Morgunblaðið - 22.06.1960, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.06.1960, Qupperneq 16
16 HÍORGVlSBf. AÐIÐ Miðvikudagur 22. iúní 1960 Aðalskoðun bifreiða í Kjósasýslu og Hafnarfirði 1960 Aðalskoðun bifreiða í Kjósarsýslu og Hafnarfirði fer fram sem hér Fimmtudaginn segir: 30. júní Við barnaskólann á Seltjarnarn. Föstudaginn 1. júli Við Hlegarð, Mosfellssveit. Þriðjudaginn 5. — — Miðvikudaginn 6. — — Miðvikudaginn 13. — Hafnarfirði Fimmtudaginn 14. — — Föstudaginn 15. — — Þriðjudaginn 19. — — Miðvikudaginn 20. — — Fimmtudaginn 21. — — Föstudaginn 22. — — Þriðjudaginn 26. — — Miðvikudaginn 27. — — Fimmtudaginn 28. — — Föstudaginn 29. — — Miðvikudaginn 3. ágúst — Fimmtudaginn 4. — — Föstudaginn 5. — — Þriðjudaginn 9.— — Miðvikudaginn 10. — — Fimmtudaginn 11. — — Föstudaginn 12. — — Skoðunin fer fram við Álfafell í Hafnarfirði. Biíreióaskoðunin fer fram ofangreinda daga frá kl. 9—12 og 13—16:30. Við skoðun ber að greiða bifreiðaskatt og sýna skilríki fyrir því að lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi og fullgild ökuskírteini skulu lögð fram. Vanræksla á að færa bifreið til skoðiinar á áður aug- lýstum tíma varðar ábyrgð skv. umferðalögum nr. 26 1958 og verður bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Geti bifreiðaeigandi eða umráðamaður bifreiðar ekki - fært hana til skoðunar á áður augiýsium tíma, ber honum að tilkynna það bréflega. Athygli er vakin á því, að umdæmismerki bifreiða'skulu vera vel læsileg og er því þeim, er þurfa að endurnýja númeraspjöld bifi eiða sinna ráðlagt að gera svo nú þegar. Þeir sem hafa útvarpsviðtæki í bifreiðum sinum skulu við skoðun sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalds. Kigeudur reiöhjóla með hjálparvél eru sérstaklega áminntir um að færa reiðhjól sín til skoðunar. Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn í Hafnarfirði og Gullbringu- og Kjós- arsýslu, 20. júní 1960. BJÖRN SVEINBJÖRNSSON settur. Til leigu 150 ferm. hæð í nýju húsi. Tilvalið fyrir skrifstofu eða léttan iðnað. Upplýsingar í síma 22970. Þakmálning Gluggamálning Japanlakk Allir litir Hörpusilki Litirnir lagaðir af fagmanni. Málningarverzlun PÉTURS HJALTESTED Sími 1-57-58. Ath.; Góð bílastæði. Stefán Júlíusson: Sólarhringur. Skáldsaga — 174 bls. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1960. NÝ, uppvaxandi kynslóð er dýr- mæti hverrar þjóðar. Á henni byggist framtíð lands og þjóðar. Og því minni sem þjóðin er þeim mun meira dýrmæti er æskufólk- ið. íslenzku þjóðinni er því tals- verður vandi á höndum. Ef ein- hver maður ætlar að koma sér upp fögrum garði þá gerir hann það ekki með hirðuleysi. Jafnvel hinum fegursta garði þarf að vaka yfir öllum stundum, ella treðst hann í svaðið á skömmum tíma. Eftir standa aðeins hinar sterkustu og harðgerðustu jurtir og jafnvel þær blasa þá við manni eins og hláleg fyrirbæri innan um ógresið og niðumíðsl- una. Eins er það með mannfólkið. Göfugmenni vaxa sjaldan upp úr svaðinu. Ef ég ætti að segja í örstuttu máii frá tilgangi og forsendu þess arar nýju skáldsögu Stefáns Júlí- ussonar þá mundi ég helzt vísa til undanfarandi setninga. Bókin hefur sem sagt ákveðinn tilgang umfram það að segja lesandan- um venjulega sögu og hún er á- deilurit og ber að dæma hana út frá því. Persónurnar eru í raun- inni fulltrúar ákveðinna fyrir- bæsa í þjóðfélaginu og saga'n ekki saga nokkurra einstakl- inga heldur er hún saga og skýringarfrásögn af hættulegu vaxtarmeini hinnar íslenzku þjóðar. Hér er um að ræða jákvæða gagnrýni og er vel ef hún fyndi endurhljóm og und- irtektir hjá sem flestum. Er hér strax kominn einn stærsti og veigamesti kostur bókarinnar. Ugglaust má finna ýmislegt at- hugavert við söguna en fram hjá því verður hins vegar ekki geng- ið að hún er ekki skrifuð út í loftið eins og mjög tíðkast hjá rithöfundum nú til dags heldur er hún alvarleg aðvörun á rétt- um tíma og er höfundi sómi að. Sagan fjallar einkum um þrjár persónur, drenginn, stúlkuna og manninn frá barnaverndarnefnd, og þó sérstaklega um eina per- sónu, Ásmund Clay. Segir eftir- nafn piltsins okkur talsvert. Drengurinn hefur komizt undir manna hendur fyrir innbrot. Þetta er innst inni bezti piltur en misskilinn frá upphaf, og er nokkurt hlutskpti til verra en vera misskilinn unglingur? Ann- ars skiljum við Ásmund kannski bezt af orðum stúlkunnar um hann: „Já, hann er einlægari en allir aðrir, þegar hann treystir fólki. Hann átti að ýmsu leyti bágt, þegar hann var lítill. Mamma hans var með hann á flækingi hingað og þangað, í Reykjavík á vetrum eða á síld á sumrum. Henni þótti fjarskalega vænt um hann, en hún var víst ekki stað- föst, og mér hefur skilizt, að fyrstu kynni hans af sambandi karls og konu hafi ekki verið sem hollust .... Mamma hans fór á bak við hann, og hún átti marga vini, sem hann fyrirleit. Hún gat víst ekki alveg hætt að skemmta sér, eftir að hún giftist, maður- inn var sjaldan heima. Og eftir að börnin komu, lét hún Ása stundum vera einan heima hjá þeim á kvöldin, þegar hún fór út .... ég held ha»n geti aldrei fyrirgefið mömmu sinni, að hún var svona, þó honum þyki vænt um hana undir niðri.“ Sjálfur segir svo Ásmundur um móður sína: „Mér þótti vænt um hana, þegar ég var lítill. Ég veit ekki almennilega, hvernig það er, en mér þykir vænna um hana, þegar ég er ekki hjá henni. Hún fer í taugarnar á mér, hún er eitthvað svo afskiptasöm og iæt- ur mann aldrei í íriði.“ Úr þessum jarðvegi er Ás- mundur sprottinn. Hann getur ekki borið virðingu fyrir moður sinni, honum er illa við stjúpa snn. Hann á hvergi griðland nema uppi í sveit, hjá vanda- lausu fólki. Hann vill verða bóndi. í sveitinni kynnist hann einnig stúlkunni, Guðrúnu, og þá kviknar unglingsástin. í sveit- inni fær hann ekki að vera því stjúpi hans þarf að nota hann til að hjálpa sér við að byggja nús. Hann strýkur að heiman vita peningalaus og fremur innbrot. í sjálfu sér gerist svo sagan á einum sólarhring eins og nafnið bendir til, en höfundur víkur sér alltaf öðru hverju aftur í fortíð- ina til að skýra sálarlíf piltsms. Ásmundur er sú persóna sögunn- ar sem skýrast er mótuð og tekst höfundi vel að gera hann sjálf- um sér samkvæman. Ef til vill er persónan helzt til öguð frá hendi höfundar. Ásmundur gerir aldrei neitt sem lesandinn býst ekki við af honum. Þess vegna verkar hann kannski eins og fjarstýrður af höfundi sínum en ekki eins og lifandi manneskja sem vex og hreyfir sig af eigin krafti. Stúlkan er ekki eins vel gerð persóna og alger andstæða Ás- mundar. Hún gerir næstum allt annað en lesandinn býst við af 15—16 ára stúlku. Hún er uð- vitað engill í augum piltsins og afstaða hans til hennar er ljós og eðlileg. En það er eins og hún verði höfundinum ofviða öðru hverju. Það leynir sér ekki að stúlkan er bráðþroska og skýr eftir aldri en höfundur gerir hana alltof fullorðinslega og tals máti hennar, lífsskoðanir og jafnvel orðaval eru ekki í neinu samræmi við unglingsstúlk’- á dögum, jafnvel þó h’’ norðan. Til dæmis segú einu sinni: „ — Uss, ekki blóta, Ásalingur. Menn eiga ekki að blóta, þegar þeir hafa höfuð sitt liggjandi í kjöltunni á ungri stúlku. Þá er það miklu ljótara en annars". Ég held það þurfi meira en lít- ið bráðþroska unglingsstúlku til að segja þetta og ég held að setningar sem þessar séu harla sjaldgæfar í munni ungra stúlkna nú á tímum, því miður. Hins vegar er skiljanlegt að höf- undur geri stúlkuna svo óvenju- lega fullorðinslega bar eð stúlk- an þjónar ákveðnum tilgangi í sögunni, en það er einmitt þetta, sem hver rithöfundur þarf að varast, sem sé að sveigja sögu- persónurnar um of undir vilja sinn. Mannlegt líf verður alltaf að vera eðlilegt og óhindrað. Aðrar persónur koma minna við sögu nema þá helzt maður- inn frá barnaverndarnefnd. Hann er sannur og göfugur maður og kemur fram við unga fólkið eins og fullorðnir menn á íslandi ættu að breyta gagnvart ungl- ingum. Foreldrar piltsins, eða réttara sagt móðirin og stjúpfaðirinn, eru nákvæmlega eins og foreidr- ar eiga ekki að vera. Sagan í heild sinni ber vott um nákvaem vinnubrögð höfundar. Hann fetar atburðarrásina hægt og gætilega, flýtir sér aldrei um of og er hvergi of margorður. Hann gerir sér far um að skýra hegðun persónanna gaumgæfi- lega, setur saman marga og ólíka þræði er allir beinast í sama farveg, sem loks streymir fram til sjávar líkt og lýgn en þó tölu- vert straumþung á. Atburðarásin mjög glögg og eðlileg og virðist þaulhugsuð. Stíllinn er agaður, ekki mjög skádlegur eða fagur, heldur blátt áfram og jafnvel hversdagsiegur, nema málfar stúlkunnar. Höfund ur leyfir sér ekki neinar stil- brellur, honum hefur sjálfsagt fundizt að söguefnið leyfði það ekki sem og rétt er. Aðeins ör- sjaldan bregður fyrir skáld'eg- um og fallegum lýsingum eins og til dæmis neðst á 83. bls.: . „Það var hætt að snjóa. Hrein m j allarábreiðan lá í kyrriátri samfellu yfir öllu, götum, lóðum og görðum. Hvergi var misfellu að sjá í mildu húminu, og geislar rafljósanna hurfu brotalaust í hvítabirtu jarðarinnar." Ég býst við að mörgum þyki þessi saga dálítið hversdagsJeg. Ungur, misskilinn piltur fremur afbrot, er tekinn fastur, athugar sinn gang með hjálp annarra og kemst á réttan kjöl, endir. Það er ekki gott ef mönnum finnst slík saga hversdagsleg, þá eru þeir að sýna garðinum hirðuleysi. Og bókin er ádeila á hirðuleysið og skeytingarleysið. En sé sagan hversdagsleg og mál Ásmundar hversdagslegur viðburður á ís- ' il ég árétta að sagan a á ungt fólk heldur ;nzkum foreldrum og .o-enz«.u þjóðfélagi ófagurt vitni. Mér finnst að rithöfundarnafn Stefáns Júlíussonar hafi vaxið mikið við þessa skáldsögu hans. Og þá er komið að sparðatínsl- unni, sem er víst álíka þakklátt verk og starf tannlaeknisins Á stöku stað er komizt klaufalega að orði. Á 20. bls. stendur: „þrýst ið brjóstið í lófa hans leyndar- dómsfullt töfrahnoða.“ Á 64. bls.: „Fulltrúinn endurtók spurmng- una og var nú í espara lagi.“ Á 68. bls.: „.. þú vex af því..“ Höfundur skrifar oft heldur ekki svo sem gert er í dönsku. Og svo er að finna í sögunni þá leiðin- legu smekkleysu sem nú tröll- ríður öllum dagblöðum í Reykja- vík: að hafa áhuga fyrir ein- hverju í stað þess að segja að hafa áhuga á einhverju. Prent- villur sá ég engar. Bókin er smekkleg að öllum frágangi og kápuskreyting er mjög falleg. Njörður P. Njarðvík. 4ro herb. íbúð við Gnoðuvog til sölu. íbúðin hefur sér hita og sér inngang og er í góðu standi. Sanngjarnt verð og útborgun strax aðeins 100 þúsund. Upplýsingar gefur Málflutningsstofa INGI INGIMUNDARSON HDL., Vonarstræti 4, II. hæð — Sími 24753

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.