Morgunblaðið - 17.07.1960, Side 11

Morgunblaðið - 17.07.1960, Side 11
Sunnudagur 17. júlí 1960 MORGVNBLAÐIÐ II Sigurður A. IHagnusson: ÞAÐ er kannski sérvizka, en mér er orðið ómögulegt að ferðast með þessum skipulögðu hópum sem allar ferðaskrifstofur verald- ar keppast um að hafa á sínu framfæri. í Aþenu er a.m.k. heil tylft slíkra stofnana og ferða- mannahóparnir bruna út úr borg- inni á fárra stunda fresti í vel- smurðum, björtum og þægilegum langferðabílum sem ganga undir nafninu Pullman. Ég kýs hins veg ar að kaupa mér far með gömlu, úrsérgengnu áætlunarbílunum, sem skrölta til Navplíon á klukku tímafresti. Með því móti einu er ég sjálfum mér ráðandi, þó það sé bæði tímafrekara og á'margan hátt erfiðara. Leiðin frá Aþenu liggur um „veginn helga“ hjá hinu fræga Dafní-klaustri frá 11. öld, þar sem áður stóð hof Apollóns, um Elevís hina fornfrægu miðstöð launhelganna, hjá Megara sem forðum ól fræga sægarpa og sendi menn af örkinni til að stofna nýlenduna Býzans, sem ís- lendingar nefndu Miklagarð, yfir Kórintu-skurðinn sem grafinn var árið 1858 gegnum eiðið sem tengdi Pelopsskagann við megin- land Grikklands, og eftir 85 kíló- metra akstur erum við í Kórintu sem fræg er úr fornum annálum og bréfum Páls postula. Yfir Kór- intu gnæfir hin tilkomumikla há- borg, Akrókórinta, 527 metra yf- ir sjávarmál. Þar var til forna hof ástargyðjunnar, Afródítu, er hafði í þjónustu sinni þúsund hofskækjur þegar bezt lét. Eftir stutta viðdvöl í Kórintu er haldið í suðurátt yfir Nemeu- sléttuna þar sem fram fóru al- grísk íþróttamót til heiðurs Seifi annað hvert ár. Það var hér sem Herakles leysti hina fyrstu af tólf þrautum sínum með því- að kyrkja Nemeu-ljónið. Nokkru sunnar liggur þröngt fjallaskarð, Dervenakía-skarðið, sem frægt er úr frelsisstríði Grikkja á síðustu öld. Þar eyddi kappinn Kólókótrónis ásamt þús- und Grikkjum her Tyrkja sem var sexfalt mannfleiri. Skjanna- hvít höggmynd af hinni öldnu hetju prýðir skarðið, sem er kafið í grænum gróðri og stingur í stúf við hrjóstrugt umhverfið. Þegar skarðinu sleppir blasir við augum víðáttumikil og gróð ursæl Argos-sléttan, einhver sögufrægasti staður í gervöllu Grikklandi. f suðri gnæfa tvær hnarreistar háborgir typptar kast alarústum frá miðöldum yfir sléttuna. Sú sem nær liggur er Larissa, háþorgin í Argos, en sú fjærri er Palamídi, háborgin í Navplíon á strönd hins djúpbláa Argos-flóa. Feneyingar reistu kastalana þegar þeir réðu Pelops skaga á miðöldum. í austri þegar ekið er suður sléttuna áleiðis til Navpiíon koma í ljós tvö tignarleg ávöl fjöl.', sem renna saman rótum. Af einhverj- um kynlegum orsökum minna pau mig strax á íturvaxinn konu barm, kannski vegna þess að ég er með hugann við Helenu fögru og systur hennar Klýtemnestru drottningu í Mýkene, en rústir þeirrar glæstu borgar liggja ein- mitt á mótum fjallanna. Það er satt að segja engu líkara en sjálft landslagið árétti sagnirnar um þá hrikalegu harmleiki ástar og hat- urs sem hér voru settir á svið af duttlungafullum örlögum. Há- borgin í Mýkene lætur lítið yfir sér úr fjarska, þar sem hún stend ur 280 metra há á mótum hinna tígulegu fjalla, en eigi að síður geymir hún einhverjar elztu og merkilegustu fornminjar á megin landi Evrópu. Mýkene á ekkert af þeirri björtu og stórfenglegu tign sem ýmsar fornar rústir í Grikklandi búa yfir, svo sem Akrópólis í Aþenu, Lindos á Ródos, Póseid- ons-hofið á Súníon-oddanum, Delfí og margir fleiri staðir. Hér skín ekki á glitrandi marmara og hér eru engar hofrústir með fag- ursköpuðum, þokkafullum súlna röðum. Hér eru bara þunglama- legir, móleitir klettar sem hverfa inn í umhverfið þegar þeir eru Konungagrafirnar innan við borgarmurana. I hæði nni til hægri á myndinni er „gröf Agamemnons" ann. f suðri risa háborgirnar með sína einkennilega seiðmögnuðu kastala, en handan við þær glitt- ir í sólstafaðan Argos-flóann og dökkblá fjöllin bak við hann. „Mýkene hinn gullna“, nafnið er umvafið töfrabirtu úr kviðu Hómers. Rústirnar sem við okk- ur blasa eru leifar borgar sem byggð var rúmum 20 öldum áð- ur en nokkurt mannlegt auga leit koma fram hefndum á syni Atre osar, Agamemnon. Agamemnon varð ofan á í bar- áttunni við frændur sina um kon- ungdóm í Mýkene og um hans daga varð vegur borgarinnar mestur. Agamemnon var um skeið voldugasti konungur í öllu Grikklandi og það féll í hans hlut að stjórna herförinni til Tróju árið 1192 f. Kr. til að hefna þar sem steinarnir tala eftir 3500 ár þegar hann kom að hefna föður síns. séðir úr fjarska. Eigi að síður er gesturinn sem þrumu lostinn þegar hann stend- ur frammi fyrir Ljónahliðinu, þessum rammbyggða inngangj í háborgina sem staðið hefur af sér allar hryðjur síðustu 3500 ára. Hér réð ríkjum sjálfur Aga- memnon, sögufrægasti konungur í Grikklandi, sem lét lifið fyrir hendi konu sinnar og ástmanns hennar þegar hann kom heim úr 10 ára sigursælli herför sem sjálf Ilíonskviða Hómers fjallar um. Útsýnið frá Mýkene er óviðjafn- anlegt: víðáttumikil Argos-slétt- an, gróðurmikil og þakin litlurn þorpum, umkringd fjallahring sem hækkar og blánar út í fjarsk I.jónahliðið í Mýkene. fsland. Múrarnir, hallimar, graf- irnar, allt var þetta reist um 1600 árum fyrir fæðingu Krists af mönnum sem ekki höfðu annað í höndunum en frumstæðustu verk færi. Þessi borg átti eftir að verða fræg um víða veröld, því hér sat að völdum konungurinn sem stjórnaði 10 ára umsátri Grikkja um Tróju, sjálfur Aga- memnon, söguhetja Hómers og harmleikaskáldsins Eskylosar. Hér blandaðist auður, vegsemd og völd váböli haturs, afbrýði og ættingjamorða. Goðsögnin hermir að Persevs, sonur Seifs og ógoðborinnar konu hafi stofnað Mýkene. Lindin Perseia, sem liggur utan við há- borgina norðaustanmegin, vall fram þegar hann hjó sverði sínu í klett. Ætt hans dó út og til valda kom Pelops-ættin með margfalda bölvun í blóðinu. Pel ops, faðir Atreosar og afi Aga- memnons, drap ökumann tengda- föður síns sem hafði hjálpað hon- um að vinha brúði sina, Hippó- damíu. Og Tantalos, faðir Pelops, hafði kallað yfir sig eilífa bölvun guðanna með því að bjóða þeim til veizlu og bera fyrir þá hold sonar síns sem hann hafði slátr- að. Þýestes sonur Pelops lagðist með konu bróður síns, og Atreos greip þá til ráðs afa síns og lét bera holdið af börnum Þýestesar fyrir hann í veizlu sem hann efndi til. Eitt barnanna, Egisþos, kornst þó lífs af, og varð til að háðungarinnar sem París prins í Tróju hafði gert Menelaosi kon- ungi í Spörtu, bróður Agamemn- ons, með því að nema brott konu hans, Helenu fögru, sem var syst- ir Klýtemnestru drottningar í Mýkene. Agamemnon keypti forustuna dýru verði því hann varð að fórna Ífígeníu dóttur sinni til að fá byr fyrir gríska flotann til Tróju. I fjarveru hans varð Egisþos ást- maður Klýtemnestru. Þegar Aga- memnan sneri heim aftur sigur- sæll herkonungur með Kassöndru prinsessu í Tróju, sem í senn var ambátt hans og ástkona, tóku þau hjúin Klýtemnestra og Egisþos á móti honum, bjuggu honum heitt bað og myrtu hann. Síðan ríktu þau í Mýkene um árabil, og hjá þeim var Elektra dóttir Klýtemn- estru, sem lagði fæð á móður sína og hafði komið Órestesi, ungum bróður sínum, undan. Hún beið hans öll þessi ár, og í fylling tímans birtist hann til að hefna föður síns með þvi að drepa móð- ur sína og ástmann hennar. Síð- an reikaði Órestes um friðlaus af samvizkukvölum, unz hann kom til Attíku og hlaut að lokum sak aruppgjöf fyrir dómstólnum (are ópagos) í Aþenu að tilstuðlan gyðjúnnar sem borgin dró nafn af. Harmleikaskáldið Eskylos hef- ur samið ódauðlega trílógíu, „Orestía“, um örlög þessarar raun um þjáðu konungsættar, og eru leikritin meðal stórfenglegustu leikhúsverka heimsins. Mýkene fékk ekki umflúið ör- lög annarra griskra borgríkja. Eftir blómaskeiðið kom hnign- unin og loks var bofgin eydd. Dórar tóku hana kringum 1100 f. Kr., og miklu síðar, eða árið 468 f. Kr., jöfnúðu nágrannarnir í Argos þorgina við jörð. Síðan var Mýkene sandi örpin og gleymsku annars staðar en á spjöldu msögunnar, þar til þýzk- ur draumóramaður og sjálfmennt aður fomleifagrúskari, Heinrioh Sehielmann, gróf hana úr jörð öllum heiminum til stórkostlegr- ar furðu. Sohliemann hafði á- sett sér að færa sönnur á að kviður Hómers væru ekki ein- tómur skáldlegur hugarburður og á árunum 1874-79 rauf hann tjaldið sem byrgt hafði mönn- um sýn lengra aftur en tii tíma Hómers á 8. Öld f. Kr. Hann gróf einnig úr jörð rúst- ir Trójuborgar og vann eitt- hvert mesta afreksverk í sögu- fornleifarannsókna, þó sumir sér- fræðingar í faginu hafi hlegið að honum og geri raunar enn. Uppgröftur Schliemanns leiddi í ljós glæsilegt menningarskeið í Grikklandi löngu fyrir daga Hómers. Þetta skeið er venjulega kennt við Mýkene-menninguna er var í blóma á sama tíma og Minos-menningin á Xrít. f önd- verðu virðist menningin í Mýk- ene hafa verið undir áhrifum frá Krít, en þegar fram í sótti fékk Mýkene yfirhöndina. — Hún gengdi og að því leyti merki- legra Chlutveirki en menningin á Krít, að hún varð uppspretta hinna miklu bókmennta sem að framan getur. Svipazt um i Mýkene. Það er steikjandi hiti þegar ég kem til Mýkene um ellefu- leytið með áætlunarbílnum frá Argos. Ég er eini farþeginn, því langsamlega flestir ferða- mennanna koma hingað í hin- um skipulögðu hópum ferða- skrifstofanna. Þegar ég kem á staðinn eru yt'ir einir fimm stórir langerðabílar og hóparn ir eru að klöngrast upp tröpp- urnar til konungshallarinnar undir forustu mælskra leið- » sögumanna. Þeir hafa skamma viðdvöl, renna augum yfir það helzta í höllinni og halda svo burt. Ég nýt þess í fullum mæli að geta rambað um rústirnar í þrjá-fjóra tíma án afskipta ann- arra. Megininngangurinn í háborg ina, Ljónahliðið, er stórfengleg- ur ekki síður en sjálfir borgar- múrarnir. Þeir eru byggðir úr stórgrýti og vega stærstu stein arnir að sögn fimm til sex tonn Samkvæmt goðsögninni voru þessir rammgeru múrar byggð- ir af risum frá Asíu, svone^nd- um Kýklópum, og ganga þvl undir nafninu Kýklópa-múrar. Slíka múra er að finna á nokkr um stöðum í Grikklandi, þar sem Akkear áttu sér virki fyr- ir innnás Dóra. Ljónahliðið er mikið mann- virki, 3,15 metra hátt og 2,75 til 3 metra breitt. Það er gert úr þremur voldugum stein- hellum og yfir því er holur þrí- hyrningur, sennilega til að draga úr þunganum sem á hliðinu hvíldi. í holrúminu er hámynd af tveim Ijónynjum sem standa á afturfótunum sitt hvorum megin við sívala súlu og hvíla fram- lappirnar á stalli hennar. Höfuð ljónanna eru horfin, sennilega vegna þess að þau voru gerð úr viðkvæmara efni eða dýrum málmi sem rænt hefur verið. Þessi hámynd er meðal allra elztu listaverka Evrópu og form hennar bendir til áhrifa frá Krít. Menn greinir á um hvað hún hafi átt að tákna.JSumir halda að hún hafi haft trúarlega merkingu, aðrir að hér sé um að ræða skjald armerki konungsins og enn aðrir Framh. á bls. 14 ýkene

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.