Morgunblaðið - 08.05.1960, Qupperneq 1
24 siður og Lesbók
47. árgangur
104. tbl. — Sunnudagur 8. maí 1960
PrentsmiíHa Morgunblaðsins
Willy Brandt
Berlínar-vandamalið er ekki
sem slíkt
E I N S og kunnugt er hefst
ríkisleiðtogafundurinn í París
um miðjan þennan mánuð.
Eitt helzta vandamálið, sem
þar verður rætt, er Berlínar-
deilan. Fréttaritari Morgun-
blaðsins, Sigurður A. Magn-
Flugmaðurinn á lífi
Skýring Bandarikjanna hreinn upp-
spuni, segir Krúsjeff
Moskvu, 7. maí. (NTB-Reuter)
NIKITA Krúsjeff, forsætis-
ráðherra Ráðstjórnarríkj-
anna, tilkynnti í Moskvu í
dag að flugmaður banda-
rísku flugvélarinnar, sem
skotin var niður yfir Rúss-
landi sl. sunnudag, væri á lífi
og í haldi í Moskvu.
Sagði ráðhérrann að flugmað-
urinn, Francis Garry Powers,
sem er þrítugur, hafi verið í
njósnaflugi. Hafi Powers verið
kapteinn í bandaríska flughern-
um, þar til hann var fluttur yfir
í upplýsingadeildina C.I.A. árið
1956. Krúsjeff tilkynnti æðsta
ráðinu að tilgangur flugsins
hafi verið að safna upplýsingum
um eldflauga- og radarstöðvar
Rússa. Mikið uppnám varð í saln
um er Krúsjeff sýndi ljósmynd-
ir, sem hann sagði að teknar
hafi verið frá flugvélinni af flug-
völlum og verksmiðjum.
Attl a3 fremja sjálfsmorS
Krúsjeff sagði að flugvélin
hafi verið skotin niður með eld-
flaug yfir Úralfjöllum nálægt
Sverdlovsk í Síberíu. Flugmaður
inn hafi fengið fyrirskipun um
að fremja sjálfsmorð, til að fyr-
irbyggja handtöku, og hafi haft
til þess sérstakan eitraðan prjón,
sem ekki þurfi nema skinnrispu
til að drepa með.
Forsætisráðherrann sagðist
ekki hafa vilja tilkynna fyrr að
flugmaðurinn væri á lífi, því
hann hafi fyrst viljað heyra skýr
ingar Bandaríkjamanna á atburð
inum. Sú skýring væri hreinn
uppspuni og hefðu þeir sem
bjuggu til skýringuna reiknað
með því að flugmaðurinn væri
Framhald á bls. 22.
Vor fundurinn
ólögmætur ?
Grimsby, 7. maí.
Einkaskeyti til Mbl.
frá Haraldi J. Hamar.
ORÐRÓMUR gengur hér í
Grimsby um að aðeins þrír
eða fjórir hafi verið mætt-
ir á fundi félags yfirmanna
á togurum í gær þegar
verkfallshótun var sam-
þykkt.*
Einn af talsmönnum tog-
araeigenda sagði í dag að
gerð yrði gangskör að því
að atlvuga hve margir voru
mættir og hvort fundurinn
hafi verið lögmætur.
ússon, hefur af því tilefni átt
eftirfarandi samtal við borg-
arstjóra V-Berlínar, Willy
Brandt: .
Meðan ég hafði viðdvöl í Ber-
lín í lok apríl notaði ég tæki-
færið og gekk á fund Willy
Brandts yfirborgarstjóra og lagði
fyrir hann nokkrar spurningar
um ástandið í Berlín síðan við
hittumst síðast fyrir nákvæm-
lega einu ári. Brandt var hressi-
legur að vánda, útitekinn og sæl-
legur, hafði greinilega bætt við
sig nokkrum pundum. Meðan á
samtalinu stóð reykti hann a. m.
k. heilan tug af sígarettum.
Stórbætt efnahagsástand
Brandt hóf mál sitt með því
að lýsa efnahagsástandinu í
Vestur-Berlín. Það er betra en
nokkru sinni fyrr eftir stríð,
sagði hann. Á árinu jókst fram-
leiðslan um 12% og útflutningur
inn til Vestur-Þýzkalands og
annarra landa um 14%. Þetta eru
merkilegar staðreyndir, sagði
hann, því við bjuggumst við aft-
urkippi í efnahagsmálum á síð-
asta ári vegna hótana Rússa.
Eftir stríð var framleiðslan í
Berlin aðeins 17% miðað við
100% árið 1936, en nú er hún
komin upp í 135%. Hundraðs-
talan er hærri í Vestur-Þýzka-
landi (eitthvað kringum 240%),
en aukningin þar er samt hlut-
fallslega lægri en hjá okkur. Auð
vitað eigum við stjórninni í Bonn
mest að þakka fyrir viðreisnina
hér. Eftir stríð stóð framleiðslan
hér undir 50% af neyzlu borgar-
búa, en nú stendur hún undir um
80%. Afganginn greiðum við með
mjög hagstæðum lánum frá V-
Þýzkalandi og með efnahags-
hjálp frá Bandaríkjunum.
Fjárfesting örvuð
— Gerið þið hér í Vestur-
Berlín nokkrar sérstakar ráð-
stafanir til að örva fjárfestingu
og uppbyggingu' nýrra atvinnu-
greina?
■— Já, við höfum ýmiss konar
reglur sem miða að því. Til dæm
Einkasamtal Morgunblaðsins við
Willy Brandt borgarstjóra
is er ékki greiddur söluskattur
af vörum sem seldar aru til
Vestur-Þýzkalands. Ennfremur
veitum við ríflegar skattaíviln-
anir, allt upp í 20%. Þá má geta
þess að við leyfum hærri árlegar
afskriftir en almennt tíðkast,
þegar fé er lagt í húsbyggingar,
vélakaup og þess háttar. Annars
er meginstoð okkar- efnahags-
hjálpin frá Bandaríkjunum og
hin hagstæðu lán frá Vestur-
Þýzkalandi til opinberra fram-
kvæmda.
Einkaframtak og opinber rekstur
— Hvað um þjóðnýtingu?
— Við förum bil beggja í þeim
efnum. Flest stórfyrirtæki eru
sameign einstaklinga og hins op-
inbera.Hér er til dæmis stórt raf_
orkuver sem borgarstjórnin á
meirihluta í. Ég er sjálfur for-
maður félagsstjórnarinnar. Enn-
fremur á hið opinbera tvo stóra
banka. Ég er líka formaður
bankaráðs í öðrum þeirra. Þá má
nefna að hér er stór vélaverk-
smiðja sem var í einkaeign en
bar sig illa. Sambandsstjórnin í
Vestur- Þýzkalandi keypti hana,
og síðan hefur hún verið í ör-
um vexti. Við bindum okkur
ekki í neinar fastar kreddur á
efnahagssviðinu, en erum mjög
sveigjanlegir. Berlín er gott
dæmi um nána samvinnu ein-
staklingsframtaks og opinbers
reksturs.
— Hvað haldið þér um afdrif
Berlínar-málsins á ráðstefnu
æðstu manna?
— Ég held að Krúsjeff sé þess
fullviss að ekki fáist nein lausn
á Berlínar-vandanum á þessari
ráðstefnu. Hann hagar sér sam-
kvæmt því. En hvers vegna gaf
hann þessa yfirlýsingu í Baku á
dögunum, þar senf hann hótaði
raunverulegri nýrri einangrun
Vestur-Berlínar? Mér finnst
stundum að Krúsjeff leiki hlut-
verk kórleiðtogans í grískum
harmleik: hann stendur í broddi
fylkingar öðrum megin á svið-
inu og hrópar fyrir munn hennar
til leikendanna á sviðinu, sem.
yfirleitt virða orð hans að vett-
ugi. Annars er fróðlegt að gefa
Framh. á bls. 2.
Brezhnev
Brezhnev forseti Ráð-
stiómarríkjanna
Moskvu, 7. maí. (Reuter)
KLEMENTI Voroshilov,
marskálkur, sagði í dag af sér
Vinnslustöðvar
sömdu sjálfir
Utvegurinn greiðir allt sem efnahags-
ráðstafanirnar gerðu ráð fyrir
og útvegsmenn
um fiskverð
EINS og frá var skýrt í blað-
inu í gær hafa útvegsmenn og
sölusamtök fiskframleiðenda
samið sin á milli um fast fisk-
verð. Er þar með lokið deilu
þeirri, sem staðið hefur milli
þessara aðila. Af þeim samn-
ingura hefur ríkisstjórnin
engin afskipti haft. Hins veg-
ar var fallizt á, að skulda-
hali útflutningssjóðs yrði
greiddur á lengri tíma en áð-
ur var gert ráð fyrir.
Stjórnarandstæðingum hlýtur
að vera einstaklega órótt þessa
dagana, því að í gær grípur Þjóð-
viljinn til furðulegra falsana í
sambandi við samkomulag út-
vegsmanna og vinnslustöðvanna
um fiskverð.
Eins og kunnugt er hefur deila
þessi staðið lengi yfir og raddir
heyrzt um það frá hagsmunasam-
tökum sjávarútvegsins, að ríkis-
stjórnin yrði að skerast í málið.
Því hefur stjórnin að sjálfsögðu
neitað, þar sem þá væri uppbóta-
stefnan sáluga innleidd á ný.
Samningar hafa nú tekizt um
þetta mál milli réttra aðila og
ber að fagna því, að þessi leið-
indadeila er nú leyst, án afskipta
ríkisvaldsins.
Þegar efnahagsaðgerðirnar
voru undirbúnar af innlendum
og erlendum sérfræðingum,
lögðu þeir til, að skuldahali út-
flutningssjóðs, sem tekinn var í
arf frá vinstri-stjórnartímanum,
yrði greiddur á þann hátt á inn-
heimtur yrði sérstakur útflutn-
ingsskattur. Skyldi sá skattur
renna til greiðslu þessara skulda,
þar til þeim væri lokið, en falla
þá niður.
Að sjálfsögðu skiptir það stjórn
ina litlu máli, hvort tími sá sem
fer til að greiða upp þessar skuld
ir er styttri eða lengri. Hins veg-
ar var talið heppilegast fyrir út-
veginn að losna sem fyrst við
þessar greiðslur. Þess vegna var
gert ráð fyrir, að útflutnings-
skatturinn yrði 5%,-og þá hug-
myndin að þetta ár nægði til að
Ijúka greiðslu skuldánna, svo að
þá mætti fella skattinn algjör-
lega niður.
Ekki hvikað frá stjórnar
stefnunni
Forystumenn sjávarútvegsins
hafa hins vegar orðið sammála
um, að hagkvæmara væri að
greiða vinstri-stjórnarskuldirnar
á lengri tíma og óskað þess, að
útflutningsskatturinn yrði aðeins
2Vá% og stæði þá þeim mun leng-
ur.
Á þetta gat ríkisstjórnin fallizt,
því að þetta er fyrst og fremst
mál útvegsins. Hins vegar er það
Framh. á bls. 22.
sem forseti Ráðstjórnarríkj-
anna, og tekur Leonid Brezh-
nev við embættinu.
Voroshilov, sem tók þátt í bylt-
ingunni í Rússlandi þegar zarn-
um var steypt af stóli, er 79 ára
og óskaði eftir að verða leystur
úr embætti vegna vanheilsu.
Æðsta Ráðið samþykkti að verða
við ósk hans og var Brezhnev
skipaður forseti í hans stað.
Brezhnev er 53 ára og hefur
verið háttsettur í kommúnista-
flokknum í mörg ár. Hann var
starfsmaður Krjúsjeffs í Ukra-
inu árin 1947—49 og varð seinna
æðsti embættismaður Kazakhst-
anríkis.
PRETORIA, Suður Afríku, 7. maí
(Reuter): — Hendrik Verwoerd,
forsætisráðherra Suður Afríku,
var í dag skorinn upp til að fjar-
lægja tvær byssukúlur úr höfði
hans. Ráðherranum var sem
kunnugt er sýnt banatilræði hinn
9. apríl sl., en læknar hafa ekki
talið rétt að reyna að ná kúlun-
um fyrr en nú.
Var önnur kúlan á bak við og
fyrir neðan vinstra eyra, en hin
í hægra kjálka.
Uppskurðurinn gekk vel. Náð-
ust báðar kúlurnar, og líður ráð-
herranum eftir atvikum vel. -