Alþýðublaðið - 23.11.1929, Blaðsíða 4
4
ALÞÝBtTBLAÐIÐ
Púður,
Andlitskream,
Tannpasta,
Tannsápa,
Tannvatn,
R ksápa,
Rakkreaip,
Handsápur.
Btðjið m Ðessar heimsfrægu
vðmr.
Umboðsmenn
Egsert Kristjánsson <& Co.
Reykjavík.
hæfilega milli þeirra til hljóm-
leika. Menn eru beðnir að takg
það fram í tilkynningunum, live
marga hljómleika þeir vilji halda,
í hvoru húsinu og hváða daga.
(FB.)
Um dtafffíiiK ®gg waglHia,
Neeturlæknir
er í nótt Sveinn Gunnarsson,
Óðinsgötu 1, sími 2263.
Næturvöiður
er næstu viku í lyfjabúð
Reykjavíkur og lyfjabúðinni „Ið-
unni“.
Messur
á morgun: í dömkirkjtmni kl.
11 séra Bjarni Jónsson, kl. 2
barna-guðsþjónusta séra Fríðrik
Hallgrímsson, kl. 5 messar séra
Fr. H. í fríl'tirkjunni kl. 5 séra
Árni Sigurðsson. 1 Landakots-
kirkju kl. 9 f. m. hámessa. J
Spítalakirkjunni í Hafnarfirði kl.
9 f. m. hámessa, kl. 6 e. m. guðs-
þjónusta með predikun. — Sam-
komur: SjómannastofUnnar M. 6
e. m. í Varðarhusinu. Á Njáls-
götu 1 M. 8 e. m.
Ekki hefir „Mgbl.“
enn þá svarað fyrirspum minnj
til þess um það, hvaða sundlaug
hér á landi það átti við, sem
menn hefðu sýkst í, né hver sú
veiM hafi verið. Sannar það með
þögninni, að þetta var að eins til-
búningur blaðsins, sem það getur
ekki staðið við.
ipróttamadur.
Kveikja ber
á bifreiðum og reiðhjólum M
3 og 35 mín. síðdegis og er log-
tíminn til kl. 8 og 50 mín. að
morgni. Þessi Ijóstími gildir ti)
næsta fimtudagsmorguns.
Sjómannafélag Reykjavíkur
heldur fund á morgun M. l5/g
|e. h. í alþýðuhúsinu Iðnó. Skýrt
verður frá undirtektum útgerð-
armanna línubátanna um kjörin.
Stjórnir félaganna komu saman á
fund í dag M. 2. — Haraldur
Guðmundsson flytur erindi um
skattamál, ef tími vinst til. Áríð-
andi er, að menn mætí siundvís-
lega, því að fundartíminn er tak-
markaður.
Stúkan „Verðandi“
heldur skemtun í kvöld kl. 9.
Árshátíð Sjómannafélags Reykja-
víkur
fór mjög vel fram og var svo
vel sótt, að salurinn var fullsMp-
aður.
Veðrlð.
Kl. 8 í morgun var 7—2 stiga
hiti, heitast í Grindavík, 6 stig í
Reykjavík. Otlit fyrir váxandi
austlæga átt um land ált. Hér
um slóðir í dag og nótt: Vaxandi
norðaustan-kaldi. Viðast úrkomu-
laust.
Hjónaband.
I dag verða gefin saman í
hjónaband Steinunn Sívertsen
(SigHrðardóttir prófessors) og
Gustav A. Jönasson lögreglufull-
trúi.
Kolaskip
kom hingað í gær til „Allian-
ce“, Ólafs Ólafssonar og Þóröar
Ólafssonar. Hingað kom það frá
Viðey, en þangað flutti það nokk-
uð af farminum.
Heilsufarsfréttir.
(Frá landlækninum.) S. 1. viku,
10.—16. þ. m., var heldur meira
en áður um kvefsótt og hálsbólgu
hér í Reykjavik. Veiktust 97 af
hálsbólgu og 50 af kvefsótt.
Hettusóttin ágerðist stórum.
Veiktust 67 þá viku, en 31 næstu
viku áður. — Þessa viku dóu 10
manns hér í Reykjavík.
Stúdentafræðslan.
Erindi séra Sig. Einarssonai’ í
templarasalnum í Bröttugötu (áð-
ur Gamla Bíó) í kvöld kl. 8V2
skýrir frá rannsóknum á stjúp-
börnum, sem fram hafa farið í
Þýzkalandi. Þessar rannsóknir eru
einn liður í því alþjóðastarfi að
þoka uppeldi barna í tímabært
horf. — Sr. Sigurður er viður-
kendur góður fyrirlesari, og má
vænta, að erindið verði hið
skemtilegasta. Miðar kosta að
eins 50 aura og gefst, hér því
bæði ódýr og gagnleg laugar-
dágskvöldskemtun.
ísfl'ksala.
„Arinbjörn hersir“ seldi afla
sinn í Englandi í fyrra dag, 635
kassa fyrir 1063 sterlingspund,
og „Skúli fógeti" um 850 kassa
fyrir 1098 stpd. í gær seldi
„Njörður" 660 kassa fyrir 960
stpd.
í auglýsingu
um kveldskemtun st. „Verð-
andi“ í blaðinu í gær átti að
standa, að aðgöngumiðar kosti
1 kr. fyrir skuldlausa félaga, en
2 kr. fyrir aðra teraplara.
Áheit á Elliheimilið.
í nokkru af upplagi blaðsins í
gær misprentaðist 4 kr., en átti
að vera 2 kr.
Með slasaðan snann
kom þýzkur togaxi hingað í
gærkveldi. Var fóturinn næstum
af manninum. Einnig kom enskur
togari í gærmorgun með sjúkan
mann.
Hljómsveit Reykjavíkur
er nú að hefja starfsemi sína á
þessum vetri. Biður stjórnihennar
þess getið. að ef einhverjirjþeir
hljóðfæraleikarar kynnu að vera
hér í bæ, sem hefðu getu og vilja
til að taka þátt í starfseminni og
ekki hefði náðst til. þá séu þeir
beðnir að koma til viðtals í Hljóm-
skálann á morgun (sunnudag) kl.
2—3.
Sitt sýnist hverjum.
Helgi Péturs skrifar smágrein í
„Vísi“ 15. þ. m„ þar sem hann
tekur sig til að ættfæra Jóh. Jóh.
og telur hann mjög af lögmönn-
um kominn, og þar með þykir
Helga ekki undur, þótt Jóhannes
telji sýslumannsembættið eiga mik-
inn rétt á sér. Svo er nú það.
Mér sýnist nú skemtilegra fyrir
Jóhannes, að Helgi hefði alls ekM
minst á hann í sambandi við
hina háttvirtu sýslumenn eða
lögmenn, úr því sem komið er,
sbr. vaxtatökumál Jóhannesar, og
trúað gæti ég því, að einhverjir
af þeim mörgu, er tápað hafa
fé sínu fyrir sMlning Jóhannesar
á lögum um meðferð á búafé,
þættust lítið gagn hafa af
lögmanna-ætterni hans. Annaxs
sýnist ekM nema sjálfsagt, að
hver og einn sæti ábyrgð sam-
kvæmt iQgum fyrir sínar misgerð-
ir, enda þótt þeir megi teljast vel
ættaðir eða komnir á efri ár. —
„Vísir" vildi ekM birta þessar fáu
Iínur mínar, en þess vaT ekki
von, þ.ví sjálfstæðið er tapað í í-
haldið. T.....
Áheit á Strandarkirkju.
35 kr. frá G. D. og frá konu
5 kr.
Nýtt alþingistnannatal.
Fyrirhugað er að gefa út í
vetur alþingismannatal 1845—
1930 — (svipað og alþingis-
mannatal Jóhanns Kristjánsson-
ar), með helztu æfiatriðum þing-
manna og myndum allra þeirra,
sem myndir eru til af.
Vegna þess er þeim tilmælum
beint til þeirra, sem hlut eiga að
máli:
1) að þeir fyrv. alþingismenn,
sem ekM hafa enn sent skrif-
stofu alþingis þær upplýsingar
um æfiatriði sín, sem þeir hafa
verið beðnir um, sendi þær nú
Að Langanesi ®gf
Kleppi
verða framvegis fastar
ferðir daglega
frá kl. 8 40 f. h,
til kl. 11,15 e.h.
BIfrðstu.
Simar: 1529 og 2292.
Góðurmatur.
Saltkjöt,
Kæfa,
Tólg,
Hangikjöt, spik-
feitt, norðan úr Strandasýslu.
Verzlunin FELL,
Njálsgötu 43. Sími 2285.
LandsDekfu mmskóna,
sviirtiK með kpðmleðnpbotnnn-
nm, seljnm við iyrir að eins
3,05. Vlð iiöiam ávait stærsta
árvralið í borginni ai allS'
konar Innisktífatnaði. — Altat
eltthvað nýtt.
Elríkur Leifsson,
skóverzlun. — Laugavegi 25.
SOFFfDBÚÐ
hefir mest úrval af álnavöru.
Morgunkjólatau,
Svuntutvista,
Sængurveiaefni,
Lakatau,
Milliskyrtutau,
Léreft einbreið og tvíbr.,
Ullarkjólatau,
Káputau,
Komið og skoðið.
S. Jóhannesdóttur,
Soffíubúð,
(beSní á aMSti Laad s bankanutn),
tafarlaust, ásamt mynd af sér;
2) að ættingjar látinna þing-
manna sendi skrifstofunni mynd-
ir, sem til kunna að vera af for-
feðrum þeirra eða ættmennum,
sem verið hafa þingmenn, eða
þá bendingar um, hvar hægt
muni vera að fá slíkar myndir.—
Myndum, sem lánaðar kunna að
vera í þessu skyni, verður áð
sjálfsögðu skilað aftur og þaíJr
gaumgæfilega vemdaðar frá glöt-
un og skemdum.
Rltstjórl og ábyrgðarmað«i:
Haratldw Gíiðmondssoa.
\