Morgunblaðið - 26.04.1960, Síða 22
22
MORCUNTíT4T)1Ð
Þriðjudagur 26. apríl 1960
Landsliðið vantaði menn
en bursfaði ,,pressuliðið44
HANDKNATTLEIKSKEPPNI
pressunar og landsliðsins er
fram fór að Hálogalandi á sunnu
daginn var bæði skemmtileg og
vel leikinn. Landsliðið fór með
sigur af hólmi í báðum leikjun-
um. En það vann karlaleikinn
31:22 og kvennaleikinn 15:9.
Kvennaleikurinn
Landsliðið náði strax frum-
kvæðinu í leiknum og skoraði
Perla strax í byrjun vö mörk og
hélzt sá munur nær allan hálf-
leikinn, en í leikhléi stóðu leikar
6:5 fyrir landsliðið.
Sylvía jafnaði fyrir pressuna á
fyrstu mín .síðari hálfleiksins, en
landsliðsdömurnar tóku brátt
leikinn í sínar hendur og var mun
urinn mestur er leikar stóðu 15:7,
en tvö síðustu mörkin skorar
pressan svo úrslitin verða 15:9
landsliðinu í vil.
Það var skemmtilegt á að
horfa, hve sterkustu einstakling-
éir félaganna, — Sigríður Lúthers
dóttir Á, Gerða Jónsdóttir KR og
Sigríður Sigurðardóttir Val, féllu
vel saman í landsliðinu, og ber
leikur alk liðsins göggan vott um
að stúlkurnar eru í mikilli fram
för. Rut Guðmundsdóttir Á átti
góðan leik í markinu og varði
oft snilldarlega.
Pressan féll ekki eins vel sam-
an og búast hefði mátt við og
leikur hennar því ekki eins sterk
ur og jákvæður og vonir stóðu
til, enda var sigur landsliðsins
aldrei í hættu. —
Karlaleikurinn
Eftir leik karlaliðanna má
segja að pressan hafi verið hepp-
in að í iandsliðið vantaði, Ragn-
ar Jónsson FH, Guðjón Jónsson
Fram og Hjalta Einarsson FH,
en varamenn þeirra léku í stað-
inn.
Leikurinn var fjörugur, hrað-
ur og skemmtilegur frá byrjun til
enda. Fyrri hálfleikurinn var
mjög jafn og staðan í hálfleik
14:11 fyrir landsliðið.
í síðari hálfleik byrjaði lands-
liðið á því að skora 5 mörk áður
en pressan fékk við nokkuð ráð-
ið, og náði hún sér ekki eftir
það, þó liðið sýndi oft góða leik-
kafla og raunin væri sú að fal-
legustu mörkin voru skoruð af
mönnum pressunnar.
Það var eins í þessum flokki
og hjá kvenfólkinu að landsliðið
féll mun betur saman. Var gam-
an til þess að vita að menn, sem
í bæjarkeppninni Rvík—Hafnar-
fj. höfðu þjarmað hver að öðrum,
léku nú saman eins og þeir
hefðu aldrei þekkt annað, enda
vann liðið yfirburðasigur 31:22.
í landsliðinu átti Sólmundur
beztan og glæsilegastan leik og
gekk oft göldrum næst hvernig
honum tókst að verja. Pétur Ant-
onsson FH, átti einnig framúr-
skarandi leik svo og Reynir, Ein-
ar og Karl.
í pressuliðinu stóðu ungu
mennirnir sig mun betur en hin-
ir eldri og reyndari, og náði lið-
ið skemmtilegustum og hröðust-
um leik er léttari mennirnir voru
inn á. Kristján, Stefán og Örn eru
allir mjög eftirtektarverðir leik-
menn. Matthías og Hermann áttu
báðir góðan leik og hefði verið
gaman að sjá Pétur Sigurðsson
með þeim ,en hann var forfallað-
ur og lék Örn í hans stað. Hilmar
Hörður og Halldór eru alltaf
Keflavík sigradi
, DRENGJAHLAUP Ármanns
% fór fram á sunnudaginn, en
1 það fer árlega fram fyrsta
r' sunnudag í sumri. Að þessu
1 sinni tóku 24 drengir þátt í
j hlaupinu. Sigurvegari varð
Agnar J. Leví, KR er hljóp
vegalengdina á 6.03.9 mín.
' Annar varð Helgi Hólm, ÍR á
' 6.05.8 mín og þriðji Hólmbert
g
Friðjónsson, ÍBK á 6.07.0 mín.
Drengjahlaupið er jafn-
framt sveitakeppni og stig
reiknuð 3ja og 5 manna sveit-
um. Keflvíkingarnir unnu
báðar sveitakeppnirnar.
Þriggja manna sveit ÍBK
hlaut 15 stig, en 5 manna sveit
in 20 stig.
í 3ja manna keppninni varð
UMSK önnur, ÍR þriðja og
Ármann fjórða. — Ármann
varð nr. 2 í 5 manna sveita
keppninni.
Myndin sýnir sigurvegara
ÍBK í sveitakeppnum Drengja
hlaupsins. Hólmbert Friðjóns-
son er í miðri fremri röð, en
hann varð þriðji í hlaupinu.
Hólmbert Friðjónsson er kunn
ur knattspyrnumaður þótt
ungur sé, og á laugardaginn
var hann með landsliðinu á
æfingu á Akranesi.
0
traustir leikmenn ,en oft hafa
þeir leikið betur en í þessum
leik sama má segja um mark-
mennina Guðjón og Skúla.
Á réttrileið
Þessir leikir sýndu ótvirætt að
HSÍ hefir farið inn á rétta braut
að velja jafn marga til lands
liðsæfinganna og raun ber vitni.
Með því hefir skapazt meiri
breidd í landsliðinu og styrkur
liðanna mun meiri en áður hefir
verið. — Á.Á.
Kristján Stefánsson (FH) ver
skot frá Cunnlaugi Hjálmars-
syni (ÍR).
Sigurlína Bjórngvinsdóttir, FH,
skorar fyrir pressuna. — Hinar
stúlkurnar á myndinni eru
„stjörnurnar“ Gerða Jónsdótt-
irir, KR, og Sigríður Lúthers-
dóttir, Á.
aftur
BANDARÍSKI hástökkvar-
arinn John Thomas keppti
fyrir Boston háiskóla á
íþróttamóti, sem haldið
var sl. laugardag í Hanover,
N. H. Tomas vann keppn-
ina og bætti N.C.A.A.
metið með því að jafna það
ameríska metinu 2,17 m.
Fram tapaði
fyrir Þrótti 2.0
Framarar léku 10 síðari hálfleikinn
FRAM og Þróttur kepptu annan leikinn í Reykjavíkurmótinu á
sunnudaginn. Þau óvæntu úrslit urðu að 2. deildarliðið Þróttur vann
leikinn, 2:2. — Einn leikmaður Fram, Guðmundur Óskarsson,
meiddist í byrjun síðara hálfleiks, svo að Fram lék með 10 mönn-
um eftir það, en að því undanteknu voru úrslit leiksins ekki nein
slysaúi'slit, því Þróttur átti frumkvæðið meginnluta leiksins.
Q Ekki dæmi um góða æfingu
Af vorleik að vera má ef til
vill segja að félögin hafi sloppið
nokkuð vel frá leiknum. En þeg-
ar haft er í huga að knattspyrnu-
menn hafa látið í það skína að
þeir hafi æft vel í vor, þá er varla
hægt að hrósa þessum leik.
Hraði var lítill og leikurinn
yfirleitt fjörlítill og fór fram að
mestu um miðbik vallarins. Mark
tækifæri voru sára fá.
01
Níu srunda ferð
á 2 tíma æfingu
— og allir komu ánægðir heim
HEIMTUR voru frekar góðar, er
landsliðsþjálfarinn lagði með
menn sína af stað upp á Akranes
á laugardaginn, þegar haft er í
huga, að liðsmönnum Fram var
gefið frí vegna leiksins við Þrótt
á sunnudaginn og einnig að
nokkrir af hinum „útvöldu“ hafa
tilkynnt að þeir sjái sér ekki fært
að vera með í æfingunum að
sinni þ. á m. Árni Njálsson, Helgi
Jónsson, Gunnar Guðnason, Þórð
ur Jónsson og Ríkarður Jónsson,
sem er veikur.
Landsliðsnefndin hefir reynt
að bæta fjarvistir þessara manna
og annarra sem boða forföll, með
því að gefa öðrum tækifæri til
að æfa með landsliðinu. í för-
inni upp á Skaga voru t. d. Kefl-
víkingarnir, Högni Gunnlaugsson
og Hólmbert Friðjónsson, en alls
voru 10 menn í förinni.
Æfingin á Akranesi tókst all-
vel. Akurnesingarnir Sveinn,
Kristinn, Ingvar og Helgi voru
allir ínættir og auk þess með liðs-
auka, svo fært væri að skipa full
lið. Að æfingijnni lokinni fengu
menn sér bað í íþróttahúsinu og
nokkrir fóru í Sundlaugina, sem
er í næsta húsi.
Áður en lagt var af stað frá
Akranesi þágu ferðalangarnir
hinar rausnarlegustu veitingar á
hinu vistlega og fagra heimili
þeirra Lárusar Árnasonar, lands
liðsnefndarmanns og konu hans
Helenar Halldórsdóttur.
í bæinn var komið aftur kl. 10
e. h. og voru menn kátir og
hressir eftir vel heppnaða og
skemmtilega ferð.
Burleson
3:58,6
//
í mílu
44
Á FRJÁLSÍÞRÓTTAMÓTI, sem
haldiö var i borginni Eugene í
Oregonfylki, Bandaríkjunum,
hljóp háskólanemandinn Dyrol
Burleson míluhlaupið á 3.58.6
mín., en það er betri tími, en
nokkur Ameríkumaður hefir náð
til þessa.
Áður hafði Don Bowden nem-
andi við Kaliformuháskólann átt
bezta tímann 3.58.7 mín., en þeim
árangri náði hann í júní 1957 á
móti í Stockton Kaiiforníu.
Ástralíumaðurinn Herbert Ell-
iott, sem á heimsmetið í mílu-
hlaupi, 3.54.0 mín, keppti í maí
1958 á frjálsíþróttamóti 1 Los
Angeles og hljóp þá míluna á
3.57.8 mín., en það er bezti tími,
sem náðst hefir í Bandaríkjunum
í þessu erfiða hlaupi.
Q Misnotuð marktækifæri
Þegar á 1. mín. sköpuðu
Þi’óttarar sér tvö marktækifæri,
sem þeir misnotuðu Og ef Fram
hefði t.d. skorað úr tækifærinu,
sem þeir fengu á 10. mín, þá er
óvíst hvernig leikurinn hefði
farið. En þá var Fram í upp-
hlaupi og Baldur með knöttinn
út á hægri kanti. Baldur sendir
inn í vítateig til Daníels og Daní-
é’. áfram til Grétars og skapar
Grétari eitt bezta tækifærið í
leiknum til að skora úr, en Grét-
ar skaut fast og fljótfærnislega
og smaug knötturinn við hægri
stöngina utanverða.
Fram fékk aftur tækifæri á
37. mín. — Daníel fær þá sendan
knöttinn inn í vítateiginn hjá
Þrótti. Daníel grípur vel inn í
sendinguna og spyrnir föstu skoti
að marki Þi’óttar, en knötturinn
lendir í hliðarstönginni og hrekk-
ur út aftur og fyrir fætur Dani-
e)s, — en þá hittir Daniel ekki
knöttinn og þar með var það
marktækifæri úr sögunni.
Q 10 Framarar
A fyrstu mín. síðari hálfleiks
lendir Guðmundur Oskarsson
saman við varnarmann Þróttar,
með þeim afleiðingum að Guð-
mundur var borinn út af vellin-
um og fluttur á Slysavarðstofuna,
þar sem settar voru klemmur í
augnabrún hans er skorizt hafði
við höggið.
Það gefur að skilja að liðsmátt-
ur Fram veiktizt nokkuð er þexr
voru orðnir aðeins 10 á vellinum,
en þó hefði maður ætlað að geta
þeirra væri meiri, en fram kom
í leik þeirra
Framh. á bls. 23
4. flokks mót
í handknattleik
FRAM og Vkingur munu standa
fyrir handknattleikskeppni, sem
haldin verður að Hálogalandi 3.
maí n k. fyrir 4. aldursflokk
karla. Þetta er í fyrsta sinn sem
stofnað er til slíkrar keppni og_
verður aðgangur ókeypis. Þátt-
töku tilkynningar eiga að sendast
Sigurði Bjarnasyni, Fossvogs-
bletti 5, Reykjavík.