Morgunblaðið - 09.06.1960, Side 1
24 síður
köldum
mdttökum
En meirihluti Japana mun fagna komu
Eisenhowers
Tókíð, 8. júní. — (Reuter)
ENNÞÁ heldur áfram hinni
megnu andstöðu gegn komu
Eisenhowers forseta til Tókió
19. júní nk. Þó láta þeir, sem
eru fylgjandi heimsókninm,
nú æ mcira að sér kveða.
Jafnaðarmenn og aðrir, sem
eru andvígir endurnýjun
varnarsamningsins milli Jap-
ans og Bandaríkjanna, berj-
ast mjög gegn komu forset-
ans. En Æskulýðsráð Japans,
sem í eru 7 milljónir félags-
manna, hefur tilkynnt banda-
ríska sendiráðinu, að meiri
hluti almennings í Japan sé
andvígur þeim hávaðasama
minnihluta, sem berst gegn
heimsókninni.
Kishi forsætisráðherra og stjórn
hans hefur ákveðið að stefna um
600 þús. fylgismanna sinna út á
göturnar til að fagna Eisenhow-
er, er hann kemur til borgarinn-
ar og vega þannig upp á móti
þeim 50 þúsundum vinstri sinn-
aðra stúdenta, sem hafa gert ráð-
stafanir til að hindra för forset-
ans, en þeir ætla að leggjast á
flugbrautina í veg fyrir þotu for-
setans.
Víðtækar ráðstafanir hafa ver-
ið gerðar til verndar forsetanum.
Munu lögreglumenn standa vörð
með tæpl. tveggja metra milli-
bili hina 10 km leið frá flugvell-
inum til keisarahallarinnar, en
þangað munu þeir Eisenhower
forseti og Hirohito keisari aka í
skotheldri bifreið. f lögreglulið-
inu verða um 20 þús. manns og
hefur lögreglan í Tókíó orðið að
fá liðsauka.
Formleg málaleitan
Stjórnarandstaðan' hefur farið
Framhald á bls. 23.
Úlfaldi gerður úr mýflugu
Engin hætta samfara eldflaugar-
brunanum
McGuire í New Jersey, 8. júni.
— (Reuter) —
YFIRMENN bandarísku eld-
flaugabækistöðvarinnar í Mc-
Guire tilkynntu í morgun, að
engin ástæða hafi verið til að
gefa út tilkynningu um
hættuástand í nágrenni bæki-
stöðvarinnar, þótt kviknað
hefði í eldflaugaskeyti af Bo-
marc-gerð, sem bar atóm-
sprengju í trjónunni.
Er rannsókn nú hafin á því,
hver eigi sökina á því að stór-
ýkt og villandi brunaköll voru
send út vegna íkviknunarinnar.
Komið hefur í ljós, að fyrsta
tilkynningin um að atómspreng-
☆
Flugliðsforingjarnir saka
ríkislögregluna í New Jersey
um að hafa vakið skelf-
ingu fólks að ástæðulausu
með opinberum tilkynninguin
um að atómsprenging hefði
orðið í bækistöðinni.
Uppspuni að Kínverjar
hafi klifið Everest
NÝJU DEHLI, 8. júní: —
Indverskir fjallgöngumenn
bera brigður á tilkynningu
Kínverja um að þeir hafi klif-
ið tind Mount Everest
norðan frá. Það sem gerir
frétt Kínverja sérstaklega tor-
tryggilega, er tímamarkið sem
þeir nefna, 25. maí, en á þess-
um degi geisaði blindhríð á
norðan á Mount Everest-
tindi, svo hörð að indverskur
fjallgönguflokkur, sem var
sunnan í fjallinu varð að gef-
ast upp við að klífa það. Má
þó nærri geta, að bylurinn
befur verið skæðari í norður-
hlíðinni, sem var áveðurs og
er mjög brött.
Fjallgöngumenn hafa bent
á það að fleira sé atnugavert
en þetta við tilkynningu Kín-
verja um sigurinn yfir Mount
Everest. T. d. segja Kínverj-
ar, að fjallagarpar þeirra hafi
komizt án súrefnisgeyma upp
á tindinn. Nepal-búinn Sherpa
Tensing, sem sigraði Mount
Everest fyrstur með Hiliary
1953 segir í þessu sambandi,
að það sé mögulegt fyrir mann
að standa hreyfingarJaus um
stund uppi á Everest tindi
án súrefnisgeymis, en aðeins
ef hann hefur mjög sterk
lungu, þrek, viljastyrk og er
vanur háfjallalofti. Hitt seg-
ir hann að sé gersamlega úti-
lokað að hreyfa sig án súrefn-
isinntöku í svo mikilli hæð.
Því fjarstæðukenndari er sú
fullyrðing Kínverja, að fjall-
göngumcnn þeirra hafi komizt
upp hina bröttu norðurhlíð
Everest *-án þess að hafa súr-
efni með sér.
Allt veldur þetta því, að
menn draga nú stórlega í efa,
jafnvel fortaka, að nokkur
stafur sé sannur í sigurhrósi
Kínverjanna.
ing hefði orðið kom í varúðar-
skeyti sem var sent með .fjarrit-
unartækjum" frá bækistöðvum
ríkislögreglunnar í New Jersey
í skeyti þessu sagði: „Sprenging
í atómsprengjuhleðslu. Enginn
særður. Höfum fengið tilkynn-
ingu frá Bomarc-stöðinni um að
sprengjuhleðsla í flugskeyti hafi
sprungið".
Yfirmenn flugstöðvarinnar
segja að í þessari tilkynningu sé
alltof mikið gert úr hættunni.
Fram. á bls. 2.
ÞESSI mynd var tekin af rúss |
neskum njósnatogara um 60
mílur undan strönd Long Is-
land í New York-fylki í Banda
ríkjunum. Hringsólaði hann
þá skammt frá bandariska
kjarnor'.trfkafbátnum George
Washington, sem þar gerði til-
raunir með Polarisflugskeytl.
Töldu Bandaríkjamenn, að á-
höfn togarans væri auk þess
að forvitnast um ganghraða
kafbátsins, hávaðann frá
skrúfunni o. fl. En útbúnað-
urinn á yfirbyggingu togar-
ans benti þó til þess, að meg-
inverkefnið væri að staðsetja
bandarískar ratsjárstöðvar og
finna bylgjultngdirnar, sem
notaðar eru í fjarskiptum
milli ratsjárstöðvanna.
Vesturveldin vilja:
Samhliða afvopnun
á öllum sviðum
GENF, 8. júní. (Reuter): — Vest-
urveldin gerðu Rússum það ljóst
í dag, að þau gæíu ekki fallizt
á kjarnorkuafvopnun, nema
henni fylgdi samhliða verulegur
niðurskurður venjulegs vopna-
búnaðar. Kom þetta fram í
ræðu sem Ormsby Gore fulltrúi
Breta flutti á afvopnunarráð-
stefnunni.
Bönn stoða ekki
Ormsby-Gore sagði, að það
væri fávíslegt að ætla að banna
kjarnorkuvopn á sama tíma og
stórveldi væru grá fyrir járnum
á sviði venjulegs vígbúnaðar. Ef
styrjöld brytist út, þá myndu
styrjaldaraðiljar neyta allrar
vísindaþekkingar sinnar til að
klekkja á andstæðingum, m. a.
hefja framleiðslu kjarnorku-
vopna. Þá stoðuðu engin bðnn.
Þess vegna kvað hann Vestur-
veldin vilja fremur stefna að
því með tillögum sínum, að
draga úr möguleikum á styrjald-
arrekstri yfirleitt, svo að ekki
kæmi til neinnar styrjaldar,
hvorki með atómvopnum né
venjulegum vopnum.
Eru það tillögur Vesturveld-
anna, að afvopnunarsamningur
verði gerður í fjórum liðum: 1)
Afvopnun í áföngum, 2) Komið
verði á jafnvægi í herbúnaði
hinna einstöku ríkja, svo að ekk-
ert sé öðru miklu öflugra, 3) Til
framkvæmda komi víðtækt eft-
irlitskerfi til að hindra undan-
brögð. 4) Reynt verði að draga
úr alþjóða tortryggni og afvopn-
un framkvæmd í réttu hlutfalli
við aukið traust þjóðanna.
Er Panchen Lama fangi?
Bomarc-flugskeyti eins og það
sem sprakk. —
N JU DELHI, 8. júní (Reuter): —
Bardagar tíbetskra uppreisnar-
manna og kínverskra kommún-
ista halda áfram í vestur og ausj-
ur Tíbet.
Segja indversk dagblöð, að
þrjú þúsund Kínverjar hafi fall-
ið eða særzt í aðalbardaganum,
sem varð milli 15 þús. tíbetskra
nýliða, sem teknir höfðu verið í
kínverska herinn og kínverskra
herflokka við Khamajong í vest-
ur Tíbet.
Indversk blöð hafa borið til
baka þær fregnir, að Panchen
Lama væri kominn til Indlands
og segja að hann sé enn í Lasha,
höfuðborg Tíbets, í strangri um-
sjón hinna kínversku stjórnenda.
The Hindustan Times, segir
þær fréttir frá indversku landa-
mæraborginni Kalimpong, að
þeir atburðir hafi orðið i Tibet
að kínverskir hermenn hafi ráð-
ist á liðsforingja sina og drepið
nokkra þeirra. Hafi þessir her-
menn síðan verið drepnir á flótta
í áttina til indversku landamær-
anna.
Bar ritstjóri blaðsins fram þá
uppástungu, að tíbetskir flótta-
menn i Indlandi yrðu þjálfaðir I
skæruihernaði ef kæmi tii árásar
Kínverja á Indlandi.