Morgunblaðið - 26.05.1960, Page 24

Morgunblaðið - 26.05.1960, Page 24
BÓNDI á Vestfjörðum kom að máli við Morgunblaðið hér á dög unum og gagnrýndi harðlega mæðiveikisvarnirnar hér á landi. Bað hann blaðið að koma þeirri fyrirspurn á framfæri, hvort ekki væri tímabært að koma á fót skipulagðri gegnumlýsingu á sauðfé, sem grunur lægi á að væri sýkt af mæðiveiki. Hafði hann talað um þetta við ýmsa mæta menn og væru þeir honum sammála um að mögulegt væri að koma þessu í framkvæmd, enda hefði þetta verið reynt. — í>að hefur komið fyrir, sagði hann, að fé hefur verið skoðað af eftirlitsmönnum og úrskurðað heilbrigt, en er því var slátrað kom í ijós að í því var Alþingi Eldhúsdagur eftir helgi ELDHÚSDAGSUM- RÆÐUR fara fram á Al- þingi nk. mánudags- og þriðjudagskvöld og verð ur þeim útvarpað að venju. Fyrra kvöldið hefur hver stjórnmálaflokkur 50 mín- útna ræðutima til umráða og verður röð flokkanna þá þessi: Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag, Sjálfstæð isflokkur og Alþýðuflokk- ur. Síðara kvöldið fara fram þrjár umferðir, 20— 25 mínútur, 15—20 mínútur og 15 mínútur, alls 55 mín- útur til handa hverjum flokki; þá verður röðin þessi: Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur, Sjálfstæðis flokkur og Alþýðubanda- lag. — Þess má geta, að fylgt er þeirri reglu fyrri daginn, að stjórnarandstað- an tali á undan, en stuðn- ingsmenn stjórnarinnar síð- an. Síðari daginn er aftur á móti dregið um röðina, og hefur niðurstaðan í þetta sinn orðið sú, sem að ofan greinir. mæðiveiki á háu stigi. Þá var öllu fé af bænum og nærliggj- andi bæjum slátrað. Ef féð hefði verið gegnumlýst, hefði verið hægt að komast hjá öllu þessu blóðbaði, sem ég lýsi mig alger- lega mótfallinn. Að lokum minntist bóndinn á það, að sér fyndist algerlega óvið unandi allur aðbúnaður til mæði veikisvarna. Svo miklu væri búið að fórna vegna mæðiveikinnar, bæði bændum og landsmönnum til stórtjóns, að ekki mætti láta undir höfuð leggjast að gera allt það sem nauðsynlegt þykir til varnar mæðiveiki í landinu. Skíðamót á sumri Siglufirði, 25. maí: — Ákveðið hefur verið að svonefnt Skarðs mót í svigi og stórsvigi karla og kvenna verði háð hér á Siglu- firði 5. og 6. júní n.k. — Þessi skíðamót hafa ávallt verið mjög vinsæl — háð í sumri og sól á Siglufjarðarskarði. Þátttöku ber að tilkynna Jónasi Ásgeirssyni, Siglufirði, fyrir 25. maí n.k. — Forsetar alþingis ÞESSI mynd var tekin af forsetum Alþingis þegar þeir voru á fundi í skrif- stofu sinni í Alþingishúsinu í gær. Eru þeir, talið frá vinstri: Sigurður Óli Ólafs- son, forséti efri deildar, Friðjón Skarphéðinsson, forseti sameinaðs Alþingis, og Jóhann Hafstein, for- seti neðri deildar. Voru þeir allir kjörnir forsetar í fyrsta skipti er Alþingi kom saman eftir kosning- arnar í haust. Jóhann Hafstein hefur setið þeirra lengst á þingi. Er þetta 16. þingið, sem hann situr. Hann er nú 5. þingmaður Reykvíkinga. Byggir S. H. fiskvinnslu verksmiðju í V-Evrópu? AÐALFUNDUR Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna var settur í Tjarnarkaffi kl. 2 í gær af for- manni félagsins, Elíasi Þorsteins- syni. Fundarstjóri var kosinn Ás- berg Sigurðsson frá Isafirði og fundarritari Ríkharð Björgvins- son. Formaður flutti yfirlit yfir starfsemi S.H. sl. starfsár. Því næst las og skýrði framkvstj. fél- agsins, Björn Halldórsson, reikn- inga félagsins. Að því loknu voru kosnar tvær nefndir, allsherjar- nefnd og fjárhagsnefnd til að fjalla um tillögur, sem stjórnin lagði fram á fundinum, 18 talsins. Þá var gefið kaffihlé, en að því búnu fluti Jón Gunnarsson, fram- kvæmdastj. skýrslu um sölur og uppbyggingar markaða erlendis á sl. starfsári, vöruvöndun og fleira. Urðu miklar umræður um erindi Jóns, sem stóðu fram að kvöldmat. Var þá fundi frestað til föstudagsmorguns kl. 10. En þá skila nefndirnar áliti um framkomnar tillögur. Fiskvinnsluverksmiðja í Vestur-Evrópu Fjallar ein tillagan m. a. um að SH megi taka allt að 400.000 dollara lán erlendis til byggingar frystigeymslu og fiskvinnsluverksmiðju i V-Evrópu. Önnur tillaga fjall ar um að heimila stjórn SH að koma upp litlum rannsókn arstofum á ísafirði, Akureyri og í Vestmannaeyjum til að stuðla að aukinni vöruvönd- un. Þá er tillaga um að verja allt að 2% af fob-andvirði seldra afurða árið 1960 til markaðsleitar og auglýsinga fyrir frystan fisk. Stefnt er að því, að Alþingi Ijúki störfum fyrir hvítasunnu Eitt athafnamesta þing í sögunni Ásgeir Ásgeirsson sjálf■ | kjörinn forseti íslands FRAMBOÐSFRESTUR til for- setakjörs rann út 22. þ. m. Hafði Dómsmálaráðuneytinu þá borizt framboð núverandi forseta ís- lands, herra Ásgeirs Ásgeirsson- ar, til forsetakjörsins, ásamt til— skildum meðmælum alþingis- kjósenda úr öllum landsfjórðung um. Önnur framboð bárust ráðu- neytinu ekki. Hefur Dómsmála- ráðuneytið sent til Hæstaréttar öll skjöl, er framboðið varða, svo sem lög mæla fyrir. ÞAÐ var í gær almælt inn- an veggja Alþingis, að stefnt væri að því að ljúka þingstörfum fyrir hvíta- sunnu. Munu því væntan- lega næstu daga verða haldnir kvöld- og, ef þörf krefur, næturfundir til þess að í gegn gangi þau mál, sem nauðsynlega þarf að af greiða, áður en þingmenn halda heim. Þar er að sjálf- sögðu fyrst og fremst um að ræða þau frumvörp ríkis stjórnarinnar, sem enn hafa ekki hlotið fullnaðaraf- greiðslu, þ. á. m. um bráða- birgðabreytingu á útsvars- lögunum, verðlagsmálin, út flutningsskattinn og bank- ana, en þau eru öll til með- ferðar í þinginu þessa dag- ana. Þá má einnig gera ráð fyrir að nokkur önnur frumvörp og allmargar þingsályktunartillögur, sem samstaða er um, nái fram að ganga fyrir þingslit. Þing það, sem nú er þannig að lokum komið, hófst hinn 20. nóvember og starfaði þá fyrst fram til 7. desember, er hlé var gert, meðan hin nýmyndaða rík- isstjórn Ólafs Thors undir- bjó ráðstafanir sínar til við reisnar efnahagslífinu, sem síðan voru lögð fram frum- vörp um, eftir að þing kom saman að nýju hinn 28. jan. sl. Aðgerðir ríkisstjórnar- innar í efnahagsmálum voru svo sem alkunna er frá upphafi við það miðað- ar, að bundinn yrði endi á það eymdarástand, sem hér hefur um árabil rikt í þeim efnum og hámarki náði í tið vinstri stjórnarinnar, sem að lokum hrökklaðist frá völdum. Það var þá orðið öllum ljóst, að ekki dugði annað en að taka málin föstum tökum og byggja þau upp frá grunni. — Að þessu hefur ríkisstjórnin unnið að undanförnu og er nú komin vel áleiðis með að gera. Ekki er því að undra, þótt það sé nú mál manna, að sjaldan eða aldrei hafi Alþingi haft til meðferðar svo mörg mikil- væg mál á jafnskömmum tíma og liðinn er, síðan yf- standandi þing hóf störf að nýju eftir áramótin. Togarar koma með karfa HINN nýi togari Narfi, kom í gærdag úr veiðiför vestan af Ný- fundnalandsmiðum, en þangað fór skipið beint frá Englandi, eft ir að þar hafði farið fram at- hugun á vélinni. Veiðiferðin hafði gengið vel og togarinn fljót ur heim af miðunum. Löndun var ekki lokið, þegar þetta -.r skrifað. Ekki voru taldar horfur á því að Narfi myndi í þessari veiðiför a. m. k. slá fyrri aflamet. Var giskað á að togarinn væri með 380—400 tonn. í gærdag kom Skúli Magnús- son af Grænlandsmiðum, einnig með karfaafla. Voru bæði skip- in með góðan karfa. í kvöld er von á Þormóði goða, einnig af Grænlandsmiðum. Sigurður Ó. ólafsson er 5. þingmaður Sunnlend- inga. Hann hefur setið 11 þing. Friðjón Skarphéðinsson er 5. landskjörinn þingmað- ur. Hann hefur aðeins set- ið 4 þing áður. Jóhann Hafstein er 44 ára, Friðjón Skarphéðins- son 51 árs og Sigurður Ó. Ólafsson 63 ára. Það eru forsetar Alþingis, sem skipuleggja og stjórna störfum þess. Á þeim mæð- ir því mikið í störfum hvers þings, ekki sízt þegar dreg- ur að þinglokum og fundir eru oft haldnir langt fram á nótt. (Ljósm.: Studio) Íþróttasíðan er á bls. 18. 119. tbl. — Fimmtudagur 26. maí 1960 Strákarnir í 3. bekk Sjá bls. 13. Verður sauðfé ) gegnumlýst? Merkja- sala KRABBAMEINSFÉLAG íslands hefur gert uppstigningardag ar hvert að föstum merkjasöludegi, Allar deildir innan félagsins gangast fyrir merkjasölu fimmtu daginn 26. þ. m., uppstigningar- dag, til ágóða fyrir starfsemi sína. Krabbameinsfélag Reykja- víkur sér um- sölu merkjanna í Reykjavík, en deildirnar á Akur- eyri, Vestmannaeyjum, Kefla- vík og Hafnarfirði annast merkjasöluna hver á sínum stað. Einnig verða merkin seld á Akra nesi og á ísafirði, þó engar fé- lagsdeildir starfi þar. Krabba- meinsfélögin hafa ekki haft merkjasölu síðan árið 1956. Aðalafgreiðsla merkjanna verð ur í skrifstofu krabbameinsfé- laganna í Blóðbankanum við Barónsstíg, Réttarholtsskóla, Langholtsskóla,skrifstofu Rauða kross íslands og Melaskólanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.