Morgunblaðið - 07.05.1960, Síða 1

Morgunblaðið - 07.05.1960, Síða 1
/ 20 síður Krafa yfírmanna á togurum og sjómanna ■ Grimsfov: Löndunarbann og veiðileyfi að 6 mílum Hóta verkfalli ella Grimsby í gær. — Einkaskeyti frá Haraldi J. Hamar. FÁMENNUR fundur togarayfirmanna í Grimsby samþykkti í morgun að gera verkfall á brezka tog- araflotanum frá og með miðnætti 15. maí í mót- mælaskyni við landanir íslenzkra togara í brezkum höfnum og afstöðu brezku ríkisstjórnarinnar í land- helgisdeilunni við íslendinga. Samþykktin var á þessa leið: 1) Frá og með miðnætti 15. maí mun enginn skip- stjóri eða yfirmaður á togurum í Grimsby láta úr höfn þar til landanir íslenzkra skipa verða bannað- ar í Grimsby. 2) Núverandi fyrirmæli um að togarar fari ekki inn fyrir 12 mílna mörkin við ísland verði endur- skoðuð og þeim leyft að fara upp að sex mílum. 3) Kvödd verði saman ráðstefna hið bráðasta til að ákveða landanir erlendra skipa og komu þeirra í höfnina. í fregnum frá NTB og Reuter í gærkvöldi sagði, að um 4000 togarasjómenn í Grimsby hefðu gert hliðstæðar kröfur og hér segir frá — og hótað verk- falli, ef þeim yrði ekki fram komið. Ábyrgðarlausar aðgerðir 1 skeyti fréttaritara Mbl. segir síðan áfram á þessa leið: Samþykktin var send sam- tökum togaraeigenda í Grims- by. Hún kom mjög á óvart, því fáir bjuggust við að Den- is Welch mundi ganga svo langt. Cobley, varaforseti samtaka brezkra togaraeig- enda fordæmdi aðgerðir tog- arayfirmanna í Grimsby, þeg- ar er honum barst fregnin til eyrna, og sagði þær ábyrgðar- lausar. Það hefur ekki tekizt að eg'na til uppþota vegna erlendu land- ananna — þær eru ekki lengur „í brennipunktinum", því ann- ars hefði verið stillt svo til, að verkbannið skylli á meðan ís- lenzku togararnir lönduðu, til þess að afstaða togaramanna yrði skýrari. Að vísu landa hér fleiri en íslendingar, en athygl- in hefur einkum beinzt að okk- ar togurum af skiljanlegum ástæðum, ekki einungis vegna landhelgismálsins, heldur líka vegna þeirrar staðreyndar, að togarar okkar hafa náð betri sölu en þeir brezku — og þegar sjómennimir standa yfir heild- Framh. á bls. 2. Tilkynning flotamálaráðuneytisins: Verðið kærðir — ★ — Það er athyglisvert við þessa fregn, að verkfallið er ákveðið þremur dögum eftir að samtök togaraeigenda hafa boðað tii fundar i London, nánar tiltekið 11. maí, og daginn eftir er annar fundur fulltrúa fiskiðnaðarins með Hare, fiskimálaráðherra, í London. — Það er ekki síður athyglisvert, að hinn fámenni fundur Denis Welch hefur ákveðið verkfallið þegar fyr- irsjáanlegum löndunum ís- lendinga í vor er að Ijúka. Mistök Denis Welch Það hefur algerlega mistekizt hjá Welch að fá verkamenn til að stöðva landanir úr íslenzkum togurum og öðrum erlendum. Forystumenn verkamanna hafa lýst því yfir, að þeir geri ekki greinarmun á þjóðfánum skip- anna. Unnið verði við öll fiski- skip, sem koma með fisk til Grimsby — og síðustu dagana hefur verið grunnt á því góða milli Welch og verkamannaleið- toganna. Hann hefur gefizt upp við að etja verkamönnum gegn útlendingunum — og hefur nú orðið að renna á vaðið sjálfur. Forðist • Mbl. skýrði frá því í gær, að það hefði öruggar heimild- ir fyrir því að skipherrar brezku herskipanna hér við land hefðu flutt brezkum tog- urum þann boðskap frá flota- málaráðuneytinu, að þeir skyldu forðast veiðar innan fiskveiðitakmarkanna, að þeir myndu verða kærðir fyrir brot á fyrirmælum eigenda sinna og að áríðandi væri að þeir forðuðust árekstra. Þessi miklvæga frétt var í gær staðfest. Forstjóri land- helgisgæzlunnar sendi blöðun- árekstra um tilkynningu þá, sem brezku herskipin Delight og Pallisher sendu til brezkra tog ara á íslandsmiðum á fimmtu- dagsmorgun. Er sú tilkynning á þessa leið: Tilkynning flota- málaráðuneytisins # „Okkur hafa borizt eftir- farandi fyrirmæli frá flota- málaráðuney tinu: Gjörið svo vel að láta alla brezka togara vita, að þótt ríkisstjórn íslands hafi sam- þykkt að láta allar gamlar kærur falla niður þá ber yður að halda áfram að hlýða í öllu gefnum fyrirskipunum, að þvi undanteknu að skip mega sigla innan 12 mílna mark- anna með búlkuð veiðarfæri eða leita til íslenzkrar hafnar í var, eða til þess að setja veika menn á land. Ég verð að aðvara ykkur alla um, að mér hefur verið fyrirskipað að kæra hverskon ar brot á fyrirmælum eigenda ykkar. Það er mjög mikilvægt að þið hjálpið okkur að forðast nú árekstra". Mikilvæg tíðindi 0 Þetta var tilkynning frá brezka flotamálaráðuneytinu sem skipherrar herskipanna fluttu brezkum togurum á fimmtudagsmorgun, og Mbl. skýrði frá í gær. Um þessi mikilvægu tíðindi er rætt nánar í forystugrein blaðsins í dag. Þessi mynd, sem Mbl. barst frá Lundúnum í gærkveldi, sýnir þau Margréti prins- essu og Armstrong-Jones leiðast fram kirkjugólfið í Wistminster Abbey að lok- inni hjónavígslunni í gær- morgun. Á eftir þeim ganga brúðarmeyjarnar. Anna prinsessa, elzta barn Elísa- betar drottningar og Filipp- usar hertoga, stendur aft- ast fyrir miðju. — Sjá frétt á bls. 2. LONDON, 6/5. — Willy Brandt, borgar stjóri Vestur-Berlínar kom hingað í dag til viðræðna við Nehrú, lorsætis- ráðh. Indlands, um Berlínarmálið. — Góðar heimildir segja, að í viðtali þessu hafi komið fram, að Nehrú ger- ist nú andvigari kommúnistum en ver- ið hefir. HELSINKI, 6/5. — Rússar hafa sent Finnum orðsendingu, þar sem þess er krafizt, að þeir gerist ekki aðilar að T ríkja fríverzlunarsvæðinu. Einnig, að þeir geri þvi aðeins sérsamninga við aðildarríki þess, að Rússar fái þá notið sömu viðskiptakjara og Finnar gagnvart bandalaginu. HOFÐABORG, 6/5. — Erasmus, dóms- málaráðh. Suður-Afríku, upplýsti á þingi í dag, að handteknir hefðu ver- ið 18.011 Afríkumenn, siðan neyðar- ástandi var lýst i landinu hinn 30. marz sl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.