Morgunblaðið - 08.05.1960, Page 12
12
M O R C V N n IA fí 1Ð
Sunnudagur 8. maí 1960
Utg.: H.í Arvakur Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
ftitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti G. Sími' 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
ÓTTAST
/\HÆTT er að fullyrða að
” yfirgnæfandi meirihluti
Islendinga fagnar því mjög,
að líkur hafa mjög aukizt
fyrir því síðustu daga að
ófriðnum linni á íslandsmið-
um. Það er fyrst og fremst sú
ákvörðun ríkisstjórnarinnar
að veita brezkum togurum
sakaruppgjöf, sem hefur skap
að þessar auknu líkur á friði.
Það sést greinilega af tilkynn
ingu brezka flotamálaráðu-
neytisins, sem það hefur lát-
ið herskip sín birta brezku
togurunum hér við land. Þar
er þeim beinlínis bannað að
fara inn fyrir 12 mílna fisk-
veiðitakmörkin og jafnvel
hótað því að þeir verði kærð-
ir, ef þeir geri það.
Þessi stefnubreyting
brezku stjórnarinnar er
svo mikilvæg, að auðsætt
er að alger þáttaskil hafa
orðið í deilunni um fisk-
veiðitakmörkin.
Kommúnistar sárgramir
En þótt meginþorri íslend-
inga fagni því að nú hillir
undir endanlega lausn fisk-
veiðideilunnar, þá eru þó til
menn á íslandi, sem eru sár-
gramir og hræddir vegna
þess að friðvænlegar horfir
nú en áður. Þessir menn eru
íslenzku kommúnistaleiðtog-
arnir og í>lað þeirra. Þeir
hafa að vísu sagt íslending-
um að þeir hafi allra manna
SÆTTIR
mestan áhuga fyrir lokasigri
íslendinga í baráttunni fyrir
vernd fiskimiða sinna. En
þegar svo er komið að líkur
hafa skapazt fyrir því, undir
forystu núverandi ríkisstjórn
ar, að fiskveiðideilan við
Breta leysist, þá setja komm-
únistaleiðtogarnir upp hunds
haus og láta blað sitt þyrla
upp allskonar moldryki um
fyrirhuguð „svik og undan-
hald“ af hálfu íslenzkra
stjórnarvalda í landhelgis-
málinu.
Greinileg sönnun
Þetta er vissulega greinileg
sönnun þess, sem flestir hugs-
andi menn á íslandi hafa
löngum vitað, að kommúnist-
ar hafa meiri áhuga fyrir því
að nota landhelgismálið til
þess að halda uppi illindum
við nágrannaþjóðir íslend-
inga en að stuðla að raun-
verulegri vernd íslenzkra
fiskimiða.
Af hálfu núverandi ríkis-
stjórnar hefur aldrei komið
til mála neitt undanhald í
baráttunni fyrir vernd fiski-
miðanna. íslenzka sendi-
nefndin á Genfarráðstefn-
unni stóð fast á rétti íslands
og hafði farsæla forystu um
að kynna málstað þess. Það
var á atkvæði íslands sem til-
lagan um hinn sögulega órétt
féll á ráðstefnunni.
„BRJÓTA VERÐUR
NIÐUR
DRJÓTA verður niður
skaðræðiskerfi stjórnar-
innar“. Þetta er sú dagskip-
an, sem leiðtogar Framsókn-
armanna og kommúnista hafa
gefið liðsmönnum sínum um
land allt. Þetta er það flagg,
sem stjórnarandstöfuflokk-
arnir á íslandi hafa dregið við
hún og hyggjast berjast und-
ir. —
Þjóðviljinn birti mikla
árásargrein á ríkisstjórnina
undir þessari fyrirsögn fyrir
nokkrum dögum. Tíminn,
málgagn Framsóknarflokks-
ins, hefur síðan bergmálað
þessa dagskipan.
Er greinilegt að Ieiðtog-
ar Framsóknarflokksins og
kommúnistaflokksins hafa
sameiginlega samið þessa
dagskipan til liðs stjórnar-
andstöðuflokkanna.
Ríður mest á því?
Hvað segja nú íslendingar
um þennan boðskap sem tveir
stjórnmálaflokkar senda þjóð
inni? Er það virkilega þann-
ig, að okkur ríði mest á því í
dag að „brjóta niður“ þá til-
raun til viðreisnar, sem nú-
verandi ríkisstjórn hefur
gert?
Framsóknarmenn og komm
únistar sátu í hálft þriðja ár
í svokallaðri vinstri stjórn.;
Þeir höfðu lofað þjóðinni því
að leysa efnahagsvandamál
hennar eftir „nýjum leiðum“
og með „varanlegum úrræð-
um“. Þau úrræði fundust
aldrei.
Sömu mennirnir, sem svo
berir reyndust að algeru úr-
ræðaleysi, birta nú fyrr-
greinda dagskipun til þjóðan
innar:
„Brjóta verður niður
skaðræðiskerfi stjórnarinn
UTAN UR HEIMI
í gær
Á alþjóðaráðstefnum verður full-
trúum Rússa tíðrætt um afvopn-
un og friðarvilja þjóðarinnar.
Hafa yfirvöldin í Moskvu til-
kynnt að faekkað verði í rússn-
eska hernum um þriðjung. Með-
Á morgun
fykjandi myndir sýna hvernig
teiknari austourríska blaðsins Kur
ier litur á málið.
Italir smíða atomskip
Á ALÞJÓÐA orkumálaráð-
stefnu, sem haldin verður í
Madrid í næsta mánuði,
munu ítalir leggja fram
teikningar og áætlanir um
smíði 50.000 tonna tankskíps,
sem verður rekið kjarnorku.
Ansaldo skipasmíðastöðin og
kjarnorkudeild Fiat hafa unnið
að því að undirbúa smíðina siðan
1958. Eldsneytið er uraníum
blanda og á skipið að sigla 315.000
km. leið á 2,7 tonnum af elds-
neyti.
Smíði þessa skips er liður í víð-
tækum kjarnorkurannsóknum
ítala, og hafa þeir fyrirhugað
margvíslegar framkvæmdir í
í þeim efnum. Kjarnorkurann-
sóknir eru ekki nýtt fyrirbrigði
á Ítalíu, því ítalinn Fermi vann
brautryðjendastarf í sambandi
við smíði fyrsta kjarnakljúfs ver-
aldarinnar.
í nágrenni Milano-borgar hafa
Fiat verksmiðjurnar og stóriðju-
Kjarnakljúfurinn við Mílanó.
hringurinn Montecatini byggt til
raunakjarnakljúf, sem mun hafa
verið sá fyrsti sem var í einka-
eign, og þar fóru fram undirbún-
ingsrannsóknir og tilraunir í sam
bandi við smíði tankskipsins.
Likan af 50.000 tonna tankskipi, sem Italir munu byggjaji næstunni.
♦ +
BRIDCE
♦ +
ÚRSLIT í síðustu umferð í opna
flokknum á Olympíumótkiu í
Torino urðu þessi:
England —Goren (U.S.A.) 88:84
Frakkland — ítalía 96:48
Grawford — Jacoby 110:70
Endanleg röð varð þá þessi:
1. Frakkland 16 stig
2. England 15 —
3. Grawford 9 —
4. Goren 8 —
5. Jacoby 8 —
6. ítalía 4 —
Frönsku Olympíumeistararnir
eru þeir Ohestem, Baoherich,
Jais, Trézel, Bourchtoff og Del-
mouly.
Þótt ítalarnir hafi staðið siig
heldur illa í úrslitakeppninni þá
unnu þeir stóran sigur varðandi
undirbúning og framkvæmd
keppninnar. Var allt eins gott og
frekast var kosið og ber kepp-
endum saman um að Italarnir
séu án vafa í sérflokki hvað
stjórn á keppni víðvíkur.
Úrslit í síðustu umferð í
kvennaflokknum urðu þessi:
Italía — Austurríki 56:35
U.S.A. — England 84:63
Þýzkaland — írland 61:52
Egyptal. — Danmörk 40.36
Astralía — Holland 56:54
Frakkland — S-Afríka 68:47
Sviss — Belgía 63:50
Lokastaðan varð þó þessi:
1. Egyptaland 39 stig
2. Frakkland 39 —
3. Danmörk 38 —
4. England 37 —
5. U.S.A. 37 —
6. ítalía 32 —
7. Austurríki 31 —
8. S-Afríka 24 —
9. Irland 23 —
10. Þýzkaland 18 —
11. Sviss 16 —
12. Holland 15 —
13. Astralía 9 —
14. Belgía 6 —
KosnIngasi|íur
stjórnarliða
1 Laos
VIENTIANE, Laos, 2. maí —
(Reuter) — Þingkosningar fóru
fram í Laos í sl. viku. Var þá
kosið um 53 þingsæti — og unnu
stuðningsmenn stjórnarinnar þau
öll. Næstkomandi sunnudag
verður kosið um þau sex þing-»
sæti, sem eftir eiyj, og er búizt
við að þá fari á sömu leið. Að
eins einn kommúnisti er í fram-
boði á sunnudaginn. — Ríkis-
stjórn Laos er mjög hlynnt ná-
inni samvinnu við vestræn ríki.