Morgunblaðið - 26.04.1960, Blaðsíða 16
16
MORCrwT 4niB
'fR ítnrfl 1960
Kvennadeild Slysavarna-
félagsins i Reykjavík
minnist 30 ára afmælis síns föstudaginn 29. apríl með
borðhaldi í Sjálfstæðishúsinu og hefst kl. 6,30. Til
skemmtunar: Kvennakórinn syngur, stjórnandi Her-
bert Hriberschek, undirleikari Selma Gunnarsdóttir,
einsöngur Kristinn Hallsson, undirleikari Fritz
Weisshappel. — Félagskonur eru vinsamlegast beðn-
ar að vitja aðgöngumiða sem fyrst í Verzlun Gunn-
þórunnar Halldórsdóttur. — Uppl. í síma 14897 og
13491. m
Skemmtinefndin.
Þýzk húsgögn til sölu
Svefnherbergishúsgögn úr mahogny, dagstofuhús-
gögn, sófi, er getur verið svefnsófi, tveir stólar og
sófaborð og borðstofuborð og sex stólar. Til sýnis og
sölu í Sörlaskjóli 72, kl. 17,30 til 19 í kvöld.
kemur víð í t>órshöfn, Færeyjum á leið frá Reykja-
vík 7. maí tii Leith og Kaupmannahafnar.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS.
SKÓGRÆGT RÍKISINS
Verð á trjá|ilöntum vorið 1960
SKÓGARPLÖNTUR
Birki 3/0 pr. 1000 stk. kr. 500,00
Birki 2/2 — — — — 1.000,00
Skógarfura 3/0 — — — — 500,00
Skógarfura 2/2 — — — — 800,00
Rauðgreni 2/2 — — — — 1.500,00
Blágreni 2/2 — — — — 1.500,00
Hvítgreni 2/2 — — — — 2.000,00
Sitkagreni 2/2 — —- — — 2.000,00
Sitkabastarður 2/2 — — — — 2.000,00
GARÐPLÖNTUR
Birki, 50—75 cm pr. stk. kr. 15,00
Birki, undir 50 cm. — — — 10,00
Birki, í limgerði — — — 3,00
Reynir, yfir 75 cm — — — 25,00
Reynir, 50—75 cm — — — 15,00
Reynir, undir 50 cm — — — 10,00
Alaskaösp, 50—75 cm — — — 10,00
Alskaösp, yfir 75 cm — — — 15,00
Sitkagreni % — — — 15,00
Sitkagreni 2/2 — — — 10,00
Sitkabastarður 2/2 — — — 10,00
Hvítgreni 2/2 — — — 10,00
Blágreni % — — — 15,00
RUNNAR
Þingvíðir pr. stk. kr. 5,00
Gulvíðir — — — 4,00
Sólber — — — 10,00
Ribs pr. stk. kr. 10,00—15,00
Ýmsir runnar — — — 10,00—20,00
Skriflegar pantanir sendist fyrir 15. maí 1960, Skógrækt
ríkisins, Grettisgötu 8, eða skógarvörðunum, Daníel Krist
jánssyni, Hreðavatni, Borgarfirði; Sig. Jónassyni, Lauga-
brekku, Skagafirði; Ármanni Dalmannssyni, Akureyri,
Isleifi Sumarliðasyni, Vöglum; Fnjóskadal; Sigurði Blön-
dal, Hallormsstað og Garðari Jónssyni, Tumastöðum,
Fljótshlíð. Skógræktarfélögin taka einnig á mótin pönt-
unum og sjá flest fyrir dreifingu þeirra til einstaklinga
á félagssvæðum sínum.
Jónas
Krist-
jánsson
læknir |
MEÐ Jónasi Kristjánssyni lækni!
er á brautu genginn einn af;
merkustu og þjóðkunnustu mönn
um þessa lands. Hann andaðist
3. þ. m. á nítugasta aldursári eft-
ir óvenjulangan, afkastamikinn
og gifturíkan vinnudag. ;
Hér verður ekki rakinn ævi-
ferill Jónasar Kristjánssonar því
það verður gert af öðrum, heldur
verða þetta aðeins örfá þakk-
lætis- og kveðjuorð.
Ég kynntist Jónasi Kristjáns-
syni fyrst þegar hann var í Skaga
firði, þar sem vaxandi orð fór
af læknisverkum hans, dugnaði,
manndómi og vinsældum. Alveg
sérstaklega þótti Jónas góður
skurðlæknir og var eftirsóttur til
þeirra verka einnig af læknum í
nálægum héruðum. Heyrt hef ég
frá því sagt, að kona nokkur
sem gekk undir uppskurð hjá
honum hafi síðar þurft að leita
læknishjálpar erlendis hjá fræg-
um sérfræðingi. Kom læknirinn
þá auga á ör mikið, er konan
bar eftir aðgerð Jónasar. Surði
læknirinn hana þá hvar og hver
hefði framkvæmt þessa skurðað-
gerð og dáðist mjög að því hve
vel og haganlega hún hafði ver-
ið framkvæmd.
Auk læknisstarfsins lét Jónas
Kristjánson ýms félags- og fram-
faramál mikið til sín taka. Hann
var einn af aðalhvatamönnum til
stofnunar Framfarafélags Skaga
fjarðar og hélt þar marga merka
og fræðandi fyrirlestra um heil-
brigðis- og skólamál, bættar sam-
göngur og verzlunarmál og
hvatti mjög til framfara á sem
flestum sviðum.
Jónas Kristjánsson naut ekki;
aðeins vinsælda og trausts fyrir
það hvað hann var mikilhæfur
læknir, heldur líka fyrir það hve
hann var skemmtilegur, góðvilj-
aður og drenglundaður maður,
ríkur af samúð og nærgætni við
þá er áttu við erfiðleika að stríða.
Ég man gjörla þegar sú frétt
barst um Skagafjörð að Jónas
Kristjánsson væri að sækja um
Keflavíkurlæknishérað sem þá
losnaðí. Það var síðla dags, að1
gest bar að garði foreldra minna.
Til sýnis í dag sendi-
ferðabílar
Chevrolet 1957
1 tonns. Hærri og lengri
gerðin. Keyrður 10 þúsund
mílur, iítur út sem nýr.
Ford 1955,
hærri gerð, F 600, 6 cyl. —
Lítið keyrður og í góðu
standi. Skipti á ódýrari bíl
koma til greina.
Chevrolet hærri gerð ’53
í góðu standi.
Fordson sendiferðabifreið
1946 í góðu standi
Fordson pallbíll 1946
í góðu standi. —
Höfum til sölu
hlutabréf á sendibílastöð
með stöðvarplássi.
Verzlið þar sem úrvalið er
mest og þjónustan bezt.
Laugaveg 92
Símar 10650 og 13146
,,/ Skálholti"
„Leikhúsið varðveitir flestu
betur það sem lífvænlegast
er í menningararfi þjóð-
anna. Má vera að einmitt
þessi leikur Kambans verði
fremur öðrum sem hann hef
ur skrifað, það verkið, sem
þjóðin tekur með sér inn i
framtíðina, sem eina af sín-
um eilifu minningum um líf
og list liðinna kynslóða". —
Þannig skrifar Kristján Al-
bertsson, rithöiundur um
hið stórbrotna verk Kamb-
ans „f Skálholti“, sem sýnt
er í Þjóðleikhúsinu um þess
ar mundir.
Myndin er af Val Gísla-
syni, Ævari Kvaran og
Helga Skúlasyni í hlutverk-
um sinum. — Næsta sýning
verður annað kvöld.
Er hann hafði fengið sæti í bað-
stofunni þar iem heimilisfólkið
var samankomið skýrði hann frá
fyrrnefndum tíðindum. Það var
dauðaþögn í baðstofunni við
þessa fregn og því líkast sem um
slysfregn væri að ræða. Sk^g-
firðingum varð blátt áfram bilt
við að heyra, að læknirinn góði,
mannvinurinn mikli, sem allir
trúðu og treystu á væri að leita
eftir starfi annars staðar. Jónas
dró umsókn sína til baka og
Skagfirðingar fengu gleði sína
á ný.
Heimili þeirra hjóna Jónasar
og hans ágætu konu frú Hansínu
Benediktsdóttur var með mikl-
um glæsibrag og gestrisnin fram*
úrskarandi. Þar var gott og eftir-
sótt að koma. Hjónin hlý og
skemmtileg og allur beini veitt-
ur af .mikilli rausn. Þegar Jón-
as flutti með fjölskyldu sína til
Reykjavíkur órið 1938 kvöddu
Skagfirðingar læknisfjöiskyld-
una með veglegu og fjölmennu
samsæti á Sauðárkróki. Þar, sem
oftar kom greinilega fram hve
vinsældir Jósasar og fjölskyld-
unnar allrar voru miklar og inni-
legar hjá Skagfirðingum og hvað
þeir voru honum þakklátir fyrir
öll störfin í Skagafirði.
Þegar Jónas flutti til
Reykjavíkur var hann orðinn 68
ára og búinn að ijúka miklu og
erfiðu verki að gegna þreytandi
læknisstörfum í 37 ár í víðlend-
um og erfiðum læknishéruðum.
Þrátt fyrir það voru starfskraftar
hans óskertir og áhuginn fyr-
ir heilbrigðismáium þjóðarinnar
þrotlaus. Hann helgaði náttúru-
lækningastefnunni þá óskipta
krafta sina og vann ótrúlega mik
ið verk á því sviði. Hann var
faðir þessarar stefnu hér á landi
og markaði hana skýrt og hik-
laust. Hann hafði forustu um
stofnun Náttúrulækningafélags
íslands árið 1939 og var forseti
þess til dauðadags.
Kenning hans og náttúrulækn-
ingastefna er fyrst og fremst fólg
in í því að brýna fyrir fólki að
lifa sem mest á náttúrulegri lif-
andi jurtafæðu og á þann hátt
koma í veg fyrir ýmsa þá svo-
kölluðu menningarsjúkdóma sem
svo mjög þjá mannkynið nú til
dags og orsakast að meira eða
minna leyti af röngum lifnaðar-
háttum.
Eitt af hans mestu áhugamál-
um var að koma her upp nress-
ingarhæli á vegum Náttúrulækn-
ingafélags. Þessi stórhuga ósk
hans rættist með byggingu
Heilsuhælis Náttúrulækninga-
félags íslands í Hveragerði, að-
allega fyrir ötula forustu og
dugnað Jónasar í þessu máli á-
samt fórnarlund, því hann gaf
allar sinar eignir til heilsuhælis-
ins.
Nú þegar Jónas Kristjánsson
læknir er allur er margs að minn
ast og mikið að þakka. Það var
bæði lærdómsríkt og göfgandi að
kynnast jafn stórbrotnum manni
og mildum mannvini sem Jónas
var. Ég þakka honum þá rót-
grónu vináttu og tryggð, sem
hann sýndi mér og fjölskyídu
minni, ásamt öruggri læknis-
hjálp þegar um það var að ræða.
Saga vorrar þjóðar mun minn-
ast Jónasar Kristjánssonar lækn-
is, sem einna sinna mestu og
beztu sona.
Fjölskyldu hans votta ég sam-
úð og bið hennar allrar blessun-
ar.
Pétur Gunnarsson.
— ★ —
„Mjög erumk tregt
tungu að hræra”
ÞESSI orð koma mér í hug er
ég vil kveðja minn góða vin
Jónas Kristjánsson iækni.
Ég tel það mikið lán, að leiðir
okkar skyldu liggja saman, og
stend ég fyrir það í ómetanlegri
þakkarskuld við forsjónina.
Ég kynntist Jónasi lækni fyrst
og íjölskyldu hans, nokkrum ár-
um áður en hann flutist alkom-
inn til Reykjavíkur.
1 Náttúrulækningafélagi ís-
lands hefi ég starfað með honum
síðan það var stofnað, og þar
kynntist ég bezt hans mikla
mannkærleika og áhuga fyrir
heilbrigði og velferð almennings.
Veglegan minnisvarða hefur
hann reist sér með hæli Náttúru-
lækningafélags Islands, sem hann
helgaði sína óvenjulegu starfs-
krafta, allt frá stofnun þess, og
gaf þar til aleigu sína. Hefur það
nú þegar orðið mörgum heilsu-
lind og á vonandi eftir að verða
til mikíllar blessunar, ef við sem
eftir stöndum nú og starfað höf-
um með honum, berum gæfu til
að halda uppi því merki, sem
hann reisti af svo mikilli djörf-
ung og bjartsýni. Hugsjón hans
var svo göfug og vilji hans svo
sterkur, að það mætti verða okk-
: i æfilöng hvatning til að standa
fast íaman í fórnandi starfi, fyr-
'r félaga okkar
Þegar okkar ágæti foringi er
nú kvaddur til starfa í æðra
heimi, vil ég gera hina fögru
dánarkveðju þjóðskáldsins að
minni kveðju:
„Krjúptu að fótum friðarboðans
fljúgðu á vængjum
morgunroðans
meira að starfa guðs um geim”.
Arnheiður Jónsdóttir