Morgunblaðið - 17.05.1960, Qupperneq 1
24 síður
Krusjeff teknr nftnr heimboð til
Eisenhowers og setur úrslitnkosti
PARÍS, 16. maí. — (Reuter) — Toppfundurinn mikli í París
og þær vonir sem þjóöir heims gerðu sér um árangur af
bonum dóu í fæðingunni í dag.
Hinir fjórir æðstu menn stórveldanna komu saman í dag
á formlegan þriggja klst. fund. Mikill skaphiti og æsingur
ríkti á þeirri samkomu.
Krúsjeff krafðist þess, að Eisenhower Bandaríkjaforseti
bæði Rússa afsökunar á njósnafluginu, — ella yrði engínn
toppfundur haldinn. Þá tók Krúsjeff til baka heimboð sitt
til Eisenhowers.
&
Eisenhower svaraði að Bandaríkin tækju engum úrslita-
kostum frá Rússum. Hins vegar sagði hann að engin njósna-
flug hefðu verið farin síðan atvikið 1. maí gerðist og væri
ekki ætlun Bandaríkjamanna að hefja njósnaflug.
Þeir Krúsjeff og Eisenhower komu sitt í hvoru lagi út
af fundinum. Krúsjeff var brosandi út að eyrum, en Eisen-
hower grafalvarlegur.
Áætlað hafði verið að annar fundur. leiðtoganna skyldi
haldinn á morgun, þriðjudag, árdegis. De Gaulle Fraltk-
landsforseti getur boðað fund þá, en það er álit kunnugra
að enginn fundur verði boðaður.
ik
Toppfundurinn er þannig splundraður á fyrsta degi og er
ólíklegt talið að leiðtogarnir mætist framar. Krúsjeff gerði
það að tillögu sinni í hinni æstu ræðu er hann flutti á fund-
inum, að ráðstefnunni yrði frestað í 6—8 mánuði. Engin
ákvörðun var tekin um nýjan fund eða nýja ráðstefnu. Sjón-
armiðin virðast með öllu ósættanleg.
Seint um kvöldið skýrði James Hagerty blaðafulltrúi
Eisenhowers frá því, að enn væri óákveðið hvenær forset-
inn hyrfi aftur á hrott frá París. Krúsjeff var einnig kyrr
í París um kvöldið, svo að ef til vill er enn einhver veik voa
um að þeir ræðist við.
Mynd þessi var tekin síðastliðið haust í Hvíta húsinu í Was-
hington, þegar Krúsjeff heimsótti Eisenhower, gaf honum líkan
af Lúnik og fékk hann með biíðuhótum til að fallast á að
halda toppfund. Þá var öldin önnur en nú og virtist stundum
sem hnífurinn kæmist ekki á milli þeirra Eisenhowers og
Krúsjeffs i persónulegri vináttu. — Nú hafa þeir atburðir
gerzt að Krúsjeff hefur afturkallað heimboð til Eisenhowers
og fullkominn fjandskapur virðist ríkjandi milli þeirra.
Krúsjeff oð sýna
og sleppa áróbn
væru ekki árásaraðgerðir, held- sprengjum. En eins og öllum er
ur væru þær eingöngu til þess kunnugt stunda Sovétríkin víð-
Tundurskeyti skotið
Hinir mörgu vönu fréttamenn
fréttastofnana á Parísarráðstefn-
unni Ijúka allir upp einum
munni um það, að þeir haíi
aldrei fyrr upplifað þvílíka at-
burði sem gerðust á ráðstefnunni
í dag. Það hefur oft komið fyrir
að slíkar alþjóðaráðstefnur
byrja í svartsýni og vonleysi —
en það sem nú gerðist verkaði
eins og „ótrúlegt sjokk“. A fyista
degi toppfundarins var tundur-
skeyti skotið að honum og nann
sprakk í loft upp.
Æðstu menn stórveldanna voru
allir komnir til Parísar á sunnu-
daginn og fór menn að gruna þá
strax, að eittnvað sögulegt
myndi gerast á ráðstefnunni, því
að Krúsjeff forsætisráðherra
Rússa átti einkafundi með be'un
de Gaulle og Macmillan, en Eis-
enhower kom ekki nálægt fund-
inum.
Hafnaði viðræðu við
Eisenhower
Það upplýstist í dag, að Krús-
jeff hefði frá byrjun algerlega
hafnað því að eiga nokkurn per-
sónulegan eða óformlegan fund
með Eisenhower. Einnig upp-
lýstist að Krúsjeff hefði allan
Framh. á bis. 23.
Ekkert
verkfall
VERKFALL yfirmanna
á togurum í Grimsby.
sem hefjast skyldi á
sunnudaginn kom aldrei
til framkvæmda. Skin-
* stjórarnir og Dennis
Welch guggnuðu fyrir
mótspyrnu togaraeig-
enda og hrezku stjórnar-
innar.
Skoraðá
skynsemi
Hér fer á eftir ræða sú, sem
Eisenhower flutti í gær á
Parisarráðstefnunni, er hann
svaraði úrslitakostum Krú-
sjeffs.
Engar hótanir Bandaríkjanna.
í yfirlýsingu minni 11. maí og
í yfirlýsingu Herters utanríkis-
ráðherra 9. mai var það sjónar-
mið Bandaríkjastjórnar skýrt, að
leið nauðsyn væri á njósnastarf-
semi í heimi þar sem þjóðirnar
tortrygðu hver aðra. Við bentum
líka á það, að þessar aðgerðir
ætlaðar og tryggja öryggi Banda
ríkjanna og hins frjálsa heims
gegn árás að óvörum af völdum
stórveldis sem hreykir sér af því
að það geti gereytt Bandarikjun-
um og öðrum ríkjum með eld-
flaugum búnum kjarnorku-
tækar og stöðugar njósnir ekki að
eins í Bandaríkjunum, heldur og
í flestum öðrum löndum heims.
í yfirlýsingu Sovétrikjanna
um þessi mál er augljós misskiln-
ingur eða villa um eitt höfuð-
Framh. á bls. 23.
Er von málamiðlunar?
Krúsjeff breytti hdtun í múðgun
I Ritstjóri HQbl. j
| ræðir við j
\ Bohlen !
MATTHÍAS Johannessen rit-
stjóri Mbl. var í gær staddur
í Parísarborg, þegar toppfund
urinn áitti að hef jast.
Hann sat síðdegis blaða-
mannafund með Hagerty
blaðafulltrúa Eisenhowers og
Bohlen aðstoðarutanrikisráð-
herra, eftir að toppfundurinn
hafði farið út um þúiur. Hér
fer á eftir stutt lýsing Matt-
hiasar á þessum blaðamanna-
fundi:
Hvað gerist í Berlín
Það var greinlegt af viðtölum
við blaðamenn áður en blaða
mannafundurinn hófst, að þeim
leizt ekki á blikuna eftir fram-
komu Krúsjeffs. Blaðamenn frá
New York Times sögðu t.d. við
mig: — Við verðum að fara til
Berlínar, — það getur verið að
það dragi til tíðinda þar. Sumir
sögðu, að Krúsjeff vildi ekki
ræða við Eisenhower, heldur við
nýjan Bandaríkjaforseta, ungan
og óreyndan — þess vegna vilji
hann fresta róðstefnunni um 6—8
mánuði. Enginn veit þó, hvað fyr
ir honum vakir.
Bohlen aðstoðarutanríkisróð-
herra sagði í stuttu samtali við
mig og nokkra aðra blaðamenn
að allt væri í óvissu.
— Haldið þér, að Krúsjeff hafi
komið til Parísar fyrirfram
ákveðinn í því að gera fundinn
árangurslausan?
Bohlen svaraði aðeins: — Það
er ekki gott að segja, — hvað
hadið þér? Það mátti sjá, að hann
hafði ekki mika von um arangur
Hcilsaði ekki
Bohlen sagði, að Krúsjeff hefði
hagað sér mjög einkennilega á
fundinum í morgun. Hann hefði
ekki heilsað Eisenhower með
handabandi, bara setið hreyfing-
aralus í sæti sínu, þegar Eisen-
hower kom inn nokkru á eftir
honum. Bohlen sagði að Krúsjeff
hefði verið mjög órólegur á fund
inum, hefði hann litið ýmist á
Malinovsky eða Gromyko, sem
sátu við hlið hans.
Framh. á bls. 2.
PARÍS seint í gærkv. (Reuter).
— Það er nú almennt viðurkennt
í hópi stjórnmálamanna, að Paris-
ar-ráðstefnan liggi í rústum eft-
ir sprengingu þá hina miklu, sem
varð við ræðu Krúsjeffs í dag.
Bæði Krúsjeff og Eisenhower
hafa nú yfirgefið rústirnar, en
de Gaulle og Macmillan standa
í brunnum og hrandum leifunum
og reyna að hlaða þeim saman að
nýju.
Eftir að þeir Krúsjeff og Eis-
enhower höfðu gengið af fundi,
tóku de Gaulle og Macmillan þeg
ar að ræða möguleika á málamiðl
un. Ekki er vitað hvaða leiðir
þeir hafa valið, en seint í kvöld
fór Macmillan til Eisenhowers og
enn síðar í rússneska sendiráðið
og sat lengi á tali við Krúsjeff.
Ekkert er opinbert hvað fór þeim
á milli, en menn vona, að Krús-
jeff láti sér segjast og hætti þeim
skefjalausa áróðri sem hann hef-
ur haft í frammi í þeim alvarlegu
málum, sem ráðstefnan átti að
fjalla um.