Morgunblaðið - 11.05.1960, Page 22

Morgunblaðið - 11.05.1960, Page 22
22 MORGUNBLAÐIL Miðvikudagur 11. maí 1960 Hér sést markmaður Black- burn Kovers, Harry Ley- land (á jörðinni), og vinstri framvörður, Mick McGarth (í markinu), horfa hjálpar- vana á knöttinn fara i markið og þar með skorað þriðja mark Wolverhamp- ton Wanderers. Knettinum spyrnti hægri útherjinn, Norman Deeley (sést bak við Leyland). Myndin var tekin í úrslitaleik bikar- keppninnar á Wembley sl. laugardag. — Liggjandi á jörðinni, lengst til vinstri, er miðframvörður Rovers, Matt Woods. — Eins og skýrt hefur verið frá unnu Wolves leikinn, 3:0. Öklárt í Róm Eftir 3(4 mánuð hefjast Olympíuleikarnir í Róm. Stutt ur tími það, en ennþá stendur Olýmpíuþorpið, sem nær yfir 74 ekrur lands, og hýsa á 8000 manns, ótilbúið. Aðeins stein- stólpar, einangraðir óhemju af aurleðju eftir rigningar, sem aldrei hafa verið jafnmiklar að vori til, gefa til kym * iivar það muni verða. ítalska Ol- ympíunefndin hefur lagt nær 35 milljónir dala í undirbún- ing leikanna (mest af því fé í 10 glitrandi leikvanga). Samt efast margir um að Olympúu- þorpið verði tilbúið í tíma. Giuseppe Fabre, ítalskur her maður, er yfirmaður við smíði þorpsins. Hann sagði á dögun- um að nokkru í gamni. „Frest- ið Olympíuleikjunum í eitt ár“. Framkvæmdanefndin kvað hann í kútinn: „Þeir hafa selt of marga aðgöngumiða", sagði hann. í þessum mánuði á Olympíu þorpið að verða fokhelt. Ó- hemju vinna er þá eftir. „Það koma 700 járnbrautarvagnar hlaðnir húsgögnum á siwanr tíma“ sagði Fabre. „Þetta er ekki eins og þorp, heldur hót- el. í þorpinu hjálpa f jölskyld- urnar sér sjálfar. íbúarnir hér ekki. Ef eitthvað skortir á í þorpi, hlaupa væntanlegir íbú- ar undir bagga. Hér verður aðeins kvartað og kveinað ef eitthvað verður ógert“. Mörg eru ásteytingarefnin. Framkvæmdanefndin til- kynnti, að allir gætu fengið mat við sitt hæfi. En hún sagði að ekkert vín yrði framreitt. Þá ruku Frakkar upp og sögð- ust koma með sitt léttvín. Og Belgir sögðust hafa bjórinn sinn með. Að halda Oiympíuleiki er ekki Ieikur. Búizt er við 120 þúsund gestaheimsóknum til Rómar daglega meðan OL standa og 25 þús. aukabílum á götunum — en fyrir eru þar 200 þús. bílar og hjól. „Ef ekki skeður kraftaverk munum við sjá mesta umferðaöngþveiti sögunnar“ sagði einn í fram- kvæmdanefndinni. 0 0 -0 .0 :* 0- m V# 0 0* Huseby 75 m. A LAUGARDAGINN kastaði Huseby 15.00 m. í kúluvarpi og vann þá keppni á innanfélags- móti ÍR. Anftar varð Guðmundur Hermannsson, KR með 14,97 m. 1 langstökkinu náði Þarvaldur Jónasson 6.60, Ólafur Unnsteins- son 6.45 m. og Helgi Björgvins- son 6.35 m. Eru þetta alls saman mjög eftirtektarverð afrek, þár sem stokkið var á móti nokkrum vindi og því má búast við að allir þessir ungu menn muni ná 7 metra markinu í sumar * mánudagskvölt / Leikur KR lofar góðu Skemmiilegar skiptingar en misnotuð tækifæri KR vann Þrótt 2 — 0 KR-INGAR sýndu það strax á fyrstiu mínútunum í leiknum við Þrótt í fyrrakvöld, að þeir ráða yfir mun meiri leikni og samleik í knat{spyrnu, heldur en hin Reykjavíkurliðin, en þó verður viss stemning og að- stæður að vera fyrir hendi, til þess að liðið nái sínum bezta Ieik. • Góður vorleikur Það má af mörgu ráða að um langt bii hafi ekki sézt eins vel leikinn vorleikur og KR-ingar sýndu í leik sínum. Einnig má segja Þrótturunum það til hróss, að þeir vörðust vel og drengilega og létu aldrei á sér sjá uppgjafa- merki, þó munur liðanna hafi perið áberandi mikill. Er þetta merki um að liðið sé að fá það hald sem þarf til að sameina 11 menn svo að þeir leggi sig fram túð að vinna saman og missa ekki leikinn út úr höndum sér, þó við ofurefli sé að etja. Vörn Þróttar var betri helmingur liðs- ins með markmanninn sem lang bezta mann. Grétar miðframv. átti og mjög góðan leik og einnig báðir bakverðirnir. Sérstaklega þegar þess er gætt að Gunnar Guðmannsson v. útherji KR hefir sjaldan sézt eins virkur og skemmtilegur í leik og einmitt á mánudagskvöldið., Emni^ óUi Björgvin við metið Á INNANFÉLAGSMÓTI ÍR sl. laugardag náði Björgvin Hólm frábærum árangri í fimmtarþraut, er þess er gætt hve snemma árs er og einnig að frekar kalt var í veðri. Björgvin náiði sam- anlagt 3202 stigum, en það er aðeins 4 stigum frá ís- landsmeti hans í fimmtar- þraut. Árangur Björgvins í einstökum greinum var þessi: Langstökk 6,91 — 200 m. hlaup 23,2 — kringlu- 0 r #i kast 43,39 — spjótkast 56,72 og 1500 m. hlaup 4,49.0. — Þess er að geta að bezti árangur Björgvins í 1500 m. er 4,30,8 — en hefði haun náð 4,37.0, þá hefði hann sett nýtt Norðurlandamet í þrautinni. Margir telja því að ekki verði langt að bíða þess að Björgvin bæti ís- landsmetið í fimmtarþraut og Norðurlandametið virð- ist ekki síður í hæuu fyrir honum. MMM Örn Steinsen mjög góðan leik. • Mörkin: KR skoraði aðeins tvö mörk í leiknum og bæði í fyrri hálfleik. Má það teljast vel sloppið hjá Þrótti og á þar markmaðurinn, Þórður Ásgeirsson, sinn stóra þátt í að sú varð raunin, og flaustur KR sóknarinnar á stund um. Fyrra markið skoraði Örn Steinsen á 25. mín. Þórólfur Beck hafði þá verið með knöttinn og leikið honum fram völlinn og sendi síðan eina af þessum hnit- miðuðu sendingum í autt rúm á /wegri jaðri vítateigsins. Örn Steinsen fylgdi sendingunni vel 'gf; '**WíM4ci Þórður Ásgeirsson, markmaður Þróttar, átti sér í lagi góðan leik á móti KR. — Hann varði oft snilldarlega og á hann stóran þátt í því að KR fór ekki með stærri sigur af hólmi, en raun varð á. Hér sést Þórður verja fast skot frá Sveini Jónssyni, eftir. Lék með knöttinn nokkur skref. Markmaður Þróttar hikaði við að hlaupa út á móti Erni, sem varð til þess að Örn gat að mestu óhindrað sennt knöttinn í netið. Síðara markið skoraði Þórólfur Beck er 35 mínútur voru af leik. Þórólfur fékk sendingu frá Garð ari inn á markteig Þróttar, þar sem hann eftir rólega yfirvegun sendi knöttinn framhjá mark- manni Þróttar í markið. • Varnarleikur Þróttar Hvað marktækiíæri snertir var hlutur Þróttar heldur smár. Að- eins einu sinni í leiknum var KR markið í hættu. KR var aftur á móti í sókn allan leikinn. Þór- Framh. á bls. z3 Kaupmannahöfn, 4:3 DANIR léku landsleik við Brazilíu í Kaupmannahöfn í gær. Úrslit urðu 4:3 Brazilíu- mönnum í vil. í hálfleik var staðan 2:2. Leikurinn var mjög góður. Danska liðið stóð sig með af- brigðum vel, einkum í fyrri hálfleik og sýndi leik, sem fréttamenn segja að hafi ver- ið betri en nokkurt danskt landslið hafi áður sýnt. I síð- ari hálfleik náðu Brazilíu- menn tökum á leiknum og sýndu þá sitt framúrskarandi apil, sem 1958 færði þeim heimsmeistaratitilinn í knatt spyrnu. Bandaríkjamenn taka upp atvinnukennslu í knattspyrnu UM miðjan maí munu tvö at- vinnulið knattspyrnumanna frá Bretlandseyjum halda til Banda ríkjanna og Kanada í keppnis- ferðalag. Tilgangur fararinnar er að kynna evrópska knatt- spyrnu í N-Ameriku.Eftir heims styrjöldina hefur vaknað mikill áhugi fyrir íþróttinni þar í landi, en knattspyrna eins og við þekkjum hana var lítið leikin í N-Ameríku fyrir heimsstyrjöld- ina síðari, nema þá helzt hjá ev- rópskum þjóðarbrotum í sum- um hverfum stórborganna. Liðin hafa ekki verið valin af verri endanum, en um er að ræða hið fræga brezka atvinnulið Manchester United og skozka at- vinnuliðið Hearts, sem vann fyrstu deildarkeppnina skozku. Liðin munu keppa fjóra leiki í N-Ameriku. „Innrásin", en svo kalla amer- ísk blöð þessa heimsókn, hefst með leik liðanna 14. maí og fer sá leikur fram á íþróttaleikvang inum að Randall’s Island í New York. Annar leikur liðanna í Bandaríkjunum verður leikinn 1. júní á Colosseum leikvanginum í Los Angeles. í Kanada munu lið in keppa 21. maí og fer sá leikur fram í Toronto, en síðasta leik- inn keppa liðin í Vancouver 28. maí. Mikill áhugi. Amerísku leikirnir, sem haldn ir voru í Chicago sl. sumar sýndu ljóslega að mikill áhugi er þeg- ar vaknaður meðal skólanemenda í Bandaríkjunum fyrir knatt- spyrnu. Framh. á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.