Morgunblaðið - 28.06.1960, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 28. júní 1960
MORGUNBLAÐIÐ
23
Fyrsta markið: Knötturinn hrekkur af vamarleikmanni Red Boys í mark. — Sendingin var ætiuð
Helga Björgvinssyni, en hafnaði til allrar lukku í marki Red Boys.
Akranes — Red Boys á sunnudag
Eitt mark hjá hvoru
liði - bæði sjálfs-
mörk
RED BOYS frá Luxemborg
mætti Akranesliðinu á sunnu-
dagskvöldið. Leikurinn var
vægast sagt lélegur, þó á köfl-
um (einkum undir lokin)
væri barizt af krafti og þá af
meira kappi en forsjá. Gest-
irnir voru öllu ákveðnari í
leik sínum nú en gegn KR.
Þeim er nokkur afsökun í
malarvellinum, því þar tekur
knötturinn önnur viðbrögð en
á grasi, sem þeir eru vanir.
En liðið hefur ekki megnað
í tveim leikjum að sýna okk-
ur neitt það, sem íslenzk
knattspyrna býr ekki yfir. —
Hafa okkar menn þó oft feng-
ið að heyra það, að þeir séu í
lélegri klassanum.
* GAMALKUNNIR GARPAR
Akranes kom með tvo gamal-
kunna menn fram á leikvanginn
— eftir allanga fjarveru þeirra
N
Breiðablik vann
Revni
j
ÍSLANDSMÓTIÐ í 8. deild héit
áfram á sunnudaginn var í Sand-
gerði. Þar mættust UMF Breiða-
blik úr Kópavogi og Reynir í
Sandgerði.
Flestir Suðurnesjamenn munu
hafa spáð Færeyjarförunum létt-
um sigri yfir Breiðabliki því eng
ar frægðarsögur hafa verið skrif-
aðar um knattspyrnusigra þeirra
Kópavogsbúa. En hér fór nokkuð
á annan veg. Breiðablik sigraði
með einu marki gegn engu.
Leikurinn í heild var lélegur,
einkum þó af Sandgerðinga hálfu.
Nokkur vindur var, og því áríð-
andi að reyna að halda knettinum
niðri. Hefði maður ætlað að jafn
leikvanir menn og margir Sand-
gerðinganna eru, gerðu sér ljósa
þessa staðreynd, en svo virtist
þó ekki vera. Leikur þeirra ein-
kenndist af táaspörkum og há-
spyrnum í tíma og ótíma en sam-
leikur fyrirfannst ekki.
Leið Breiðabliks virðist að
miklu leyti vera skipað ungum
og óreyndum leikmönnum. Þeir
voru nokkuð hreyfanlegir og
fljótir á knöttinn og þeir unnu
flest einvígi, hins vegar vantar
liðið skotmenn.
Dómari var Gunnar Aðalsteins-
son og átti hann lélegan dag.
— BÞ.
frá knattspyrnumótum. Voru það
Þórður Þórðarson og Jón Leós-
son. Settu þeir báðir svip á lið-
ið. Þórður var hættulegasti fram-
herjinn og sá eini sem skapaði
mikla hættu í vörn Red Boys. En
snerpan er nú ekki sú sama né
geta, enda vonlegt vegna langrar
fjarveru frá æfingum og keppni.
En vinsæll er Þórður ennþá og
gaman er að hafa hann með sem
og Jón, sem er harður og fylginn
sér — stundum um of.
* SJÁLFSMÖRKIN
Akranes tók forystuna í
mörkum á 14. mín. Var tekin
hornspyrna frá hægri á Red
Boys. Helgi Björgvinsson skall
aði að og Þórður fær knött-
inn í lokuðu færi á hægra
kanti. Hann spyrnir til marks
snöggu skoti sem lendir í varn
armanni og þaðan í markið.
Þetta mark jöfnuðu Red
Boys 2 mín. fyrir leikhlé,
næstum á sama hátt. Sótt var
upp hægri væng og þaðan
skotið úr lokuðu færi. Helgi
snerti knöttinn en fangaði
ekki. Knötturinn barst að
marklínu þar sem Jón ætlaði
að hreinsa en mistókst og setti
SEXTÁN leikir hafa farið fram
í knattspyrnumótum yngri flokk
anna síðan við birtum þennan
dálk fyrir viku. Er hér um að
ræða Reykjavíkurmótið í knatt-
spyrnu og Landsmótið sem nú
er byrjað.
Helztu fréttir frá Reykjavíkur
mótinu eru þær, að KR hefur
tryggt sér sigur í 3. flokki A.
Einn leikur er eftir í mótinu Val-
ur-Víkingur, en hann getur ekki
haft áhrif á úrslitin.
Einstök úrslit í leikjum voru
þessi:
Reykjavíkurmótið:
2. flokkur A
Fram:Þróttur 0:0
KR:Víkingur 6:0
3. flokur A
KR—Víkingur 4:3 — KR hef-
ur hlotið 5 stig, í þessum flokki
og þar með unnið mótið. Fram
var sigurvegari í þessúm flokki
í fyrra. Þjálfari KR-ingana er
Örn Steinsen.
knöttinn í netið. Leikurinn
stóð 1:1 í hálfleik og það bæði
sjálfsmörk.
* AKURNESINGAR
SÆKNARI . . .
Akranes var í byrjun miklu
sæknara lið. Fyrstu 20 mínúturn-
ar náðu Red Boys aldrei að skapa
tækifæri sem gæfi vonir um
mark. En hálfleikurinn jafnaðist
er á leið. Þó áttu Akurnesingar
góð færi, t. d. komst Ingvar Elís-
son í „dauðafæri“ en mistókst
herfilega.
Á . . . EN KLAUFSKIR
Síðari hálfleikurinn var mark
laus. Akurnesingar áttu tvö beztu
tækifærin — Ingvar í bæði
skiptin. í fyrra skiptið stóð hann
óvaldaður á markteig en mis-
tókst herfilega. í hið síðara fékk
hann góða sendingu fyrir, en
sendi hátt yfir. Red Boys áttu
nokkur skot, sum góð, en Helgi
forðaði allri hættu.
Leikurinn var mjög skipulags-
laus af beggja hálfu. Skagamenn
náðu aldrei saman. Beztur var
Sveinn Teitsson, þó margoft hafi
hann átt betri leik. Framlínan
var mjög sundurlaus og óskipu-
leg í mesta máta. Voru innherj-
arnir oftast báðir á vinstra kanti
og varð þó aldrei séð, að liðið
byggði upp leik sinn með þeirri
aðferð, heldur þvert á móti brotn
aði leikur þess oft á þessu ráfi
hægri innherjans yfir á miðju
og yfir til vinstri.
Markvörðurinn er bezti maður
liðs Red Boys. Letsch er góður
uppbyggjari, en hann lék nú að-
eins fyrri hálfieik, og margt af
því sem hann gerir vel skemma
aðrir með klaufaskap.
4. flokkur A
Fram: Þróttur 3:1
KR:Víkingur 8:2
4. flokkur B
Valur:Fram C 2:1
KR:Víkingur 3:1
5. flokkur A
Fram:Þróttur 10:1
KR-Víkingur 0:1
5. flokkur B
Valur:Víkingur 0:1
KR:Víkingur b 2:3
Landsmótin:
í Hafnarfirði léku Hafnfirðing-
ar við Keflvíkinga tvo leiki,
annan í Landsmóti 4. flokks og
hinn í 2. flokki. Jafntefli varð
í 4. flokki 1:1, en Hafnfirðingar
.báru sigur úr býtum í 2. flokki
3:2. — Á sunnudaginn léku svo
Hafnfirðingar og Akurnesingar í
Landsmóti 3. flokks. ÍA vann
3:1.
— A. St.
KR sigurvegari í 3. fí. A
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem styrktu Jónu dóttur okkar, til læknishjálpar erlendis og á einn eða annan hátt hafa sýnt okkur einstaka velvild og hjájpsemi í veiki)idum hennar. — Guð blessi ykkur öll. Mállríður Halldórsdóttir, Arnór Stígsson.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glödci mig á 75 ára afmæli minu 23. júní sl. með heimsóknum, gjöf- um blómum og heiliaskeytum. — Guð blessi ykkur öll. Björg Guðmundsdóttir, Þórsgötu 7 A.
Hjartanlega þakka ég öllum sem glöddu mig með heim- sóknum, gjöfum og skeytum á 60 áfa afmæli mínu 16. júní s.l. —■ Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Kr. Guðmundsson, Jófriðarstaðavegi 8, Hafnarfirði.
Þakka af alhug börnum mínum, frændfólki og vinum, f jær og nær, allan hlýhug og virðingu mér sýnda á 70 ára afmæli mínu þ. 13. þ.m. St. Einingunni nr. 14 af I.O.G.T. og öðrum reglufélögum mínum þakka ógleymanlega kvöldstund í G.T. húsinu 15. þ. m. Árna öllum árs og friðar. Kristjana Ó. Benediktsdóttir Oldugötu 41
Móðir okkar, tengdamóðir og amma, VALGERÐUK ANNA GUÐNADÓTTIR andaðist að Landakotsspítala þann 26. þessa mánaðar. Guðni Ólafsson, Magnea Magnúsdóttir Páll Ólafsson, Asgerður Jakobsdóttir og synir
Móðir mín STEENUNN BJÖRNSDÓTTIR frá Þurá, Sólvédlagötu 39 andaðist föstudaginn 24. júní Sigrún Bjarnadóttir
Eiginmaður minn HAULDÓR SKAPTASON andaðist laugardaginn 25. þessa mánaðar. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna. Hedvig Skaptason
Hjartkær eiginmaður minn BJARNI GUÐNASON trésmíðameistari lézt að Landspítalanum 26. þ.m. Fyrir hönd aðstandenda. Ingibjörg Gamalíelsdóttir
Hjartkær systi okkar JOHANNE KAROLINE HALDORSEN verður jarðsett frá Dómkirkjunni .fimmtudaginn 30. júní kl. 1,30 e.h. Ragnar Severin Haldorsen, Haldor Johan Haldorsen
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð við andlát og jarðarför eiginkonu, móður og systur JÓNU G. STENGRIMSSEN Elín Alfhild, Sverre Stengrimssen.
Alúðarþakkir færum við öllum fjær og nær sem auð- sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför , okkar ástkæra föður, afa og bróður ANDRESÁR INGIMUNDARSONAR Hellukoti, Stokkseyri. Jórunn Andrésdóttir, Guðrún Andrésdóttir, Margrét Andrésdóttir, Kristmundur Andrésson, Ester Þorsteinsdóttir, Gunnar Ingimundarson.
Innilegt þakklæti öllum þeim er sýndu mér samúð og velvild við andlát mannsins míns. AUÐBJÖRNS EMILSSONAR, málarameistara þann 11. marz sl. — Sérstaklega þakka ég hjartanlega hljónunum frú Sesselju Hinriksdóttur og Georg Pálssyni, Skipasundi 55, Reykjavík, sem reyndust manninum mín- um sem beztu foreldrar meðan hann dvaldist á sjúkra- húsi syðra. Eskifirði, 24. júní 1960 Fyrir mína hönd og annara vandamanna. Margrét Guðmundsdóttir 1