Morgunblaðið - 17.07.1960, Síða 24

Morgunblaðið - 17.07.1960, Síða 24
Reykjavíkurbréf er á bls. 13. Íbrótfasíðan er á bls. 32. 160. tbl. — Sunnudagur 17. júlí 1960 Vonbrigði hjá síldarfólki Lílið varð úr síldarfregnunum LÍTEÐ varð úr síldarbreiðu þeirri sem leitarflugvélin sá út af Hraunhafnartanga í fyrrinótt. Var hún svo dreifð og torfurnar þunnar, að skip- in, sem voru nokkuð mörg þarna fengu ekki meira en 50—150 mál. Um það ieyti sem skipin voru á leið á þennan stað fann Fanney síld á Digranesflaki og gat snúið nokkuð morgum þeirra við. Munu þau skip hafa haft allt frá 400 máium upp í 1000 mál. í gærmorgun hafði ekkert frétzt af sild. 1 gær var verið að salta á Raufanhöfn. Þangað höfðu komið um tuttugu bátar með 2000 tunn- ur um morguninn. sw Á Austfjarðahafnirnar Til Neskaupstaðar komu í gær 3 skip: Goðaborg með 700 mál, Iváinn með 400 og Hafrún með 400. Síldin veiddist austur af Bjarnarey og fór í bræðslu. Til Vopnafjarðar komu 7 skip með síld í bræðslu: Asgeir RE 550, Ársæll Sigurðsson GK með 700; Sindri VE með 200; Víðir SÍJ með 900; Sunnutindur SU með 350; Ölafur Magnússon AK með 1000, Ófeigur III. VE með 450 Til Seyðisfjarðar komu 3 skip í gærmorgun, Dalaröst með um 500 mál og Bragi með 700, Ás- mundur með 700 mál. Aflinn er áætlaður. Sólskin, en engin síld. Fréttaritari blaðsins a Siglu- firði skýrði svo frá að þar væri sumar og sólskin, en engin síld, hvorki verið að salta né bræða. Höfðu menn orðið fyrir miklum vonbrigðum í fyrrinótt yfir að svo lítið skyldi verða úr síldar- fréttunum. Sá brezki breiddi nafn og númer Á FIMMTUDAG reyndi brezkur togari, sem var að ólöglegum veiðum í land- helgi að bieiða yfir nafn og númer, en úr gæzluflugvél- inni Rán tókst að lesa nafnið gegnum yfirbreiðsluna og ná góðum myndum af þessu. Um atburð þennan segir í frétta- tilkynningu frá Landhelgis- gæzlunni: Eins og kunnugt er kemur það fyrir við og við að skip, sem reyna að hylja nafn sitt og ein- kennisstafi, svo að þau ekki þekkist. Eitt slíkt tilfelli skeði í fyrra- kvöld við Kolbeinsey. Kom Gæzluflugvélin RÁN þar að brezkum togara, Coldstreamer G. Y. 10, þar sem hann var að ólöglegum veiðum um tvær sjó- milur innan fiskveiðitakmark- anna. Voru breiddar netadruslur yfir nafn og númer skipsins báðu megin á bóg og aftarlega á síðu svo og á skutnum. Nafn og númer skipsins sáust ætla að stunda ólöglegar veiðar, þó í gegnum druslurnar og tókst Of mikil olía? Blaðinu hefur borizt eftirfar- andi athugasemd frá S.Í.S.: „Stutt frétt á baksíðu Morgun- blaðsins s.l. fimmtudag um smá- bruna í kyndiherbergi Sambands hússins ber fyrirsögnina: „Bréf- um brennt hjá SÍS í Í3rrrinótt“. í fréttinni er sagt að bruninn hafi orðið meðan verið var að brenna „skjölum". — Til að firra mis- skilningi, má geta þess, að slík brennsla „skjala" fer þarna fram hverja nótt og hefur svo verið undanfarin ár. „Skjölin", sem svo eru nefnd, eru það affall, sem kemur við ræstingu hússins og tæmingu pappírskarfa að kvöldi hvers vinnudags". Eftir þessari yfirlýsingu SÍS að dæma er ástæðan til eldsvoðans um nóttina ekki sú að þá hafi verið brennt óvenju miklu af „skjölum“. Líklegasta tilgátan er því sú, að helzt til mikið hafi verið notað af olíu. Er réttum aðilum vinsamlega bent á að rannsaka þá tilgátu um tildrög eldsvoðans, enda hefur Tímanum gengið eitthvað erfið- lega að grafast fyrir um þau, því það tók hann tvo daga að finna það út, að ekkert væri „skrítið“ við brunann í S.Í.S. Fyrri túnasláttur búinn á Kjalarnesi RÁN að ná góðum ljósmyndum af því öllu. Er flugvélin gaf togaranum stöðvunarmerki með Ijóskúlu og reyndi að hafa radiosamiband við hann, dró hann í skyndi inn vörp una og hélt sem hraðast til brezks herskips sem var nokkru vestar. Mun það einnig hafa ýtt undir brottför hans úr fiskveiði landhelginni að varðskipið ÆGIR var á leiðinni á staðinn, enda þótt hann hefði ekki við þessum nýja og ganggóða tog- BREZKI togarinn Coldstream- er GY 10 með netadruslur breiddar yfir nafn og númer báðum megin á bóg og aftar- lega á síðu, svo og á skutn- um. Ef myndin prentast vel má lesa nafn og númer. — Myndin var tekin úr gæzlu- flugvélinni Rán. Dönsku konungs- hjónin íGrænlandi DÖNSKU konungshjónin og rík- isarfinn, Margrét krónprinsessa, eru nú á ferðalagi um Grænland. — Hafa hinir tignu gestir m. a. heimsótt bæinn Upernivik og Umanak — og hafa Grænlend- ingar tekið þeim með kostum og kynjum. Erfiðleikar á að greiða sjúkravélina Kjalarnesi 15. júlí. Túnasláttur byrjaði hér um Jónsmessuna. Voru tún þá að verða vel sprottin, en vegna ó- þurrka fóru bændur sér hægt, og það, sem heyjað var, var látið í vothey. Nú er dásamleg heyskapartíð og hefur staðið frá og með 5. júlí, þó með þeirri uhdantekn- ingu, að á laugardaginn var, kl. 5, gerði úrhellisrigningu af suð- austri og fylgdu þrumur og eld- ingar. Var þá, sem allt ætlaði úr skorðum að ganga. Supnudag inn næsta á eftir var norðaust- an þræsingsveður. Þó blés af heyi, og þornaði nokkuð, þegar leið á daginn. Svo vel hefur heyskapur geng ið, að þeir bændur, sem lengst eru komnir, eru búnir rrreð fyrri slátt á túnum. Túnaslætti verður senn almennt lokið. Þá fylgir fast á eftir uppsæting og hirðing inn í hlöður, og gengur svo vel, að næstum undurum sæt ir, því að frekar er fólksfæð en hitt. Það, sem gerir þennan góða gang á heyskapnum í fólksfæð- inni, er góður vélakostur bænda, hyggindi þeirra og vinnuþol, sem byggist á mikilli reynslu og brýnni nauðsyn. —Ó. B. í GÆR kom Björn Pálsson, flug- maður, heim frá Bandaríkjunum með flugvél Loftleiða. Hann hef- ur fest kaup á Bonanza-flugvél í Bandaríkjunum, eins og áður hefur verið skýrt frá og greitt sinn hluta, en hlutur Slysavarna- félagsins enn ógreiddur og þurfti Björn að skreppa heim í því sambandi. Hann fer væntanlega utan aftur á mánudag eða þriðju- dag. Slysavarnafélagið 60% Áður en Björn fór utan, mun hafa verið umtalað að Slysa- varnafélagið tæki þátt í kaup- unum og ætti 60% flugvélarinn- ar. Var búið að sækja um sam- eiginlega gjaldeyrisheimild og fá hana. Komst undan lögreglu- hjólinu á 140 km hraða EINN af lögregluþjónum véla- deildar götulögreglunnar Magnús Einarsson, elti, aðfaranótt föstu- dagsins, bíl af Keflavíkurflug- velli, lengi nætur, en missti af honum á Hafnarfjarðarvegi. — Stóð þá hraðamælir bifhjólsins á 140 km. hraða, en bíllinn geystist áfram og fékk lögregluþjónninn ekki náð í ökuþórinn. Það var komið undir morgun, er leigubílstjóri einn, sem vitað hafði um þennan eltingarleik, sá bíl ökuþórsins. Var hann þá kominn á yfirráðasvæði Hafnar- fjarðarlögreglunnar. Fór hún með þessum leigubílstjóra á stúfana og tókst þá að ná bíln- um. Var farið með manninn, sem er ungur Bandarikjamaður í varnarliðinu, til Reykjavíkur og var hann settur í Steininn. Ekki hafði maðurinn verið ölvaður, enda hæpið að ölvaður maður hefði getað haldið bíl á öllum fjórum hjólum á 140 km. hraða. Hermaðurinn hafði aftur á móti ekki ökuleyfi. Þar eð Slysavarnafélagið mundi ekki hafa nema hluta af fjár- hæðinni handbæran, hafði ver- ið ákveðið að athuga hvort Hannes Kjartansson ræðismaður gæti útvegað lán vestra fyrir því sem á vantaði. Var Hannes bú- inn að tilkynna að hann gæti útvegað lánið. Björn festi svo kaup á flugvél- inni 7. júlí, greiddi sinn hluta og sendi Slysavarnafélaginu skeyti um kaupin og að nú þyrfti þess hlutur að greiðast. Hann fékk ekkert svar við tveimur skeyt- um, en talaði þá við flugmála- stjóra, sem gekk í málið. Ráðherra ábyrgist Barst þá skeyti frá Slysavarna félaginu, þar sem segir að með velvilja ríkisstjórnarinnar m.uni félagið gera sitt ítrasta, en greiðsla eða ábyrgð óframkvæm- anleg og svo stöddu. Voru flug- vélakaupin þá í hættu svo og fjárhluti Björns. Sneri Bjöm sér þá til Ingólfs Jónssonar, flug- málaráðherra, sem símaði rík- isábyrgð fyrir láninu fyrir vest- an ,en greiðsla Slysavarnafélags- ins héðan að heiman hefur ekki borizt og er Björn nú kominn heim í stutta ferð vegna þessa máls. Björn hefur í hyggju að fljúga Bonanza flugvélinni til íslands, ásamt Skúla Axelssyni, flug- manni hjá Lof.tleiðum, sem kom- inn er vestur. Er hann nú að sjá um endanlegan frágang á flug- vélinni fyrir þessa löngu ferð. Eins er verið að ganga frá út- flutningspappírum fyrir hana.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.