Morgunblaðið - 05.11.1960, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 05.11.1960, Qupperneq 23
Laugardagur 5. nóv. 1960 MORCTinfíT. AÐtÐ 23 Kennedy segir Eisenhower í vonlausum björgunarleiðangri KENNEDY svaraði í dag í San Francisco ræðum, sem þeir Eisenhower og Nixon héldu í New York. — Sagði Kennedy, að Eisenhower væri nú í björgunarleiðangri, sem engan árangur mundi bera. — Þið hafið séð fila ganga í hring í circus og halda í hala hver annars, sagði Kennedy. — Nixon lafði í hala Eisenhowers 1952 og 1956. Nú verður hann aö ganga einn, nú er það hann, sem baráttan stendur um, en ekki Eisenhower. dag ljós von um að vinna kjör- menn New York-ríkis. Nýjasta kosningasagan er sú að sonur Kennedys eigi að heita Marteinn Lúther Kennedy. En Kennedy er sem kunnugt er kaþólskur og er mikið raett um að trúarbrögðin muni hafa mikil áhrif á kosn ingaúrslitin. Fáll Pampichler Rússneskur fiðlusnillingur einleikari með Sinfóníuhljómsveitinni ★ Gagnrýndi utanrikis- þjónustuna Kennedy gagnrýndi harð- lega utanríkisþjónustu Banda- ríkjanna undir stjórn Repúblik- ana. Sagði hann, að sendiherrar kynnu alltof lítið í tungumálum, t. d. hefði sendiherra Bandaríkj- anna í Moskvu árið 1958 verið hinn eini bandaríski sendiherra i kommúnistaríki, sem talaði tungumál þess lands, sem hann var í. Aðeins tveir af niu sendi- herrum Bandaríkjanna í Araba- löndum töluðu mál viðkomandi lands og í átta af tólf NATO- löndum, þar sem ekki var töl- uð enska, skorti sendiherrann þekkingu á málum þjóðanna. Jafnvel sendiherra okkar i París, gat ekki talað frönsku við de Gaulle, sagði Kennedy. ý Til þjálfunar erlendis Kennedy stakk upp á því að Bandaríkin sendu unga Banda ríkjamenn til þriggja ára þjálf- unar fyrir utanríkisþjónustuna erlendis með tækni og viðskipta nefndum. — Nixon leggur viku- lega til stofnun nýrra nefnda, sagði Kennedy, en ég vil bæta utanríkisþjónustu okkar, það er nauðsynlegt til þess að vinna friðinn og koma í veg fyrir stríð. ★ Marteinn Lúther? Republikanar segja, að tvær milljónir manna hafi fagnað þeim Eisenhower og Nixon í New York í gær. Nixon lét í Góðar «æftir á Siglufirði SIGLUFIRÐI, 31. okt. — Það sem af er þessu hausti hefur verið einmuna tíð, og gæftir góðar. Fjórir bátar hafa verið gerðir héðan út á línu og fiskað sæmilega. Stærsti báturinn m/s Hringur, sem gerður er út af Þráni Sigurðssyni, hefur fengið frá 4—8 tonn í róðri. Allur afli línubátanna er unninn í frysti. húsi Þráins Sigurðssonar. Allmargar trillur hafa róið héðan í haust með handfæri. Afli þeirra hefur verið saltaður. Tunnuverksmiðja ríkisins tek- ur til starfa á morgun, og vinna þar yfir 30 mann í vetur. í síð- ustu viku lestaði Fjallfoss 500 tonn síldar héðan frá S. R. til útflutnings og Reykjafoss lestar í dag 1100 pakka af skreið. —G. Opef Caravan *55 til sölu. Mjög hagstæð ir greiðsluskilmálar. B í i a s a I a n Njálsgötu 40. Sími 11420. SINFÓNÍU-hljómsveit íslands heldur þriðju tónleika sina á þessu starfsári nk. þriðjudags- kvöld í Þjóðlelkhúsinu — og hefjast þeir kl. 20:30. — Hljóm- sveitarstjóri á tónleikum þess- um verður Páll Pampichler, en einleikari rússneski fiðlusnill. ingurinn Rafael Sobolevsky. — ★ — Viðfangsefni á þessum tónleik- um verða: Svíta nr. 1 fyrir kammerhljómsveit eftir Igor Stravinsky, fiðiukonsert eítir Katsjatúrían (eini fiðlukonsert hans) og loks Sinfóína nr. 4 í B-dúr eftir Beethoven. — Tvö fyrmefndu verkefnin hafa ekki heyrzt hér áður á sinfóníutón leikum. — ★ — Páll Pampichler er nýkominn heim frá framhaldsnámi í hljóm Prestar sitji ekki utan prestakalls ÁTTUNDA og 9. sept. sl. hélt Hallgrímsdeild aðalfund sinn í Borgarnesi. Sóttu hann 11 prest- ar af deildarsvæðinu og dr. Árni Árnason, fyrrv. héraðslæknir, en hann er heiðursmeðlimur deildar innar. — Hallgrímsdeild, sem er ein af deildum Prestafél. íslands nær yfir fjögur prófastsdæmi frá botni Hvalfjarðar að Gilsfirði. Deildin var stofnuð 9. sept. 1930 og á því 30 ára afmæli nú. Var þess sérstaklega minnzt á fund- inum. Messa var í Borgarneskirkju að kvöldi 8. sept. Séra Sigurður Lárusson, prófastur í Stykkis- hólmi, prédikaði, séra Leó Júlíus- .son þjónaði fyrir altari. Formað- ur deildarinnar, séra Sigurjón Guðjónsson, prófastur í Saurbæ, rakti 30 ára sögu hennar í stór- um dráttum. Að erindi hans loknu var kvöldvaka, uppbyggi- legt samtal, raktar minningar, dr. Árni Árnason flutti erindi o. fl. Aðalhvatamaður að stofnun Hall grímsdeildar var séra Þorsteinn Briem, prófastur á Akranesi. í stjórn eru nú, og hafa verið um árabil: Séra Sigurjón Guðjóns- son form., séra Jón M. Guðjóns- son ritari, séra Þorsteinn L. Jóns- son gjaldkeri. Ályktanir „Aðalfundur Hallgrímsdeildar Prestafélags Islands, haldinn í Borgarnesi 8.—9. sept. 1960 lýsir vanþóknun sinni á því ástandi, er skapazt hefur í nokkrum prestaköllum, að sóknarprestar sitja utan prestakalls síns sökum þess að þeim eru ekki búin við- hlítandi dvalarskilyrði þar“. „Aðalfundur Hallgrímsdeildar Prestafélags íslands, haldinn í Borgarnesi 8.—9. sept. 1960, átel- ur harðlega þann drátt, sem er orðinn á byggingu á prestsseturs- húsi á Borg á Mýrum, svo og að sóknarpresti Staðarhraunspresta- kalls skuli ekki hafa verið veitt- ur umráðaréttur prestssetursins þar, svo sem honum ber sam- kvæmt lögum.“ sveitarstjórn, en hann dvaldist nær ársskeið við Tónlistarhá- skólann í Hamborg. Kennari hans þar var Wilhelm Briickner Ruggeberg, sem er íslenzkum tón listarmönnum að góðu kunnur. í bréfi til Jóns Þórarinssonar, framkvæmdastjóra Sinfóníu- hljómsveitarinnar, hefur Rúgge- berg borið hið mesta lof á Pam- pichler, sem hann telur mjög efnilegan hljómsveitarstjóra. — Páll hefur nokkrum sinnum áður stjórnað Sinfóníuhljóm- sveitinni, einkum á tónleikum úti um land. Sýninjrum hætt á ”12 reiðir menn44 f SÍÐUSTU viku tók Austurbæj- arbíó myndina „Twelve Angry Men“ (12 reiðir menn) til sýn- ingar. Hér er um að ræða heims fræga mynd, sem hlotið hefur ótal verðlaun og einróma lof um allan heim, enda geysilega um- töluð. íslenzku blöðin höfðu og oftlega minnzt á hana, áður en hún kom hingað til lands. Engu að síður var myndin ekki sýnd nema sl. fimmtudag og föstudag á öllum sýningum eg laugardag, sunnudag og mánudag kl. 7 og 9. — Ýmsir munu hafa geymt sér að sjá hana, unzt það var orðið um seinan, þar eð þeir töldu víst að hún myndi ,,ganga‘ langa hrið, en aðsóknin var svo léleg, að ekki þótti fært að sýr.a hana lengur. Nýr sendiherra og ráðuneytisstjóri 2. nóvember sl. var Henrik Sv. Björnsson, ráðuneytisstjóri rtanríkisráðuneytisins, skipaður ambassador íslands í London frá 1. janúar 1961 að telja. Sam3 dag var Agnar Kl. Jóns- son, ambassador íslands í Par's, skipaður ráðuneytisstjóri utar— ríkisráðuneytisins frá sama tíma að te ja. Utrnrikisráðuneytið, Reykjavík, 4. nóvember 1960 KASSAR — ÖSKJUR BÚÐIRf Laufásv 4. S 13492 VAGN e. jónsson Máiflutnings- og innheimtu- skrifstofa Austurstræti 9 Símar 1-44-00 og 1-67-66 EINAR ASMUNDSSON hæstaréttarlögmaður HAFSTEINN SIGURÐSSON héraðsdómslögmaður Skrifstofa Hafnarstr 8 II. hæð. Simi lo407, 19113. Falleg bók EKKERT hérað á sér fegurra og tilþrifameira kvæði en Skaga- fjörður. Um það sá skáldjöfur- inn mikli Matthías Jochumsson. Áður hafði hann orkt Á Gamma brekku um Rangárþing og nær- liggjandi sveitir og skal ég ekki reyna að gera upp á milli kvæð- anna enda þótt mér þyki vænna um Skín við sólu Skagafjörður. Kaupfélag Skagfirðmga hetur nú, í minningum sjötíu ára starfsafmæli þess 1959, látið prenta skrautútgáfu af kvæðinu Skín við sólu Skagafjórður. Ó’- afur bóndi Sigurðsson á Hellu- landi sá um útgáfu en bókin er prentuð í Prentverki Odds að augiýsing i siærsva og útbreiddasta blaðinu — eykur söluna mest — IUorgmiJila^iö Björnssonar á Akureyri. For- mála hefur Jónas Jónsson frá Hriflu ritað. Kort af Skaga- fjarðarsýslu og tilvisun fylgir um merka staði í héraði. Þa er mynd af skáldinu Matth. Joch- umssyni. Þá er kvæðið, 13 er- indi, eitt á opnu en á móti við- eigandi myndir og stutt umsögn um hverja mynd. Loks er mynd af Sigurði tónskáldi Helgasyni, stutt æviágrip hans o. fl. eftir Ólaf á Hellulandi og lag Sigurð- ar við Skagafjörð raddsett af Eyþóri Stefánssyni. — Þetta er falleg bók og eiguleg og munu Skagfirðingar o. fl. fagna henni. Hún fæst í bókaverzlunum. Þorsteinn Jónsson. Ég þakka innilega öllum nær og f jær fyrir góðar gjafir, heimsóknir og heiilaskeyti á 40 ára afmæli mínu 27. okt s.l. — Allt þetta gerði mér daginn ógleymanlegan. Hrólfur Guðmundsson, Illugastöðum Aðalskrifstofan, Tjarnargötu 4, verður lokað í dag vegna jarðarfarar Dr. Þorkels Jóhannessonar háskólarektors. Happdrætti Háskóla Islands Lokað í dag vegna jarðarfarar Dr. phil. Þorkels Jóh- annessonar háskólarektors Almenna bókafélagið TORFI EINARSSON fyrrum útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, andaðist í sjúkrahúsinu Sólvangi Hafnarfirði 30. okt. s.l. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 5. r.óv kl. 1,30. Vandamenn. Þökkum hjartar.lega öllum fjær og nær, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eigin- manns míns arna s. jóhannssonar skipstjóra Ennfremur hjartans þökk til Skipstjórafélags Norð- lendinga fyrir margvíslegan sóma er þeir sýndu honum. Biðjum Guð að blessa ykkur öll. Fyrir hönd vandamanna. Jóhanna Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.