Morgunblaðið - 22.06.1960, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.06.1960, Blaðsíða 4
4 MORCVISBLAÐIÐ Miðvikudagur 22. júní 1960 Fatapressa Gufu-pressa óskast til kaups. Tilboð leggist á afgr. Mbl., fyrir þriðjudag, n.k., merkt: „3785“. Sveit. — Stálpuð telpa óskast til snúninga á sveita bæ, á Austurlandi. Ekkert kaup. Uppl. í síma: 34832. 2ja—3ja herb. íbúð óskast 1—2 mánuði. Reglusemi. — Góð umgengni. Upplýsing- ar í sima 16528. Keflavík Herbergi óskast til leigu. Upplýsingar í sima 2397, kl. 6—8 e.h. íbúð 2ja—3ja herb. 'íbúð óskast til leigu. — Upplýsingar í síma 24986. Timbur Vil láta 1 bíl-hlass af 2x4’’ fyrir borðvið. — Upplýs- ingar í síma 35733. ELNA-saumavél og 2 hnakkar til sölu. Upp- lýsingar í síma 12363. Duglegir verkamenn óskast. — Steinstólpar h.f. Höfðatúni 4. — Sími 17848. Kaupakona Kaupakona óskast í 2 mán- uði. — Uppl. í síma 35097. 2—3 herb. og eldhús óskast til leigu. — Upplýs- ingar í síma 50855. Eldri gerð af Pedigree barnavagni til sölu. — Uppl. í síma 16089. Keflavík 2 herbergi og eldhús til leigu. Uppl. í síma 1197. Vil kaupa notað mótatimbur. — Upp- lýsingar í síma 23440. Telpa, 11—12 ára óskast strax til barnagæzlu hluta úr degi. Simi 13091. Mótatimbur óskast Sími 32855. í dag er miðvikudagurinn, 22. júní. 173. dagur ársins. Árdegisflæði kl. 04:20. Síðdegisflæði kl. 16:42. Slysavarðstofan ex opin allan sólar- hringinn. — Læknavörður L.R (fyrir vitjaniri. er á sama stað kl. 18—8. — Sími 15030. Vikuna 18.—24. júní verður nætur- vörður í Vesturbæjarapóteki. Næturlæknir í Hafnarfirði: — Eirík- ur Björnsson, sími 50235. Holtsapótek og Garðsapótek eru opin alla virka daga kl. 9—7 og á sunnudög- um ki. 1—4. Frá Barnaheimilinu Vorboðinn: — Börnin, sem eiga að verða á vegum Vorboðans í Rauðhólum í sumar, eiga að fara úr bænum föstudaginn 24. júní kl. 1:30 eftir hádegi frá Austurbæjar- barnaskólanum. Farangur barnanna komi á sama stað fimmtudaginn 23. júní kl. 10 fyrir hádegi. Félagar í Hjúkrunarfélagi íslands! — Tilkynnið þátttöku ykkar í ferðalög- unum í sambandi við mót norrænna hjúkrunarkvenna í síma 11448. Leiðrétting: — I frétt blaðsins í gær frá þjóðhátíðahöldunum á Akureyri misritaðist nafn fréttamannsins. Þar átti að standa Stefán E. Sigurðsson. Er hann beðinn velvirðingar á þessum mistökum. Frá skrifstofu borgarlæknis: — Far- sóttir í Reykjavík vikuna 29. maí til 6. júní, samkvæmt skýrslum 40 ( 46) starfandi lækna: Hálsbólga .............. 114 (91) Kvefsótt ............... 112 (97) Iðrakvef ................ 22 (22) Influenza ............ 10 ( 5) Hvotsótt ................ 2(2) Kveflungnabólga ......... 8 (15) Rauðir hundar ........... 2 ( 0) Munnangur ............... 4 ( 0) Hlaupabóla .............. 6 (14) Söfnin Árbæjarsafn: Opið daglega nema mánudaga kl. 2—6 e.h. Minjasafn Reykjavíkurbæjar Skúla- túni 2. Opið daglega kl. 2—4 e.h. nema mánudag. Látið ekki safnast rusl eoa eimsai- ganga kringum hús yðar. Kvenfélag Laugarnessóknar fer inn á Þórsmörk 29. júní. Gefið ykkur fram sem fyrst í síma 3-27-16 eða Kirkju- teig 23. Senn kemur vorið og sumarið blíða senn fara lömbin að hlaupa um mó; senn munu lifna í lautunum hlíða litfögur blómin, sem huldust af snjó; senn verður riðið um rennslétta grund reiðskjótum vökrum; þá fagnaðarstund lifnar allt, sem að vettlingi veldur, veturinn tekur að hrista af sér; við skulum þá ekki, Helga mín, heldur horfa í för að tína okkur ber. Jón Þorleifsson, prestur: Vorvísa, til lítillar stúlku. Lárétt: — 1 skepnuna — 6 fljót ið — 7 sambúðarslit — 10 íþrótta ráð — 11 ískra — 12 frumefni — 14 titill — 15 hnepptur í fjötra — 18 hópnum. Lóðrétt: — 1 kofana — 2 hafir hendur í hári — 3 blett — 4 í húsinu — 5 iðar — 8 heimting — 9 ávextir — 13 ennþá — 16 burt — 17 fangamark. FRÉTTAMAÐUR MbL hitti að máli Hörð Sigurgestsson, stud. oecon., en hann er hótelstjóri sumargistihúss stúdenta, Hótel Garðs. Þar sem slík starfsemi stúdenta er alger nýjung hér á landi, fór fréttamaðurinn þess á leit að fá að leggja nokkrar spurningar fyrir Hörð. — Þekkist það erlendis, að stúdentar reki vetrarheimili sin sem hótel á sumrin? — Á Norðurliöndum a. m. k. hafa þeir gert það um nokk- urra ára skeið, og þykir það hafa gefizt vel- Ég fór utan fy.Mr nokkru og kynnti mér Htils háttar þess háttar rekst- ur og leizt vel á. — Voru menn ekki vantrú- aðir á, að slík tilraun tækizt hér? — Jú, blessaður vertu, bæði stúdentar og g; ^ stjórn höfðu lengi vel enga trú á því, að þetta gæti borgað sig. En sl. vetur voru þeir Óiafur Egils- son, stud. jur., Styrmir Gunn- arsson, stud. jur. og Jón Böðv- arsson, strud. mag. kosnir í nefnd til þess að rannsaka málið. Þeir unnu mjög gott starf, og á grundvelli athug- ana þeirra, sem framkvæmd- ar voru í samráði við kunn- áttumenn, var loks ráðizt í þetta, eftir að garðstjórn hafði veitt samþykki sitt. — Hvert á ágóðinn af rekstr inum að renna? — Væntanlega til endur- bóta á görðunum og til þess að reisa nýjan. — Áttuð þið ekki við ýmis vandamál að glíma í byrjun? — Jú, en vegna ósérhlífnis starfs ýmissa slúdenta, eink- um fyrrgreindra nefndar- manna, hefur rætzt úr þeim. — Hvernig gengur reksóur- inn? — Hann gengur framar von um. T.d. er nú allt hóteirými frátekið mestan hluta júlí og ágústs. Annars vil ég gjarnan koma því hér að, að Islend- ingar virðast ekkj kunna þann sjálfsagða hlut að panta her- bergi fyrirfram. Þeir koma bara blaðskellandi með allt sitt hafurtask og vilja flytja inn á stundinni. Langflestir gesta okkar í sumar verða út- lendingar, sem hafa tryggt sér herbergi áður. — Fá ekki margir stúdentar atvinnu við hótelið? — í sumar eru þeir átta tals ins. í því sambandi mætti minna á það, að á sumrin fer saman ferðamannastraumur útlendinga og atvinnuþörf stúdenta. í framtíðinni gæti því vel komið til greina, að stúdentar öfluðu sér almennt sumartekna með starfrækslu hótels' og ferðaskrifstofu. — Vegna tungumálakunnáltu stúdenta og annarrar mennt- unar ættu þeir að vera sjálf- kjörnir til þess að greiða fyr- ir útlendum ferðamönnum. — Ennþá er þetta náttúrlega ekki annað en hugmynd. — Okkur finr, t þetta snjöll hugmynd og vonum, að hún verði einhvern tíma að veru- leika. JÚMBÓ — Á ævintýraeyjunni — Teikningar eftir J. Mora En við hliðina á sólhlífinni stóð gömul kista. — Hvernig í ósköpunum hefur hún nú komizt hingað? sagði Júmbó undrandi. —• Hana hlýtur bara að hafa rekið á land, meðan við vor- um í burtu, hélt Mikkí. Þau flýttu sér að opna kistuna og gá í hana. Þar voru alls konar verk- færi — og pönnur og pottar.... — Ja, það má nú segja, að við erum alltaf skrambi heppin, Mikkí, tautaði Júmbó og hristi höfuðið frá sér numinn. — Hér er bara allt sem tveir skip- brotsmenn geta óskað sér .. ..sjáðu, hérna er meira að segja færi með öngli! Nú skaltu svo sannarlega fá eitthvað að borða, Mikkí — nú fer ég að veiða fisk! Jakob blaðamaður Eftir Peter Hoffman — Jóna, þú getur elcki farið svona frá blaðinu! — Jú, það get ég! Og ég hef þegar gert það, Jakob! Vegna þess að það ætti að reynast mjög hagsælt að vinna fyrir Rod Derrick! Nokkru síðar, í bankanum.... — Hvað óskið þér að leggja mikið inn, herra Derrick? — O, aðeins smaræði! Eigum við að Begja 50.000 dollara?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.