Morgunblaðið - 26.04.1960, Side 17
Þriðjudagur 26..apríl 1960
Moncrnsnr 4ÐIÐ
17
Opið bréf til Guðmundar
Gíslasonar, læknis
Frá Sigurði Þórðarsyni bónda
á Laugabóli
Herra læknir.
í TILEFNI af hinni hressilegu
og umbúðalausu lýsingu þinni í
Ríkisútvarpinu þ. 4. april sl. af
ástandinu í mæðiveikivörnum
hér á Vestfjörðum og norðan-
lands, sem var mjög að mínu
skapi, að því er til flutnings efnis
tekur, vil ég flytja þér þakkir
mínar. f>að er alltaf karlmannr
legt að tala skírt og hispurslaust
um það, sem aflaga fer, og að
er fundið og ætla hvorki sjálfum
sér né andstæðingum nein skúma
skot að felast í, þegar miklu varð-
ar að hið rétta komi í Ijós. Ég
skrifaði strax niður hjá mér ýmis
legt er þú sagðir, vegna þess
að ég bjóst við að leggja fyrir
þig nokkrar spurningar í því
sambandi og ætla að hripa nokk-
uð af því niður á þetta bréf og
biðja þig að segja mér ef nokk-
ursstaðar er ranghermt hjá mér.
Þú skýrðir frá banni gegn sölu
á sauðfé til lífs héðan úr hólf-
inu milli Þorskafjarðar og Kolla
fjarðargirðinga, er sett var fyrir
9—10 árum vegna meintrar
hættu frá Hólmavík. Þá segir þú
orðrétt, að ég ætla „að girðingin
frá Kollafirði að ísafirði hafi
um mörg ár undanfarið verið lé-
leg, hlið á henni opið dögum
saman, samgangur fjár um hana
hindrunarlaus að mestu og varzla
léleg og að heyrt hefðir þú um
einhver mistök á flutningi fjár
á þessum slóðum“.
Allt er þetta satt og hef ég
vottfest ef til þess þarf að taka,
enda mun þér hafa verið vel
kunnugt um það.
Þá sagðir þú, að Vestfirðimir
væru „allir“ grunaðir um að
mæðiveiki hefði borizt austur í
Skagafjörð vegna lélegrar girð-
ingar og" vörzlu, annað hvort frá
Hólmavík eða úr Dölum vestur,
og að endingu að við slátrun í
Bolungarvík sl. haust hefðu fund
ist lungu úr kind frá Múla og
mundi ærin hafa verið með mæði
veiki „á hæsta stigi“. En við nið-
urskurð á öllu fé frá Múla og
tveim öðrum bæjum (þ. e. Lauga
bóli og Gervidal) hefði allt ann-
að fé reynzt heilbrigt.
Er þetta ekki rétt hermt frá,
læknir?
í sambandi við framanritað vil
ég biðja þig að svara eftirfar-
andi spurningum, sem mér er
mikil forvitni að fá umsögn þína
um?
1. Hefur læknaliðinu á Keldum
verið jafnlengi kunnugt og t. d.
sauðfjársjúkdómanefnd, það
ástand er þú lýstir í Ríkisútvarp-
inu sl. 4. apríl á girðingunni milli
Kollafjarðar og ísafjarðar?
2. Ef svo væri, hvers vegna hef
ur þá í nokkur ár, eða síðan það
varð kunnugt, verið algerlega
bannað að selja fé til lífs frá
sauðfjáreigendum öðrum megin
þessa girðingarræsknis, en bænd-
um úr fjarlægum sveitum vísað á
líflömb til kaups, þétt hins vegar
við sömu girðingu?
3. Telur þú ekki að mæðiveikin,
er þú sagðir í fyrrnefndu útvarps
viðtali að borizt hefði austur í
Skagafjörð frá Hólmavík eða úr
Dölum vestur, hafi borizt þang-
að með sauðkind og hefur hún
þá verið seld og flutt þangað,
eða telur þú að kvikindið hafi
virkilega „spásserað“ alla þessa
leið, gegnum svo lélegar girð-
ingar og vörzlu, eins og skilja
mætti af viðtali þínu í oft nefndu
erindi þ. 4. apríl?
4. Ef ástand og varzla girðinga
alla leið frá Djúpi, Ströndum
og Dölum, austur í Skagafjörð
er með slíkum endemum, sem
mér skilst þú telja þær vera í
fyrir hvaða störf telur þú þá að
ríkisstórnin hafi verið að greiða
slíkum embættismönnum laun á
liðnum árum, er trúað var til þess
að sjá um að þessar og aðrar girð
ingar samskonar væru jafnan
öruggar, svo mikið sem við ligg-
ur að þær séu það, en sést yfir
slíka smámuni eða lætur ekki
bæta úr jafnóðum?
5. Hver er nýjasta kenning
ykkar á Keldum um smitunar-
hættu á mæðiveiki frá fársjúkri
kind á ,hæsta stigi“?
Þessi spurning þarfnast eftir-
farandi greinargerðar: Lengst
af þeim tíma, sem liðinn er síð-
an mæðiveiki barst hingað til
lands, hefur því verið haldið
fram af „sérfræðingum“ í þess-
um málum, að kind gæti varla
smitað aðra á annan hátt en með
andardrætti frá sjúkri kind á
stuttu færi, sennilega vegna
mjög skammra lífsmöguleika
veirunnar, undir beru lofti. Voru
því settar tvöfaldar girðingar
með eins meters millibili, er þótti
næg fjarlægð.
Fyrir skömmu er svo farið að
halda því fram, að líkur fyrir því
að kindur geti smitast í haga,
séu nær engar, eða ca. 1 tilfelli
af 1000 möguleikum, áður töld-
um, og hefur einn ágætur dýra-
læknir sagt mér að þetta muni
svo vera.t Hins vegar væri mikil
hæjtta á ferð, ef fé komi saman í
réttum eða fjárhúsum.
En nú kemur þessi sæla rolla
úr Múla og tætir þessa vísinda-
legu staðreynd algerlega í sund-
ur.
Hún var fædd í Múla, hefur
aldrei komið út fyrir landamæri
síns heimilis fyrr en hún hóf sína
hinztu ferð, en verið alin þar
í húsum með öðru fé í 7 vetur.
Þessi ær hefur, eftir andlát sitt
í skotklefa sláturhúss í Bolung-
arvík, verið úrskurðuð af ykkur
Keldnalæknum að hafa í lifanda
líði verið haldin mæðiveiki „á
hæsta stigi“. — Þrátt fyrir þessa
staðreynd og þennan vísindalega
úrskurð, sem reyndar hefur orð-
ið talsvert örlagaríkur vestur
hér, lýsir þú yfir í viðtalinu 4.
apríl „að allt annað fé í Múla,
svo og á tveimur öðrum bæjum
(þ. e. Laugabóli og Gervidal)
hafi reynzt heilbrigt", eftir ná-
kvæma skoðun ekki lakari
manns en þín sjálfs.
Þetta þykir oss ólærðum mönn-
um hér vestra, undarlega „Hæg-
geng“ og „tregsmitandi" mæði-
veiki „á hæsta stigi“ og varla
þekkt á landi hér fyrr. Og nú
vantar okkur „nýja línu“ til að
fara eftir, því með sömu þróun
á næstu 10 árum, má áætla að
þessi leiði sjúkdómur verði alls
ekki talinn smitandi, eða þá sauð
fé almennt orðið ómóttækilegt
fyrir sýkina og yrði slík breyting
mjög hagstæð fjárhag bænda og
ríkissj óðs. Vísindalegar stað-
reyndir og niðurstöður um smit-
un og ferðalög þessa sýkils, virð-
ast taka svo skjótum breyting-
um á síðustu tímum, að við kot-
karlar höfum varla við að trúa.
6. Getur ekki hafa verið um
annan sjúkdóm að ræða en mæði
veiki í Múla?
Ég er nú að vonum heldur
„slappur" í læknisfræðinni og
illa fær til þess að ráðleggja á
þeim slóðum, en nokkrir vinir
mínir í lækna og dýralæknastétt,
mjög snjallir menn í sinni sér-
grein, hafa sagt mér að til sé
lungnasjúkdómur, að vísu sjald-
gæfur hér, ekki smitandi en ban-
vænn þeirri kind einni er hann
hefur tekið. En lungu kinda
„reageri" á sama hátt og um
mæðiveikispjöll væri að ræða,
stækki og þyngist svo erfitt, ef
ekki ógerlegt muni að greina
hvor sjúkdómurinn hafi verið að
verki. Annar er lífshættulegur
mörgum í einu, hinn aðeins þeim
einstaklingum, er hann hafa tek-
ið.
Teljið þið á Keldum alveg
útilokað að þessi síðastnefndi hafi
verið að verki í lungum kindar-
innar í Múla og jafnvel í þeirri
einu kind er sjúk reyndist á
Kollabúðum, þar sem mér er sagt
að líkt hafi staðið á, þ. e. ein
kind á „hæsta stigi“, hitt allt heil
brigt?
Ef þessi möguleiki er ekki
fyrir hendi í Múla að ykkar
dómi á Keldum, - þá sé ég ekki
betur en að, þið séuð komnir
hér í einskonar sjálfheldu, er þið
losnið varla úr með óskertu áliti,
nema einhverjar áður óþekktar
skýringar komi til, sem þá er
hæpið að almenningur trúi.
Það er ekkert leyndarmál að
hér vestur í Djúpi finnast ekki
margir menn, sem trúa því að
mæðiveiki hafi verið í Múla,
allra sízt eftir að rannsókn á öll-
um lungum þaðan, öðrum en
þessum einu og áðurnefndu,
reyndist neikvæð. Það vakti því
þunga andúðaröldu um allt hér-
aðið, sem viðbúið er að þið haf-
ið orðið varir við, er skipun um
niðurskurð kom hingað, löngu
eftir að kunnugt var að engin
smitun hafði átt sér stað, þar sem
hin sjúka kind átti heima. Töldu
me»n þetta óverjanlegt flausturs
verk, enda var mér tilkynnt úr
Reykjavík, er ég þvingaði í gegn
hlustun á fénu, að það yrði drep-
ið, hvort sem það reyndist sjúkt
eða heilbrigt“. Ég læt nú hlusta
það samt með góðum árangri, að
því er heilsu þess snerti.
En ég vil að endingu segja
þetta við þig, læknir: Mönnum,
sem fengið er í hendur það alveg
óþekkta vald í öllum öðrum efn-
um, að geta með „öryggisástæð-
ur“ á vörum látið vaða inn á
heimili njanna og drepa í hundr-
aða tali stálhraust úrvalsfé inni
í miðju ósýktu hólfi, eins og óðir
menn væru að verki, sem lögin
banna þó að veita mótstöðu, væri
það holt að flýta sér hægt undir
svipuðum tilfellum í framtíðinni,
og að minnsta kosti að leita fyrst
„dyranna“ er hugsanleg mæði-
veiki hefði getað komist um inn
í áður ósýkt hérað, ef þeir óska
ekki sérstaklega eftir að baka
stofnuninni á Keldum varanlegan
álitshnekki með verkum sínum
og káki, en bændum og ríkis-
sjóði stórfellt, fjárhagslegt tjón.
Það er tilgangslaus og bros-
leg tilraun, að ætla sér að telja
almenningi trú um það með
nokkrum árangri, að ein kind
hafi gengið árum saman með
smitandi sjúkdóm og nefna hann
mæðvieiki á „á hæsta stigi“, sem
ekki hefir þó tekist að smita eina
einustu kind aðra, þótt með þeim
hafi verið á jötu í 7 vetur í þétt-
skipuðum fjárhúsum. Það vekur
aðeins hlátur manna, en hlátur
af því tagi getur orðið hættu-
legur virðulegri vísindastofnun.
Virðingarfyllst,
Sigurður á Laugabóli.
ÍBÚÐ
Eldri hjón með tvær dætur
sínar 17 og 13 ára óska eftir
tveggja herbergja íbúð til
kaups eða leigu í bænum eða
í námunda við hann. Þeir sem
vildu sinna þessu eru vinsam-
lega beðnir að hringja í síma
16038.
Til leigu nú þegar
verzlunarhúsnœði
ca. 45 ferm., ásamt geymslu 12 ferm. í Strandgötu
23 á Akureyri. Tilboð óskast. Nánari ujplýsingar
gefur Steingrímur G. Guðmundsson, sími 1123,
Akureyri.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa. (Hálfan daginn).
Brauðgerð Kristins Albertssonar.
Álfheimum 6.
Húseign í Hveragerði
með eða án gróðurhúss óskast til kaups.
HÖRÐUR ÓLAFSSON, lögfræðiskrifstofa
Austurstræti 14 — Sími 10332 og 35673.
Stulka
sem er orðin 25 ára gömul getur fengið atvinnu
við afgreiðslustörf í bókaverzlun í miðbænum.
Umsóknir sendist Morgunbl. hið fyrsta merktar:
„3076“.
Ceymsluskemmur
óskast til leigu.
Síldar og Fiskimjölsverksmiðjan h.f.
Sími 24450.
Til sölu
Ný 8 Ha. Sabb báta dieselvél með öxul, skutpípu og
skrúfu.
FJALAR H.F.
Skólavörðustíg 3, sími 17975 — 12649.
Skrifstofustúlka
getur fengið starf við símavörzlu og vélritunarstörf
frá næstu mánaðamótum. Tilboð merkt: „Vandvirk
— 4310“ sendist afgr. Morgunblaðsins fyrir 30. þ.m.
Vélritun
Stúlka með góða enskukunnáttu og æfingu í hrað-
ritun óskast. Tilboð merkt: „Hátt kaup — 3183“
sendist Mbl. fyrir 30. þ.m.
Afgreiðslustúlka óskast
Oss vantar nú þegar duglega afgreiðslustúlku í kjöt-
búð vora að Grettisgötu 64. Nánari upplýsingar í
skrifstofunni, Skúlagötu 20.
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS