Morgunblaðið - 26.05.1960, Síða 12
12
MORGUNBT. AfílÐ
Fimmtudagur 26. maí 1960
fflttiptiMaMib
TTtg.: H.t Arvakur Reykjavík
IVamkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Joi»nnessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
SKIPULAGT
ALMENNINGSÁLIT
k FUNDI Heimdallar í
fyrrakvöld var rætt um
skipulagt almenningsálit og
kom margt athyglisvert fram
í ágætum ræðum frummæl-
enda. Einna eftirtektarverð-
ust var sú staðhæfing Ævars
Kvarans leikara, að með því
að lesa listagagnrýni í á-
kveðnu blaði væri hægt að
ganga úr skugga um stjórn-
málaskoðun listamannanna.
Ákveðnir menn gætu verið
öruggir um, að aldrei yrði
illu að þeim vikið í því blaði,
svo framarlega sem þeir ekki
skiptu um stjórnmálaskoðun.
Þessi sannindi hafa auð-
vitað verið á margra vitorði
um langt skeið, en til þessa
hafa opinberar umræður um
þau ekki verið sem skyldi.
Kommúnistar hafa í sellu-
starfsemi sinni leitazt við að
skipuleggja almenningsálit á
sviði bókmennta og lista, sem
andstætt væri öllum þeim,
sem ekki gengju kommún-
ismanum á hönd, eða a. m. k.
væru hlutlausir gagnvart
honum. En einna mest hefur
verið lagt upp úr rógi og nógu
mannskemmandi undirróðurs
starfsemi.
Það er staðreynd, sem
margir listamenn halda fram,
að til skamms tíma hefur
getað borgað sig að vera nyt-
samur kommúnistum. Á þann
hátt hefur listamaðurinn get-
að tryggt sér stuðning áhrifa-
ríkra áróðursmanna, en þó
ekki átt á hættu_ aðkast
þeirra, sem aðhyllast lýðræð-
ishugsjónir.
Frjálslyndir menn mynda
sér auðvitað ekki skoðun á
verkum listamanna eftir
stjórnmálaskoðunum þeirra.
En það er misskilið frjáls-
lyndi, þegar lýðræðissinnaðir
menn aðhyllast hugsunar-
laust fullyrðingar skipuleggj-
enda áróðursins. Kommúnist-
ar hafa haft lag á að upp-
hefja ýmis leirskáld og bull-
ara en lítillækka góða lista-
menn og þetta hefur þeim
tekizt, vegna þess að ýmsu fá-
kunnandi fólki hefur fundizt
það vera frjálslyndi að taka
mark á þeirri gagnrýni
kommúnistarita, sem þó hef-
ur aðeins eitt markmið, póli-
tík.
Það fer ekki á milli mála,
að á síðustu árum hafa augu
æ fleiri manna opnazt fyrir
eðli þessarar svokölluðu
menningarbaráttu kommún-
ista og enginn efi er á því,
að Heimdallarfundurinn mun
stuðla að því, að endanlega
verði svipt frá þeirri hulu
sakleysis og réttlætis, sem
kommúnistum hefur tekizt að
varpa yfir undirróðursstarf-
semi sína.
Fleiri og fleiri mennta-
menn um víða veröld snúast
nú til harðvítugrar andstöðu
gegn ofbeldisöflunum. Þeir
finna hjá sér hvöt til að gæta
þeirrar skyldu við þjóðfélag-
ið, sem menntun þeirra og
gáfur bjóða. Hérlendis stefn-
ir þróunin líka í þessa átt og
þegar hrunið er byrjað í röð-
um þeirra menntamanna, sem
aðhyllzt hafa kommúnisma
eða hlutleysisstefnu gagnvart
honum, þá verður það ekki
stöðvað.
Varla getur farið á milli
mála að menn eins og Jónas
Árnason, sem um langt skeið
hafa þjónað kommúnisman-
um, en nú yfirgefa hann,
munu gera það vegna þess að
þeim hefur verið orðið ljóst,
að þeim var óheimilt að hafa
sjálfstæðar skoðanir. í öllum
ræðum, ritum og einkasam-
tölum bar þeim að túlka þá
skoðun, sem flokknum var
þóknanleg. Gegn slíku boði
hljóta frjálshuga menn að
rísa fyrr eða síðar.
Þegar menn þannig hafa
gert sér grein fyrir eðli hins
skipulagða áróðurs kommún-
ismans, þá mega þeir gera ráð
fyrir, að þegar rógberarnir
beina spjótum sínum að
ákveðnum mönnum, þá sé
það einmitt gert vegna þess
að þeir óttist þá sérstaklega
og telji miklu varða að níða
þá. Gegn slíkum rógi verður
að snúast af fullri einurð, en
þar með er ekki sagt, að hver
einstakur þurfi endilega að
upphefja hvern þann, sem
kommúnistar rægja, heldur
þvert á móti að leitast við að
mynda sér sjálfstæða skoðun
á verkum viðkomandi lista-
manna.
Lýðræðissinnar eiga ekki
að innræta sér það eðli ein-
ræðisafla, sem lætur stjórn-
málaskoðanir hafa úrslita-
áhrif á alla dóma og allt hátt-
erni. En þeir þurfa að öðl-
ast fullan skilning á baráttu-
aðferðum kommúnista, svo að
þeir séu ætíð á varðbergi
gagnvart undirróðursöflun-
um. Og þá mun þrek mennta-
mannanna sjálfra nægja til
að einangra hinn skipulagða
áróður frá öllu því, sem við-
kemur menninúarmálum og
listum. \
Kennedy líklegasta
forsetaetni Demókrata
Kennedy í New York.
Sigurförin hafin
FORSETAKOSNINGAR fara
fram í nóvember í haust. Tal-
ið er öruggt að Nixon vara-
forseti verði í kjöri fyrir
repúblikana, en nokkur
óvissa hefur ríkt um fram-
boð demókrata.
Frambjóðendur verða kosn-
ir á landsfundum flokkanna,
sem verða haldnir í sumar,
og þykir nú einna líklegast
að John F. Kennedy, öldunga
deildarþingmaður frá Massa-
chusetts, verði kjörinn fram-
bjóðandi demókrata á lands-
fundi þeirra í Los Angeles II.
júlí. Landsfundina sitja kjör-
John F. Kennedy, öld-
ungardeildarþingmað
ur frá Massachusetts
sem er aðeins 42 ára-
gamall, hefur unnið
hvern stórsigurinn á
fætur öðrum í kosn-
ingum, sem undirbúa
val forsetaefnis Demo-
krata við kosningar í
haust.
menn allra ríkja Bandaríkj-
anna, með mismunandi mörg
atkvæði og fer það nokkuð
eftir fjölda kjósenda. Þannig
hefur t .d. Oregonríki aðeins
17 atkvæði á landsfundi
dcmókrata, en New York-
ríki 114.
Kosið er í sumum ríkjunum um
það hvern frambjóðenda flokks-
ins kjörmennirnir skuli styðja,
en á landsfundunum þarf hrein-
an meirihluta til að samþykkja
framboðið. Þegar fleiri eru í fram
boði þarf því oft margar atkvæða
greiðslur áður en meirihluti fæst.
Þarf frambjóðandi Demokrata
þannig að fá 761 atkvæði á lands-
fundinum, en frambjóðandi Repu
blikana 666 atkvæði.
Nokkur ríki senda fulltrúa sína
á landsfundina með þau fyrir-
mæli að styðja heimamenn við
fyrstu atkvæðagreiðslu, en hafi
síðan frjálsar hendur. Þannig
munu til dæmis kjörmenn Kali-
forníu styðja Brown ríkisstjóra
við fyrstu atkvæðagreiðslu, þótt
hann hafi hvergi leitað sti’ðnmgs
I annars staðar.
Kosning kjörmanna hefur nú
farið fram í nokkrum ríkjum.
Hófust þær í New Hampshire
ríki um miðjan marz. Þar bauð
John Kennedy sig fram, en eng-
inn hinna hættulegri keppinauta
hans, sem voru öldungardeildar-
þingmennirnir Lyndon Johnson,
Stuart Symington, Hubert Hump-
hrey og Wayne Morse. Kennedy
vann þarna sigur, því hann fékk
tvöfalt það atkvæðamagn sem
frambjóðandi flokksins fékk við
síðustu kosningar. En fyrsti stór-
sigurinn vannst í Wisconsin 5.
apríl sl. Þar mætti Kennedy
Humphrey í fyrsta sinn og fékk
468 þúsund atkvæði, en Humph-
rey 366 þúsund.
Næst kom baráttan um Vestur-
Virginiu ríki, þar sem kosningar
fóru fram 10. maí. Hér var reikn-
að með að Humphrey sigraði og
áleit Kennedy sjálfur líkurnar
60 gegn 40 sér í óhag. Úrslit urðu
þau að Kennedy fékk 220 þúsund
atkvæði en Humphrey 142 þús.
Eftir þessi úrslit dró Humphrey
sig til baka og kvaðst ekki leng-
ur vera í kjöri sem forsetaefni.
F e I 1 d u r í heimahaga
Wayne Morse var næstur. —
Kennedy og hann mættust fyrst
í Maryland ríki 17. maí, og fékk
Kennedy þar um 70% atkvæða.
í Oregon áttust þeir aftur við,
en nú leit enn út fyrir að Kenne-
dy yrði stöðvaður. Wayne Morse
er öldungardeildarþingmaður fyr
ir Oregon ríki og hefur pldrei
tapað þar kosningu. Spáðu menn
að Morse fengi 60% atkvæða.
Kosið var hinn 20. maí og fékk
Kennedy 8 atkvæði móti hverjum
5 sem Morse fékk. Eftir kosn-
ingarnar sendi Morse Kennedy
heillaóskaskeyti og kvaðst að
sjálfsögðu ekki halda áfram bar-
áttunni.
Vantar samt
talsvert enn
Kennedy hefur nú tryggt sér
31714 atkvæði á landsfundinum,
en þarf, eins og áður er sagt, 761.
Hann mun ekki mæta Johnson
eða Symington í kosningum fyrir
landsfundinn, en þangað koma
þeir með stuðning ýmissa suður-
ríkjanna. Symington er frá Miss-
ouri riki, en Johnson frá Texas.
Barátta þeirra verður háð á lands
fundinum 11. júlí.
Auk þeirra atkvæða sem Kenne
dy hefur nú tryggt sér með kosn-
ingum er vitað að hann mun fá
fjölda atkvæða frá þeim ríkjum
sem eru óbundin. Þannig er til
dæmis reiknað með að hann fái
meira en helming New York at-
kvæðanna, sem eru 114 og um
80% atkvæða New Jersey, sem
eru 41. Eins og málin standa er
áætlað að Kennedy fái nærri 600
atkvæði við fyrstu atkvæða-
greiðslu á landsfundinum, en sú
tala getur að sjálfsögðu breytzt
á sex vikum.
Hvað Nixon viðkemur, þá hef-
ur hann nú tryggt sér 535 atkv.,
en þarf 666.
Prói. Delargy
heiðraður
FYRIR nokkru var hinn kunni
írski menntamaður, próf. James
Hamilton Delargy, heiðraður af
norsku vísindaakademíunni. Var
hann kjörinn meðlimur akademi
unnar í Historisk-filosofisk klasse
í Oslo. Sjálfur er Delargy for-
stöðumaður þjóðsagnarfræðistofn
unnar íra. Héfur hann miklar
mætur á Norðurlandaþjóðunum.
Suður í Leipzig rakst hann á þjóð
sögur Jóns Árnasonar. Eftir
nokkra hríð leiddist honum að
horfa á þær í bókaskápnum ólesn
at, svo hann tók sig til og lærði
íslenzku“, stendur í afmælisgrein
um próf. Delargy, sem birtist á
sextugs afmæli hans hér í blað-
inu í fyrra. í dag verður hann 31
árs. — Próf. Delargy hefur kom-
ið tvisvar hingað til lands í boði
Háskóla íslands og á hér all-
marga vini, sem samfagna hon-
um, vegna þeirra viðurkenninga
er honum hefur nú hlotnazt.
Kcnnedy og Humphrey.