Morgunblaðið - 23.08.1960, Síða 9
I>riðjudagur 23. ágúst 1960
MORGUNBLAÐIB
9
Sr. Ólafur Ólafsson
prófastur í Hjarðarholti — aldarminning
í DAG eru liðin 100 ár síðan er
séra Ólafur Ólafsson prófastur í
Hjarðarholti í Dölum fæddist. Er
þar manns að minnast, sem
vart mim gleymast þeim, er
k'Unnugir voru homum og heimili
hans. Fuilur fjórðungur aldar
er iiðinn frá því er hann lézt, 13.
marz 1935. I>ó finnst oss sem
stundir nokkrar, en ekki áratug-
ir, séu liðnar, siðan er vér nut-
um gestrisni á glæsilegu prests-
heimili í Hjarðarhoiti og rædd-
um við eða öllu fremur hlýdd-
um á eidihuga á sextugsaldri.
Hér er hvorki tími né geta
fyrir hendi til þess að gera minn-
ingu séra Ólafs þau skil sem
vera bæri. Línur þessar eru eink
um ritaðar til þess að minna
gömul sóknarbörn og aðra forn-
vini, sem ekki hafa ártöl I huga,
á aldarafmælið. Veit ég, að þá
muni vakna hjá þeim minning-
ar, sem þeim er Ijúft að dvelja
við.
Um æviatriði séra Ólafs verð-
ur farið fljótt yfir sögu. Hann
var fæddur í Hafnarfirði, sonur
Ólafs kaupmanns Jónssonar og
konu hans Mettu Kristínar Ó.afs
dóttur. Hann lauk stúdentsprófi
1883 og embættisprófi frá p>esta-
skólanum 21. ágúst 1885. Var
honum þá þegar veitt Lundar-
prestakall í Borgarfirði, og vígð-
ur var hánn 6. sept. sami ár.
Þjónaði hann því prestakalli til
vors 1902, en fluttist þá að
Hjarðarholti, sem hann hafði
fengið veitingu fyrir haustið áð-
ur. Prófastur var hann frá 1905,
en lausn frá prests. og prófasts-
störfum fékk hann frá fardögum
1920. Eftir það átti hanh heima
í Reykjavík til æviloka.
Prestaköll þau, er séra Ólafur
þjónaði, Lundur og Hjarðarhoit.
voru fámenn og fremur tekju-
rýr, en hæg yfirferðar og bú-
jarðir allgóðar. Var sem ætiazt
væri til, að presturinn sinnti jöfn
um höndum bústjórn — jafnvel
erfiðisvinnu — og embættisstörf
um, enda knúði þar nauðsyn til,
einkum á frumbýlingsarum, ef
ekki átti allt að fara í kaldakol.
Séra Ólafur gerðist búlxöldur
mikill, og blómgaðist hagur
hans, er fram liðu stun.'.r. Bjó
hann vel um sig í Hjarðarholti,
sem varð eignarjörð hans, eftir
að ákveðið hafði verið með lög-
um, að prestakallið skyidi lagt
niður við næstu prestask pti. En
•þegar um hægðist fyrir honum
með búskapinn, fann st^rfshug-
ur hans nýtt verkefni, r.æsta
tímabært. Hann stofnaði ungl-
ingaskóia á heimili sínu um 1910
og rak hann fyrir eigin reikning
í átta ár með dálitlum opinber-
um styrk. Lagði hann allmikið
í kostnað til að auka húsakynni
vegna skólans. Var skólinn jafn-
an fullskipaður. Lét séra Ólafi
hvort tveggja jafn vel. stjóm
og kennsla, og ekki skorti áhug-
ann á því að ná sem mestum ár-
angri. Gamall nemandí frá
Hjarðarholti hefir sagt við mig.
„Mest undraðist é.g þoiinmæði
séra Ólafs gagnvart þeim, sem
áttu erfitt um skilning og minni.
Hið eina, sem hann þo’di illa,
var leti, áhugaleysi við námið.“
Unglingaskólarnir, sem risu
upp víðs vegar um iandið á
íyrstu áratugum þessarar aldar,
eru einstakt, markvert íyrirbæri
í skólasögu vorri. Áhugan'enn,
einn eða fieiri á hverjum stað,
hófust handa, stofnuðu skó’a og
ráku hann á eigin ábyrgð Húsa-
kynni og annað, sem til útbún.
aðar heyrði, var oftast næsta fá-
tækiegt. Ekki var eftir háum
launum að slægjast. Smárri upp
hæð af opinberu fé var deilt
milii skóianna. Forstö^umaður
skóians í Hjarðarhoiti sat þar
við sama borð og aðrir, en hann
■— eða réttara sagt skóli hans —
naut þess, að þar var aðstaða til
skóiahalds hagstæðari en víða
annars staðar. Húsakynm voru
allmikil, og efnahagur ieyfði, að
þau væru aukin og bætt. Annað
var þó en.n mikilvægara. Miklir
og góðir kennslukraftar voru
fyrir hendi þar heima, þega: við
stofnun skólans. Böm þeirra
prófastshjóna voru þá qrðin —
og hið yngsta að verða — fuil-
tíða. Þau höfðu öll h’otið ágæta
menntun og áttu sinn þátt í að
koma því góða orði á skólann,
sem hann naut alla tið Síðar réð
séra Ólafur til sín kennara, er
lokið höfðu prófi við kennara-
skólann, og mun hann oftast
hafa verið heppinn í vali.
En þegar getið er ævistarfs
séra Ólafs, ber þess vel að minn-
ast, að hann stóð ekki einn að
verki um bús- og heimilisstjórn.
Kona hans, frú Ingibjörg (d.
1929) Pálsdóttir (prests í Arn-
arbæli, Mathiesens) var mikil
húsmóðir, og mun ekki á séra
Ólaf hallað, þótt hið fagra cg
trausta heimilislíf í Hjarðar-
holti sé fyrst og fremst henni
þakkað. Þau hjón voru ólík um
margt, en samhuga sem bezt
mátti verða. Mér kemur í hug,
er ég minnist þeirra frú Ingi-
bjargar og síra Ólafs: skærar,
kyrrar glæður og — logi, er rís
hátt.
Þegar ég, sem þetta ri*a flutt-
ist til starfs vestur í Dalasýslu.
ungur að árum, var orðið
skammt eftir dvalar séra Ólafs
þar í héraði. Samfundir voru
ekki mjög tíðir, en því betur
man ég þá, hvern og einn Sá
var einn háttur séra Ólafs, að
hann var stundum nokkuð þurr
á manninn, er hann kom til
dyra, líkt því sem gesturinn
hefði truflað hann, rofið hugs-
anir, sem hann var sokki.m i og
ekki var ljúft að hvarfla frá. En
þegar inn var komið jafnaði
•hann sig brátt. Mátti næstum
fylgjast með því, er hann færði
sig yfir á það „bylgjusvið<!, er
við átti. Og þar er skemmsl af
að segja, að upp úr því varð
hver stundin annarri unaðsiegri
í návist hans. Ekki varð skortur
á umræðuefnum; jafnskjótt og
eitt var þrotið, braut hann upp
á nýju. Eins og geta má nærri,
var séra Ólafur jafnan veitand-
inn, en gesturinn þiggjandi í
þess konar samræðum. Kom þar
til reynsla hans og þjálfuð íhug-
un langrar ævi, en alls ekki það,
að hann „tæki orðið“ og léti
gest sinn hlusta og samþykkja.
Hann kunni þá list að taia við
ungan mann sem jafningi. Og
sjálfur var hann næmur sem
ungmenni fyrir hverri hugsun,
er honum fannst nýstárleg og
verð íhugunar.
Séra Ólafur var skörulegur i
ræðustóli, flutti lifandi orð, ó-
háður hefðbundnu formi íyrri
tíðar. Ég get ekki varizt þeirri
huglsun, að sú kyrrstaða eða
lognværð, sem átti sér stað í
þjóðlífi voru lengst af embættis-
tíðar hans, hafi verið honum
nokkuð þung raun. En hann íét
ekki þá raun beygja sig né svæfa
eins og bezt sést á því, að hann
gerðist á sextugsaldri frömuður
mennta i héraði sínu. Þess er nú,
Framh. á bls. 13.
B 11 a s a I a n
Klapparstíg 37. Simi 19932
Ford Anglia ’60 til sölu
Hagkvæmir greiðsluskil-
málar.
B 11 a s a I a n
Klapparsúg 37. Sími 19032.
' Sími 11025
Til sölu og sýnis
Chevrolet ’60 Impala
Sérlega glæsilegur.. Skipti
á eldri bifreiðum koma til
greina.
Chevrolet ’59, Impala
með öliu. Keyrður aðeins
12 þús. km. Skipti á eldri
bifreiðum koma til greina.
Opel Rekord ’58
lítið keyrður og fæst á
góðu verði.
Ford Consul ’57 góður híll
Moskwitch ’59
í góðu standi. Skipti á eldri
bíl koma til greina.
Volkswagen ’55 og ’56
mjög góðir bilar. Fást á
góðu verði.
Mercury ’52
Fæst með góðum skilmál-
um.
Renault ’55
Góður bíll og góðir skil-
málar.
Chevrolet Pick-up ’53
í góðu standi.
Dodge Pick-up ’53
Allur ný yfirfarinn. Mjög
glæsilegur.
Austin 10 sendiferðahíll
Góðir skilmálar.
Mikið úrval af öllum teg-
undum hifreiða. — Ath.:
Urvalið er hjá okkur. —
Bifreiðasalan Bergþórugötu 3.
Simi 11025.
Bílasalan Hafnarfirði
Til sölu
Fiat 1100 Station ’58
Lítið ekinn. Skipti á Fiat
1800 Station.
Sandard ’50
í góðu standi. Skipti á
Opel Caravan, Ford eða
Chevrolet ’55 Station.
Opel Caravan ’55
Skipti á Opel Caravan ’55
til ’60. —
Ford Consul ’57
Skipti hugsanleg.
Ausin 8 ’46
Skipti á yngri 4ra manna
bíl eða 5 manna.
Austin 8 ’46
Skipti á 6 manna.
Vauxhall ’46
Fæst með lítillj útborgun.
Reno ’46
Skipti á jeppa.
Ford Anglia ’56
Skipti á ódýrari.
Skoda Station ’55
Skipti á Skoda fólksbíl.
Morris ’47
Skipti á Fiat 500.
Opel Caravan ’55, ’57, ’58
Ford Taunus ’58 Station
Skipti á ódýrari.
Chevrolet ’50
Skipti á 4ra manna bil.
Volvo ’50, ’55, ’58
Ath.: — Höfum flestar
tegundir bifreiða.
B i I a s a I a n
Strandgötu 4. — Sími 50884.
B i I a s a I a n
Klapparstíg 37. Sími 19032
Volkswagen ’60
Volkswagen ’59
Ekinn 9 þús. km.
Opel Caravan ’59
Fiat 1100 ’60
Fiat 1800 Station ’60
Moskwitch ’59
Ford Zodiac ’58
Ford Anglia ’57
Mercedes Benz 220 ’57
Bilasal an
Klapparstíg 37. Sími 19032
Reglusöm og ábyggileg kona
óskar eftir
rábskonustöðu
hjá eldri manni, vel efnuðum,
sem ætti góða íbúð. Reglu-
j semi og drengskaparheit áskil
in. Þeir, sem hefðu hug á
J þessu, sendi Mbl. svar með
J uppl., fyrir 30. þ.m., merkt:
■ „Ráðskonustaða — 854“.
Stúlkur kynning
Mig langar að kynnast skap-
góðri stúlku á aldrinum 28—
40 ára. Eg er ekki þunglynd-
ur, en finnst ég stundum dá-
rítið einmana. Algjörri þag-
mælsku heitið. Tilboð merkt
„Fljótt — 777“, sendist Mbl.
.VKIPAUTGCRB RIKiSINS
„ESJA“
austur um land í hringferð 28.
þ.m. tekið á móti flutningi í dag
og árdegis á'morgun til Fáskrúðs
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eskifjarð
arar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Þórshafnar, Raufarhafnar, Kópa-
skers og til Húsavíkur.
Farseðlar seldir á föstudag.
Herjólfur
fer til Vestmannaeyja og Horna-
fjarðar á morgun. Vörumóttaka í
dag.
Somkomur
Fíladelfía
í kvöld kl. 8,30 Biblíulestur.
Allir velkomnir.
Hálf húseignin Kársnesbraut 33
í Kópavogi (suðurendi) er til sölu. Upplýsingar gef-
ur Guðm. Vignir Jósefsson, hæstarréttarlögmaður,
Rauðalæk 50. — Sími 35976.
ftlRWICK
SILICOTE
Húsgagnogljdi
GLJÁI
OMO
RINSO
WIM
LUX-SPÆNIR
SUNLIGHT-SÁPA
LUX-SÁPULÖGUR
SILICOTE-bílagljái
Fyrirliggjandi
Óiafur Gíslason & Cobf
Sími 18370
Sparifjáreigendur
Avaxta sparifé á vinsælan og
öruggan hátt. Uppl. kl. 11—12
Ih. og 8—9.
Margeir J. Magnússon.
Stýrimannastíg 9. Sími 15385.
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar
púströr o.fl. varahlutir í marg
ar gerðir bifreiða. —
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168, — Simi 24180.
Vibskipta-
þjónustan
er fyrir kaupmenn, kaupfélög,
verksmiðjur og verkstæði úti
á landi.
Viðskiptaþjónustan
Austurstræti 12.
Box 1155.
Sími 3-56-39.