Morgunblaðið - 20.04.1960, Blaðsíða 12
12
MORCUNnr AfílÐ
Miðvikudagur 20. apríl 1960
TTtg.: H.f. Arvakur Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
UTAN UR HEIMI
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
♦ DAG eru 10 ár liðin frá því
* að Þjóðleikhúsið tók til
starfa. Þegar það var vígt
komst Morgunblaðið m. a. að
orði á þessa leið um hlutverk
þess:
„Það á að verða höfuðvígi
íslenzkrar listar. Það á í senn
að vera þjóðlegt en veita þó
stöðugt straumum nýrra
' menningaráhrifa til þjóðar
sinnar. Listin er alþjóðleg, en
því aðeins getur hver einstök
þjóð tileinkað sér heims-
menninguna eða brot af
henni að hún eigi sjálf sína
eigin þjóðlegu menningu,
sprottna upp úr jarðvegi síns
eigin lands, sögu þess og bar-
áttu.
Á grundvelli þessa skiln-
ings fagnar íslenzka þjóðin
Þjóðleikhúsi sínu“.
Ómetanlegur styrkur
10 ár eru ekki langur tími.
En á þessum áratug hafa
margar þær vonir rætzt, sem
tengdar voru við hið íslenzka
þjóðleikhús, er það hóf starf-
semi sína. íslenzku listalífi
hefur orðið að því ómetanlegt
gagn. Það hefur ekki aðeins
orðið höfuðvígi leiklistarinn-
ar í landinu heldur hefur það
einnig átt ríkan þátt í eflingu
hljómlistarstarfsemi og list-
dans. Það hefur veitt þjóð-
inni allri fjölbreytta skemmt-
un og innsýn í leikbókmennt-
ir heimsins. Nær milljón
gesta hafa frá upphafi séð
sýningar Þjóðleikhússins. —
Rúmlega 2000 sýningar hafa
verið haldnar á vegum þess.
Leikflokkar Þjóðleikhússins
hafa ferðazt um allt landið.
Þannig hefur það komizt í
ennþá nánara samband við
þjóðina í heild.
Á traustum grunni
íslendingar hafa á þessu 10
ára tímabili öðlazt mikils-
verða reynslu af rekstri
þjóðleikhúss. Ýmislegt hefði
að sjálfsögðu mátt betur fara
í rekstri þess. Engu að síður
er óhætt að fullyrða, að Þjóð-
leikhúsið hafi farið vel af
stað. Það stendur nú á traust-
um grunni. Fjárhagur þess
hefur einnig farið batnandi,
og ástæðulaust er að ugga um
hann í framtíðinni.
Morgunblaðið óskar Þjóð
leikhúsinu og forráða-
mönnum þess til hamingju
með 10 ára afmælið, um
leið og það þakkar leik-
húsinu mikilsvert framlag
þess til eflingar íslenzku
listalífi og menningu.
Ættfaöir nýrrar
manntegundar
SÁ FURÐULEGI atburður hef
ur gerzt í Svíþjóð að lítill
drengur hefur í frumunum 69
lítninga (kromosom, sem fela
í sér erfaðaeiginleika manns-
ins) í stað 46 litninga, eins og
eðlilegt er.
Áður hefur það komið fyrir,
að börn hafi fæðzt með of fáa
eða of marga litninga, en þau
hafa yfirleitt aðeins lifað
skamman tíma. Sænski dreng-
urinn er þó þegar orðinn eins
árs gamall.
Hann hafði verið lagður í
sjúkrahús til rannsóknar á af-
brigðilegum vexti á efri
hluta líkamans og heilans. Á
rannsóknarstofnun háskólans
í Uppsölum var gerð rannsókn
á húðvefjum og kom þá í ljós
að litningar í frumunum voru
69.
Er talið að barn þetta sé
hið eina í heiminum, sem svo
er komið, og vakna nú með
mönnum ótal spurningar um,
hvort það muni lifa áfram,
hvort það muni geta aukið
kyn sitt og þar með hvort það
eigi ef til vill eftir að verða
ættfaðir nýrras manntegund-
ar.
Telja prófessorar rannsókn-
arstofnunarinnar, að líklegt
sé hér um að ræða stökkbreyt-
ingu frá ehndi náttúrunnar,
en utanaðkomandi áhirf hafi
þar engu um ráðið.
SKATTA-
LÆKKUNIN
Tif Á L G A G N íslenzkra
kommúnista, Þjóðvilj-
inn, og hið dygga stuðnings-
blað þeirra, Tíminn, hafa
haldið því fram að undan-
förnu að ríkisstjórnin hafi
fyrst og fremst beitt sér 'fyrir
lækkun á tekjuskattinum til
þess að ráðherrar fengju
lægri skatta. Þetta er það
sem hin „ábyrga stjómarand-
staða“ hefur til málanna að
leggja, þegar verið er að leið-
rétta, að nokkru, áratuga
gamalt óréttlæti, sem ríkt
hefur í skattamálum þjóðar-
innar.
Sannleikurinn er sá, að for-
ystumenn stjórnarandstöð-
unnar hafa lengi vitað um
þetta óréttlæti og vita jafn-
framt að lagfæringar á skatta
málunum munu verða mjög
vinsælar. Af þessum rótum
eru furðuskrif þeirra runnin.
Eins og margoft hefur ver-
ið bent á, þá munu tekjur
hinna ýmsu stétta á íslandi
vera jafnari en í nokkru öðru
landi heims. Mestur mun
mismunurinn hins vegar vera
í kommúnistaríkjunum, ef
öll fríðindi forystumannanna
þar eru meðtalin. Þessi mikli
jöfnuður á íslandi hefur farið
vaxandi með hverju ári, þar
sem skattar hafa farið mjög
stighækkandi, en verðbólgan
hefur stöðugt rýrt verðgildi
krónunnar. Þannig hafa
menn með miðlungslaun orð-
ið hátekjumenn á fáum árum
samkvæmt skilningi skatta-
laganna, þó að raunveruleg
kjör þeirra hafi lítið batn-
að. —
Hin óréttlátu skattalög
hafa einnig ýtt mjög undir
skattsvik og þar með dregið
úr virðingu manna fyrir lög-
um almennt.
Hitt er ekki síður alvar-
legt hvernig hin úreltu
skattalög hafa dregið úr af-
kastagetu þjóðarbúsins og
þar með gert alla íbúa þessa
lands fátækari en ella hefði
orðið.
Bretar hœtta v/ð fram-
leiðslu eldflauga
— og treysta á Bandaríkin
TIL háreysti mikillar kom í
neðri deild brezka þingsins
um daginn, er varnamála-
ráðherrann, Harold Wat-
kinson, tjáði þingheimi,
að brezka stjórnin hefði
ákveðið að hætta við
framleiðslu hinna svonefndu
„Blue Streak“ eldflauga til
hernaðarþarfa. — Stjórnar-
Glerskreytingar
- nýtt fvrirtæki
I>AÐ hefur færzt mjög í tízku
hin síðari ár, að menn hafi í hí-
býlum sínum ýmiss konar gler-
skreytingar. í hurðum. Er þetta
gler þá oft sandblásið, myndir eða
abstrakt form. Einnig er það nú
að komast nokkuð í tízku að lita
og blýleggja gler sem kallað er,
og menn setja þá einkum í sam-
band við rúður í kirkjum. Fyrir
nokkru var stofnað fyrirtæki hér
í bænum, Glerskreyting og er
til húsa í litlu skúrbyggðu bak-
húsi að Bröttugötu 14. Eigendur
þess eru bræðumir Jón og Þórir
Haraldssynir, en þeir hafa báðir
staðgóða þekkingu á sviði mynd-
skreytinga.
53 lestir
i
róðri
iHÖFN, Hornafirði, 13. apríl. —
í gærmorgun lönduðu 6 Horna-
fjarðarbátar 228 lestum af slægð-
um fiski með haus. Afli bátanna
var sem hér segir eftir 3 lagnir:
Gissur Hvíti 53 lestir, Hvanney
43% lest, Sigurfari 42 M: lest, Ak-
urey 40 lestir, Helgi 29 lestir,
Helgi 29 lestir. Jón Kjartansson
var með 20 lestir eftir eina lögn.
Allar líkur eru til að páska-
jhrotan sé nú að byrja, ef veður
hamlar ekki. — Fréttaritari.
andstaðan sakaði stjórnina
um sóun fjármuna og krafð-
ist upplýsinga um, hve mtklu
hefði verið varið til tilraun-
anna.
- * -
Watkinson upplýsti, að fram-
kvæmdakostnaður við „Blue
Streak“ eldflaugarnar næmi nú
um 65 millj. punda — heildar-
kotnaður við að koma öllum á-
ætlunum í framkvæmd mundi
sennilega nema um 600 milljón
um. — Stjórnin teldi, að einung-
is Rússland og Bandaríkin hefðu
hernaðarlegt og efnahagslegt bol-
magn til framleiðslu langdrægra
eldflauga til hernaðarþarfa.
Mundu Bretar nú treysta á Banda
ríkjamenn í þessum efnum.
Þessi ákvörðun brezku stjórn-
arinnar vekur mikla athygli, og
eru skoðanir allskiptar um mál-
ið, eins og fram hefur komið
brezkum blöðum.
Tvær kindur
koma from
VALDASTÖÐUM 8. apríl: —
Þann 6, þ.m. voru bændurnir í
Skorhaga í Kjós að huga að fé
sínu. Var þá ein ókunnug ær
saman við, reyndist hún vera
frá Ólafi bónda á Valdastöðum.
Þessi ær, heimtist í síðustu rétt
í haust, en var sleppt aftur. Sið-
an hefir hún e'kki sézt, þar til
nú. Hún lítur furðuvel út, og
er í sæmilegum holdum. Hún virð
ist vera kominn nokkuð nærri
burði.
Lambsárið gekk þessi kind, að
mestu leyti úti, í Svartagili í
Þingvallasveit. Það mun hafa ver
ið sama dag og að framan getur,
að önnur kind, sem eflaust hefir
gengið úti í vetur, kemur fyrir á
Fremra-Hálsi í Kjós. Er það grár
hrútur og er hann talinn vera
2ja vetra gamall. Ekki er vitað
um eiganda að honum. Er hann
marklaus á eyrum. En grann-
gerð sýlíng á hægra horni. Talið
er að hann sé ekki illa til fara,
eftir svo langa útivist. — St. G.
Tímarnir
breytast
Tímarnir hafa breytzt síðan
fyrsti Grikkinn hljóp með olym
píueld af Olympsfjalli. Hér er
stytta ítalska myndhöggvarans
Emilio Greco, en á blysi hennar
mun Olympíueldurinn loga í
Róm.
Fimmtán bátar
með 160 lonn
SANDGERÐI, 13. apríl. —
Fimmtán bátar komu til Sand-
gerðis í gær með samtals 160
tonn. Muninn var aflahæstur
með 21,1 lest, og Guðbjörg og
Stafnes höfðu 16,3 lestir hvort.
Línubáturinn, Jón Gunnlaugs,
landaði 6,6 lestum. Hér er norðan
strekkingur, en þó eru allir bátar
á sjó.
Biður drottn-
ingu náða
idauðadæmdan(
mann sinn
FYRIR skömmu var 26 ára
gamall maður að nafni Jim
Smith fundinn sekur um að
hafa myrt lögregluþjón —
og dæmdur til dauða. Morð
á lögreglumönnum er með-
al þeirra fáu afbrota, sem
nú liggur dauðarefsing við
í Bretlandi. — Nú hefur
kona hins dauðadæmda,
Mary, sent Elísabetu drottn
ingu bréf „sem móðir til
móður“ — og beðið hana að
beita áhrifum sínum til
þess að maður hennar
verði náðaður. — Þau hjón
in eiga 11 mánaða gamla
dóttur — og konan á von á
öðru barni sínu í næsta
mánuði.
Samkvæmt brezkum lög-
um, er Butler innanríkis-
ráðherra, ráðgjafi drottn-
ingar í málum sem þessu.
Skal hann i samráði við
sérfræðinga í brezkum lög-
um rannsaka öll atriði
málsins og leggja niður-
stöðurnar fyrir drottningu.