Morgunblaðið - 26.04.1960, Page 24
Íþróttasíðan
er á bls. 22.
Qi®wM$i!bib
93. tbl. — Þriðjudagur 26. apríl 1960
Brasilía
- Sjá bls. 12. —
Það var engin
i tilviljun
að þjófarnir náðust
ÖHÆTT er að fullyrða að
rannsóknarlögreglan hefur
aldrei gert eins margháttaðar
ráðstafanir til að upplýsa
jjjófnaðarmal, eins og nú þeg-
ar henni hefur tekizt að upp-
lýsa mál ungu mannanna
þriggja, sem þegar hafa játað
á sig alla helztu innbrots-
þjófnaðina hér í baénum í
vetur. Fullvíst má telja að
mál þessara þriggja manna
séu umfangsmestu innbrots-
þjófnaðarmal, sem komið
hafa til kasta rannsóknarlög-
reglunnar.
Engin tilviljun
I>annig komst Ingólfur Þor-
Steinsson yfirvarðstjóri í rann-
sóknarlögreglunni að orði í gær
við Mól., og hann bætti við: —
Það er alveg vonlaust fyrir ykk-
ur blaðamennina að biðja okkur
um að skýra frá, með hverjum
bætti okkur tókst að ná þeim
Með því værum við að upplýsa
og ieiðbeina afbrotamönnum um
leiðir til þess að komast undan.
En það get ég sagt, að það var
engin tilviijun að þeir náðust.
‘V
Ekki fleiri
íngólfur sagði, að rannsókn
tnálsins væri ekki enn lokið,
þó allvel miðaði í áttina. Hann
sagði t.d., að ekkert hefði komið
í Ijós er benti til þess að fleiri
inenn væru viðriðnir málið.
Ekki voru þeir allir þrír ætíð
saman við hin stærstu inn-
brot, t. d. höfðu þeir verið
tveir að verki, er brotizt var
inn í Ford-umboð Kr. Kristj-
ánssonar. Þeir höfðu líka ver-
ið tveir saman, er þeir náanu
peningaskápinn á brott úr hús
gagnavinnustofu Birgis Ágústs
sonar.
40 innbrot
Ingólfur sagði að það væri upp-
lýst, að þeir hefðu byrjað að
fremja innbrotin í október sl.
Endanleg tala innbrotanna er
einhvers staðar í námunda við
40.
Er Ingólfur var spurður um
fjárhæð þá, sem þeir hefðu
stolið, — í beinhörðum pen-
ingum, — taldi hann ekki
ósennilegt að hún væri ein-
hvers staðar í námunda við kr.
200.000.00. Þeir höfðu skipt
með sér ránsfengnum í hvert
skipti, bætti hann við. Tjónið
og skemmdirnar, sem innbrots
þjófarnir ollu á innbrotsstöð-
um nemur mörgum tugum
þúsusunda króna.
Koma vel fyrir
Mennirnir eru sagðir koma vel
fyrir og hafa stundað sín fast-
launuðu störf samvizkusamlega
Einn þeirra er fjölskyldumaður.
(Sjá nánar í forystugrein blaðsr
ins í dag).
Freysteinn Þorbergsson, skákmeistari Islands 1960, sést hér
tefla við Fál G. Jónsson, skákmeistara Suðurnesja.
Freysteinn Þorbergsson
skákmeistari Islands ‘60
SKÁKÞINGI íslands lauk í
Breiðfirðingabúð á sunnudaginn.
Skákmeistari íslands varð Frey-
steinn Þorbergsson. Hann
hlaut 6% vinning, en annar í
landsliðsflokki varð Guðmundur
Pálmason með 6 vinninga. Efstir
í meistaraflokki urðu Magnús
Sólmundarson og Sveinn Krist-
insson með 5V2 vinning hvor.
Eins og skýrt var frá í sunnu-
dagsblaði Mbl. átti Freysteinn
biðskák við Jónas Þorvaldsson,
eftir síðustu umferðina. Skákin
var talin mjög jafnteflisleg, þó að
Freysteinn hefði heldur betra
tafl. Líkur voru því á að Frey-
Fjór&a bólusetning
við mænusótt
LANDLÆKNIR hefur nýlega
sent öllum héraðslæknum lands-
ins svohljóðandi bréf, varðandi
mænusóttarbólusetningu:
Líklegustu urslitin í Genf:
Sex plús sex
Frá fréttaritara Mbl.
Þ.Th
FYLGJENDUR tillögu Banda-
ríkjanna og Kanada tala nú
um það með vissu að tillag-
an muni ná atkvæðum tveggja
þriðjuhluta fulltrúa á ráð-
stefnunni. Hins vegar gera
andstæðingar hennar og fara
ekki dult með, ráð fyrir því,
að tillagan muni ekki ná þeim
meirihluta.
Það kom fram í ræðu full-
trúa Saudi Arabiu í dag að
„Bandakan“ tillagan myndi
ekki hljóta tilskilinn meiri-
hluta. En fulltrúinn tók það
skýrt og ákveðið fram, og hélt
um það Ianga tölu, að ríkin
sem vildu tólf mílna landhelgi
myndu aldrei undirskrifa
slíka samþykkt og samþykkt
á ráðstefnunni á slíkri tillögu
hefði því enga aðra þýðingu
en þá, að Bretland og Banda-
rikin myndu endanlega jarða
sína þriggja mílna landhelgi.i,
ítrekaði hann að samþykkt/
ráðstefnunnar myndi aðeins/
binda þær þjóðir er undirrit-
uðu hana.
Fulltrúi Vatikansríkisins héltC
Ianga ræðu í dag og studdi(
eindregið tillögu Bandaríkj-
anna og Kanada. Kvað hann/
það einu tillöguna er hefði)
möguleika til samþykkis og-
hún væri því eina tillagan er(
styddi að friði og kærleika i(
heiminum.
FuIItrúi Perú Iýsti því yfirí
í dag að hann myndi sitja hjá'
er tillaga Bandaríkjanna og
Kanada kæmi til atkvæða. Á(
síðustu ráðstefnu greiddu(
Perúmenn atkvæði gegn/
bandarisku tillögunni. Sú skoð/
un verður æ meir ofan á að'
tillaga Bandaríkjanna og Kan(
ada nái tveim þriðjungum fylg(
is en „tólf mílna ríkin“ neiti(
að undirrita hana.
Reykjavík, 13. apríl 1960.
Ég vil eigi láta hjá líða að
vekja athygli héraðslækna á því,
að enh er ekki fengin vissa um,
hve lengi ónæmi helzt eftir
mænusóttarbólusetningu, þó að
bólusett hafi verið þrisvar, eins
og gert hefur verið ráð fyrir.
Vegna þessa er víða talið ráð-
legt að bæta við fjórðu bólu-
setningunni, einu eða fáum árum
eftir hina þriðju.
Þar sem nú eru senn liðin 4
ár frá því að bólusetning þessi
var hafin hér á landi, þykir rétt,
að athugað sé um endurbólu-
setningu að minnsta kosti á öll-
um þeim, sem fyrst voru bólu-
settir.
Rétt þykir og að benda á, að
nú er eingöngu bólusett undir
húð (subcutan), og er skammt-
urinn 1 millilítri, hvort sem bólu
efnið er danskt eða ameri.vkt.
Sem fyrr mun bóluefni fáan-
legt hjá Lyfjaverzlun ríkisins,
þó ef til vill með nokkrum fyr-
irvara, ef um stórar pantanir er
að ræða.
Ríkissjóður mun ekki taka þátt
í kostnaði vegna þessarar bólu-
setningar.
steinn og Guðmunduy Pálmason
yrðu að heyja einvígi um íslands-
meistaratitilinn. — Freysteinn
skar úr um þetta atriði þegar
með biðleiknum. Biðleikurinn
var mjög tvíeggjaður og kom
Jónasi algerlega á óvart. Mót-
leikur var til við leik Freysteins
sem hefði alla vega getað þröngv
að jafntefli, en Jónas sá ekki
þennan mótleik, og varð það til
þess að, hann tapaði manni og
þar með skákinni.
Tapaði ekki skák
Freysteinn Þorbergsson tefldi
oft mjög glæsilega á skákþinginu.
Hann tapaði engri skák en gerði
jafntefli í þrem skákum.
Meistaraf lokkur:
f meistaraflokki tapaði Guðni
Þórðarson biðskákinni frá síð-
ustu umferðinni er hann átti við
Sverri Norðfjörð og varð þann-
ig af fyrsta sætinu. Efstu menn
í meistaraflokki urðu því:
1. Magnús Sólmundarson 5% v.
2. Sveinn Kristinsson 5% v.
3. Guðni Þórðarson 5 v.
kr. tjón af eldi
MIKIÐ tjón varð af eldi hér I
Reykjavík á sunnudagskvöldið,
er kveikt var í húsinu Fischer-
sundi 3, sem nú er notað sem
vörugeymsla. Nýlega hefur ísa-
foldarprentsmiðja tekið húsið á
leigu, og varð prentsmiðjan fyrir
tjóni, sem vart mun undir 300.000
krónum.
Húsið Fischersund 3, er einlyft
timburhús á háum kjallara. —
Oscar Clausen sagði, er hann kom
þar að sem nokkrir menn voru
utan við húsið að í því hafi fyrir
eina tíð verið veglegasta bakarí
Reykj avíkur.
í húsinu hefur ekki verið búið
um nokkurt skeið, en notað sem
vörugeymsla fyrir Silla & Valda
sem eiga húsið. Þeir áttu ýmsar
nýlenduvörur í kjallara þess og
munu hafa orðið á þeim einhverj
ar skemmdir af vatni.
Eldurinn hefur flögrað um allt
húsið og upp í risið og var all-
mikill í því er slökkviliðið
kom á vettvang. Gekk slökkvi-
starfið greiðlega. ísafoldar-
prentsmiðja var nýlega búin að
flytja þangað til geymslu upp-
lagið af „Ritum Gröndals“ og
mun það allt hafa farið forgörð-
um.
Um' 90 kg. af riklingi var
geymdur í húsinu og eyðilagðist
allur. Hann var 10.800 kr. virði.
Húsið sjálft brann mestallt að
innan og víða brunnu eða sviðn-
uðu máttarviðir.
Eldsins var vart um það leyti
sem bæjarbúar streymdu í kvik-
myndahúsin í miðbænum og
skemmtistaðina þar. Ekki er vit,-
að hver eða hverjir það voru, er
eld báru að húsinu, en augljóst
er að um íkveikju er að ræða.
Trillubátur talinn af
Einn maður var á honum
ÓLAFSFIRÐI, 25. apríl. — Á laugardag og sunnudag var gerð leit
að trillubátnum Kristjáni Jónssyni héðan frá Olafsfirði og bar hún
ekki árangur nema hvað lítils háttar brak fanns, sem talið er vera
úr bátnum. Aðeins einn maður var á bátnum og er hann talinn af.
162 tonn
AKRANESI, 25. apríl. — Allir
þorskanetabátarnir utan tveggja
eru á sjó í dag. í gær var aflinn
alls 162 tonn. Voru þeir með
mestan aíla, Sigrún 22 tonn og
Böðvar 15 tonn.
A, Leit hafin
Síðastliðið föstudagskvöld kl.
23.45, fór vélbáturinn Kristján
Jónsson, sem er 3—4 tonna opinn
trillubátur héðan frá Ólafsvík og
var ferðinni heitið að Grímsey,
en þar hugðist Axel Pétursson
stunda handfæraveiðar. Síðan
hefir ekkert til bátsins spurzt.
A laugardágsnóttina var sjór
talsvert mikill, en hægvirði Síð-
ari hluta laugardags var farið
að grennslast um bátinn og var
baft talsamband við tvo dekkbáta
héðan úr Ólafsfirði, en þeir fóru
á sömu mið skömmu eftir að
Kristján Jónasson lagði úr höfn.
Höfðu þeir aldrei orðið bátsins
varir. Var straf hafizt handa um
skipulega leit er þetta fréttist.
Togbátar, sem eru að veiðum hér
fyrir Norðurlandi og a. m. k.
einn togari, leituðu á stóru svæði
Laust fyrir myrkur á laugardag-
inn var sjúkraflugvél frá Akur-
eyri fengin til leitarinnar, enn
fremur leitaði hún á sunnudags-
morgun.
^ Brak úr bátnum
Héðan fóru tveir trillubátar
með birtingu og héldu norður
með landinu. Töldu þeir sig hafa
séð brak úr bátnum í svokölluð-
um Fossdal, sem er hér vestur
af Ólafsfirði.
i Enn verður Ieitað
Eftir að það fréttist, voru
sendir menn á landi til þess að
ganga á fjörur. Fundu þeir að til-
vísun bátanna smábrak, sem
þeir töldu að verið gæti úr bátn-
um. Var leit þá hætt bæði á sjó
og úr lofti, en ætlunin er að fara
á bát vestur með landinu á nýjan
leik þegar sjór gengur niður, en
hann er taisverður hér enn, svo
að ekki er lendandi á þessum
slóðum., — Þar sem sjór var mik-
iil á laugardagsnóttina, er talið
að Axel muni ekki hafa komizt
af.
Axel Pétursson var maður
tæplega fimmtugur að aldri, öt-
ull og dugandi sjómaður. Hann
lætur eftir sig konu og 6 börn,
og eru þau öll komin yfir ferm-
ir.gu nema eitt.