Morgunblaðið - 17.07.1960, Side 2

Morgunblaðið - 17.07.1960, Side 2
2 MORGVTSTIL AÐIÐ Sunnudagur 17. júlí 1960 Athyglisverð niðurstaða sérfrœðinga: Byggingarkostnað hér á iandi má lœkka um 30% Þtírf er fyrir mjtíg aukið fé til rann- sókna á þessu sviði — en það borgar sig EF 5 af hundraði af því fjár- fullgera fyrir það nema ör- magni, sem íslenzk stjórnar- fleiri íbúðir en þeir. völd lána *iú til íbúðabygg- inga, yrði varið til bygging- arrannsókna, tilrauna og kynningar á niðurstöðum þeirrar starfsemi, mætti í ná- inni framtíð lækka bygging- arkostnað hér um margfalt þessa upphæð. Þá mætti byggja fleiri íbúðir og betri fyrir sömu fjárupphæð og ís- lendingar verja nú til íbúða- bygginga. Á þessa jeið er niðurstaða bandarísks byggingafræðins, Ro- Þriðjungs Iækkun möguleg Hinn bandaríski byggingafræð ingur og samstarfsmenn hans telja því, að hvergi nærri sé frá- leitt að gera ráð fyrir að lækka megi byggingakostnað hér um 30 af hundraði. Ef meira fé yrði veitt til byggingarannsókna og leiðbeininga gæti þessi árangur náðst í formi endurbóta á m. a. skipulagi ibúða, efnisnýtingu, byggingaaðferðum, byggingar- samþykktum, lánamálum og op- inberum afskiptum af húsnæðis- málum og rneð stöðlun í bygg- ingariðnaðimim. •i y'‘ V y §/■ 4 / ^/ •y / > & s / y i • I ... > á / NC Tsland 1950 ’5X ‘54 'Si & ’5í % '60 Fjármagn til rannsókna. — Línuritið gerir samanburð á fjár- veitingum hina einstöku rikja til allar rannsóknarstarfsemi — annarrar en vegna hervarna, þar sem slíku er til að dreifa; þo sýnir strikalínan (a) efst heildarrannsóknarkostnað í Banda- ríkjunum. Samanburðurinn er miðaður við hundraðshluta af þjóðarframleiðslu — og markar hver reitur upp á við Vt hundraðshluta. — berts L. Davisons, sem hér hef- ur dvalizt um skeið á vegum tækniaðstoðar Sameinuðu þjóð- anna — og nefndar íslenzkra sérfræðinga, sem með honum hefur starfað að athugun og rannsóknum á þessu sviði. Var fréttamönnum skýrt frá þeirri starfsemi á dögunum. Féð nýtist illa Athuganir þessara aðila hafa m. a. leitt í ljós, að við Islend- ingar verjum nær helmingi meira af þjóðarframleiðslu okk- ar til íbúðabygginga en aðrar þjóðir — en fé þetta nýtist hér mun verr en armars staðar. Þannig er staðreyndin sú, að enda þótt við verjum hlutfalls Iega nær tvisvar sinnum meira fé en Svíar til íbúða- bygginga, tekst okkur ekki að Vítt til veggja Engin önnur þjóð er eins rausn arleg með húsrými fyrir hvern einstakling og við íslendingar. En ein af ástæðunum fyrir þessu mikla húsrými fyrir hvem ein- stakling er lágt og óhagstætt hlutfall á milli nýtanlegs gólf- rýmis og heildargólfrýmis. — Skökk staðsetning á gluggum og dyrum, óhóflegir gangar eða ó- hentug herbergjastærð eða lögun geta iðulega valdið þessari slæmu nýtingu. — Oft má bæta við herbergi eða lækka bygging- arkostnað um 10 af húndraði eða meira, ef úr slíkum annmörkum er bætt. Tvöfaldur húsnæðiskostnaður Almennt er viðurkennt, að ekki sé eðliiegt að verja meiru en einnar viku launum á mánuði í húsnæðiskostnað Qg á sl. 25 ár- um hefur húsnæðiskostnaður í Svíþjóð t. d. lækkað úr sem svar- ar 12 daglaunum í fimm. Á sama tíma hefur þessi kostnaður hér á landi svo að segja staðið óbreyttur — og er nú u. þ. b. helmingi hærri en eðlilegt mætti teljast —| eða samsvarar að meðaltali um tveggja vikna launum; er þá meðtalinn kostnaður við1 vexti, opinber gjöld, vatn, raf magn, hita o. fl. skylt. Hér á landi eru starfandi arki- tektar og verkfræðingar, sem færir eru um að leysa tæknileg Framh. á bls. 23. Moise Tsjombe hefur lýst yfir aðskilaði Katanga við Kongó. Kongd klofnar KONGÓ-lýðveldið, hið ný- stofnaða svertingjaríki í Mið- Afríku á erfitt uppdráttar á fyrstu dögum sjálfstæðis síns. Ósamlyndi, blóðugar róstur og vopnuð uppreisn hersins hrjá lýðveldið, svo að heita má að alger glundroði ríki í heitum héruðum þess. Við þetta ástand hafa hvítir menn sem búsettir voru í Kongo og unnu að ýmsum nauðsyn j astörf um, orðið kvíðnir um sinn hag og flúið landið unnvörpum. Er það mikill hnekkir fyrir Kongo, því að meðal innfæddra er ekki hægt að grípa upp menn, sem kunna að taka við þessum störfum hinna hvítu. Flugvélar hafa stöðugt flutt belgískt herlið til Kongo og flóttafólk til baka til Belgíu. Leopoldville höfuðborg Kongó er nú á valdi belgískra her- manna og fallhlífalið þeirra hefur tekið fjölda bæja og þorpa úti um héruð landsins til að vernda evrópska menn, sem þar hafa verið innikró- aðir af blökkum uppreisnar- mönnum. Hjálp S.þ. Ríkisstjórn Kongó hefur far ið þess á leit við Sameinuðu þjóðirnar að þær komi hér til aðstoðar. Vildi svo heppilega til, að sérstakur fulltrúi Hammarskjölds framkvæmda- stjóra S.þ., hinn kunni Ralph Bunohe, var staddur í Leopold ville og hefur hann nú þegar unnið starf sitt vel, til að f lýta fyrir því að aðstoð S.þ. berist. Liðsforingjar S.þ. eru þegar komnir til Leopoldville og fyrstu hersveitirnar. Her S.þ. verður skipaður hermönnum frá öðrum svertingjalöndum í Afríku, aðallega Ghana og Mali. Þaðan mun og koma fjöldi menntaðra og æfðra svertingja, sem getur tekið að sér störf þau, sem Belgíumenn leggja nú niður. Er þess því að vænta, að bráðlega takist að koma kyrrð á. Aðskilnaður Katanga Mesta vandamál Kongo-rík- is er enn ótalið, en það er hætt an sem ríkinu stafar af skiln- aðarhreyfingu íbúanna í svo- nefndu Katanga-héraði í suð urhluta landsins. Þetta er auð- ugasta hérað landsins, er þar unninn úr jörðu um fimmti hluti alls kopars í heiminum og mikiil hluti úraníums og radiums, sem notaður er auk gulls, demanta og ýmissra ann arra verðmætra efna. Foringi svertingjanna i þessu héraði Mose Tsjombe hefur nú opinberlega lýst yfir stofnun sjálfstæðs ríkis í Katanga, sem sé alveg óháð Kongó- lýðveldinu. Tsjombe hefur jafnframt óskað þess að belgískt herlið verði um kyrrt í Katanga héraði til þess að verja landið gegn lýðveldis- stjórninni í Leopoldville, en bannar herliði S. þ. að' koma þangað. Af þessu virðist sýnt, að borgarastyrjöld sé að brjót- ast út í Kongó og enn ómögu- legt að segja fyrir um hvernig henni lyktar. Tsjombe forsæt- isráðherra Katanga hefur ósk- að eftir því að land hans fái að sameinast Norður-Ródesíu, en þeirri tillögu verið tekið fálega í Ródesíur- Það mátti sjá fyrir hættuna á skilnaði Katanga-héraðs nokkru áður en Kongó hlaut sjálfstæði. íbúar þessa rikasta héraðs vilja sjálfir fá að sitja að auðæfum landsins, en ekki þurfa að deila þeim með öll- um öðrum héruðum Kongó. Þó réði það úrslitum, að Tsjombe forsætisráðherra taldi að gengið hefði verið framhjá honum við myndun lýðveldis- stjórnar. Heimtaði hann jöín áhrif í ríkisstjórn á við flokka þeirra Lumumbas og Kasavu- bus , en fékk ekki og afleiðing- in varð að hann sat eftir utan ríkisstjórnar. Tsjombe hefur flutt ræðu í útvarpsstöðina í Elisabeth- ville, höfuðborg Katanga. Þar hefur han ákært forustu- menn lýðveldisstjórnarinnar í Leopoldville um að þeir séu kommúnistar. Lumumba forsætisráðherra hefur svarað og kallað Tsjombe landráðamanna og vikapilt belgísku nýlendukúg- aranna. Það er heitt í Kongó bæði í frumskógunum og sál hinna innfæddu. Riehard Reck heimsótti Grímsey PRÓFESSOR RICHARD BECK, sem verið hefir á ferðalagi norð- ur í landi og farið út í Grímsey, er nýkomínn til borgarinnar. Hann flutti ræðu á ýmsum sam- komum Norðanlands, meðal ann ars á 30 ára afmælissamkomu Skógræktarfélags Eyfirðinga, sem haldin var í Vaglaskógi og við guðsþjónustu í Matthíasar- kirkju á Akureyri. Dr. Beck fór til Noregs í gær. 1 Z' NA f 5 hnútar | y/ S V 50 hnutar Snjó/como > 06i V Skúrir K Þrumur KuUa,kH Hittski! H H* J L Laqi ir -» iaaa nc 1 VJS uun * %•' J /020 Forstöðumenn byggingarrann sóknanna: Haraldur Ásgeirs- son, verkfræðingur hjá At- vinnudeild Háskólans, Stein- grímur Ilermannsson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknar- ráðs ríkisins, bandaríski bygg ingarsérfræðingurinn Robert L. Davison og Jóhann Jak- obsson, forstöðumaður Iðn- aðardeildar Atvinnudeildar Háskólans. Lægðin sem er um 800 km. suður af Vestmannaeyjum, var í gær á hreyfingu A eða NA og fór heldur dýpkandi. Ekki var búizt við úrkomu vestan lands af völdum henn- ar, en vindur fór vaxandi, var kominn stinningskaldi og skýj að loft við ströndina í gær. Á síldarmiðunum mun sjóveður hafa farið versnandi. Eins og sjá má af kortinu vantar veður á nokkrum stöð- um, svo sem veðurskipinu Alfa, London og víðar. Stafar það af slæmum hlustunarskil- I yrðum, m.a. bárust engar veð- ( urfregnir frá Ameríku í gær- s morgun. ) Veðurhorfur: SV-mið: Aust ( an kaldi ,skýjað. SV-land til S N-lands og Faxaflóamið til ^ Vestfjarðamiða: A gola eða s kaldi, bjartviðri. NA-land og i NA-mið: Vaxandi austanátt, \ kaldi eða stinningskaldi og \ skýjað með kvöldinu. Aust- ) firðir, SA-land, Austfjarðamið • og SA-mið: A og NA stinnings s kaldi ,skýjað dálítil rigning er i líður á daginn. 5

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.