Morgunblaðið - 02.06.1960, Side 1
24 síður
Lík finnast í fjölda-
gröfum í Tyrklandi
Arikara, TyrTclandi, 1. júní.
— (Reuter). —■
TALSMAÐUR byltingar-
stjórnarinnar í Tyrklandi
sagði í dag að fundizt hafi í
fjöldagröfum og frystigeymsl
um lík myrtra andstæðinga
Menderes-stjórnarinnar. —
S^gði hann að hugsanlegt
væri að einhverjir meðlimir
ríkisstjórnar Menderes hlytu
dauðadóm fyrir morð. Sagði
hann að fimm af æðstu yfir-
mönnum hersins hefði verið
vikið úr embætti og biðu
dóms, og að um 400 þing-
Uppþot í *
Póllandi
VARSJÁ, 1. júní (Reuter). —
Lögreglan notaði táragas og
kylfur til að dreifa hópi 5000
manna sem söfnuðust saman
í borginni Zielona Gora sl.
mánudag til að mótmæla trú-
arbragða-aðgerðum ríkisstjórn
arinnar. Þurfti að senda að-
stoðar lögreglulið frá Poznan,
sem er í um 100 km fjarlægð,
til að ráða við mannfjöldann.
Kom til mikilla átaka á göt-
um borgarinnar og var fjöldi
manns handtekinn.
Uppþotsmenn kveiktu í
tveim lögreglubifreiðum, og
gerðu tilraun til að hertaka
lögreglustöð borgarinnar.
Þetta er í annað sinn á stutt
um tíma sem kemur til átaka
í Póllandi vegna trúarbragða.
Síðast kom til átaka 27. apríl
í borginni Nowa Huta í suður
Póllandi, þar sem 2—3000
manna hópur barðist við lög-
regluna, eftir að borgaryfir-
völdin höfðu fyrirskipað að
krossmark nokkurt yrði fjar-
lægt.
menn, fylgismenn Menderes, og morðum. Ef það kæmi í ljós
að einhverjir þeirra væru sekir,
yrðu þeir dregnir fyrir dóm, og
ef til vill dæmdi,r til dauða.
Allatli sagði að þeir af yfir-
mönnum hersins, sem handtekn-
ir hafi verið, verði kærðir fynr
herdómstól fyrir að gefa fyrir-
skipanir um að skjóta á óbreytta
Framh. á bls. 23.
hefðu verið handteknir.
Lík stúdenta
Ertugrul Allatli höfuðsmaður
hélt í dag fund með blaðamönn-
um og kvaðst tala fyrir hönd
byltingarnefndar hersins og rik-
isstjórnarinnar. Sagði hann að
flest líkanna sem fundust hafi
verið af stúdentum, en vildi ekki
gefa upp hve mörg lík sé um
að ræða.
„Eg get ekki sagt hve marga
þeir drápu“, sagði Allatli. „Lík
hafa fundizt bæði í Ankara og í
Miklagarði, sum þeirra í fjölda-
gröfum, en sum líkanna í Mikla-
garði fundust í frystigeymslum."
Hann sagði að verið væri að
rannsaka málið, og ekki væru
öll kurl komin til grafar, þess
vegna væri ekki unnt að segja
nánar frá því.
Ábyrgðin rannsökuð
Rannsóknarnefnd vinnur að
því að athuga hverja ábyrgð
Menderes, Bayar forseti og fleiri
fyrrverandi stjórnarmenn bæru
á meintum stjórnarskrárbrotum
r
Ogurlegt
manutión
°uerto Montt, Chile, 31. maí.
— Ljóst er, að miklu fleiri
hafa látið lífið í náttúruham-
förunum í Chile en áður var
ætlað. I bcrginni Valdivia
einni munu 7—10 þús. manns
hafa farizt, en í þessari borg
bjuggu um 50 þús. manns. —
Borgin er nú undir nær
þriggja metra djúpu vatni. —
Hún sökk bókstaflega í jarð-
skjálftunum.
Moskvuútvarpið œrist
vegna lofs um Pasfernak
LONDON 1. júní (Reuter).
MOSKVUÚTVARPH) sagði í
kvöld að þegar Pasternak hafi
verið veitt Nobelsverðlaunin,
hafi það verið af stjórnmálaleg
um ástæðum og tilraun til að slá
rýrð á gildi rússneskra bók-
mennta, sem hann ætti enga að-
ild að.
Var skýrt frá þessu í útvarps-
sendingu til Bretlands.
Varðandi lof það, er brezka út-
varpið bar á Boris Pasternak við
andlát hans, sagði rússneska út-
varpið: „Þrátt fyrir hina miklu
og mörgu bókmenntalegu galla
Danir hervϚast
gegn landhelgisbrjótum
Kaupmannahöfn, 1. júní. —
Eirikaskeyti til Mbl. —
í UMRÆÐUM í danska þinginu
um utanríkismál lýsti Jens Otto
Krag utanríkisráðherra því yfir
að ríkisstjórnin áliti sanngjarnt
að komið verði á tólf milna fisk-
veiðilögsögu við Grænland og
Færeyjar og muni stjórnin stefna
að því marki.
NÝ EFTIRLITSSKIP
Varnarmálaráðherrann, Poul
Hansen, fór í gær fram á það
að fjárhagsnefndin veitti 34
milljónir danskra króna (187 'h
millj. ísl. kr.) til smíða á tveim
nýjum eftirlitsskipum, sem væru
búin þyrlum og að auki 8 millj-
ónir d. kr. til að ljúka smíði gæzlunni.
tveggja annarra eftirlitsskipa.
Fær landhelgisgæzlan því fyr-
ir árslök 1963 fjögur ný 1345
lesta eftirlitsskip, sem munu
ganga 18 V2 mílu og verða tvær
þyrlur á hverju skipi. Þessi nýju
skip skapa mjög bætt skilyrði til
eftirlits og björgunarstarfa við
Grænland.
Undanfarið hefur talsvert bor-
ið á því að erlend fiskiskip hafi
farið inn fyrir þriggja milna
landhelgi Dana við vesturströnd
Jótlands, en þar hafa óvopnaðir
vélbátar landhelgisgæzlunnar
haft eftirlit. Nú er ákveðið að
reyna að koma í veg fyrir þessi
landhelgisbrot með því að láta
fallbyssubáta flotans taka við
hans, voru bækur hans prent-
aðar í Sovétríkjunum, þótt birt-
ing þeirra yki ekki lesenda-
fjölda þeirra tímarita, sem sög-
urnar birtust í. Pasternak skildi
það sjálfur, og auðsjáanlega
miklu betur en verjendur hans
hjá brezka útvarpinu, að honum
hafði ekki tekizt að ná samúð
lesendanna, þess vegna sneri
hann sér að því að þýða verk
erlendra höfunda“.
Sagði Moskvu útvarpið að
ummæli brezka útvarpsins um
Pasternak væru andrússneskur
áróður. Þetta væri tilraun til að
rægja rússnesku þjóðina og gefa
í skyn að hún væri sneydd bók-
menntalegri smekkvísi og dóm-
greind. Slíkar útvarpssendingai
væru sízt til þess að auka vin-
áttu og skilning milli Breta og
Rússa.
w ili ' “T~.'sJ‘3*1'
A LEIÐ Á HÆSTA TIND
VERALDAR
Enn hefur Everest-fjallið
verið sigrað, og að þessu
sinni norðan frá. Tveir
Kínverjar, Wang Fu-chou
og Chu Yin-hua og Tíbet-
búinn Konbu, luku nýlega
því afreksverki að klífa
fjallið, sem á máli inn-
fæddra heitir Chomo Lung-
ma. Segja Kínverjar að
kommúnistiskri þjálfun og
guðmóði byltingarinnar sé
að þakka árangurinn!
Sjö ár eru siðan þeir
Hillary og Tensing, sem
voru í leiðangri Sir John
Hunt, klifu Everest fyrstir
manna. — Myndin sýnir
Kínverjana á leið á tindinn.
Stjórnar-
kreppa?
HELSINGFORS, 1. júní —
(NTB). — Kekkonen forseti
boðaði í dag Kustra Eskola,
talsmann bændaflokksins í
finnska þinginu, á sinn fund,
og fól honum að athuga mögu
leikana á þvi á hvern hátt
ýmsir hinna þingflokkanna
gætu hugsað sér þátttöku í
rikisstjórninni.
Ástæðan fyrir þessu er sú
að við atkvæðagreiðslu í þing
inu í dag út af fyrirspurn
sosíaldem'’—-'ta um ríkisjárn-
brautirnar, var samþykkt til-
Iaga, þar sem sagt er að þing-
ið álíti það æskilegt að kom-
ið verði nú þegar " fót ríkis-
stjórn sem hefur stuðning
meirihluta þingsins.
Japanir mótmæla
varnarsáttmála
TOKIO, 1. júní (NTB, Reuter).
— Þingmenn sósialista í báðum
deildum japanska þingsins, hafa
samþykkt samhljóða að segja af
sér þingmennsku til að mótmæla
á þann hátt samþykkt varnar-
sáttmála Japans og Bandaríkj-
anna.
Þessi mótmæli komu samtím-
is því að eitt helzta dagblað í
Japan, Asahi Shimbun, skorar á
Nobusuke Kishi að fara þess á
leit við Eisenhower forseta að
hann fresti heimsókn sinni til
Japan, en áætlað er að forsetinn
komi þangað 19. júní n.k.
Þingmenn sósíalista, sem eru
ákveðnir andstæðingar varnar-
sáttmálans, vona að með því
að hverfa af þingi, geti þeir leyst
upp þingið og neytt stjórnina til
að segja af sér. Sósialistar hafa
225 þingsæti í neðri deild, en
demókratar, sem fara með ríkis-
stjórn, 286. Varnarsáttmálinn hef
ur þegar verið samþykktur í
neðri deild, og er í'- honum gert
ráð fyrir að Bandaríkin hafi á-
fram herstöðvar í Japan næstu
tíu árin.
Burt með U-2
Dagblaðið Asahi Shimbun seg«
ir að ádeilunum á Kishi forsæt-
isráðherra muni ekki linna fyrir
komu Eisenhowers og ástandið
geti versnað.
í annari grein segir blaðið að
ríkisstjórnin ætti að óska eftir
því að Bandaríkjamenn flyttu
burt U-2 flugvélar sínar frá Jap-
an til að draga úr ótta japönsku
þjóðarinnar um gagnráðstafanir
frá hendi Rússa. Hins vegar sagði
blaðið að Malinovski marskálkur
ætti að draga til baka fyrirskip-
un sína um að eldflaugum verði
skotið á hverja þá flugstöð er
erlendar flugvélar notuðu til
flugs yfir rússneskt landsvæði.
Framh. á bls. 23.