Morgunblaðið - 24.05.1960, Qupperneq 5
Þriðjudagur 24. mai 1960
MOnCVTSLL AÐIÐ
5
STÖLLURNAR tvær á mynd-
inni heita Erna Steina Guð-
mundsdóttir og frú Sigríður
J. Magnússon. Svo, sem sjá
má er á þeim greinilegur ald-
ursmunur, en þær eru engu
að síður skólasystur, voru báð
ar við nám í Handíðaskólan-
um í vetur.
Erna Steina, sem er 7 ára,
stundaði teikni- og mósiaknám
undir handleiðslu Steinþórs
Sigurðssonar, listmálara. Sagð
ist hún aðallega teikna hús,
þegar blaðamaður Mbl. spurði
hana, hvað hún hefði gert í
skólanum. — Eg kann eigin-
lega ekkert annað en hús,
sagði hún — en þegar þau
höfðu spjallað saman dálitla
stund kom upp úr kafinu að
hún kunni líka að teikna hesta,
skip og fleira og einnig það,
að hún var listakona á fleiri
sviðum, því að hún var í Barna
músikskólanum að læra að
þekkja ýmis hljóðfæri hjá
henni Ingibjörgu Blöndal.
Erna Steina sýndi blm. mós-
aik-mynd, sem hún hafði gert
og auðvitað sneri hann mynd-
inni vitlaust fyrir sér, en þeg-
ar henni var snúið rétt mátti
sjá þar blátt hús.
Þá er röðin komin að hin-
um nemandaroum, frú Sigríði
J. Magnússon, form. kvenrétt-
indafélags fslands sem var við
nám í myndvefnaði. Hún verð-
ur 68 ára n.k. hvítasunnudag.
— í fyrsta skipti síðan ég
fæddist á ég afmæli á hvíta-
sunnudag, sagði hún, en ég
fæddist einmitt á hvítasunnu-
dag — það var fyrra skiptið
; /fjl s f | | gj ■
. ::::; t: FA i r
tí::; J 886 i. Á
af tveim, sem ég olli messu-
falli hjá föður mínum. Kirkju-
gestir höfðu miklu meiri
áhuga á því, sem var að gerast
í bænum, heldur en að sitja
undir messiu, enda þótt faðir
minn byðist til að messa.
— Hvað kom til að þér
byrjuðuð að vefa?
— Ég hef ofið í mörg ár. Óf
einu sinni á öll húsgögnin mín
og gólfteppið, sem við stönd-
um á. En svo var ég að tala
við hana Vigdísi og datt þá í
hug að gaman væri að læra
myndvefnað.
— Svo að þetta hefur verið
eins konar framhaldsnám.
— Já, já, — þannig var, að
1922 var hjá okkur á Vífils-
stöðum vinnumaður sem
kunni að vefa. Vildi jafnframt
svo til að ég sá einn dag vef-
stól auglýstan til sölu í Morg-
unblaðinu. Þá datt mér í hug
að gaman væri að eignast hann
og fékk ég vinnumanninn til
að kenna mér. Er það eina
kennslan, sem ég hef fengið
þangað til í vetur.
En vefstóll þessi var svo
merkilegur og fornfálegur grip
ur, að Sigfús Blöndal fékk að
taka mynd af honum til að
setja í orðabókina.
— Og hvað varð um þenn-
an stól?
— Ég á hann ennþá — hann
er vel til gagns.
— Vitið þér nokkuð hvaðan
stóllinn er kominn?
— Nei, það hef ég enga hug-
mynd um, veit aðeins að hann
er gamall íslenzkur vefstóll.
ELNA-saumavél *
Góð Elna-saumavél til sölu.
Uppl. í dag á Spítalastíg 1,
1. hæð. —
Til leigu
2ja herb. kjallaraíbúð í 3-4
mán. Leigist með húsgögn-
um og heimilisvélum. Upp-
lýsingar í síma 1-60-59.
Múrverk
Múrari getur bætt við sig
vinnu strax. Tilb. merkt:
„Strax — 3825‘, sendist blað
inu fyrir 28. þ.m.
Vélstjóri með próf frá
Vélskólanum í Rvík, óskar
eftir plássi á góðu síldar-
skipi. Tilb. sendist Mbl., fyr
ir fimmtud. 26. þ.m., merkt
„Vanur — 3826“ ‘
Óska eftir 2ja herb. íbúð
til leigu. Má vera í kjallara
Fyrirframgreiðsla kemur
til greina. Upplýsingar í
síma 32288. —
Stúlka óskast
á sveitaheimili. Má hafa
með sér barn.> Upplýsingar
í Stórholti 37.
Karlmannsreiðhjól
með gírum og öllum útbún
aði, til sölu. — Simi 16349.
Óska eftir
3ja—4ra herb. íbúð, nú eða
siðar. — Fyrirframgreiðsla
kemur til greina. — Sími
32166. —
íbúð óskast
2ja—3ja herb. íbúð óskast
sem fyrst. — Upplýsingar
í síma 14893, í dag.
íbúð óskast
2ja—3ja herb. íbúð óskast
til leigu. — Upplýsingar í
síma 10675 eftir kl. 8 á
kvöldin. —
ssW/,
S35
°r
Þegar Hrói höttur hefur tekið
alla peningana frá ríka fólkinu
— og gefið fátæka fólkinu —
þá er fátæka fólkið orðið ríkt
— og hvað á nú að gera?
— o-----o —
— Hvað gétur maður lifað
lengi án heila?
— Hvað ert þú gamall?
Kona óskast við léttan
iðnað. Má vera roskin. Tilb.
sé skilað á afgr. blaðsins,
fyrir föstud., merkt: ,Létt
vinna — 3828“.
Tek að mér
að skafa og lakka útihurðir
Sími 32381. —
íbúð óskast
2 herbergi og eldhús ósk-
ast. — Upplýsingar í síma
22150. —
Heimasaumur
Óska eftir sambandi við
kvenmann sem vill taka
að sér heimasaum. Nafn og
heimilisfang sendist afgr.
Mbl., merkt: „3418“.
Bíll
Vantar 4ra manna bíl, —
Austin eða Prefect ’46—’48.
Upplýsingar í síma 32687,
frá kl. 1—6.
Tvær unglingsstúlkur stóðu á
götuhorni og horfðu á lögreglu-
mann, sem hélt á litlu barni yfir
götuna.
— Sjáðu, sagði önnur, hvað
hann hefur sætar tennur.
— Já, sagði hin, og eyrun, hvað
þau eru lítil og nett eða augun
stór og barnsleg.
— Já, dásamlegt, sagði sú fyrri
— og barnið — það er sætt líka.
Maður með grímu fyrir andliti
og skammbyssu í hönd gekk einn
dag inn í banka San Francisco-
borgar og heimtaði 100 þús. doll-
ara af gjaldkeranum.
Gjaldkerinn taldi fram pening-
ana og lagði hjá þeim miða og
sagði: — Viljið þér gjöra svo vel
að kvitta.
— Sá stutti kvittaði, skrifaði
rétt nafn og var rétt á eftir hand-
tekinn.
Edith Rode mætti dag einn rit-
höfundinum Aage Matthison-
Hansen á Frederiksberg Allé, en
Matthison-Hansen var um þær
mundir sjúkur maður.
— Hvað er það sem gengur að
yður? spurði frú Rode.
— Ofsóknarbrjálæði og krampi,
svaraði rithöfundurinn og aug-
un í honum ranghvolfdust. —
Hvað leið farið þér frú Rode?
Edith Rode, sem ekki var orð-
ið um sel, flýtti sér að svara: —
Hina leiðina.
— Eg fer líka þá leið, sagði
rithöfundurinn.
Það er oft glatt á hjalla á
Þórskaffi ekki sízt á „Gömlu
dönsunum", en þangað lögðu
þær leið sína þessar ungu
blómarósir úr Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur, og þær
settu sannarlega svip á dans
leikinn klæddar íslenzka
þjóðbúningnum. Myndin var
tekin þegar ungfrúrnar vom
að syngja fyrir framan
hljómsveitina „Táp og fjör
og frískir menn“. Með þeim
á myndinni er dansstjóri
gömltu dansanna hjá Þórs-
kaffi, Baldur Gunnarsson.
Til sölu
að Vesturgötu 45, gluggar
með glerjum í. Gjafverð.
Til sölu
og flutnings, hálfgert hús.
Innanmál. 30 ferm. Uppl.
í síma 15813.
Óska eftir vinnu
við skrifstofustörf. Hef lok
ið við tvo bekki í Verzlun-
arskólanum. Tilb. sendist
Mbl., merkt: „Strax —
3820“. —
Rafha-eldavél
og barnakerra með skermi
til sölu. Uppl. í Langholts
veg 36, eftir kl. 7.
Smoking, sem nýr,
klæðskerasaumaður, stærð
ca. 41—42, til sölu. Uppl.
í síma 13454, í dag og næstu
daga. —
Geislaliitun
Tökum að okkur að leggja
geislahitun í hús, í þorpum
og sveitum, í nágrenni
Rvík. Tilb. sendist £ póst-
hólf 122, Reykjavík.
„Skellinaðra"
Sem ný „skellinaðra“ til
sölu. Upplýsingar á Rauða
læk 25, Reykjavík.
Jarðýta til leigu
Uppl. í síma 16257. — Er i
vinnu í dag og næstu daga
upp við Rauðavatn.
Ung hjón
með stálpað barn, óska
eftir 1 til 2ja herb. íbúð.
Upplýsingar í síma 15674.
Til leig'u
4i herb. íbúð £ Miðbænum
Tilb. merkt: „1. júní —
3420“, sendist til afgr. Mbl.
Kvöldvinna, stúlka óskast
til afgreiðslustarfa í sælgæt
isbúð (opið til 11,30), á
kvöldin og um helgar. Tilb.
sendist afgr. Mbl., fyrir 1.
júní, merkt: „Heiðarleg —
3419“. —
Alþingishátíðarpeningar
Eitf sett til sölu
í þrem kössum. Tilb. sendist
Mbl., fyrir fimmtudagskvöld
merkt: „Alþingishátíðin —
4286“. —
að auglýsing i stærsva
og útbreiddasta blaðinu
— eykur söluna mest --