrgun, pálmasunnudag. Öllu,
sem inn kemur verður varið til
hvíldarheimilis ljósmæðra í
Hveragerði. Hingað til hefur al-
menmngur brugðizt vel við
merkiasölu okkar ,og eigum við
hjálpsemi hans að þakka, hve
vel miðar áleiðis með hvíldar-
heimi.ið. Það eru svo margir,
sem minnast ljósu sinnar með
hlýjum hug, »g vona ég, að svo
verði ái'ram í okkar þjóðfélagi að
ljósmæðurnar verði raungóðar
og hjálpsamar öllum, sem hjálp-
ar burfa.
Sennilega hefur engin stétt átt
jafn langan og óvissan vinnu-
tíma og ljósmæðurnar, nema sjó
mennirnir, en þeir hafa líka reist
hið myndarlega dvalarheimili
með góðri hjálp almennings. Við
setjum líka markið hátt og von-
umst til að geta boðið öllum
sjúkum og lasburða ljósmæðrum
að dvelja við heilsulindir Hvera-
gerðis.
Foreldrar, leyfið börnunum að
selja merki félagsins. Merkin
vérða afhent í öllum barnaskól-
um bæjarins frá kl. 10 f.h.
Með fyrirfram þökk fyrir hönd
Ljósmæðrafélags Reykjavíkur.
Helga M. Níelsdóttir ljósmóðir.
Landsmálaféiagið Vörður
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu, mánudag. 11. apríi kl. 8,30 eftir hádegi.
Umræðuefni:
Þáttaskil í verzlun og viðskiptum — Frjálst framtak
Frummælandi: Jóhann Hafstein bankastjóri
Allt Sjálfstæðisfólk velkomið meðan húsirúm leyfir
Landsmálafélagið VÖRÐUR