Morgunblaðið - 10.06.1960, Page 1
24 síður
Eisenhower
í lífshættu?
ef hann kemurtil Japan
Tókíó, Formósu, London, 9. júní
— (Reuter) —
STJ ÓRNARANDSTAÐ AN,
jafnaðarmenn, hefur lýst þvi
yfir, að hún muni beita valdi,
ef nauðsyn krefji, til að koma
í veg fyrir, að framlenging
varnarsamningsins milli Jap-
ans og Bandaríkjanna verði
samþykkt í þinginu. Þegar
hafa 125 þingmenn flokksins
í neðri deild sagt af sér þing-
mennsku og jafnaðarmenn
sækja ekki fundi hinnar sér-
dvelst í og sendiráð Bandaríkj-
anna.
Þingmaður stjórnarflokksins
segir af sér
Einn af þingmönnum stjórnar-
flokksins hefur sagt af sér þing-
mennsku á þeim grundvelli, að
sem sannur Búddhatrúarmaður
geti hann ekki verið samþykkur
varnarsamningnum.
Kishi, forsætisráðherra, sagði
í sjónvarpsviðtali í dag, að mis-
munandi skoðanir stjórnmála-
flokkanna ætti að ræða í þing-
inu, en ekki með hávaða utan
Fiam. á bls. 2.
stöku nefndar efri deildarinn-
ar, sem fjallar um málið.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið, að
lokaatkvæðagreiðsla um málið
fari fram 15. júní og það verði
tekið til endanlegrar afgreiðslu
í efri deild þingsins þann sama
dag.
Stjóm hinna vinstri sinnuðu
stúdentasamtaka hefur ákveðið
að fylgja dæmi verkalýðsfélag-
anna og safnast saman til mót-
mælafundar fyrir framan þing-
húsið 15. júní, er atkvæðagreiðsl-
an fer fram. En gert er ráð fyrir
að um 20 þús. meðlimir verka-
lýðsfélaga verði saman komnir
á mótmælafundi, þegar Hagerty
biaðafulltrúi Eisenhowers kem-
ur til Japan.
Verða mótmælafundir fyrir
framan gistihúsið, sem hann
ÆT
Island'
fapadi
0:4
Sjá íþóttir, bls. 22.
Er Suslov
völdin af
t
T
t
t
t
t
♦!♦
HARRISON E. Salisbury,
einn kunnasti fréttamaður
New York Times, hefur ritað
grein í blað sitt, þar sem hann
segir, að ástæðan fyrir reiði-
köstum Krúsjeffs upp á síð-
kastið sé mjög hörð valdabar-
að hrifsa
Krúsjeff?
Mikhail Suslov.
Argenfírm heimtcn
Eichmarm aftur
TEL AVIV, 9. júní (Reuter) —
Ríkisstjórn Argentínu hefur harð
lega mótmælt brottflutningi
nazistaforingjans Adolfs Eich-
manns og krafizt þess, að honum
verði skilað áftur. Segist stjórn-
in ella kæra málið til Sameinuðu
þjóðanna.
ísraelsmenn segja, að tilkynn-
ing Argentínu hafi komið þeim
mjög á óvart. Sagði talsmaðui
stjórnarinnar í kvöld, að orðsend
ing Argentínu yrði athuguð
gaumgæfilega og rædd á stjórn-
arfundi á laugardag.
Sendiherra Argentínu í fsrael,
Rodolfo Arias, hefur verið kall-
aður heim, en utanríkisráðuneyti
Argentínu neitar pð uppiýsa
hvort það er fyrir fullt og allt
ða einungis skemmri tíma.
Dagblaðið Maariv í fsrael sagði
Framh. á bls. 2.
átta í Kreml. Úrslita í þessari
baráttu telur hann þó ekki að
vænta fyrr en eftir nokkrar
vikur eða mánuði.
Salisbury segir, að höfuðand-
stæðingur Krúsjeffs í deilunum
sé stalinistinn Mikhail Suslov, en
honum hefur tekizt að aúka svo
áhrif sín að hann hefur nokkrum
sinnum haft meirihluta mið-
stjórnar kommúnistaflokksins
sigrar
Nixon
Brown í próf-
kosningum
SAN FRANCISCO, 9. júní (NTB)
Það virðist styrkja Nixon vara-
forseta mjög í forsetakosningun-
um sem framundan eru, að hann
hefur unnið sigur yfir Brown
foringja demokrata í Kaiiforníu.
I prófkosningum sem fram fóru
í gær í fylkinu, hefur Nixon feng
ið 966 þús. atkvæði en Brown
875 þús. Kemur þetta mönnum á
óvart því að skammt er liðið
síðan Brown vann frægan kosn-
ingasigur í ríkisstjórakosningum
í Kaliforníu. Sigur Nixons verð-
ur þó ekki eins mikill þegar það
er athugað, að annar demokrati
hefur hlotið 411 þús. atkv. og er
heildaratkvæðatala demokrata
því enn talsvert hærri en at-
kvæðatala Nixons. Tölur þessar
voru ekki endanlegar. Eftir var
að telja í nokkrum kjördeildum
en og ekki við því að búast að
hlutföllin breyttust.
Landvarnir í góðu lagi
WASHINGTON, 9. júní. Reuter:
Eisenhower kallaði nokkra helztu
foringja republikanaflokksins á
sinn fund í Hvíta húsinu í morg-
un vegna ýmissa ummæla Nelson
Rockefellers í gær, þar sem hann
gagnrýndi landvarnarstefnu
Eisenhowers.
Eftir fundinn sagði Eisenhow-
er, að hann væri þess fullviss, að
landvarnir Bandaríkjanna væru
í góðu lagi.
f
t
f
T
T
t
f
❖
með sér í andstöðu við Krúsjeff.
Telur greinarhöfundur, að Krús-
jeff sé orðinn svo hræddur við
stalinistana, að hann þori ekki
annað en taka meira tillit til
stefnu þeirra.
Örðugleikar Krúsjeffs virðast
hafa farið vaxandi síðustu man-
uði og telur Salisbury, að fyrstu
merki um verulegan ósigur
Krúsjeffs hafi verið þegar nán-
asta samstarfsmanni hans og
vini, Aleksei Kirichenko var vik-
ið úr miðstjórn kommúnista-
flokksins. Einnig telur Salisbury
sýnt, að Mikoyan hafi misst
áhrif og telur hann ýmis rök
benda til þess, m. a. nokkur um-
mæli Krúsjeffs.
Þúsundir stúdenta og ann-
arra andstæðinga vamar-
samningsins milli Japans og
Bandaríkjanna, söfnuðust
fyrir nokkru saman og sett-
ust á götuna fyrir framan
hús Kishis forsætisráðherra.
Þeir kröfðust þess að hann
segði af sér og varnarsamn-
ingnum yrði sagt upp.
Er myndin tekin þar sem
lögreglumenn em að reyna
að telja stúdentana á að fara
burt. Þegar þeir tóku ekki
óskir lögreglunnar til greina
voru þeir fjarlægðír með
valdi.
Ný stjórnarskrá
ANKARA, 9. júní. (Reuter): —
Bráðabirgðastjórnarskrá hefur
verið lögð fyrir forseta Tyrk-
lands, Gursel hershöfðingja og á
hann að hafa sam.þykkt stjórnar-
skrána fyrir 13. júní.
Einstök atriði stjórnarskrárinn
ar verða ekki tilkynnt fyrr en
hún hefir verið samþykkt.
Kommúnistaflokkurinn
sömu skoðunar og
Hendrik Ottósson
Þióðviljinn segir ,,herndmssinna með
Mbl. í broddi fylkingar" hóta löndum
sínum morði!
I
í GÆR undirstrikari Þjóðvilj-
inn hin alræmdu ummæli
Hendriks Ottósonar á dögun-
um um það, að ekkert væri
athugavert við það, þótt
Rússar réðust á Island og
dræpu þriðjung landsmanna.
Um þetta mál skrifar blaðið
bæði á útsíðu og í Ieiðara og
finnst allt gott og blessað við
skoðanir Hendriks.
Þjóðviljinn er jafnvel sínu
hraustlegri en Hendrik, því
að hann segir: „Þeir einu ís-
lendingar, sem hóta löndum
sínum morði með athöfnum
sínum, eru hernámssinnar
með Morgunblaðið í broddi
fylkingar“.
Þar með hefur Þjóðviljinn
opinberlega játað, að Hendrik
talaði í nafni kommúnista-
flokksins eða a. m. k., að
flokkurinn taki undir ummæli
hans og geri þau að sínum.
Þá hafa menn það svart á
hvítu. Stefna kommúnista-
flokks tslands er hin sama og
kommúnistaflokka allra ann-
arra landa. Allir glæpir eru
réttmætir, ef þeir þjóna þeim
göfuga tilgangi að útbreiða
kommúnismann, þar á meðal
árás á íslendinga, þótt hún
kostaði þriðjung þeirra lífið.