Morgunblaðið - 22.06.1960, Qupperneq 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 22. júni 1960
Mikil andstaða gegn
dragnótaveiðum
Akvörðun um hvort þær skuli leyfðar
í landhelgi tekin á nœstunni
S J AVARÚTVEGSMÁLARA» -
HERRA athugar nú áiitsgerðir
víðs vegar að af landinu um það,
hvort leyfa beri ðragnótaveiði
innan fiskveiðilögsögunnar, og er
búizt við úrskurði um það efni
siðdegis í dag.
Eins og kunnugt er getur ráð-
herra, samkvæmt tillögum fiski-
deildar atvinnudeildar háskólans
og Fiskifélags íslands, ákveðið
fyrir eitt ár í senn, að dragnóta-
veiði sé heimil á tilteknum svæð-
um og ákveðnum tíma. í lögun-
um segir þó, að „áður en gerðar
eru tillögur um opnun einstakra
veiðisvæða, skal Fiskifélag ís-
lands leita álits sveitarstjórna og
annarra aðila, sem hagsmuna
•hafa að gæta á viðkomandi veiði-
svæði. Berist álitsgerðir, skal
ráðherra óheimilt að opna veiði-
svæði eða hluta þess, nema álits-
gerðirnar styðji almennt þá
framkvæmd".
Þess vegna þurfti Fiskifélagið,
áður en það gat gert tillögur til
ráðherra, að leita álits „sveitar-
stjórha og annarra aðila, sem
hagsmuna hafa að gæta“. Lögin
taka það ekki skýrt fram, hverjir
þessir aðrir aðilar" eru, en Fiski-
félagið mun hafa leitað álits
bæjarstjórna, hreppsnefnda, út-
vegsmanna, sjómannafélaga og
fiskvinnslufélaga. Ekki er ljóst,
hvað átt er við með orðunum
„nema álitsgerðirnar styðji al-
mennt þá framkvæmd", því að
einstakir hagsmunahópar innan
sama byggðarlags geta að sjálf-
sögðu haft mismunandi skoðanir
á þessu máli. Virðist ráðherra því
þurfa að skera úr því, hvað sé
„almennt". í slikum tilvikum.
Samkvæmt laganna hljóðan sýn-
ist ráðherra hins vegar vera
heimilt að leyfa dragnótaveiðar
á miðum, ef engar álitsgerðir
berast frá þeim byggðarlögum,
er þar teljast eiga hagmuna að
gæta.
Blaðið átti i gær viðtal við
Fiskifélag íslands og sjávarút-
vegsmálaráðuneytið, en gat ekki
fengið upplýsingar um efni álits-
gerðanna, sem munu vera mjög
margar. Hins vegar mun efni
þeirra vera mjög á eina lund,
samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið hefur aflað sér annars
staðar frá, og vilja langflestar
ekki leyfa veiðarnar, einkum
þar, sem trillubátaútvegur stend-
ur með blóma. Fyrir norðan og
vestan munu mótmæli hafa verið
samþykkt í flestum byggðarlög-
um, en fyrir sunnan mun helzt
hljómgrunnur fyrir opnun.
Mótmæli hafa m. a. borizt frá
þessum aðilum: Bæjarstjórn
Húsavíkur, bæjarstjórn Siglu-
Nýtt met
í íyrrakvöld
BELGfSKI hlauparinn Mo-
ens, gestur KR á frjáls-
íþróttamóti þeirra er hefst
í kvöld, kom til fslands í
gærkvöldi. Við komuna
upplýstist að hann hefði
kvöldið áður sett belgiskt
met í 1500 m hlaupi, 3:41,6
mín. — Ekki minnkar þessi
ágæti árangur áhuga fólks
fyrir mótinu í kvöld og
annað kvöld.
Erfitt sjúkraflug
AKUREYRI, 21. júní. — Klukk-
an rúmlega 7 í morgun spurðist
flugturninn i Reykjavík fyrir um
hvort Tryggvi Helgason sjúkra-
flugmaður hér í bæ gæti tekið að
sér sjúkraflug til Hellissands á
Snæfellsnesi, tekið þar konu í
barnsnauð og flutt til Reykja-
víkur. Tryggvi lagði af stað laust
fyrir kl. 8 og var þá bjart og gott
veður hér. En er sunnar dró versn
aði veðrið og varð að fljúga Í7000
feta hæð, blindflug í 6—8 vind-
atigum. Var þá stefnan sett á
radíóvitann á Malarrifi. Yfir
Grundarfirði lækkaði Tryggvi
flugið og komst á sjónflugi það-
an til Hellissands.
Þar var þá komin hin sjúka
kona, en hún hafði verið flutt
frá Ólafsvík. Með henni var hér-
aðslæknirinn svo og eiginmaður
hennar og fóru þeir báðir með
til Reykjavíkur. Frá Hellissandi
var flogið í 10.000 feta hæð al-
gert blindflug og lent í Reykja-
vík laust fyrir kl. 11. Þess má
geta að Keflavíkurflugvöllur var
algerlega lokaður í dag vegna
veðurs og mjög léleg flugskil-
yrði í Reykjavík allt fram að há-
degi. Næstu varaflugvellir á
1
l /' NAIShntítr 1 / SV50hnútar K Sn/iitma * ÚSi *■■ 7 Stírk R Þrumar WSs, KMuM ZS MHttki! H HmS I L*Lma»\
þessari Ieið voru
eða Akureyri.
Sauðárkrókur
St. E. Sig.
fjarðar, hreppsnefnd Hólahrepps
(Bolungarvík), verkalýðsfél. og
hreppsnefnd Patreksfjarðar, bæj
arstjóm og sjómannadeild Verka
lýðs- og sjómannafél. Akraness,
Hreppsnefnd og Verkalýðs- og
sjóm.fél. Miðnesshrepps.
Meðmæli hafa hins vegar bor-
izt frá Vestmannaeyjum, ísa
firði og bæjarstjórn Keflavíkur.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur mótmælti aftur á
móti dragnótaveiðunum með tæp
um meirihluta.
SAMKVÆMT áætlun Ferðadeild
ar Heimdallar verður farin ferð
í Landmannalaugar n.k. laugar-
dag kl. 2 frá Valhöll við Suður-
götu. Ekið verður sem leið Iigg-
ur um Dómadal í Laugarnar. Á
sunnudag verður farið í göngu-
ferðir um nágrennið, gengið á
Blálhnjúk, skoðaðir brennisteins-
hverirnir, Námuhraun o. fl. Kom-
ið verður til Reykjavíkur að
kvöldi sunnudags. Þátttaka til-
kynnist skrifstofu Heimdallar í
Valhöll fyrir fimmtudagskvöld,
sími 17102.
Iþróttavika Frjálsíþróttasambandsins stendur nú yfir. — Hún
miðar að því að allir, hvar í starfi eða stétt sem þeir standa,
reyni sig og hljóti stig fyrir byggðarlag sitt. Allir fullfrískir,
konur og karlar, eiga að geta hlotið stig. Farið á Melavöllinn
í dag og á morgun kl. 5—7 og reynið. — Myndin sýnir Svein
Jónsson, v. innh. knattspymulandsliðsins, reyna sig. Hann er í
sínu bezta vesti og næst beztu skóm. Það þarf engan undirbún-
ing, enga æfingu. Bara reyna — og afla byggðarlaginu stiga.
Húsnæðismálastjórn hefur
ráðstafað 250 milljónum
Óhagsýni íbúðarhúsnæðis hvergi
meiri en á Islandi
FORMAÐUR húsnæðismála-
stjórnar, Eggert G. Þorsteins-
son, alþm., flutti yfirlit um
störf húsnæðismálastj órnar í
fréttaauka Ríkisútvarpsins á
mánudagskvöldið.
Gat hann þess í upphafi máls
síns, að samkvæmt skýrslu,
gerðri af starfsmanni Tækniað-
stoðar Sameinuðu þjóðanna,
teldust íslendingar til þeirra
þjóða, sem mest óhóf eða óhag-
sýni virtust hafa um nýtingu
íbúðarhúsnæðis, þrátt fyrir mjög
hátt hlutfall fjár til íbúðabygg-
inga miðað við verðmæti þjóðar-
framleiðslu.
Formaðurinn gat um hlutverk
húsnæðismálastofnunarinnar og
ræddi nokkuð þau skilyrði, sem
stofnunin setur til lánveitinga.
Benti hann á að vanræksla eða
athugunarleysi í þéssum efnum
gæti útilokað menn frá Iánveit-
ingu.
Það er viðurkennt, sagði ræðu-
maður, að íslenzkir bygginga-
menn hafa þegar komizt í
fremstu röð starfsbræðra sinna
í öðrum löndum, um vandaðar
og fullkomnar íbúðir. Hinn vand-
inn er óleystur, hvemig hagnýta
má betur það húsrými, sem
byggt er og þær stóru fjárhæðir,
sem til þeirra er varið.
Kvað formaður húsnæðismála-
stjórnarinnar stofnunina heita á
F Y RIR vestan og norðan N-land tii A-fjarða og N-
land er grunn lægð, en hæð mjg A-miða: S- og SV-gola,
yfir Bretlandseyjum.
Veðurhorfur ki. 1« víða léttskýjað en hætt við
I gærkvöldi: fjallaskúrum síðdegis.
SV-land til Vestfjarða og SA_land SA.mið; sv_
SV-mið til Vestfjarðamiða: ,................
S-gola eða kaldi, rigning öðru kaldi, skýjað, dáhtil rigning
hverju. eða súld vestan til.
Athugasemd
Herra ritstjóri.
f GREIN þeirri, sem Göngugerpla
kallast og birt er í Morgunblað-
inu í dag, segir frá því, að til
áreksturs hafi komið milli bíl-
stjóra eins og þeirra, sem Kefla-
víkurgönguna fóru. Skal sá at-
burður hafa gerzt á mótum Ing-
ólfsstrætis og Bankastrætis. —
Segir orðrétt í greininni: „í þessu
bar þarna að barnakennara og
rithöfund og kallaði hann: —
Dragið helvítið út og drepið
hann!“. Þar sem ég er barna-
kennari og rithöfundur og var
auk þess i göngunni síðasta spöl-
inn, geri ég ráð fyrir, að margur
muni álíta, að þarna sé átt við
mig og æði herskár hafi ég þá
verið orðinn. Liggur nærri, að
ég sé farinn að ímynda mér
þetta sjálfur, en móti því mælir
það, að ég sá aldrei umræddan
bíl og kom honum hvergi nærri.
Þau einu afskipti, sem ég hafði
af bíl í umrætt sinn, gerðust á
öðrum stað og veit ég, að bíl-
stjórinn í þeim bíl mun bera
mér dálítið aðra sögu en hér er
látið liggja að.
Þökk fyrir birtinguna.
21. 6. 1960.
Stefán Jónsson.
*
Það skal tekið fram að sá, sem
getið er um í frásögn Morgbl.,
er ekki Stefán Jónsson.
alla þá sem að byggingarmálum
ynnu til samvinnu um hag-
kvæmustu lausn þessara mala
með hagsmuni þjóðarheildarinn-
ar og einstaklinganna fyrir aug-
um.
Á þeim fimm árum, sem hús-
næðismálastjóm hefur starfað,
hefur verið ráðstafað 250 millj.
króna til íbúðabygginga og eru
þá ekki meðtaldar þær 15 millj.
sem nú er verið að ráðstafa til
landsins alls.
Fersk síld á Þýzka-
landsmarkað
TOGSKIPIÐ Margrét hefir verið
að lesta hér í dag ferska síld af
fiskimiðunum og mun flytja
hana ísvarða út til Þýzkalands.
Skipið tekur um 1000 tunnur. Er
hér um nýjan útflutning sjávar-
afla að ræða. Síldin veiddist við
Kolbeinsey í nótt. — Guðjón.
Bjargaði '<
bát og nót
SIGLUFIKBI, 21. júni. — Vél-
skipið Áskell var í morgnn á
leið af miðunum frá Kolbeins
ey og átti eftir tveggja tima
siglingu inn til Siglufjarðar.
Hvessti þá snöggt af suðvest-
an og bátur og nót sökk. Gátu
skipverjar halað inn nótina,
sem föst var í bátnum, en
þegar hann sökk flaut kork-
teinninn upp og náðist í hann
og var því hægt að hifa inn
nótina en hanafætumir voru
skornir frá bátnum, er upp
kom. Báturinn var fastur á
fangalínunni og náðist hann
upp á hvolfi, en kastakkeri
var komið undir byrðing hans
og rétt við á bómunni. Þannig
kom Áskell með alla útreið
sina heilu og höldnu að landi
og þykir það nær einstakt
happ, þar sem svo illa var
komið. — Guðjón.