Morgunblaðið - 28.04.1960, Síða 24
Íþróttasíðan
er á bls. 22.
ItlwipmMstöíifo
95. tbl. — Fimmtudagur 28 aprfl 1960
Andtitssnyrting
— Sjá bls. 15 —
7 bótor með
7000 tonn
ÞORLÁKSHÖFN, 27. apríl.
SJÖ bátar hafa verið gerð-
ir út frá Þorlákshöfn í vet
ur, og hefur afli þeirra
verið ágætur frá vertíðar-
byrjun — um 7000 tonna
heildarafli. Aflahæstu bát-
arnir eru Friðrik Sigurðs-
son með 976 tonn og Þorlák
ur II. með tæp 900 tonn.
Undanfarið hefur verið
unnið að því að Ijúka bygg
ing hraðfrystihúss á Þorláks
höfn á vegum útgerðarfél-
agsins Meitils hf. Er bygg-
ingunni nú lokið og tekur
það til starfa um helgina.
— G.G.Ó.
Ók á Ölfusárbrú
SELFOSSI, 27. apríl. — Síðast-
liðinn mánudag um kl. 19 var
fólksbifreið ekið með miklum
hraða út á Ölfusárbrú, með þeim
afleiðingum, að hún lenti utan í
grindverki brúarinnar, og
skemmdist það mikið. — Tókst
bifreiðarstjóranum að losa bif-
reiðina frá með því að slíta
stuðarann og fleira smávegis af
bifreiðinni. Hélt hann síðan
áfram ökuferðinni, þó allt vatn
væri farið af vatnskassanum.
Lögreglan hér á staðnum kom
þegar á vettvang og náði öku-
þórnum austur með Ingólfsfjalli.
Var hann einn í bifreiðinni —
og sennilega undir áhrifum
áfengis. — G. G. Ó.
Kuldakast
á Vestfjörðum
ISAFIRÐI, 27. apríl: — Hér hefur
verið sólskin og logn undanfarið,
en kalt strax og sólar nýtur ekki,
frost á kvöldin og næturna að
jafnaði. Hefur veðurlag verið
nokkru kaldara, síðan ísrekið
byrjaði hér út af Vestfjörðum.
Aður en kuldakast þetta gerði
var brum farið að lifna á trjám,
en það kelur nú aftur. — G.K.
SKÓGRÆKT ríkisins hyggst á
næstunni flytja inn frá Noregi
bjöllutegundir, sem lifa á trjá-
lús, en hún hefur lagzt mjög á
vissar trjátegundir hérlendis,
dregiff úr vexti þeirra og jafnvel
drepið einstök tré.
Ur.gur maður frá Hafnarfirði,
Gunnar Finnbogason, vinnur að
því um þessar mundir í Noregi
að safna bjöllutegundunum, en
hann nefur undanfarna tvo vet-
ur stundað nám í skógverkstjórn
á Steinkerum í Þrændalögum.
Eru fyrstu bjöllusendingarnar
væntanlegar hingað til lands um
r æstu helgi.
Þrjár tegundir
Að sögn Guðmundar Arnar
Árnasonar, skógfræðings, er hér
um að ræða þrjár bjöllutegundir
svokallaðar Maríuhænur, sem eru
algjör rándýr meðal skordýra,
en mjög sérhæfar, þannig að viss
Maríuhænutegund lifir á ákveð-
inni lúsartegund
Þær trjátegundir hérlendis,
sem aðallega líða af lús, eru
Skógarfura og Sitkagreni. Lúsin,
sem lifir á Skógarfurunni, nefn-
ist Skjaldlús eða Ullarlús. Hefur
mjög borið á því undanfarin 10
ár, að hún hafi dregið úr vexti
Skógarfuru og jafnvel drepið
hana. I fyrravetur fannst svo hin
lúsartegundin, sem hefur lagzt á
Sitkagreni. Mætti kalla hana
Sitkagrenislús, en svo nefnist
hún í Noregi. Hún er örsmá, vart
sjáanleg með berum augum.
Verða menn hennar bezt varir á
því, að trén, sem hún leggst á,
gulna fyrst og verða síðan brún.
Skæffustu óvinir
Maríuhænutegundir þær,
sem fluttar verða inn, eru
skæðustu óvinir þessara lúsa,
og hefur sums staffar tekizt
aff útrýma þeim, meff því að
flytja bjöllutegundir þessar
inn , þar sem þær eru ekki
fyrir hendi.
Hcr á landi eru aðeins til tvær
Maríuhænutegundir, en þær virð
ast ekki sækja á þær lúsategund-
ir, sem lifa á Skógarfuru og
Sitkagreni.
Er það von skógræktarmanna,
að með innflutningi þessara
norsku bjöllutegunda verði unnt
að útrýma eða draga úr trjáalúsa
plágunni. Hefur Gunnar Finn-
bogason fengið allar upplýsingar
varðandi þetta á tilraunastöð
norsku skógræktarinnar að Asi,
svo árangurinn fnegi verða sem
beztur.
Cylfi með 300 tonn
PATREKSFIRÐI, 27. apríl: —
Afli báta héðan hefur verið ágæt-
ur undanfarið — 15—35 lestir í
róðri eftir tvær nætur — sömu-
leiðis afli handfærabáta. Togar-
inn Gylfi er á heimleið af Fylk-
ismiðum með 270—300 tonn af
karfa — Fréttaritari.
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
var enn í gær að leita af fjár-
hirzlum sem innbrotsþjófarnir
þrír höfðu rænt og köstuðu síð-
an. í gærdag beindist leitin að
Reykjavíkurtjörn. Voru rann-
sóknarlögreglumenn þar á báti í
námunda við Tjarnarbrúna.
Það sem leitað var að eru tveir
peningakassar, sem mennirnir
stálu, er þeir brutust inn í skrif-
stofu Mjólkursamsölunnar í des-
embermán. sl., en þeir eru allir
starfsmenn þar Einn innbrots-
ÞESSI mynd'var tekin á
annan sumardag á Siglu-
firffi. Flugvélin á myndinni
er sjúkraflugvél Björns Páls
sonar, en hann varff aff
Ienda þar á skíffum vegna
þess aff snjór lá yfir öllu.
Þaff er ekki hægt aff segja
aff þaff sé sumarlegt um aff
litast í þessari byggff. Á
sama tíma hefffi ekki einu
sinni veriff lendandi á Esj-
unni á skíðum vegna snjó-
leysis hér syffra.
Ker til hafnar-
gerða steypt
á Akranesi
JÓN ÁRNASON og nokkrir
fleiri þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins lögðu í gær fram á Al-
þingi þingsályktunactillögu um
að athugað verði, hvort ekki sé
hagkvæm aðstaða til að koma á
fót á Akranesi framleiðslu stein-
steyptra kerja til hafnabygginga
víðs vegar um land. í greinar-
gerð tillögunnar er m. a. bent á,
að mjög sennilegt sé, að Akra-
nes sé kjörinn staður til sJíkrar
framleiðslu. Þar sé Sementsverk
smiðjan staðsett og auk þess nær
tækt þar úrvals steypuefni, sand
ur og möl, sem miklu máli skipti
í þessu sambandi. Tillögunnar
svo og greinargerðarinnar með
henni verður nánar getið hér í
blaðinu síðar.
þjófanna segir að hann hafi kast-
að kössunum í Tjörnina, út af
brúnni. í þessum kössum eru
sagðar bankabækur með allmik-
illi fjárhæð í, sem fryst var þá
þegar er kunnugt varð um inn-
brotið.
Mjög er erfitt að leita í Tjörn-
inni, því við minnstu hreyfingu
gruggast vatnið, en þykkt leðju-
lag er á botninum. Fór svo líka
að ekki tókst að finna kassana
og í gær var óráðið hvort áfram
verður haldið leitinni.
Þorsk og ýsuafli
eykst, karti minnkar
í GÆRDAG barzt Mbl. yfirlit frá tonn af bátafiski og 13.000 tonn
Fiskifélagi íslands um aflabrögð-
in á fyrstu tveim mánuðum þessa
árs. Af því- kemur í ljós að þorsk
afli landsmanna var í febrúar-
lok 58.000 tonn: tæplega 45.000
Ljósameistarinn
iél! í hljómseit-
argryfjuna
i í GÆRKVÖLDI, milli kl. 7 og
/ 8, varð þaff slys í Þjóffleikhús-
inu, að Hallgrímur Bachman,
ljósameistari, féll ofan í hljóm
sveitargryfjuna, er hann var á
leiff yfir leiksviffiff. Hallgrím-
ur var þegar fluttur á Slysa-
varðstofuna, þar sem í ljós
kom ,að eitt rif hafffi sprung-
ið við falliff. Hann var síðan
fluttur heim til sín, þar sem
honum virtist að öðru leyti
ekki hafa orðið meint við fall-
iff. _
var afli togaranna þá orðinn. Mið
að við sama tíma árs í fyrra, var
aflinn í febrúarlok sl. orðinn
rúmlega 10.500 tonnum meiri.
Aðaluppistaðan í fiskafla lands
manna er sem fyrr þorskurinn og
var hann í febrúarlok orðinn
rúmlega 33.000 tonn, á móti tæp-
lega 23 þús. tonnum á sama tíma
í fyrra. Ýsuaflinn er einnig meiri
í ár 11.500 tonn á móti 6.100 tonn
um í fyrra. Karfaaflinn var orð-
inn rúmlega 2850 tonn, en var í
febrúarlok 1959 orðinn hvorki
meira né minna en 15.000 tonn.
Við verkun aflans hafa rúm-
lega 33.000 tonn farið til fryst-
ingar, til herzlu rúmlega 7.300
tonn og búið var að salta rúmlega
10.000 tonn. Er það miklu meiri
söltun er orðin var í febrúarlok
1959, þá um 5.800 tonn. Herzlan
er líka miklu meiri í ár en í
fyrra. Innanlandsneyzlan er tæp-
lega 15.000 tonn þessa tvo mán-
uði sem skýrslan nær yfir á móti
rúmlega 10.000 tonnum í fyrra.
f skýrslunni er að lokum skýrt
frá því að síldaraflinn sé rúm-
lega 100 tonn.
Leitad í Tjörninni
\