Morgunblaðið - 09.06.1960, Qupperneq 12
12
MORCUHBLAÐIÐ
Fimmtudagur 9. júní 1960
Útg.: H.f. Árvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: ASalstræti 6 Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 3.00 eintakið.
GRÓANDI JÖRÐ
f TM allt' ísland eru nú hlý-
indi og gróðrarveður. A
stöku stað er sláttur jafnvel
hafinn., Má segja, að sprettu-
horfur séu yfirleitt góðar og
víða ágætar.
Á undanförnum árum hef-
ur ræktuninni í sveitum
landsins fleygt fram. Túnin
hafa stækkað með hverju ár-
inu, sem leið. Af því hefur
síðan leitt sívaxandi fram-
leiðslu landbúnaðarafurða. JÞó
gerir íslenzkur landbúnaður
lítið meira en að fullnægja
þörfum þjóðarinnar sjálfrar
fyrir þessi hollu og nauðsyn-
legu matvæli. Við verðum að
vísu að flytja út nokkuð af
dilkakjöti.
En í ýmsum byggðarlög-
um við sjávarsíðuna er
árstíðarbundið mjólkur-
leysi og kartöflur og smjór
verður oft o{ einatt að
flytja inn.
Meira grænmeti
Efling íslenzks landbúnað-
ar er þess vegna þjóðarnauð-
syn. Sérstaklega ber að
leggja áherzlu á það, að gera
framleiðslu landbúnaðaraí-
urða fjölbreyttari. í því sam-
bandi má benda á, að fram-
leiðsla á ýmis konar græn-
meti er ennþá alltof lítil her
á landi. Segja má að hér riki
stöðugur grænmetisskortur,
Úr þessu er hægt að bæta
með aukinni hagnýtingu
jarðhitans í ýmsum lands-
hlutum, þar sem hverir og
laugar eru ennþá lítt hagnýtt-
ar. Framleiðsla góðs nauta-
kjöts er hér líka ennþá á
frumstigi. Svínaræktinni heí-
ur að vísu farið nokkuð fram
á síðustu árum. Engu að siö-
ur ætti svínarækt að geta
aukizt hér töluvert frá því
sem nú er.
"Vandamál
landbúnaðarins
En íslenzkur landbúnaðux
á við margvísleg Vandamál að
stríða. Um áratugaskeið heí-
ur verið slíkur fólksstraumur
úr sveitum landsins að stór
hluti íslenzkra bænda er 1
dag einyrkjar. Aukin ræktun
og vélanotkun gerir að visu
kleift að reka bú með miklu
færra fólki en áður. Engu að
síður hefur fólksfæðin haft
margvísleg óheillavænleg a-
hrif á landbúnaðinn. Hún
hefur skapað uppgjafar- og
einangrunarkennd hjá mörgu
sveitafólki, torveldað félags-
legt samstarf og ýmis konar
menningarstarfsemi í sveit-
um landsins.
Þá er þess heldur ekki að
dyljast, að sívaxandi dýrtíð á
undanförnum árum hefur
skapað bændum mikið óhag-
ræði. Vélar og tæki til bú-
skaparins hafa orðið svo dýr,
að fjöldi bænda rís naumast
undir að endurnýja tæki sin.
Ungum mönnum verður
einnig örðugra um vik að
hefja búskap, þar sem því fer
víðs fjarri að lánsmöguleikar
hafi vaxið í svipuðum hlul-
föllum og dýrtíðin hefur auk-
izt.
Þáttur Alþingis
Það Alþingi, sem nýlega
hefur lokið störfum, sýndi á
ýmsan hátt skilning sinn á
þörfum landbúnaðarins og
erfiðleikum bændanna. Þann-
ig beitti landbúnaðarráðherra
sér t.d. fyrir því að greitt er
verulega niður verðlag á er-
lendum áburði. Er bændum
að því töluverður stuðningur.
Þá var í þinglokin sam-
þykkt frumvarp frá Joni
Pálmasyni um breytingu á
landnámslögunum á þá lund,
að nýbýlastjórn er heimilt að
veita þeim bændum, er hafa
Örðugan fjárhag styrk til
íbúðarhúsabygginga á sama
veg og nýbýlastofnendum.
Efling veðdeildarinnar
Ennfremur var samþykkt
þingsályktunartillaga frá
Jónasi Rafnar og fleiri þing-
mönnum Sjálfstæðisflokks-
ins um eflingu veðdeildar
Búnaðarbankans, sem um
Iangt skeið hefur verið fé-
vana og engan veginn megn-
ug þess að gegna hlutverki
sínu.
Betra og fegurra land
Enda þótt íslenzkur land-
búnaður skipi ekki þann sess
í dag í atvinnumálum þjóð-
arinnar ,sem ha^in gerði á
liðnum öldum, er yfirgnæf-
ancú meirihluta íslendinga
það Ijóst, að framtíð þeirra
er ekki hvað sízt háð auk-
inni ræktun og blómlegum og
vel stæðum landbúnaði. Allir
íslendingar fagna því að sjá
land sitt gróa og verða betra
og fegurra með hverju árinu
sem líður.
Ræktunin er ekki aðeins
unnin fyrir það fólk, sem
býr í sveitum landsins.
Hún er unnin í þágu al-
þjóðar.
f':« m\\ ÚR HEIMI I
kipper skræk skrifar
sögu siglinganna
H. C. RÖDER, skipstjóri, hefur
nýlega fcngið styrki, m.a. frá
Þjóðminjasafninu danska, til að
Ijúka við að skrifa siglingarsögu
Dana frá 1894.
Röder skipstjóri er þekktur
maður í Danmörku. Hann hefur
til dæmis skrifað hókina „De
sejlede bare“, en þar er sagt frá
framlagi danskra sjómanna og
fiskimanna á styrjaldarárunum
síðustu. Á þeim árum misstu
Danir um 300 skip og með þeim
fórust um 2.000 sjómenn.
Þetta nýja verk hans fjallar um
örlagatíma danskra siglinga.
Breytt um stefnu
Röder gegndi sjálfur miklu
hlutverki í þeim harmleik, sem
þarna segir frá, og hófst þáttur
hans að morgni hins 9. apríl 1940.
Röder var þá skipstjóri á Tas-
mania, 9.000 lesta flutningaskipi
frá Orient útgerðarfélaginu. —
Þennan morgun var skipið statt á
Ermarsundi á leið til Aarhus,
þegar fréttir bárust um að Þjóð-
verjar hefðu hernumið Dan-
mörku. Danska útvarpið sendi
öllum dönskum skipum á höfum
úti opinbera áskorun um að sigla
þegar til hlutlausra hafna. En
Röder, eins og ráunar fleiri dansk
ir skipstjórnarmenn, /tók ekkert
mark á þeirri áskorun. Honum
var ljóst að þessi áskorun var
undan þýzkum rifjúm runnin,
breytti því um stefnu og sigldi
beint til brezkrar hafnar.
„Skipper Skræk“
Þegar í höfn var komið, gekk
Röder og áhöfn hans öll í lið
með Bretum og buðu þeim afnot
af skipinu. Var það þegið. Hinn
10. apríl um kvöldið ávarpaði
Röder í brezka útvarpinu danska
starfsbræður sína og skoraði á
þá að fylgja fordæmi hans. Fjöldi
skipstjóra fór að ráðum hans.
Seinna talaði Röder öðru hvoru
í brezka og bandaríska útvarpið,
og flutti þar mál bandamanna og
Danmerkur. Gerði hann það með
slíkum árangri að Þjóðverjar
tóku að veita þessum danska sjó-
manni eftirtekt, og skildu það að
hann gæti unnið málstað þeirra
mikið tjón.
Þýzka útvarpið gaf honum
nafnið Skipper Skræk. Var það
gert honum til niðurlægingar, en
varð þvert á móti tekið sem heið-
ursnafnbót. Nafnið hefur síðan
loðað við Röder skipstjóra, og
aukið á vinsældir hans.
En þessi mælski danski sjó-
maður lét sér ekki nægja að tala.
Hann hóf siglingar fyrir banda-
menn, og var í mörgum þeim
skipalestum, sem hart voru leikn
ar af þýzkum kafbátum.
11 á einni nóttu
Þrisvar lenti hann í bráðri lífs-
hættu, þegar skip hans annað
hvort lenti á tundurtufli eða var
hæft tundurskeyti.
Á einni af ferðum hans var
hann í skipalest með 41 skipi.
Helming þeirra sökktu þýzkir
kafbátar.
Fyrstu næturnar var tveim
skipum sökkt í hvert skipti —
síðustu nóttina, áður en í höfn
var komið, var ellefu skipum
sökkt. Síðasta skipið, sem sökkt
var, var Tasmania, skip Röders
skipstjóra.
Skipshöfnin komst ekki í bát-
ana og velktist í sjónum í marga
klukkutíma þar til þeim var
bjargað. Röder fékk annað skip
ANKARA, 3. júní. (Reuter). —
Cemal Gursel hershöfðingi, sem
tekið hefir völdin í Tyrklandi,
hélt í dag blaðamannafund í
skrifstofu þeirri, sem Menderes
fyrrum forsætisráðherra áður
hafði. Hann sagði að hann héldi
fast við þá ákvörðun að efna til
þingkósninga í landinu og
tryggja þa'nnig þingræði í land-
inu. Ekki kvaðst hann geta sagt
um það, hvenær kosningarnar
færu fram, en nefnd lögfræðinga
ynni nú að því að semja land-
inu nýja stjórnarskrá og kosn-
ingalög.
Gursel sagðist ekki geta sagt
um í einstökum atriðum hvaða
breytingar yrðu gerðar á stjórn-
arskránni, en það ei’tt væri vist,
að kosningalögunum yrði bréytt
verulega, — þannig að hlutfalls-
kosningar yrðu teknar upp í stað
einmenningskosninganna. Með
því er ætlunin að gefa fleiri
flokkum tækifæri til að komast
að. Allir flokkar eiga að vera
jafnréttháir, sagði hershöfðing-
inn.
II. C. Röder, skipstjóri.
og hélt áfram siglingum og út-
varpsúvörpum sínum til stríðs-
loka.
Nokkrura árum eftir stríð tók
Röder pokann sinn og fór í land.
Hafði hann þá verið til sjós í 52
ár, og var kominn yfir sjötugt.
Það var ekkert undarlegt þótt
þessi maður. fengj löngun til að
skrifa endurminningar sínar.
Fríhöfn og gufuskip
En hvers vegna að byrja frá-
sögnina árið 1894?
Jú, þá var Fríhöfnin í Kaup-
mannahöfn tekin í notkun, en
hún hafði ómetanlega þýðingu
fyrir siglingarnar. Það var einn-
ig á þessum árum, árin fyrir og
eftir aldamótin, að mestar breyt-
ingar urðu á skipunum. Segl-
skipin fóru að týna tölunni, en
gufuskip komu í staðinn. Þróun
siglinganna hefur haldið áfram
síðan, og er nú svo komið að
þær flytja Dönum árlega um 1600
milljónir (danskra) króna í er-
lendum gjaldeyri.
Þetta nýja ritverk verður í
tveim bindum, sem hvort um sig
er 400 síður. Þar verður meðal
annars ítarlega skýrt frá sigling-
um Dana í fyrri heimsstyrjöld-
inni, en það er kafli siglinganna,
sem aldrei hefur áður verið ritað
um að ráði.
Síðar í dag lagði Gursel blóm-
sveig á gröf Kemal Atatiirks í
hinu mikla grafhýsi hans í An-
kara. Múgur manns safnaðist
saman í kring til að hylla hers-
höfðingjann.
| 16,500
BERLÍN, 31. maí. — Yfir
16,500 A-Þjóðverjar flúðu til
V-Þýzkalands í maímánuði
og er það meiri fjöldi en í
nokkrum einstökum mánuði
síðan 1953. í maímánuði í
fyrra flúðu 8,100 A-Þjóðverj
ar. Það sem af er árinu hafa
54,000 manns frá A-Þýzka-
landi flúið yfir til V-Þýzka-
lands og segja forystumenn
þeir, sem fara með málefni
flóttamanria í V-Berlín, að
þessi aukning eigi aðallega
rætur sínar að rekja til þess,
að a-þýzk stjórnarvöld hafa
nú byrjað allsherjarbaráttu
fyrir því að samyrkjufyrir-
komulagið verði allsráðandi
i í landbúnaði austur þar.
11 á einni nóttu.
Hlutfallskosningum
komið á í Tyrklandi