Morgunblaðið - 26.04.1960, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 26. apríl 1960
MORCUNfíJ4fílÐ
3
JJ
Maöurveröur
HORNAFJÖRÐUR er eitt
þrifalegasta kauptún þessa
lands. Ferðalangur sagði eitt
smn, að það væri eins og guð
almáttugur hefði sópað þar
allt umhverfið með kústinum
sínum og á leiðinni til himna
aftur, hefði hann skilið hvítu
svuntuna sína eftir, þar sem
nú er Vatnajökull og þvotta-
tuskuna á himinum — sem er
hiim frægi Hofnaf.iarðarmáni.
Þessu trúir auðvitað enginn
maður, en það verður að segj-
ast manninum til hróss, að
hann var frumlegur.
★
Höfn í Hornafirði telur nú
milli 6 og 7 hundruð manns, og
nálægir hreppar eru nokkuð
íjölmennir, einkum Nesja-
hreppur, sem er næstur. Ferða
menn, innlendir og erlendir,
heimsækja gjarnan þennan
stað, enda er staðurinn róm-
aður fyrir fegurð, einkum
þykir mörgum útsýnið af
Almannaskarði guðdómlegt.
Þrátt fyrir allt þetta verður
maður dálítið hissa, þegar mað
ur rekst á Hornfirðing á nýj-
asta módeli af Ford Galaxie
fólksbifreið — og ætlar að ger
ast leigubílstjóri heima á
Hornafirði.
★
Hann heitir Jón Sigurðsson,
en vill ekki segja hvað hann
er gamall.
— Dugði ekki ómerkilegri
bíll en þetta?
— Nei, mig hefur alltaf lang
að til að eiga eitthvað fallegt.
— Attu ekki fallega konu?
— Það er ekki hægt að eiga
bæði falleg'an bíl og fallega
konu, það er of dýrt.
— Ertu þá ógiftur?
— Já.
— Hvað kostar svona bíll?
— Hundrað og áttatíu þús-
und út á atvinnuleyfi, annars
á fjórða hundrað þúsund.
Þá sér maður, að þetta er
ódýrara en nokkur kona og
talar ekki meira um það.
— Attirðu fyrir bílnum?
— Nei, ég fékk smálán hjá
næsta manni.
— Hvað mikið?
— Mátulega mikið.
Jæja, hvað hefur þú starfað
heima á Hornafirði?
— Ég hef verið vörubílstjóri
og verkamaður samhliða.
— Þú hlýtur að hafa þénað
vel.
Ég hef aðallega þénað á
vörubílúnum, sérstaklega í
sambandi við framkvæmdir
Kanans á Stokksnesi.
— Hvað eru margir Kanar
þar?
— Þeir munu vera m;lli
hundrað og hundrað og fjöru-
tíu, en þeir halda sig mest út
af fyrir sig — mega ekki einu
sinni koma á dansleiki og
Jón Sigurðsson og Ilornafjörður iraniundan.
vörubíl að gera, svo ég vendi
mínu kvæði í kross og keypti
26 manna bíl til hópferða norð
ur í land og víðar. Svo seldi
ég hann hæstbjóðanda og fór
til Reykjavíkur og keypti þar
fólksbíl til að verá eitthvað á
hjólum áfram. Seldi hann svo
aftur í janúar síðastliðnum —
auðvitað líka hæstbjóðanda.
Og nú er ég kominn til að taka
á móti þeim dýra.
— Heldurðu að það verði
ekki flaggað, þegar þú kemur
akandi til Hofnafjarðar i allri
þinni dýrð?
maður að hirða um
sig. Svo bezt bjargar
verður
sjálfan
maður öðrum, að maður bjargi
sjálfum sér. — Ég býst annars
við, að það verði nóg fyrir
okkur báða að gera — en ekki
að jafnaði. Þá fer hann til sjós
yfir veturinn.
Það er auðvitað mikið að
gera yfir sumarið Aðallega er
það unga fólkið, sem er að
skemmta sér og fer í næstu
sveitir og jafnvel sýslur. Þá
er líka mikið að gera í sam-
bandi við flugið, Margir far-
þegar þurfa að komast áfram,
að vera á hjólum”
Rætt við leiguhilstjóra á Hornafirði
skemmtanir heimafólksins.
Það fer kannski lika bezt á
því. Ég ætla ekki að dæma
það.
— Er ekki öllum fram-
kvæmdum lokið á Stokksnesi
núna?
.— Jú.
— Þá hefur atvinna minnk-
að.
— Já, eftir það var lítið með
— Uss, nei, þeir eiga þar
nokkra fyrir af sextíu módel-
inu — svo fer ég ekki heim
fyrr en í júní og þá verða þeir
areiðanlega orðnir fleiri.
— Þú missir þá af „bísness”
þangað til.
— Maður er alltaf að missa
af „bísness".
— Verður þetta eini leigu-
bíllinn á Hornafirði?
— Nei, það er einn fyrir,
sem bróðir minn á.
— Þú ætlar þá að hefja sam
keppni við bróður þinn, er það
ekki ókristilegt — með tromp-
in á hendinni?
— Þetta er ágætur bíll, sem
hann á — auk þess hef ég
hvergi séð það í biblíunni, að
Kristur hafi bannað mönnum
að bjarga sér. Hann vildi að
maður bjargaði öðrum og þá
Nýi bíllinn bíður þess þol-
inmóður að komast til
Hornafjarðar.
til Djúpavogs, Alftafjarðar og
jafnvel austur í Hérað, Eg hef
t. d. áður farið í ,,túra“ á alla
Austfirðina. Svo þurfa kaup-
staðarbúar alltaf á svona bíl
að halda í lengri og skemmri
ferðir. Þeir eru ekki allir
komnir á hjól ennþá.
— Eiga þeir ekki reiðhjól?
— Það er lítið um reiðhjól.
Það er helzt ég, sem sést á
slíku farartæki Maður sparar
með því benzín.
— Er mikið um félagslíf
þarna?
— Bara Ungmennafélagið
og Slysavarnadeildin.
— Ekki kvenfélag.
— Jú, að ógleymdu Kven-
félaginu.
— Hvenær heldurðu að þú
verðir búinn að vinna upp bíl-
inn?
— Mig dreymir ekki um það
og verð kannski búinn að selja
hann áður — hæstbjóðanda.
Kjartan Thors
sjötugur í dag
— Semja ekki
Frh. af bls. 1.
díska tillagan hefði nokkrar von-
ir um að fást samþykkt.
SÉRSTAÐA ÍSLANDS
Utanríkisráðherra, Guðmund-
ur f. Guðmundsson, talaði fyrir
seinni tillögu íslands og sagði að
fsland hefði fyrst stutt kanadísku
tillöguna en ekki væri mögulegt
að tíu ára sögulegur réttur gilti
vegna sérstakrar aðstöðu íslands,
sem væri yfirgnæfandi háð fisk-
veiðum. Ástæða fyrir útvíkkun
landhelgi íslendinga væri sú að
reynsla okkar sýndi að fiskistofn
inum væri hætta búin, og af
þessum aðgerðum hafa aðrar
þjóðir jafnt hag og íslendingar.
Atkvæði í heildarnefnd hafi sýnt
almennan skilning nefndarinnar
á sérstöðu fslands og að þar geti
ekki gilt neinar almennar reglur.
VANTAR LÖGIN TIL AÐ
DÆMA EFTIR
Þá svaraði Guðmundur f. Guð-
mundsson tilboði Hare um að
leggja deiluna um tíu ára frest
undir hlutlausan dóm og sagði
að þetta væri ein aðferð Breta
til að skjóta sér undan því að
ráðstefnan tæki ákvörðun. Áð-
ur en hlutlaus dómur getur gef-
ið úrskurð, verður lagaregla að
vera til, til að dæma eftir. En það
er einmitt hlutverk þessarar ráð
stefnu og tilþess höfum við verið
að sú setning í bandarísk-kana-
hér. Þá sagði utanríkisráðherra
disku tillögunni að ríki mættu
gera sérsanjninga, leysti ekki
vanda íslands. Þess vegna væri
sett fram tillaga íslands við eina
setningu um að söguleg réttindi
gildi ekki gagnvart löndum sem
yfirgnæfandi væru háð fiskveið-
um.
Tók ráðherrann skýrt fram að
íslendingar semja ekkert við
Breta um takmörkun sögulegra
réttinda og að ísland teldi fráleitt
að leggja málið undir hlutlausan
dóm.
í ræðu sem Dean, fulltrúi
Bandaríkjanna flutti í kvöld,
sagði hann: „Ég vona að þið
greiðið atkvæði með bandarísk-
kanadísku tillögunni og tillögum
Brasilíu og Etiopíu. Ég vona að
þið fellið tillögu íslands um sér-
stöðu, tillögu Perú, tillögu tíu
ríkjanna og íslenzku tillöguna
um niðurfellingu sögulegra rétt-
inda.
f DAG er Kjartan Thors, formað-
ur Vinnuveitendasambands ís-
lands, sjötugur. Kjartan hefur
verið formaður sambandsins frá
stofnun þess og notið mikils og
verðskuldaðs trausts í starfi sínu
enda átti hann mestan þátt í því
að leiða þennan þjóðnýta félags-
skap gegnum brim og boða byrj-
unaráranna.
Þá hefur Kjartan Thors verið
einn af aðalforvígismönnum ís-
lenzkra útvegsmanna og hefur
lífsstarf hans í hálfa öld verið
nátengt sjávarútveginum. Hann
var stofnandi elzta vinnuveitenda
félags íslands, Félags íslenzkra
botnvörpuskipaeigenda og for-
maður þess á þriðja tug ára. Þá
var hann einnig fyrsti formaður
Landssambands íslenzkra útvegs
manna og hefur auk þessa gegnt
mörgum öðrum trúnaðarstörfum.
Kjartan Thors hefur ætíð not-
ið mikilla vinsælda í starfi sínu,
enda sanngjarn maður og alúð-
legur í viðmóti og hefur það ekki
sízt komið í ljós þegar hann hefur
verið málamiðlari í átökum milli
atvinnustéttanna.
Kjartan Thors dvelst í dag á
Palace Hotel í Milano.
Hvað mein x
Hermann og Lúðvík?
Það hefur vakið almenna furðtt
hér heima, að þeir Hermann Jón-
asson og Lúðvík Jósefsson hafa
rofið þá einingu, sem ríkt hefur
um landhelgismálið og skorið sig
út úr þegar sendinefnd okkar í
Genf varð að taka örlagaríka
ákvörðun. Á það hefur verið bent
hér í blaðinu, að sendinefnd okk-
ar bar að gera tilraun til þess að
fá ákvæðið um sögulega réttinn
numið úr kanadisk-bandarísku
tillögunni. Fulltrúar okkar hafa
marglýst því yfir, að íslendingar
séu andvígir því ákvæði og muni
ekki sætta sig við það. Þegar auð
sætt var orðið sl. föstudag að
breytingartillögur mundu verða
fluttar við tillögu Kanadamanna
og Bandaríkjamanna, hlaut ís-
lenzka nefndin þess vegna að
freista þess að koma þeirri breyt-
ingartillögu fram, að hinn sögu-
legi óréttur væri numinn úr til-
lögunni.
Hagsmunir Rússa
Það er vissulega erfitt að sjá,
hvað þeir Hermann og Lúðvík
meina með því að snúast gegn
slíkri breytingartillögu af hálfu
hinnar íslenzku sendinefndar.
Það þarf ef til vill ekki lengi
að leita að ástæðu Lúðvíks fyrir
þessari ráðabreytni. Kommúnist-
ar hafa löngum sýnt það að þeir
láta sig meira skipta hagsmuni
Rússa um 12 mílna landhelgi en
hagsmuni islendinga um 12
mílna fiskiveiðitakmörk. Nokk-
uð vandséðara er, hvað fyrir
Hermanni Jónassyni vakir, sem
varla verður ætlað að telja sér
bera sérstaka skyldu til þess að
ganga erinda Rússa, enda þótt
hann vilji hafa sem nánast sam-
band og samvinnu við kommún-
ista hér heima.
Reynt að trygg ja 12 mílna
fiskveiðitakmörk
Alþýðublaðið ræðir þessi mál
sl. sunnudag í forystugrein sinni
og kemst þá m. a. að orði á þessa
leið:
„Meiri hluti íslenzku sendi.
nefndarinnar gerir nú með sam-
þykki ríkisstjórnarinnar það sem
sjálfsagt er: hann reynir að
tryggja íslendingum 12 mílna
fiskveiðilandhelgi, hvað sem það
kostar. Það er sýnilega með öllu
vonlaust að almenn regla verði
samþykkt, er tryggi þetta. Virð-
ist þá sjálfsagt í lok ráðstefnunn.
ar að reyna að fá samþykkt und-
anþáguatkvæði fyrir þjóðir, sem
lifa að mestu á fiskveiðum. Til
hvers höfum við bent svo mjög
á sérstöðu okkar, ef ekki til að
fá sérstök ákvæði vegna hennar,
ef almenn ákvæði duga ekki til?
Lúðvík og Hermann eru á ann
arri skoðun. Þeir vilja ekki reyna
að bjarga 12 mílna fiskveiðiland-
relgi íslands á síðustu dögum ráð
stefnunnar. Þeir vilja að ísland
taki skilyrðislaust afstöðu með
Rússum, Aröbum og fleiri þjóð-
um, sem eru að berjast fyrir allt
öðru en við. Lúðvík og Hermann
vilja heldur falla með Rússum
en vinna þann sigur að alþjóð-
leg ráðstefna viðurkenni sérstöðu
Islands og 12 mílna fiskveiðitak-
mörk okkar verði tryggð“.
Þetta sagði Alþýðublaðið á
sunnudaginn. Að lokum er að
eins ástæða til þess að bæta þvi
við, að því miður eru horfurnar
á því að íslenzka breytingartil-
lagan verði samþykkt ekki góðar.
Má einnig vel vera, að aðstaða
íslenzku sendinefndarinnar sé
nokkru veikari vegna þess að
hún stendur ekki öll að baki
breytingartillögunni. En það
breytir ekki þeirri staðreynd, að
þessi breytingartillaga var siálf-
sögð og eðlileg.