Morgunblaðið - 26.05.1960, Qupperneq 14
14
moncinvni aðið
Fimmtudagur 26. maí 1960
Sr. Steingrímur Ó.
Þorláksson — Sjötugur
Séra Steingrímur Ó. Þorláksson
son, prestur og ræðismaður er
sjötugur í dag. Hann er fæddur
í Minnisóta-fylkinu í Bandarkj-
unum. Faðir hans var hinn
kunni kennimaður Niels Stein-
grmur Þorláksson (Thorlaksson),
sem var fyrsti, íslenzki prestur-
inn í Minnisóta-fylkinu, — og
var þar í fimm ár; síðan fluttist
hann til Dakota-fylkisins; þar
var hann prestur til ársins 1900,
en þá fluttist hann í íslendings-
byggðina SELKIRK, og starfaði
þar til dauðadags (f. 1857 d.
1943). Að honum látnum var gef-
ið út minningarrit í Winnipeg
(1943) um preststörf hans. Er
þar ýmsan fróðleik að finna um
kirkjulíf Islendinga þar vestra.
— Fiimm ára gamall fluttist
séra Steingrímur með foreldr-
um sínum til Dakota, en um alda
mótin til Kanada. Hann útskrif-
aðist úr Minnisóta-háskólanum
.1913, ,en fór þaðan um haustið á
Lútherska-prestaskólann í Ohi-
•cago og lauk þar prófi árið 1916.
Um sumarið var hann vígður til
prests, — og skömmu á eftir
giftist hann_ heitmey sinni,
Karólínu Kristínu Guðjónsdótt-
ur. —- I september sama ár fóru
þau til Japan. Það var víst ekki
ætlunin að dvelja þar mjög lengi,
en þó urðu dvalarárin 15. Séra
Steingrímur var fyrsti Islenzki
trúboðinn, sem fór til Japans.
Hann var athafnasamur trúboði
og kennimaður, sem auk prest-
starfanna byggði kirkjur, skóla
og prestshús. Af þessu var hann
mjög vinsæll. Og mikið sáu Jap-
anir eftir honum, er hann fór
þaðan, skömmu fyrir síðustu
styrjöldina. í Japan fæddust fjög
ur börn hans, sem nú eru öll upp
komin og búsett í Bandaríkjun-
um við kennslustörf, nema yngsta
Sölumaður
Heildsölufyrirtæki óskar eftir röskum
sölumanni nú þegar. Um hálfs dags vinnu
getur verið að ræð.
Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir hádegi á laugardag
merkt: „Röskur — 4285“.
Hvífarí þvoffur/
Nýja Sparr er mildara, freyðir betur, þvær betur og er
ódýrara. Sparr gerir þvottinn bragglegri, bjartari, ilmandi,
og hvítan eins og hrím á haustmorgni. Sparr inniheldur
C M C, sem ver þvottinn óhreinindum og sliti.
Sparr inniheldur Hrímhvítu, st'm hefur þann eiginleika
að breyta hinum ósýnilegu útfjólubláu geislum sólarinnar
í sýnilega bláhvíta geisla, sem gera hvítan þvott hvítari
og mislitan litsterkari. Sparr er ódýrt. Kynnið yður verð-
muninn á Sparr og erlendum þvottaefnum og yður mun
ekki koma til hugar að nota annað en Sparr upp frá því.
Sparið og notið Sparr
dóttirin, sem er gift lögmanni í
Missurore-fylkinu. Hin börnin
búa í Kaliforníu. Eldri dóttirin,
sem er ógift, er við söngkennslu
í San Francisco, en synir hans
tveir eru við skólakennslu í Kali-
forníu.
Séra Steigrmur er tvígiftur.
Fyrri kona hans var Karólína
Guðjónsdóttir eins og áður er
sagt; hún lézf fyrir þremur ár-
um síðan í San Francisco. Seinni
kona hans er frú Liv Östlund,
dóttir Davíðs heitins Östlund,
prentara og ritstjóra, sem marg-
ir eldri Réykvíkingar kannast
við. Síðar var Davíð heimsfrægur
bindindisfrömuður, sem atti mik-
inn þátt í því að bannlögin voru
samþykkt í Bandarkjunum á sín
um tíma.
Séra Steingrímur er mjög fróð-
ur um málefni Austurlanda, og
hefir oft verið leitað til hans í
þeim efnum. Þá er hann og mikill
tungumála-maður. Eitt sinn fór
ég með hann á fund fulltrúa
alþjóða-Ólympíunefndarinnar í
Japan, dr. Ryotaro Azuma, sem
nú er borgarstjóri í Tokyó; til
þess að vita hve snjall hann væri
í Japönsku. Eftir á sagði dr.
Azuma mér, að hann hefði ekki
áður hitt neinn útlendxng, sem
talaði betur Japönsku, en séra
Steingrímur. — Þegar hinum
heimsfræga íslenzka rithöfundi
Nonna (Jóni Sveinssyni) var boð
ið til Japans, var séra St xingrím-
ur leiðsögumaður hans og túlkur
og þýddi allar ræður hans. I
Japan var Nonni kallaður „ka-
þólski sögumaðurinn‘' (Kyn Kjo)
Hans Chr. Andersen, og var það
séra Steingrímur, sem gaf hon-
um þessa nafngift, sem var mjög
v ínsæl.
Séra Steingrímur var skipaður
ræðismaður í San Francisco lýð-
ræðis-árið 1944, — og hefir hann
reynzt röggsamur í því trúnað-
arstarfi. Hann hefir greitt götu
margra íslendinga, sem til Kali-
forníu hafa komið, með vega-
bréfa-ávísanir, framhalds-dvalar-
leyfa og margt fleira. Var ég
sjálfur vitni að því þar vestra.
Loks má geta þess að séra Stein-
grímur reyndist ágætur sendi-
fulltrúi íslands á Vetrar- Olym-
píuleikunum í Vesturheimi, og
höfum við sem þangað fórum
góðar endurminningar um það.
Ég veit að séra Steingrím lanxa"
mjög til að koma aftur til
lands; hann kom hirgað árið
1931. — Það væri sannarisgt
drengskaparbragð, ef vinir hans
og samherjar í prestastétt, biðu
honum og konu hans hingað í til-
efni þessara tímamóta í ævi hans.
A séra Steingrmi sannast vel, að
aldurinn fer ekki alltaf eftir ald-
ursárunum. Hann ber aldurinn
ágætlega, er hress og glaður og
fer allra sinna ferða. Og vona
ég að svo verði framvegis, að
Guð gefi honum góða heilsu og
líí, til að greiða götu samferða-
mannanna þar vestra. I dag
munu honum berast margar góð-
ar kveðjur og heillaskeyti fyrir
farsæl og góð störf, — á heimili
hans í San Carlos (Elm Street:
1633, Kaliforníu. B. G. W.
Biskupinn
til Kaníhia
BISKUPINN yfir íslandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, hefur ver-
ið boðinn til Ameríku, til þéss að
sitja 75. afmælisþing Evangelisk-
Lutherska kirkjufél. íslendinga í
Ameríku. Það verður haldið í
Glenboro Manitobafylki í Kan-
ada. Mun biskupinn prédika við
þingsetningu hinn 5. júní.
Vikuna þar á undan mun hann
ferðast milli íslendingabyggð-
anna, prédika og flytja erindi.
Frá Ameríku fer biskupinn til
Danmerkur, þar sem hann mun
prédika á 1000 ára afmæli Hró-
arskeldukirkju, 12. júní. Biskup
inn er farinn vestur um haf
og er væntanlegur heim aftur
14. júní næstkomandi. Þetta er í
fyrsta skipti sem Sigurbjöm Ein-
arsson fer utan eftir að hann
varð biskup landsins. Biskupinn
hefur ekki áður farið vestur um
haf.