Morgunblaðið - 08.05.1960, Síða 23

Morgunblaðið - 08.05.1960, Síða 23
Sunnudagur 8. maí 1960 M O R G V N B l A ÐIÐ 23 Pólýfónkórinn hefir nú sung- i« fimm sinnum fyrir fullu húsi áheyrenda. — Kórinn endurtekur samsöng sinn í síðasta sinn í kvöld kl. 9 í Kristskirkju, Landakoti. Á efnisskránni eru lög eftir gamal meistara raddlistarinn- ar svo sem Hassler og Pale- strina, ftý þýzk messa eftir Joh. Nepomuk David, mjög nýstárlegt og athyglisvert verk, en einnig þættir úr verk um J. S. Bachs og G. F. Hand- els, og lýkur tónleikunum með hinum fræga „Halleluja- kór“ úr „Messíasi“. Einsöngv- ari kórsins er Einar Sturluson, einleikari á orgel Ámi Arin- bjarnarson, en söngstjóri Ing- ólfur Guðbrandsson. — Sagan Frh. af bls. 3- þín“, myndi ég koma, þó að ég væri stödd á skipi úti á reginhafi. Ég á vini, sem ég heyri ekkert um nema gagn- rýni. En ég þekki þá vel, og mér geðjast vel að þeim af öðrum ástæðum, og þess vegna hlýt ég að lýsa því yfir, að ég get ekki dæmt þá — a. m. k. ekki eftir gjörðum þeirra. Menn skrifa líf sitt með athöfnum, ef svo mætti segja, en að baki þeim er allt- af mannleg sál, sem segir sög- una. Að elska er ekki bara að þykja vænt um Þegar öllu er á botninn hvolft, er maðurinn taugar, bein og blóð. Það er nú svo, en það er sannarlega ótrúlegt. Þó að hann geri eitthvað skelfilegt, er alltaf einhver ástæða fyrir því, veikleiki, sem veldur því, að hann getur ekki gert annað, og ég get ekki kastað fyrsta steininum. Mér þykir of vænt um fólk til að særa það, og að dæma það jafngildir því að særa það. Að elska er ekki bara að láta sér þykja vænt um það, er fram- ar öllu að skilja. Og að skilja er að láta málið falla niður, ekki halda áfram að tala utn það. Þar að auki þekki ég mína eigin galla allt of vel til þess að leyfa mér að gagnrýna aðra. Frelsi í hjónabandinu Að sjáifsögðu er auðvelt að draga þá ályktun af þessu, að ég virði ekkert. En ég trúi t. d. á ráðvendni. Að mínum dómi er ráðvendni einmitt að virða þær hugmyndir, sem maður gerir sér um verðmæti lífsins. Bókmenntir eru þau verð- mæti, sem ég reyni að virða eins mikið og hægt er. En ég reyni líka að virða líf annarra. Og ósjálfrátt virði ég einnig það, sem fólki er hug- stæðast, alveg sama hvað það er — ástin, lífið, starfið — af því að slíkt ber alltaf vott um eins lconar veglyndi. Mér er of umhugað um að láta virða persónulegt frelsi mitt til þess að virða ekki frelsi annarra. Jafnvel í hjónabandinu held ég t. d., að tvær mannverur geti lifað lífinu saman og varðveitt frelsi sitt. Mér finnst ekki gaman að tala um þessi efni. Þetta er mjög viðkvæmt og mjög per- sónulegt mál. En svo að ég snúi mér aftur að því, sem ég var að tala um, þá álít ég, að hjónabandinu sé hægt að haga þannig, að hvorugur aðilinn neyðist til að breyta sér. Það er augljóst, að hjóna- band er á vissán hátt eins konar agi. Ég myndi fullyrða, að hjónaband mitt hefir breytt lifnaðarháttum mínum dálítið. Það er reginmunur á því að eiga vini, sem maður sér annað veifið eða búa sí- fellt með sama manniuum. Það getur verið þreytandi til lengdar að taka tillit til við- bragða annars manns, sér- staklega ef hann er duttlunga- fullur. Ég er ánægð með það líf, sem ég lifi nú, og ég er ham- ingjusöm. Aðallega vegna þess að ég ákveð sjálf, hvern- ig ég vil lifa lífinu. Eins og ég hefi áður sagt, athugaði ég aðstæðurnar og komst að nið- urstöðu um, hvað ég vildi. Ég hefi horfið frá því al- gjörlega hugsunarlausa lífi, sem ég lifði. Það er allt og sumt. En mér finnst það vera talsvert vel af sér vikið, þeg- ar ég á sjálf í hlut. Hvað var ég vön að aðhaf- ast? Ég átti kappakstursbíla, fór út að dansa á hverju kvöldi og kom heim í dögun, ég ók í loftinu fram og aftur um Bláströndina og alltaf var heill hópur af vinum í fylgd með mér. Nú finnst mér þetta einna líkast því, að ég hafi lent í skriðuh'hupi. Ég lifði lífinu hugsunarlaust og lét berast fyrir straumnum. Ef laglegur Hindúi hefði komið til mín og sagt: „Komdu með mér. Við skulum eyða ævidög. unum saman í Indlandi" og ég hefði elskað hann, hefði ég farið með honum til Indlands. Ef til vill er breytni mín nú mjög svipuð því, sem hún var áður. En samt held ég, að ég myndi ekki núna fara með Hindúa til Indlands. Það er erfitt að skýra þetta nánar. Líf mitt hefir tekið aðra stefnu. Það er allt og sumt. Og orsakir þess eru hjóna- band mitt og bílslysið. Sumkomur Hjálpræðisherinn í dag helgunarsamkoma kl. 11, hjálpræðissamkoma kl. 20,30. — Kapt. A. Ono-Hansen stjórnar og talar. Sunnudagaskólinn fer í skemmtiferð. Börnin eru beðin að mæta við Herskastalann kl. 13 stundvíslega. — Mánudag: Heimilasamband kl. 16,00. — 65 ára afmælis Hjálpræðishers- ins á íslandi verður minnzt með samkomu fimmtud. þ. 12. maí, kl. 20,30. Almennar samkomnr Boðun Fagnaðarerindisins Sunnudagur, Hörgshlíð 12, Reykjavík kl. 2 og Austurgötu 16, Hafnarfirði kl. 8 síðdegis. Bræðraborgarstígur 34 Sunnudagaskólinn kl. 1. — Al- menn samkoma kl. 8,30. — Allir velkomnir. Fíladelfía Sunnudagaskóli kl 10,30. Á sama tíma í Eskihlíðarskóla. — Bænasamkoma kl. 4. Almenn samkoma kl. 8,30. — Tvísöngur: Kristján Reykdal og Guðni Guð- mundsson. Næsta sunnudag hef- ur Fíladelfíusöfnuðurinn útvarps guðsþjónustu kl. 1,15 e.h. Cunnar Jónsson Lögmaður við undirrétti o' haestarétt. Þingholtsstræti 8. — Sími 18259 Húsgrunnur í Kópavogi við Hafnarfjarðarveg er til sölu hús- grunnur (undirstöður steyptar) undir 10 íbúðir. Allar teikningar fylgja. Timbur til sölu á sama stað. Upplýsingar í síma 24985. Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og viná,ttu við andlát og jarðarför eiginkonu minnar ÖLAFfU ÓLAFSDÓTTUR Fyrir mína hönd og ættingja hinnar látnu. Pétur Jóhannesson Þökkum hjartanlega öllum þeim, sem hafa auðsýnt vináttu og samúð við andlát og jarðarför SKULA ágUstssonar frá Birtingaholti Elín Kjartansdóttir og fjölskylda Þökkum hjartanlega fyrir auðsýnda samúð og vin- áttu við andlát og jarðarför SIGURGRÍMS ÞÓRARINS GUÐJÓNSSONAR Margrét Árnadóttirf Filippía Guðjónsdóttir Hugheilar hjartans þakkir til allra þeirra er sendu mér vinarkveðjur á áttræðisafmæli mínu 20. apríl s.l. Guð blessi ykkur öll. Sigurður Magnússon, Stykkishólmi. Móðir mín ELfN JÓNSDÓTTIR frá Eskifirði lézt hinn 6. þ.m. — Jarðarförin ákveðin síðar. Lára Amórsdóttir Útför móður okkar ÞÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR frá Mjósundi fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 10. maí kl. 1,30. — Athöfninni verður útvarpað —- Blóm vinsam- lega afþökkuð. — Jarðsett verður í gamla kirkjugarð- inum. Bömin Jarðarför systur minnar SVÖVU ÞORLÁKSDÖTTUR fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. þ.m. kl. 3 e.h. — Athöfnin hefst með húskveðju að heimili hinn- ar látnu kl. 2,15. Pálína Þorlábsdóttir, Vesturgötu 44 MARGRÉT HJARTARDÓTTIR verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 10. maí kl. 1,30. Lára Jóhannesdóttir. Jarðarför hjartkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS GUÐMUNDAR KARVELSSONAR frá Bolungarvík fer fram frá Aðventkirkjunni, mánudag. 9. Þ.m. kl. 1,30. Athöfninni verður útvarpað Blóm afþökkuð, þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á Styrktarfélagið Alfa. — Minningarspjöld fást á skrifstofu S.D.A Ingólfsstræti 19. Rósa Jónsdóttir, Magnús Guðbrandsson, Dagbjört Jónsdóttir, Gissur Jónsson, Ölafur Þórðarson og barnaböm. Bróðir minn RUNÓLFUR BJARNASON frá Vallholti Miðnesi, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju miðvikudaginn 11. maí kl. 3. Jónas Bjarnason. Útför föður okkar PÁI.S PÁLSSONAR frá Stærri-Bæ, er lézt að heimili sínu, Sigtúni 39, 3. þ. m., fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. maí kl. 1,30 e. h. Ólafur Pálsson, dætur og aðrir vandamenn. Okkar hjartkæri sonur, unnusti, bróðir og mágur GUÐMUNDAR MARS SIGURGEIRSSONAR sem lézt af slysförum þ. 30. apríl s.l., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 9. apríl, kl. 14,30. Þeim, sem vildu minnast hans er bent á starf Ffla- delfíusafnaðarins. Ólöf Gestsdóttir, Sigurgeir Áskelsson, Ásdís Valdimarsdóttir, Jóhanna Sigurgeirsdóttir, Garðar Sigurgeirsson, Helena Sigurgeirsdóttir, Bæringur Guðvarðsson. Hjartans þökk fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför konu minnar JENNVAR jULfUSDÓTTUR Fyrir mína hönd og annara vandamanna. Rudólf Sæby.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.