Morgunblaðið - 22.06.1960, Síða 22

Morgunblaðið - 22.06.1960, Síða 22
22 MORCV1SBLAÐ1Ð Miðvikudagur 22. júní 1960 Fram vann í 2. fl. B og 5. fl. B f REYKJAVÍKURMÓTI yngri flokkanna eru nú kunn úrslit í þrem aldursflokkum. Eins og skýrt var frá í síðustú viku hafði KR unnið 3. 11. B, en síðan hefir Fram unnið 2. fl. B. Hlaut Fram 4 stig, KR 2 stig en Valur 0 stig. Fram er einn- ig orðinn sigurvegari í 5. fl. B. Þrír leikir eru þó eftir, en þeir geta ekki haft áhrif á en<4anleg úrslit. Fram hefir leikið alla sína leiki og hlot- ið 8 stig, en það er meira en nokkurt hinna félaganna hef- ir möguleika á að ná. Urslit einstakra leikja um síðustu helgi urðu sem hér segir: 2. flokkur A Víkingur — Þróttur 1:8 Fram — Valur 2:4 2. flokkur B Fram — Valur 4:1 3. flokkur A Fram — Valur 3:1 3. flokkur B Fram — Valur 1:0 4. flokkur A Valur — Fram 0:1 Þróttuf* — Víkingur 3:1 4. flokkur B KR — Fram C 5:0 Valur — Fram C 0:4 5. flokkur A Fram — Valur 3:1 Þróttur — Víkingur, þessi leikur var ekki leikinn, því Þróttur gaf leikinn og Vík- ingur hlítur því 2 stig, sem fyrir unninn leik. 5. flokkur B KR — Víkingur C 1:0 Fram — Valur 5:0 Heimsmethafinn í 800 m. keppir á KR-mótinu i kvöld Jón Pétursson reynir v/ð Olympiu- lágmarkid i hástökki FYRSTA stórmótið í frjáls- íþróttum fer fram á Laugar- dalsvellinum í kvöld og ann- að kvöld og hefst keppnin bæði kvöldin kl. 20.30. — Heimsmethafinn í 800 metra hlaupi, Roger Moens frá Belgíu, er meðal keppenda í mótinu, auk allra helztu og beztu frjálsíþróttamanna landsins. „Toppgreinarnar" í kvöld verður keppt I 8 greinum. Hápúnktur keppninnar verður að gefnu tilefni 800 m hlaupið, en þar reyna sig við heimsmeistarann 800 m hlaupar- arnir Svavar Markússon, KR, og Guðmundur Þorsteinsson, KA. — í 400 m grindahlaupinu verður aðalkeppnin að öllum líkindum milli Sigurðar Björnssonar, KR, og Guðjóns Guðmundssonar, KR. í hástökkinu mun Jón Pétursson, 2. deild: Breiðoblik-Hofnarfjörður í kvöld LEIKUR Breiðabiiks, Kópavogi og Hafnarfjarðar í 2. deildar keppni Islandsmótsins í knatt- spyrnu verður leikinn í kvöld og hefst kl. 20,30 á knattspyrnu- vellinum í Hafnarfirði. Þetta er fyrsti leikur þessara aðila í 2. deildar keppninni, Hafnarfjörð- ur og Vestmanneyingar áttu að vera búnir að leika sinn leik í Vestmannaeyjum. Atti leikurinn fyrst að fara fram á Sjómanna- daginn, en var þá frestað fyrir tilmæli Vestmannaeyinga. Leik- urinn átti síðan að fara fram sl. sunnudag, en þá komust Hafnfirð ingarnir ekki til Eyja vegna slæms flugveðurs. Einhver deila er vakin út af þessu. Vestmanneyingar telja sig hafa unnið til stiganna, þar sem þeir mættu á leikstað, en Hafn- firðingar og forusta knattspyrnu- mála hér í Reykjavík er á ann- arri skoðun og telur að Hafnfirð- ingarnir séu löglega afsakaðir, þar sem þeir hafa yfiriýsingu frá Flugfélagi íslands um að ekki I hafi verið flugveður. ef veður verður gott, reyna við lágmarkið til að komast á Ólympíuleikana, en til þess verð- ur hann að stökkva 2,00 m, og telja þeir sem bezt til þekkja að Jón Pétursson sé líklegur til að ná þeim árangri eiginlega hve- nær sem er. Jón Ólafsson, ÍR, er í áberandi framför og Kristján Stefánsson, FH, er einn efnileg- asti hástökkvarinn meðal yngri manna. 1 kringlukastinu er auk hinna gamalkunnu þátttakenda Pétur Rögnvaldsson (Peter Ron- son, kvikmyndaleikari) og í sleggjukastinu er Þórður Sigurðs son sigurstranglegastur. — Auk framangreindra greina verður keppt í 200 m hlaupi, þrístökki og 4x100 m boðhlaupi. Roger Moens 16.53 m í þristökki PRAHA, 18. júní: — Hið árlega Rosicky-frjálsíþróttamót var hald ið í níunda sinn á Shrahov-vell- inum í dag. Mjög góður árangur náðist í flestum greinum og bezti árangur, sem náðst hefir í ár í 1500 metra hlaupi og þrístökki. Sigurvegari í hinni mjög svo spennandi keppni 1500 m hlaups- ins varð Rúmeninn ZoltanVamos á hinum frábæra tíma 3.40.2 mín. Hvaö má til bjargar verða? NÆ'STI stórviðburðurinn á sviði knattspyrnunnar hefur verið boðaður. Um það bil „hálfs lands- liðs“ frá Luxemborg ásamt öðr- um góðum knattspymumönnum er nú með farseðla í höndunum til íslandsferðar. Það eru full- trúar lítillar smáþjóðar í Evrópu sem hingað koma, smáþjóðar sem samt hefur látið meira að sér kveða á heimsmarkaði knatt- spyrnunnar en ísland. Hér heima sitjum við enn með sárt enni og bitrar minningar frá landsleikn- um í Oslo. En nú gefst okkur fyrsta tækifærið til að skipa liði á nýjan leik — og væntanlega verður það ekki látið úr greipum ganga. Landsleikurinn í Oslo var lær- dómur til margs og af honum má margar ályktanir draga. Frá mín um sjónarhóli ber að athuga sér- staklega tvennt. 1) Skipun Iandsliðsins hefur verið alltof einhæft bundin þeim stöðum er liðsmenn leika í félögum sínum og af þeim sökum hafa góðir leik menn orðið útundan við val er tveir góðir kandidatar hafa verið um eina ákveðna stöðu. 2) Æfingar landsliðsins hafa verið kák og óraunhæfar í fremsta máta. Sem dæmi um hið fyrra skul- um við taka stöðu miðframvarð- ar. Hörður Felixson „átti“ þá stöðu í fyrra og í fyrstu tilrauna- liðum vorsins. Rúnar Guðmanns- son sýndi vaxandi leikni er á leið vorið. Landsliðsnefndin tók það ráð að velja á milli þeirra þann- ig, að kjósa annan, setja hinn meðal varamanna. Ég er ekki í vafa um, að þeir áttu báðir heima í liðinu. En báðir gátu ekki leik- ið sömu stöðu. Þarna opinberast vanmáttur okkar landsliðsnefndar. Mennirn ir eru aldrei reyndir á öðrum stöðum en „sínum eigin“ (nema einstaka sem virðist vera í mik- illi náð nefndarinnar) Þetta skapast m. a. af gersamlega röngu æfingafyrirkomulagi og á landsliðsnefndin sannarlega við mikla erfiðleika að stríða í þess- um efnum OG ÞARNA VERÐUR ÚR AÐ BÆTA. Aðrar þjóðirhika ekki við að reyna slíkar breyt- ingar. T. d. hefur sá er lék v. bakvörð í landsliði Noregs, leikið landsleiki sem v. framvörður og einnig sem vinstri útherji. Þetta fer eftir þeirri taktik sem leika á, hver mótherjnn er o. s. frv. Hvað snertir æfingarnar er málið miklu augljósara og auð- leysanlegra. Ég er sannfærður um að þær æfingar sem lands- liðið hefur átt, koma því að litlu sem engu gagni í landsleikjum. Það er tilgangslaust með öllu að landsliðsæfingarnar (svo fáar sem þær eru) séu notaðar til að auka eða byggja upp þol einstaklinganna. Æfingarnar verða að vera fólgnar í leik — og það engum „dúkkuleik", held ur leik þar sem full alvara er á ferðum. Ég á ekki við að leikirnir séu endilega opinberir, heldur einungis að þær séu undirbúnar sem slíkar. Að mínu viti skortir okkar landslið mest að „finna sam- stöðu“ í kappleik. Og ef reyna á nýja menn í nýjar stöður verður það ekki gert nema á „alvöru- leikjum“, leikjum sem eru undir búnir sem slíkir og framkvæmd- ir sem slíkir, þó ekki séu endi- lega þúsundir áhorfenda. Slíkir æfingalejkir undirbúnir og framkvæmdir af alvöru eru eina leið okkar til að finna okkar sterkasta lið. Nú getur svo verið að okkar sterkustu menn saman í liði, geti átt lélegan leik eitt og eitt sinn. Það sannar nauðsyn á mörgum „alvöruleikjum". Það þarf og að gefa mönnum meira en eitt tækifæri til að sanna til- veru sína í landsliði, eða til að sanna að þeir séu ekki hæfir í landslið. . I vor hefur landsliðsmönnum mjög verið mismunað í þessum efnum. Einn þeirra er í Oslo keppti, ungur nýliði, \^r valinn í fyrsta tilraunalandslið iands- liðsnefndar í vor og stóðst ekki prófið (nema þá að dómi ein- hvers í landsliðsnefnd). Hann fékk annað tækifæri þegar í næsta tilraunalandsliði. Það er lofsvert ef sama gengur yfir alla. Heldur ekki stóðst hann það próf, að dómi blaðamanna eða tryggra áhorfenda. Eigi að síður var hann valinn í landsliðið. Annar landsliðsmaður Ellert Schram, var valinn í pressulið gegn fyrsta tilraunaliði lands- liðsnefndar. Hann stóð sig þann- ig, að óaðfinnanlegt var miðað við standard annarra leikmanna Hann fékk samt ekki tækifæri í næsta tilraunalandslið. En með sínu eigin liði gegn Rússum sýndi hann enn hæfni sína á ísl. mælikvarða. ' Landsliðsnefndin hundsaði hann samt sem áður. Þetta er að mismuna mönnum — og um leið að drepa allan áhuga sumra, gefa byr undir vængi orðrómi um verzlun og annað slíkt Nú hefur lauslega verið drepið' á tvennt sem landsleikurinn Oslo sýndi okkur fram Kannski er verr farið en heima setið að hafa orð á.því, því oft hefur það verið svo að hvorki forysta knattspyrnumálanna né landsliðsnefnd vill sinna því sem blöðin stinga upp á. Það hefur komið oft fyrir að góðir menn hafa verið sniðgengnir AF ÞVÍ ÞEIR STÓÐU SIG VEL í PRESSULIÐI EÐA VORU STUDDIR AF KNATTSPYRNU- GAGNRÝNENDUM. í þessu hefur landsliðsnefnd Framh. á bls. 23. en í þessu hlaupi sigraði Vamos austur-lþýzlca hlaupiarann Hans Grodotzky, sem hljóp vegalengd- ina á 3.41.7 mín. og Rússann Momotkov sem náði 3,42,7 mín. Allir náðu hlaupararnir betri tíma en þeir höfðu áður néð. Fjórði varð Stanislav Pungwirth frá Tékkóslóvakíu á 3.44.1 mín. Þrístökkið vann Pólverjinn Jozef Sohmidt, sem stökk 16.53 metra. í sleggjukastinu komst Sverre Strandi ekki í hóp þeirra fremstu þrátt fyrir að hann hafði kastað 61.29 m. í undankeppninoi. Sigurvegari í sleggjukastinu varð kraftajötuninn ungverski Zsiwotsky með 65.51 metra, en næstir urðu Rússinn Rudienkov 64.81, Thun frá Austurríki kast- aði 62.71 metra, Malenk, Tékkó- slóvakíu 61.22 metra og Peter, Austur-Þýzkalandi 61.22 metra. Bosov, frá Sovétríkjunum vann hástökkið 2.04 metra og kringlu- kastið vann Ungverjinn Szevsen- yl með 57.44 metra kasti. Heims- methafinn Platkowski frá Pól- landi átti erfiðan dag og náði að- eins 54.98 metra kasti. í kvennakeppninni vann Forl- ova frá Sovétríkjunum langstökk ið, stökk 6.05 metra og Nemc- ova, Tékkóslóvalcíu vann kringlu kastið, kastaði 52.29. Guðm. setti Akureyrarmet 17. JÚNÍ-MÓT frjálsíþrótta- manna fór fram í góðu veðri en nokkurri golu, sem gaf meðvind í stuttu hlaupunum. Bezta afrek mótsins vann, eins og áður hefir verið skýrt frá, Björn Sveinsson KA 11,2 sek. í 100 m hlaupi. Má segja að hann byrji sumarið vel, því lélegt viðbragð gerir meira en vega upp meðvindinn. Mesta athygli áhorfenda vakti 1500 m hlaup Guðmundar Þor- steinssonar. Guðmuhdur fór nokk uð geyst af stað og hljóp fyrstu 400 m á 58 sek. Sá byrjunarhraði kom honum í-koll síðar í hlaup- inu. En Guðmundur setti nýtt Akureyrarmet 4:06,2 mín. í sama hlaupi vakti og athygli 19 ára pilt ur er nú keppti í fyrsta sinn og náði öðru sæti 4:35,9. Helztu úrslit mótsins urðu: Kringlukast 1. Þóroddur Jóhannsson UMSE .... 36,80 2. Björn Sveinsson KA ........ 34,24 3. Ingimar Skjóldal UMSE ..... 33,39 Hástökk 1. Ing. Hermannsson Þór ....... 1,65 2. Björn Sveinsson KA .......... 1,63 3. Eiríkur Sveinsson KA ........ 1,65 400 m hlaup 1. Guðmundur Þorsteinsson KA .... 52,5 2. Jón Gíslason UMSE ........... 55,7 100 m hlaup 1. Björn Sveinsson KA ......... 11,2 2. Vilhelm Guðmundsson UMSE .... 11,3 3. Þóroddur Jóhannsson UMSE .... 11,4 4. Eirikur Sveinsson KA ........ 11,5 Spjótkast 1. Björn Sveinsson KA ......... 47,01 2. Skjöldur Jónsson KA ........ 45,90 3. Eiríkur Sveinsson KA ....... 43,58 Langstökk 1. Vilhelm Guðmundsson UMSE .... 5,95 2. Ing. Hermannsson Þór ........ 5,91 3. Björn Sveinsson KA .......... 5,72 1500 m hlaup 1. Guðmundur Þorsteinsson KA 4:06,2 Akureyrarmet. 2. Edvard Sigurgeirsson KA ....4:35,9 3. Jón Gíslason UMSE ........ 4:50,2 Kúluvarp 1. í>óroddur Jóhannsson UMSE .... 12,-80 2. Eiríkur Sveinsson KA ...... 12,22 3. Björn Sveinsson#KA ....... 11,82 4x100 m boðhlaup 1. Sveit IBA .................. 46,7 2. Sveit UMSE .............. ... 47,5

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.